Dagur - 22.02.1950, Page 2
2
D AGUR
Miðvikudaginn 22. fcbrúar 1950
Vinningarnir í stóra ríkishapp
drættinu hafa brugðizt
800 milljón króna áætlunin var aldrei
nema skýjaborg
Kvikmyndin
„KONUNGUR KONUNGANNA“
Á þessari árstíð gera borgar-
arnir sér betur Ijóst en áður,
hvernig fjárhagur þeirra er og af-
komuhorfur. Er hvort tveggja, að
margir einstaklingar viðhalda
þeim góða sið, að gera upp reikn-
inga sína um nýjársleítið, mynda
sér skoðun á afkomuhorfum árs-
ins og setja sér lífsreglur í sam-
ræmi við þær, og þetta er tími
skattskýrslnanna, er enginn
kemst hjá því að gera grein fyrir
fjárhag sínum og leggja tækifæri
til skattheimtu upp í hendurnar á
tollheimtumönnum ríkisvaldsins.
Vafalaust hafa margir komizt
á snoðir um það nú í þessum fe-
brúarmánuði, er þeir gerðu upp
reikninga ársins sem leið, að það
gengna ár hafi orðið þeim til lít—
illar fjárhagslegrar upplyftingar,
og ekki hafi mátt í milli sjá,
hvort betur veitti tekjum eða út-
gjöldum. Vissulega var á margan
hátt erfiðara að lifa í landi hér á
sl. ári, en oftast áður síðan stríðs-
gróðatímabilið hófst hér, og án
alls efa gerir þorri manna sér
það ljóst, að litlar líkur eru til
þess, að lífið reynist þeim léttar
á hinu nýbyrjaða ári, og viðhafa
þau búhyggindi, að byggja ekki
á óvæntum happdrættisvinning-
um heldur á skynsamlegri áætl-
um um afkomu sína. Sá maður
þætti ekki mikill fjármálaspek-
ingur, sem gerði afkomuáætlun
fyrir nýbyrjað ár með þeim for-
sendum, að honum mundu falla
í skaut vinningar í happdrætti
háskólans eða úr ríkissjóðshapp-
drættinu einhvern tíman síðar á
árinu og hagaði eyðslu sinni og
líferni nú þegar í samræmi við
það. En þótt fæstum einstakling-
um þyki slík hagvísindi giftusam-
leg fyrir eigin pyngju og framtíð,
bregður svo við, að þeir eru æði
margir, sem hafa ekkert við það
að athuga að þjóðarbúskapurinn
í heild sé starfræktur á slíkum
loftköstulum og fram til þessa
hafa hin óábyrgu happdrættis-
sjónarmið átt furðulega miklum
vinsældum að fagna hjá fólki, sem
sjálft gætir hagsýni í lifnaðar-
háttum sínum og gerir skynsam-
legar áætlanir um eigin fjármála-
stjórn.
Útflutningsáætlunin frá 1947.
Þjóðin hefur nýlega fengið að
heyra þann sannleika, að þrátt
fyrir alla nýsköpunina heima í
hlaði á árinu 1949, hafi útflutn-
ingsverðmæti þjóðarbúsins ekki
orðið nema 289 milljónir króna.
Menn hafa rifjað það upp með
sjálfum sér, við lestur þessara
tíðinda, að það var á öndverðu
ári 1947, sem núverandi stjórnar-
formaður lét svo ummælt í
áheyrn alþjóðar, að aldrei hefði
verið „bjartara“ framundan fyrir
þjóðarbúið í heild en einmitt þá.
Um líkt leyti vitnaðist það, að
stjórn sú, er sami núverandi
stjórnarformaður veitti forstöðu,
og hafði kommúnista innanborðs,
hafði látið gera áætlun eina mikla
um fjárhagsafkomu þjóðarbúsins
í framtíðinni eftir að öll „nýsköp-
unin“ væri komin í höfn. Sú áætl-
un hljóðaði upp á 800 milljón
króna útflutning á ári. Á þessum
forsendum mun spádómurinn um
birtuna framundan og „blómann"
í atvinnulífinu hafa verið reistur,
og með tilliti til þessarar áætlun-
ar, mun stjórnarstefnan hafa ver-
ið rekin það sem nýsköpunar-
sijórnin átti eftir ólifað 1947. Það
var í upphafi valdatímabils fyrrv.
stjórnar, sem ræðan um „birt-
una“ var haldin, og mátti af því
ráða, að áætlunin mikla væri
geymd en ekki gleymd, enda er
sannast sagna, að fjármálapólitík
Sjálfstæðisflokksins hafi fram á
síðústu tíma verið meira í sam-
ræmi við sióriCáætlufiina en stað-
reýndirnar.
