Dagur - 22.03.1950, Blaðsíða 6
6
D A G U R
Miðvikudaginn 22. marz 1950
;J555S55555S55SSSS555S5$S55S55$SS$5SSS5SS55S555SSSSS5SS5S55S5555SS55S^
LÁITU HJARTAÐ RÁÐA!
Saga eftir Sarah-Elizabeth Rodger
16. DAGUR.
^^ssssssss
ÍÞRÓTTIR
Og
ÚTILÍF
Ritstjóri: JÓNAS JÓNSSON
STOKKMOT.
Skíðamóti Akureyrar var haldið áfram
sl. sunnudag með stökkkeppni í Mið-
húsaklöppum. Nú er kominn nógur snjór
og veður var hið ákjósanlegasta. Þótt
ekki hafi oft gefizt tækifæri til að æfa
skíðastökk í vetur, er nú þátttaka samt
með bezta móti eða um 20 alls í þessum
hærri aldursflokkum. Áhorfendur voru
þó enn fleiri. Annars voru merkissam-
komur í bænum þennan dag og influenza
hæstráðandi í mörgum húsum í bænum,
svo að áhorfendur voru vonum fleiri. —
Helztu úrslit urðu sem hér segir: •—
í A- og B-flokki:
1. Bergur Eiríksson, K. A., lengsta stökk,
27.5 m. Stig alls 217.2.
2. Magnús Ágústsson, M. A., lengsta stökk
28.5 m. Stig alls 216.3
3. Baldvin Haraldsson, K. A., lengsta
stökk 27,5 m. Stig alls 211.7.
4. Björn Halldórsson, Þór, lengsta stökk
27,0 m. Stig alls 201.7.
, .. '■* •- • • ' * • V.'v' -1
Aldursflokkur-17.—19 ára:
1. Hérmann' Ingimarsson, - Þór, léngsta
stökk 27,0 m. Stig alls 220.
2. Haukur Jakobsson, K. A., lengsta stökk
26.5 m. Stig alls 212.8.
3. Kjartan Kristjánsson, M. A., lengsta
stökk 26,0 m. Stig alls 212.2.
4. Jón Hallsson, M. A., lengsta stökk 25,0
m. Stig alls 210.6.
• ■' -í i
Hermann Ingimarsson, Þór, t. v., hlaut flest stig á tveim
stökkmótunum á Akureyri í vetur. Með honum hér er Birgir
Sigurðsson, Þór, 2. í A-fl. í svigi Stórhríðarmótsins í vetur.
(Framhald).
„Þú hefur ímyndað þér það,“
sagði hún. „Og það er ekki fall-
ega eða riddaralega gert af þér,
að segja það við mig hér.“
„Eg er upp úr því vaxinn að
gera mér rellu út af slíkum hlut-
um,“ sagði hann og lagði vindl-
inginn frá sér á öskubakkann.
Áður en hann gat áttað sig á því,
hvað hann ætlaði sér, hafði hann
tekið utan um hana.
„Nei,“ hrópaði hún og reyndi
að losa sig. En hann lét það ekki
á sig fá, hélt henni þétt upp að sér
og kyssti hana lengi og innilega.
„Herra minn trúr, ef eg hefði
haft vit á því að gera þetta fyrir
svo sem ári,“ sagði hann um leið
og hann sleppti henni. En fyrir
ári hafði hún beygt sig niður að
honum, þar sem hann lá á sjúkra-
rúmi og kysst hann. Síðan hafði
margt breytzt, en það var til
einskis að lifa í fortíðinni.
„Það er tilgángslaust að ímynda
sér að maður lifi enn í fortíðinni,11
sagði hún. „Þetta er nútíminn.
Nú er Jenny og Terry. Því máttu
ekki gleyma. Þú hefur engan rétt
til að gerá þetta.“
„Hvorugt okkar er gift,“ sagði
hann.
„En við verðum það bráðlega.
Þú átt að giftast Jenny í júní og
Hún þagnaði er hún mundi að
Terry hafði talað tun að brúð-
kaupið stæði í næstu viku.
„Hvenær?“ spurði hann.
„Bráðlega," svaraði hún.
„Það kemur ekki til mála,“
sagði hann.
„Eg er hrædd um að þú hafir
ekkert yfir mínum málum að
segja, Rush,“ svaraði hún nærri
því hrygg í bragði.
Hann reyndi aftur að taka utan
um hana, en hún varnaði honum.
„Þetta er ekkert svar,“ sagði
hún. „Eg er ekki eins og Jenny.
Eg er ekki hrædd við að hugsa,
jafnvel ekki í miðjum kossi.“
„Þú segir ósatt,“ sagði hann,
„en þú ert falleg.“
„Hættu, Rush. Við skulum ekki
særa hvort annað. Minnstu þess
að við vorum eitt sinn góðir vinir
og félagar.“
„Og hefðum átt að eigast,"
sagði hann og kyssti hana.
Alison fann mætavel, að nú var
hún á hættunnar stund. Hún
reyndi að halda dauðahaldi í reið-
ina, sem nú var eina vopnið, sem
hún átti eftir í baráttunni við
hann. Hann hafði komið beina
leið frá Jenny til hennar. Eftir að
hafa látið hana sigla sinn sjó í
heilt ár og hafa gert út af við
vonir hennar um að hún fengi að
njóta hans, kom hann aftur þegar
það var orðið of seint.
Rags ýlfraði og nuddaði sér upp
yið fætur hennar.
Alison hrökk upp úr hugsunum
sínum og vaknaði til veruleikans
á ný.
