Dagur - 22.03.1950, Blaðsíða 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 22. marz 1950
Hvers vegna myndar Framsóknar
flokkurinn ríkissfjórn?
Ástand atvinnumálanna.
Atvinnuvegum og fjármálum
íslendinga er þann veg komið, að
yfir atvinnulífinu vofir alger
stöðvun. Togararnir eru á helj-
adþröminni, ef eitthvað bjátar á.
Vélbátaflotinn er alls ekki rekstr-
arhæfur og safnar stórskuldum.
Ríkissjóður bjargar gjaldþrotum
útgerðarfyrirtækja í hundraða-
tali með því að lögfesta, að
óheimilt skuli vera að ganga að
eignum útgerðar fyrir kröfuhafa,
jafnvel þótt sjóveðsréttur fylgi
kröfunni. Til þess að hindra
stöðvun sjávarútvegsins eru af-
urðirnar verðbættar með niður-
greiðslum úr ríkissjóði. Ríkis-
sjóður aflar svo tekna með al-
mennum álögum á landsmenn.
Allir viðurkenna nú, að svo getur
ekki lengur gengið, því að við
hver áramót hækka niðurgreiðsl-
urnar stórlega. Þess er að vænta,
að við næstu áramót næmu þess-
ar greiðslum gífurlegum upphæð-
um og miklu meiri en í vetur. Af
þessu er ljóst að styrkjaleiðin er
engin leið heldur beinn vegur til
stöðvunar. En með stöðvun sjáv-
arútvegsins grúfir neyð og hrun
yfir öllum þáttum atvinnulífsins
og skortur yfir almenningi.
Það . er ekki hægt að halda
áfram að lifa menningarlegu lífi
ó íslandi án þess að framleiða og
starfa, en um það eru nú tvísýnar
horfur.
Framsóknarflokkurinn hefur
einn allra flokka varað þjóðina
við þeim ógöngum, sem hún
stefndi út í, með fjármálastefnu
seinustu ára. Flokkurinn hefur
því ekkert að fela nú. Hann þarf
ekki að kyngja öllum stóryrðun-
um um blómann og bjartar hliðar
dýrtíðarinnar. Framsóknarflokk-
urinn hefur alltaf lagt áherzlu á
það, að því seinna sem snúið yrði
við á þeirri braut sem valin hefur
verið, þeim mun erfiðari yrði
viðreisnin.
Alger stefnubreyting í
fjármálum.
Enda þótt Framsóknarflokkur-
inn eigi ekki sök á því, hvernig
nú er komið fjármálum íslend-
inga, fer fjarri, að flokkurinn
hyggi á að draga sig í hlé og
segja: Jæja, herrar mínir, þið
hafið skapað núverandi ástand
efnahagsmálanna, gerið svo vel
og bætið úr því sjálfir. Framsókn-
arflokkurinn finnur nú eins og
jafnan áður til þeirrar ábyrgðar,
sem stuðningsmenn hans og þjóð-
in öll ætlast til af honum. Hann
veit, að ef landið verður til lang-
frama stjórnlaust, er aðeins tíma-
spursmál, þar til við verðum að
leita til einhvers stórveldis um
hjálp. En enginn íslendingur
óskar, að sá verði endir á sjálf-
stæðisbaráttu okkar.
F ramsóknarflokkurinn hefur
alla tíð í sögu fjárhags- og at-
vinnumála lagt metnað sinn í það
að koma fram með jákvæðar til-
lögur miðað við i-aunhæfar
ástæður á hverjum tíma. Þannig
hugsar flokkurinn ennþá. Það er
minna atriði, hvað vinsælt kann
að vera í bili. En það er trú
flokksins að þjóðin skilji og meti
viðleitni hans og sé fús til að
gera átak til að tryggja efnalega
framtíð sína, ef hún finnur að
stjórnarvöldin vinna á þeim
grundvelli, eða viðreisnin skapi
réttlátara þjóðfélag og réttlátari
skiptingu þjóðarteknanna en
verið hefur.
Framsóknarflokkurinn hefur
myndað ráðuneyti, sem hefur
forustu um viðreisnina. Miklar
vonir standa til þess, að íslenzkri
framleiðslu verði borgið í bili,
hvað sem svo tekur við. En rétt
er að glöggva sig vel á því, að sú
fjármálastefna, sem ríkt hefur á
seinasta áratugnum er ekki líkleg
til bjargar. Þess vegna hefur
ráðuneyti Framsóknarflokksins
gjörbreytt um fjármálastefnu. —
Stuðningsflokkar stjórnarinnar
hafa nú samþykkt á Alþingi
löggjöf, sem er undirstaða og
raunar efnislegur stjórnarsátt-
máli. Færustu hagfræðingar
þjóðaiúnnar hafa mótað fjármála-
stefnu stjórnarinnar. -Þeir hafa
unnið viðJilið hg'sem ráðun.autar
«*■ -5 JL X. X ~ .
alþingismáríríá. Þéss vegna- trúír
þjóðin á stjórnarstefnu Fram-
I sóknarflokksins nú og væntir
skilnings og velvilja stjórnarinn-
ar. Þess vegna fagna íslendingar
styrkri stjórn í landi sínu. Þeir
trúa því, að hin breytta fjár-
málastefna, undir forystu Fram-
sóknarflokksins, verði landi og
lýð til blessunar.