Happdrættispólitík.
‘Ekki er gjörlá .kunnugt'um það,
hvernig sérfræðingar „nýsköpun-
arstjórnarinnar" komust að hinni
ævintýralegu niðurstöðu, en aug-
ljóst má það vera, að til þess að
útflutriirigsverðmæti þjóðarbús-
ins gæti nálgast þessa stóru upp-
hæð, þurfti márgt að gerá' í senn,
og þá þetta helzt: Endurreisn Ev-
rópu að ganga miklu seinna en
erlendir sérfræðingar gerðu ráð
fýrir og matvælaskorturinn, og
þar með hið háa verðlag á fiski,
að haldast um ófyrirsjáanlega
framtíð. Markaðir jafnan að vera
fyrir hendi eins miklir og íslend-
ingar hefðu lyst á. Fiskurinn
jafnan að ganga á miðin í ekki
minni mæli en á beztu aflaárum
stríðsáranna, gæftir og tíðarfar að
vera með ákjósanlegum hætti,
vinnufriður að haldast í landinu
og öll framleiðsla landsmanna að
vera „toppkeyrð“, þannig að eng-
inu nýtur framleiðsludagur félli
úr. Er þetta þegar álitlegur listi,
en mætti þó lengja hann til muna
enn. En jafnvel þótt ekki sé fleira
talið, má vera augljóst, að það
var ekki líklegra að þjóðar-
búinu yrði að öllum þessum ósk-
um, en sennilegt er hverju sinni
að Pétri eða Páli takist að rétta
við fjárhag sinn með óvæntum
vinningum í happdrættisláni rík-
issjóðs eða happdrætti háskólans.
Þeir munu vera íáir einstakling-
arnir, sem haga lífi sínu í sam-
ra-mi við reikular happdrættis-
vinningavonir, enda mundi slík-
um mönnum ekki verða lengi
stætt á fjárhagslegu sjálfstæði og
trausti samborgaranna. En fiessi
synd virðist hafa hent ríkisfor-
sjónina í miklu stærri stíl. Þjóð-
arbúið hefur lengi verið rekið
eins og telja mætti víst, að því
féllu í skaut stórir vinningar í
happdrætti afla og gæfta, er-
lendra markaða og verðlags. En
það rekur að því fyrir ríkisheild-
ina eins og einstaklinginn, að
óábyrg fjármálapólitík hefnir sín.
Vinningarnir hafa brugðist hrap-
allega. Þjóðarbúið verður að
snúa við á þeirri fjármálabraut,
sem farin hefur verið, og taka að
haga málum sínum í samræmi
við staðreyndir og veruleika.
Þetta sjá raunar allir nú, enda
syngui nú öðruvísi í þeim, sem
áður fyrr höfðu stóru áætlunina
jafnan upp á vasann og töldu
ábendingar um vafasamt gildi
hennar bara „hrunsöng" og „bar-
lómsvæl11. Þjóðin sér nú að fram-
sækin pólitík er ekki tengd óhóf-
legri bjartsýni eða happdrættis-
vinningavonum, heldur raunhæfu
jnati á möguleikunum og betuv
hefði farnast, ef happdrættissjón-
armiðin hefðu verið lögð til hlið-
ar, en ekki haldið í þau þangað lil
í óefni var komið.
I.eiðsaga „bjartsýnismannanna“.
Vafalaust er, að enginn ábyrgur
þjóðfélagsþegn mundi bera mikið
traust til einstaklings, sem lifði
um efni fram ár eftir ár og reyndi
að telja skuldunautum sínum trú
um að hann mundi geta greiít
skuldirnar með happdrættisvinn-
ingum næsta ár. Hins vegar
bregður svo við, að það þykir enn
góð leiðsaga í þjóðmálum, að fela
þeim foringjum, sem létu gera
stóru áætlunina og trúðu henni,
forustuhlutverk, þegar kaldur
gustur reynslunnar sjálfrar hefur
sópað burt þokunni, sem umvafði
800 milljónirnar og eftir stendur
ekkert nema áminning um óhóf-
legt ábyrgðarleysi og óskynsam-
lega bjartsýni. Með þessu er gefið
hættulegt fordæmi, sem íslenzk
stjórnmál og tiltrú ríkisins hafa
naumast efni á að endurtaka.