„Þú verður að fara“, sagði hún.
Ekki var hægt að ráða tilfinn-
ingar hans af svipnum. Hann
greip vindling úr vindlingaöskju á
borðinu. „Jæja“, sagði hann svo.
„Þú ert ennþá prinsessan í turn-
inum — og eftir erfitt stríð og
ennþá erfiðari frið — heil og
óskemmd."
„Finnst þér það svo undarlegt?1
„Mér finnst það fremur undar-
legt.“
Alison þóttist geta ráðið það af
svip hans og tali, hvað hann var
að fara. Hann átti við.að Jenny
væri ekki lengur prinsessan í
turninum.
Henni sárnaði mjög við hann
og þessi sárindi urðu brátt eins
og olía á þann eld, sem undir niðri
brann. Það var móðgun við hana,
að hann skyldi hafa leyft sér að
heimsækja hana á þennan hátt.
Hún reyndi að stilla skap sitt, og
sagði: „Það er kominn tími til að
þú farir heim. Við eigum ekki
lengur neitt ótalað saman.“
„Viltu heldur -að okk-ur- verði á
ógurleg mistök en að við gætum
að okkur í tíma?“
„Þú tilheyrir Jenny — það eru
engin mistök,“ svaraði hún. „Hún
er ung — ef til vill óreynd og
fljótfær — en hún er ástfangin af
þér og þú getur ekki leyft þér að
bregðast henni.“
„Eins og þú vilt,“ sagði hann og
seildist eftir fx-akkanum sínum,
sem hann hafði lagt frá sér á stól-
bak. „Þá skulum við halda áfram
að lifa leiðinlegu og ómerkilegu
lífi innan um leiðinlegt og ómerki
legt fólk. Þetta gera flestir hvort
sem er. Unga kynslóðin okkar
hefur þrælazt í gegnum styrjold-
ina til þess að sökkva upp í háls
í leir og moði friðarins hér
heima
Hún opnaði dyrnar þegjandi,
treysti sér naumast til þess að
hafa gát á tungu sinni, ef hún
talaði.
„Jæja,“ hélt hann áfram. „Ég
gerði mitt bezta. Góða nótt, prins-
essa. Það var leiðinlegt að þú
skyldir vera svona óskaplega
drembilát.“
Hún heyrði fótatak hans í stig-
anum.
Það var ekki fyrr en morgun-
inn eftir, þegar hún vaknaði við
það að Rags var að sleikja hönd
hennar, að það, sem inni fyrir
bjó, brauzt fram. Hún grét sárt
og lengi ofan í koddarm sinn.
Hundurinn nuddaði sér upp
við hana. „Vei-tu rólegur, Rags,“
sagði hún. „Eg skal hætta — ég
skal gleyma. Við skulum bæði
gleyma því, að hann hafi komið
hér.“ En henni gekk erfiðlega að
(Framhald).
Þriggja manan sveitarkeppni um
Morgunblaðsbikarinn
vann sveit Knattspyrnufélags
Akureyrar með 641.7 stigum. —
2. sveit M. A. með 639.1 stig. — 3.
sveit Þórs með 623.4 stig.
Stökkmeistari Akureyrar 1950
er þá Bergur Eiríksson. — En
stighæsti maður þessa stökkmóts
— sömuleiðis í stökkkeppni Stór-
hríðai'mótsins — er Hermann
Ingimarsson.
Magnús Brynjólfsson
hefur verið austur á Húsavík
uudanfarið að þjálfa skíðamenn.
Hann er nú heim kominn og
verður á næstunni með skíðar
mönnum hér, séi'staklega til imd-
irbúningsþátttöku í Skíðamóti
fslands, sem á að verða á Siglu-
firði um páskana.
Frá Skautafélagi Akureyrar.
Eins og getið var um í síðasta
íþróttaþætti var innanfélagsmót
Skautafélagsisn sunnudaginn 12.
marz sl. Keppt var í þrem flokk-
um og náðist góður árangur, a. m.
k. svo að íslandsmetið — ný-
fædda — hækkar strax í tveim
greinum, — eldri flokkunum.
Beztu árangrar:
500 metrar:
1. Jón Dalm. Ármannss., 56.2 sek.
2. Þorvaldur Snæbjöi-nss. 56.8 sek.
1500 metrar:
1. Hjalti Þorsteinsson 3.13.0 mín.
2. Jón Dalm. Ái-mannson 3.19.6
mín.
500 m., drengir 14—16 ára:
1. Óskar Ingimarsson 68.9 sek.
2. Jón Viðar Guðlaugss. 73.8 sek.
300 m., drengir 14—16 ára:
1. Ingólfur Ármannsson 48.8 sek.
2. Guðlaugur Baldursson 49.3 sek.
Skautafélagið bíður færis að
koma á Skautamóti Akureyrar.
Gefist svell einhvem næstu
sunnudaga er mótið ákveðið. Þótt
skautahlaup sé ekki mikið iðkað
á Akureyri, og þá sízt utan
Skautafélagsins, má þó vænta að
fram komi enn góðir hlaupai-ar til
keppni við þá, sem hér er frá
sagt. Ættu bæjarbúar ekki að
sitja sig úr færi, ef til kemur, að
horfa á kappana og njóta skemmt
unar og jafnframt auka áhuga
fyrir þessai-i glæsilegu og ágætu
vetraríþrótt.
Valash
HOLLUR
HRESSANDI
SVALANDI
Enginn annar drykkur
er honum fremri.
Efnagerð Akureyrar h.f.