Dagur - 22.02.1950, Qupperneq 7
Miðvikudaginn 22. íebrúar 1950
D AGUR
7
MÓÐIR, KONA, MEYJA.
(Framhald af 4 .síðu).
Hér er ekki rúm fyrir meira af
þessu ágæta erindi. Síðan ræddi
ungfrúin mikilvægi uppeldisskil-
yrðanna, þar sem hvert barn er
fætt með aðeins möguleikunum til
þess að ná vissum þroska, bæði
andlegum og líkamlegum. Barnið
er ekki fætt greint, heldur með
möguleikum til þess að ná vissu
greindarstigi, og hver uppvax-
andi þjóðfélagsþegn virðist manni
eiga kröfu á að alast upp við þau
skilyrði, sem veita honum mögu-
leika til þess að ná þeim andlega
þroska, sem hæfileikar hans
standa til. Að endingu ræddi ung-
frúin um óþekkt barna og benti
á að óþekkt og önnur „nervös“
hegðun væri venjulega vísbend-
ing um það, að barninu vantaði
hjálp eða aðstoð til að sigrast á
einhverjum erfiðleikum í um-
hverfinu, sem því væru ofvaxnir
að ráða fram úr hjálparlaust, og
geta þeir erfiðleikar bæði verið
andlegs og líkamlegs eðlis.
í stað þess að rina á vandamál-
in (problem) væri okkur holt að
horfa á barnið, sem sjálfstæðan
einstakling og vinna á hinum já-
kvæða grundvelli og koma þann-
ig í veg fyrir að vandamálin
skapist og slæmar venjur festu
rætur.
Gaf ungfrúin að lokum fjórar
góðar reglur, sem allar mæður
ættu að hafa í huga við uppeldi
barna sinna:
Að sýna barninu ástúð og veita
því með því öryggi til nýrra
framkvæmda.
Að virðar barnið sem sjálfstæð-
an einstakling og hvetja það
þannig til að hugsa sjálfstætt og
gera sitt bezta.
Að veita því hjálp, þegar það
þarfnast hennar og það er oft sem
þess er þörf í smáu og stóru.
Að veita því'staðfestingu eða
viðurkenningu á því í fari þess og
hegðun, sem gott er og æskilegt,
og vísa því þannig leiðina inn
á siðferðilega réttar brautir.
r'-„
— Fiskniðursuðuiðnaður
Norðmanna
(Framhald af 1. síðu).
norski niðiursuðuiðnaðurinn
margs konar fiskvarning, sem
ekki er gerilssneyddur, mest
megnis eru það saltaðar, sykrað-
ar og ki-yddaðar síldarvörur. Þær
geymast ekki eins og gerilsneydda
varan og þarfnast kaldrar
geymslu. En þessi vara er notuð í
veitingahúsum og gistihúsum
víða um lönd.
Niðursuðuvörur vinsælar.
Fyrr á árum, segir ennfremur í
þessari grein, hafði margt fólk
andúð á niðursuðuvörum og voru
þær taldar næringarlitlar. Nú er
þessi skoðun að hverfa og vin
sældir góðrar niðursuðuvöru fara
vaxandi. Vítamínrannsóknir, sem
gerðar hafa verið í rannsóknar
stofnuninni í Stavanger, sýna, að
gerilsneyðing hefur minni áhrif á
vítamínin en hin venjulega mat-
arsuða í heimahúsum. Rannsókn
arstofnunin heldur því fram, að
norskar niðursuðuvörur inni-
haldi verulegt magn af A og D
vítimínum, og að auki ýms önnur
lífsnauðsynleg efni.
í kvöld kl. 9:
Flugvélin
,Bamboo Blonde' |
= Amerísk söngva- og dansa-:
i mynd frá R K O-filmfélag- j
É inu. — Samin af Herman \
Schlom.
Leikstjóri:
Antliony Mann.
Aðalhlutverk leika:
!FRANCES LANGFORD
ásamt
Ralph Edvvards
Richard Martin
Russel Wade
Iris Adrian
o. fl.
❖
Nœsla mynd:
Kona biskupsins
(The Bishop’s Wife)
Samuel Goldwyn-
| kvikmynd, samin.af Robert
I E. Sheriuood og Leonardo
I Bercovici, eftir skáldsögu
Robert Nathans.
I Leikstjóri:
Henry Koster.
| Aðalhlutverk:
Cary Grant
Loretta Young
I David Niven.
iiiiiiiiiiimimiiiiniiiiiiiMiiiiii
MMMMMMI
SKJALDBORGAR
BÍÓ
Nótt í Feneyjum
Skrautleg og skemmtileg
þýzk söngvamynd, með
* lögum eftir
Johann Strauss.