Stjórnmálamenn þurfa að bera
ábyrgð gerða sinna, a. m. k. þarf
frami þeirra á stjórnmálabraut-
inni að vera háður verkum þeirra,
en ekki skjaldborg þeirri, sem
flokkar geti slegið um misvitra
foringja. Mennirnir, sem stóðu að
stóru áætluninni og hegðuðu hér
eins og 800 milljónirnar lægju
þegar á borðinu, ættu að hverfa
inn í þögnina nú, en aðvörunin
ein standa. En fram til þessa hef-
ur reynslan sannað, að það eru
lítil takmörk fyrir því, hvað ís-
lenzkir stjórnmálaforingjar geta
leyft sér af glappaskotum, a. m. k.
ef þeir eiga að bakhjarli auð og
ættir, án þess að eiga á hættu að
missa mannaforráð og tiltrú
flokka sinna. Sannar það mátt
áróðursins, og jafnframt þver-
brestina í stjórnmálum lands-
manna, og ætti að vera alvarlegt
íhugunarefni og áminning fyrir
hvern kjósanda á komandi árum.
TIL SÖLU:
Chevrolet-vörubiíreið, sex
hjóla, með drifi á öllum
lijólum.
Upplýsingar gefur
ÁRNI JÓNSSON,
Skógargötu 10, Sauðárkróki.
Eg legg það yfirleitt ekki í vana
minn að fara í Bíó. Ekki af því að
ég hafi neina andúð á kvikmynd-
um til skemmtana, sízt ef það eru
góðar myndir, fróðlegar og list-
rænar. En því miður er nú ekki
alltaf því að heilsa, og má þá
sannarlega verja tímanum og að-
gangseyrinum til annars þarfara.
En í gær horfði ég á kvikmynd,
sem er einstæð í sinni röð. Það er
myndin „Konungur konunganna“
sem sýnd er á Hótel Norðurlandi
þessa dagana. Eg tel hana hik-
laust eiria þá uppbyggilegustu
mynd, sem hér hefur verið sýnd,
enda hefur hún farið sigurför um
allan hinn menntaða heim. Og
sérstaklega er vel til fallið að sýna
þessa mynd á þessum árstíma,
föstunni, því hún fjallar aðallega
um píslargöngu Krists. Myndin
sýnir síðasta hluta starfsferils
frelsarans í Gyðingalandi, kom-
una til Jerúsalem, handtöku hans,
dómfellingu, krossdauða og upp-
risu, auk ýmislegra atvika úr lífi
hans. Myndin er leikin af frægum
leikurum og ekkert til sparað að
gera hana sem bezt úi- garði. —
Nú í þessuni rnánúði opnar
Rauðakrossdeildin hér á Akur-
eyri ljóslækningastofu í Hafnar-
síræti 100, þar sem áður var Hótel
Gullfoss. Ljóslækningastofan
verður starfrækt fyrir almenning
í bænum og einkum ætluð börn-
um, sem ekki eru komin á skóla-
aldur. Með þessum aðgerðum er
bætt úr brýnni þörf, því að enda
þótt ljóslækningastofur séu fvrir
í bænum, eru þær ekki fullnægj-
andi. Flest börn þurfa ljósböð yf-
ir veturinn og raunar margir full-
orðnir líka. Mest er þó þörfin hjá
ungum börnum.
Dagur liefur rætt þessa nýju
fyrirætlun við formann Rauða-
krossdeildarinnar hér, Guðmund
Karl Pétursson yfirlækni. Hann
skýrði frá því, að læknar hér
hefðu sannfærzt um það í starfi
sínu, og rannsóknir, sem gerðar
hefðu verið í Reykjavík stað-
festu, að beinkröm í bömum væri
miklu algengari sjúkdómur hér
um slóðir en flesta grunaði. Það
er mjög mikilsvert atriði fyrir
heilsufar og framtíð þjóðarinnar
að vinna gegn þessu með þeim
ráðum, sem til þess eru líklegust
að verða að gagni. Gott viður-
væri, mikil útivist og lýsi forða
beinki-öm, en til fi-ekara öryggis,
ef eitthvað skortir á af hinum atr-
iðunum, eru ljósböð bezta lækn-
ingin og varnarmeðalið. Bai-na-
skóli Akureyrar stai-frækir ljós-
lækningastofu, sem mikið gagn
gerir, en aðgang að henni fá að-
eins börn á skólaskyldualdri. —
Fjöldi fólks notfærir sér þær
Ijóslækningastofur, sem starf-
ræktar eru af einstaklingum í
bænum, en þær fullnægja hvergi
næn-i þörfum bæjarfélagsins.