Heiðarleg framkvæmd
stjórnarstefmmnar.
Löggjöf og lagaframkvæmd er
sitt hvað. Það er ekki nægilegt
að lögfesta hitt og þetta og fram-
kvæma svo ekki sjálf lögin. Þess
vegna ríður meira á því en
nokkru sinni fyrr, að lögin um
gengisskráningu o. fl. verði
framkvæmd út í yztu æsar. Við
vitum, að gengisfellingin fram-
kvæmir sig sjálf. En lögin eru
margbrotin og ráðstafanirnar í
heildarsamræmi, þannig, að ef
látið verður undir höfuð leggjast
um framkvæmd sumra ráðstafan-
anna, má vera að misræmi skap-
ist. Það er gert ráð fyrir að allir
fórni nokkru. Verðlag á nauð-
synjum hækkar eitthvað og enda
þótt síðar verði hækkun á vísi-
tölu leggur þetta óhjákvæmilega
byrðar á borgarana í bili. En
jafnframt því, sem allur almenn-
ingur leggur á sig byrðar, verða
þeir í-íku að gjalda meiri fórnir
en áður eru dæmi til. Skattui’inn,
sem á þá er lagður er hærri en
efnaðri stéttirnar í ríki, sem hef-
ur tapað stríði, hafa þurft að
greiða. Auk þess þurfa þeir efn-
aðri að greiða hærra verði lúxus,
sem kostar erlent fé.
Þess er og að gæta, að verka-
lýðssamtökunum er á engan hátt
troðið um tær. Samningsréttur
þeirra um kaup og kjör er frjáls
samkvæmt lögunum. En þess er
að sjálfsögðu vænzt, að verkfalls-
rétti verði ekki beitt á ósann-
gjarnan hátt. En það ríður á
mestu, að starfað verði af heil-
indum af öllum aðilum. Því að-
eins er von til að vel farnist fyrir
þjóðina í heild.
Um leið og þjóðin fagnar nýrri
og mjög sterkri þingræðisstjórn í
landinu gerir hún þær kröfur, að
lögin um gengisskráningu o. fl.
verði framkvæmd af festu og ör-
yggi. Það hlýtur að vera skilyrði
fyrir samhug og samstöðu þjóðar-
innar.
Framsóknarflokkurinn trúir
þvíy að hi.trfjáimála-
stefna tryggi, að'svó’ihiklu leyti
sem það er unnt, efnalega fram-
tíð þjóðarinnar. Hann mun vinna
af heilum hug að því að fram-
kvæma lögin þannig, að þau komi
að notum. Eins og áður mun hann
vinna heiðarlega að framgangi og
velferð þjóðar sinnar.
Fimdizt hafa
eyrnalokkar og hárkambur
í samkomuhúsinu að Saur-
bæ. Hafa sennilega týnzt á
síðustu samkomu þar, 25.
iebrúar. Réttur eigandi vitji
þeirra til undirritaðs.
Baldur Halldórsson,
Hleiðargarði.
VINNA
Stúlka (ískast nokkra tíma
á dag, 2—3 daga í viku.
KRISTINN JÓNSSON,
Hafnarstr. 90. Sími 196.
V alash
er sérsakt heiti á ávaxtadrykk,
senr eingöngu er franrleiddur úr
APPELSÍNUSAFA
V a 1 a s h
er aðeins framleiddur í
Efnagerð Ákureyrar hi.
...................