Aðalhlutverk:
Heidemarie Hatheyer
Lizzi Waldmiiller
Harald Paulsen
Hans Nielsen.
t.
auma
upphluti, náttföt, milli-
skyrtur o. fL
ÚR BÆ OG BYGGÐ
Afgr. vísar á.
Höfum fyrirliggjandi:
Kommóður
Fataskápa
Rúmfataskápa
Eldhúsborð og stóla
Smáskápa, o. fl.
T résmíðaverkstæðið
GRÓTTA h.f.
Gránufélagsgötu 49
(útstilling á sýnishornum).
Herbergi
til leigu.
Afgr. vísar á.
Barnavagn
til sölu í
Skipagötu 1 (efstu hæð).
!\ýt ottoman
til sölu.
Afgr. vísar á.
NÝKOMIÐ!
Kvenskór,
svartir, rúskinn
Kven-götustígvél,
brún
Karlmannaskór.
Skóbúð KEA
ítalskt
tómafmauk
ágætt í sósur og
súpur.
Nýlenduvörudeildin
og útibú.
Jörð til sölu
Jörðin Halldórsstaðir í Saur-
bæjarhreppi er til sölu og laus
til ábúðar í fardögum 1950
Semja ber við undirritað
an eiganda jarðarinnar fyrir
apríllok næstkomandi.
20. febrúar 1950.
Sigtryggur Guðlaugsson.
Fæði og þjónusta
á sama stað.
Afgr. vísar á.
Hráolíuofn,
stór og góður, er til sölu.
Afgr. vísar á
□ Rún 59502227 == 2
Föstumessa verður í kapellunni
á miðvikudagskvöldið kl. 8.30. —
Fólk er beðið að hafa með sér
passíusálma. F. J. R.
Kirkjan. Messað í kapellunni
næstk. sunnudag kl. 2 e. h. F.
J. R.
Frjálsíþróttadeild: —
Áríðandi fundur í í-
þróttahúsinu í kvöld
kl. 8.30. — Skemmti-
kvöld verður að Hótel
ICEA (uppi) annað kvöld (fimmtu
dag) kl. 9. Félagswhist. Verðlaun
veitt. Gömlu dansarnir. Frú Þór-
hildur og frú Nanna stjórna. —
Dansað til kl. 1. Góð músik. —
Skíðamól, drengja, 10—16 ára
fer fram í Búðargili sunnudaginn
26. febr. kl. 10 f. h. Væntanlegir
játttakendur skrifi sig á lista hjá
Loftleiðum fyrir kl. 12 f. h á
laugardaginn (25. febr.).
Hjúskapur. Petra Kristjáns-
dóttir og Hannes Halldórsson,
Akureyri. Gift 16. febr. F. J. R.
Eldri dansa klúbburinn heldur
dansleik í Verkalýðshúsinu n.k.
láugardagskvöld, 25. þ. m., kl.
10 e. h.
Barnastúkan „Samúð“ nr. 102
heldur fund í Skjaldborg sunnu-
daginn 26. þ .m. kl. 10 f. h. Nánar
auglýst í barnaskólanum.
Kvenfélagið Framtíðin heldur
öskudagsfagnað að Hótél' Norð
urland í kvöld kl. 9.
Munið stofnfund barnayernd-
arfélagsins að Hótel Norðurlandi
annað kvöld kl. 8.30. Dr. Matthías
Jónassön flýtúr erindi.
SJÓNARHÆÐ. Sunnudaga
skóli fyrir börn og unglinga kl. 1
og almenn samkoma kl. 5 á sunnu
dögum. Allir velkomnir.
Minningarspjöld nýja sjúkra-
hússins og Elliheimilissjóðs Ak
ureyrar fást í Bókabúð Axels.
Fíladelfíá. Sárrikomur verða
Verzlunarmannáhúsinu,' Gránú-
félagsgötu 9. Á miðvikudögum kl.
5.30 e. h.: Saumafundir fyrir ung-
ar stúlkur. — Á fimmtudögum kl.
8.30 e. h.: Almennar samkomur.
Á laugardögum kl. 5 30 e. h.:
Drengjafundir. — Á sunnudög-
um kl. 1.30: Sunnudagaskóli, og
kl. 8.30 e. h.: Almennar samkom-
Söngur og hljóðfærasláttur.
Verið hjartanlega velkpmin.