Einkum er nauðsynlegt, að ung
börn, 1—2 ára, fái ljósböð. Þeim
er hættast við beinkröm. Hin nýja
ljóslækningastofa er stofnsétt
þeirra vegna fyrst og fremst, enda
þótt öðrum verði einnig veitt við-
Undirspilið eru sálmalög og
kirkjuleg tónverk eftir marga
frægustu snillinga. Ometanlegur
kostur er það fyrir þá, sem ekki
skilja enska tungu, að íslenzkur
texti fylgir myndinni. Kristján
Róbertsson guðfræðinemi hefur
talað textann inn á myndina, og
tekizt það ágætlega. Að vísu ber
stundum á því, að textinn og
myndin er ekki sem bezt sam-
ferða, en það kemur ekki alvar-
lega að sök.
Eg vil eindregið ráða fólki til
að sjá myndina. Þeim tíma, sem
til þess fer, er vel varið. Sérstak-
lega vil eg hvetja foreldx-a til að
leyfa börnum að sjá hana. Ollum
mun hún»vera ógleymanleg, ung-
um sem gömlum, og uppbyggi-
legri biblíusögutíma get eg
naumast hugsað mér.
Þakkir eiga þeir skilið, sem
stuðluðu að því að þessi ágæta
mynd er sýnd hér.
Sennilega verður myndin ekki
sýnd á Hótel Norðurlandi oftar,
en verður auglýst hvar og hve-
nær hún verður sýnd næst.
taka eftir því sem tími vinnst til.
Ljóslækningastofan er til húsa í
Hafnarstr. 100, 3. hæð, sem fyrr
segir, og hefur þar til umráða 2
litlar stofur. Húsnæðið er lítið, of
lítið, en vistlegt. Til að byrja
með verður það samt að nægja.
Ljóslækningalamparnir eru nýjir,
frá Philipsvei-ksmiðjunum í Hol-
landi, og hinir vönduðustu. Er
Ingólfur Bjai-gmundsson raffræð-
ingur að setja þá upp. Húsgögn í
Ijóslækningastofuna eru fengin
frá vinnustofu Kristneshælis. —
Ætlast er til þess að stofan geti
tekið til stai-fa í þessum mánuði.
Ljósböðin verða seld við eins
vægu gjaldi ög unnt er til þess að
starfsemin beri sig.
Guðmundur Karl Pétursson
skýrði frá því, að Rauðikrossinn
hér hefði lengi haft áhuga fyrir
því að koma slíkri ljóslækninga-
stofu á fót héi-. Fyrir nokkrum
árum var Rauðakrossdeildinni
hér gefin nokkur fjái*hæð til
styrktar málinu og var það upp-
haf fjárframlaga í þessu skyni. —
Langan tíma tók að fá innflutn-
ingsleyfi fyrir lömpunum, fá þá
afgreidda og flutta til landsins. En
nú er þessari undii-búningsvinnu
lokið og horfur á að ljóslækn-
ingastofan geti tekið til stax-fa
mjög fljótlega. Þessi fyi-sta ljós-
lækningastofa Rauðakrossins hér
er að vísu smávaxin, en hún bæt-
ir samt úr bx-ýnni þörf. Vafalaust
á þessax-i stai-fsemi eftir að vaxa
fiskur um hrygg, og innan tíðar
mun hún komast í það hox-f, að
hér verður völ á fullkomnum
ljósböðum fyrir þá bæjai’búa, sem
þess vilja njóta, fyrir forgöngu
þessa ágæta líknarfélagsskapar.
Dagur vill vekja athygli á þess-
um þætti stai-fseminnar og hvetja
til þess að bæjai-búar veiti fé-
laginu allan stuðning nú og síðar
í menningax-bai-áttu þess.
F. J. R.
ÚR BÆNUM:
Rauði krossinn hér stofnsetur
ljóslækningastofu