í Gróandi jörð: j
] Hugsjónir og landbúnaður I
i Eftir Jón Þorbergsson á Laxamýri I
f „Sú kemur tíð að sárin foldar gróa, j
sveitirnar fyllast, akrar hylja móa, i
i brauð veitir sonum móðurmoldin frjóa, :
1 menningin vex í lundi nýrra skóga“. 1
z E
I ÞETTA MERKILEGA erindi Hannesar Hafstein, minnir 1
i okkur á hugsjónir, sem bundnar eru við landbúnaðinn og sem :
i landbúnaðarfólk þarf óaflátanlega að lialda lifandi, virða og i
i auka og umfram allt að halda í hávegum. Mannlíf án hugsjóna 1
i er einskis virði. Ef aðeins er hugsað um munn og maga og i
i dagleg makindi þá hafa mennirnir raunar ekkert sér til ágætis :
i fram yfir dýr merkurinnar. Heimsmenningin er: Göfugar i
i hugsjónir mannanna og framtak tengt við þær. Það eru gjafir |
i til mannanna frá ahnættinu. Að horfa hátt eg hugsa göfuglega, i
| er fyrsta sporið til að hagnýta'gjafirnar. Segja má að hugsjón- í
i irnar séu á marga vegu og hafi hverjar sitt takmarkaða og i
| takmarkalausa rúm. Það eru hugsjónir urn fegurra og betra =
i líf, um framtak til fegrunar og umbóta. Hugsjónir um að vaxa i
i sjálfir af framtakinu, vcra þátttakandi til uppfyllingar tímans, i
i í baráttunni fyrir vaxandi fegurð lífsins, fyllingu þess, göfgi i
i og gæðum. :
i Hugsjónir um líf í réttu sambandi við annað líf. Þetta er i
i hugsjón allra hugsjóna, án hennar renna allar aðrar hugsjónir i
i út í sandinn. i
f STEINGRÍMUR heitinn Matthíasson læknir skrifaði grein, :
i sem hann nefndi: „Annað líf í þessu lífi“. Hugsjónirnar eiga |
i að vaka í okkur, svo að við komum á öðru lífi í þessu Jífi. En |
i miklu betra lífi. Það er aðalverkefni heimsmenningarinnar. i
i Menn geta farið ýmsar leiðir til að þjóna hugsjónum. En i
i engin atvinnugrein eða framleiðsluþáttur, með þjóðunum, |
i sameinar jafnvel göfugar hugsjónir og verklegt framtak, sem |
i landbúnaðurinn. Alltlramtak , ræktun er framkyæmd á hug- :
i sjón, sem miðar að því að fegra og bæta lífið. Mér kemur til i
j hugar Jaðarmn í Noregi. Það er stór flatlendisspilda, syðst, f
i vestan fjalls. Skömmu eftir aldamótin átti eg tal við gamla |
f menn þar í byggð. Þeir inundu vel þá tíma er framtak og :
i getuleysi var svo mikið að þeir máttu stinga upp kornakrana i
f á vorin, líkt og við hér stingum upp smágarða. „Da stod man i
i og spadde hilc dagene,“ sögðu þeir. Þeir mundu vel hvernig |
f hérað þetta leit út áður en Norðmenn liófu sitt stórfellda |
f ræktunarstarf — á síðara helmingi 19. aldar. — Þá voru á i
f Jaðrinum bændabýli á stangli, en meginhluti landsins voru \
: grýttir ásar með fátæklegum holtagróðri og mýrarsund á milli |
i þeirra, með lélcgum hálfgrasagróðri. Nú er þessi stóra spiida j
f nær öll orðin akrar, tún, garðar og skóglendi. Stærstu fram- i
i ræsluskurðir eru orðnir að stórum vatnsföllum, grjótið úr ás- |
f unutn er sprengt burt og horíið, komið í hús og girðingar í i
i byggðinni, selt til borganna og jafnvel af landi burt. Áður lifði |
f fólk þarna við lítinn kost í strjálbýli,. með hið ljóta landslag i
i daglega fyrir augum. Nú cr þetta orðin fögur, þéttsetin byggð, :
f þar sem fólkið býr blómabúum, við svo góðan fjárhag, að i
i óvíða eða hvergi mun hann betri vera í byggðum Noregs. i
f Þarna má sjá hvernig „hugsjónir rætast“ og „akrar hylja móa“, :
i þarna má sjá hvernig jörðin skilar aftur erfiði og svitadropum \
f jarðyrkjumannsins, þarna má sjá hvernig framkvæmd jarð- f
i ræktarhugsjónarinnar fegrar og bætir lífið og bætir fólkið i
f sjálft. Því að góð, holl, nauðsynleg og drengileg störf, bæta i
i allan manninn. Þótt okkar land sé enn mjög lítið ræktað, eig- i
f um við þó hliðstæð dæmi að bcnda á, meða einstakar jarðir. :
i En hvergi er hér til fullræktuð sveit, eða hérað, cða jafnvcl i
f nokkur sveitajörð, svo skammt erum við komnir, íslendingar, :
i í ræktun og þá líka í aðferðum og þekkingu á því að lifa við i
f ræktað land og lítið annað. f
••’IIIIIIM(l/l|(|llllllllllllll(«llllllllllll/llllll((lll(l|(lll(llllllllllllllll(ll(ll(lllllll(llllll|ll|llllllllllll(lll(*MIHIMmilllll(>
V
•>milMIMIMIIIIMIIMIIIIIIIIMIIIIMIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMMIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIMIIIimilMIMIIMIIMIMIMIIIIIIIIMI<,*r
I Happdrætii Háskóla fslands |
Endurnýjun til A. flokks lielst 24. marz og á að vera f
f lokið 6. apríl. f
i Dregið verður 11. apríl næstkomandi.
Bókaverzl. Axels Krist jánssonar h.f.
'ofOlffllMIIMIIItlMMIIIMMIMMMIMIIMMMIMMIIIMMIMIIMIMIMIMIMIMIMMMMMMMMIIMIMItlMIIMMIMIMIMMMIIIIIMIir
AIJGLÝSIÐ í DEGI
HKHKKHKHKítKl-íKHKHKHKHKíIKHKHKHKí-íKltKHKHKHKí-tKítKíJKHKK