Samkoma næsta laugardags-
kvöld kl. 8.30 í Sjónarhæðarsal.
Allir velkomnir, en ungu fólki
sérstaklega boðið. Sæmundur G.
Jóhannesson.
Svifflugfélag Akureyrar heldur
öskudagsdansleik fyrir félaga og
gesti í Samkomuhúsinu í kvöld
kl. 9.
I. O. O. F. = 1312248i/2 =
Æskulýðsfélag
Akureyrar-
kirkju. — 1.
deild (fundur í
kapellunni kl.
8.30 e. h. n. k.
sunnudagskvöld. — Klúbbarnir:
Spilaklúbbur, 1. deild, í Rotary-
salnum í kvöld kl. 8.30. — Tenn-
isklúbbur, 3. deild, fimmtudag
kl. 7.30 e. h. — 2. deild kl. 9 e. h. í
fundarsal ÍBA. — Handbolti,
drengja, allar deildir föstudag kl.
5—6 e. h., sama dag: Taflklúbb-
urinn kl. 7.30 e. h. í fundarsal
Skjaldborgarbíós, sama dag
blaðamannaklúbburinn kl. 8.30 e.
h. í kapellunni. — Biblíulestrar-
klúbburinn laugardag kl. 5—6.
Nú ciga fuglarnir erfitt með
að afla sér fæðunnar. Mun-
ið eftir að gefa þeim.
FRÁ STARFINU í kristniboðs-
húsinu Zion næstu viku. Sunnud.
kl. 10.30 f. h. sunnudagaskólinn;
kl. 2 drengjafundur (eldri deild);
klukkan 8.30 e. h.: Almenn
samkoma, séra Jóhann Hlíðar
talar. Þriðjudag kl. 5.30 fundur
fyrir telpur 7—13 ára. Miðvikud.
kl. 8.30 e. h.: Föstuhugleiðing.
(Takið passíusálmana með). —
Fimmtudag kl. 8.30 fundur fyrir
irngar stúlkur. Laugardag kl. 5.30
drengjafundur (yngri deild).
Ritsafn. Blaðið vill vekja at-
hygli á auglýsingu Árna Bjarnar-
sonar, á öðrum stað hér í blaðinu,
þar sem hann býður ritsafn Jóns
Trausta með hagkvæmum
afborgunarskilmálum.
Akureyrarkonur! Kvennadeild
Slysavarnafélagsins heldur aðal-
fund sinn í Lóni (Geysishúsi)
þriðjudaginn 28. febrúar kl. 9 e.
h. Mætið allar, takið með ykkur
bollapör!
Látinn er hér í bænum nú ný-
lega Sigursteinn Steinþórsson,
fyrrum bóndi á Vindheimum og
afgr.maður í benzín- og olíusölu
KEA, ágætlega kynntur maður og
drengur hinn bezti. Hann var
jarðsunginn að Möðruvöllum í
Hörgárdal sl. mánudag.
Klúbburinn „Allir eitt“ beldur
dansleik að Hótel Norðurlendi
laugardaginn 25. febr. næstk. kl.
9 e .h. Þeir félagar, sem ekki hafa
aðgöngumiða, geta fengið þá við
innganginn. Borð ekki tekin frá.
Stjórnin.
Stúkan Ísafold-Fjallkonan nr. 1
heldur fund mánudaginn 27. febr.
næstk. í Skjaldborg. Fundarefni:
Venjuleg fundarstörf og inntaka
nýrra félaga. Stúkublaðið verður
lesið og hagnefnd skemmtir. —
Sækið fundinn vel. Æðstitemplar.
Jörð fil sölu
Jörðin Draflastaðir í Saur-
bæjarhreppi er til sölu «» laus
til ábuðar í næstkomandi far-
dögum. Töðufall ca. 400 liest-
ar. Ræktunarskilvrði áaæt. —
Sauðfjárbeit góð. — Nýtt
íbúðarhús.
Nánari upplýsingar gefur
undirritaður, svo og hrepp-
st jóri Valdemar Pálsson, Ham-
arsstíg 3, Akureyri, sími 429.
I ilboð í jörðina sendist
undirrituðum eiganda fyrir
31. marz n. k.
Draflastöðum,
22. lebr. 1950.
Benedikt Sigfússon.
RAUÐLEIRS-
VÖRURNAR
fi'á ,,Funa“ eru komnar.
Nýjung í íslenzkum iðn-
aði.
BLÓMABÚÐ KEA
Nýkomið:
Deífa-frosfvökvi
Olíusölndeild.