Dagur - 29.03.1950, Blaðsíða 5

Dagur - 29.03.1950, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 29. marz 1950. DAGUB 5 ,rRauða vitamínið"- nýtt amerískt undralyf - hefur furðulegan lækningamátf Nýir meguleikar til stóraukningar á kjöt- framleiðslu vegna þessarar uppfinningar íþróttir og útilíf f síðasia eintaki fréttablaðs Efnahagssamvinnustofnunar Mar shalllandanna er greint frá því, að Frakkar hafi nú, fyrir tilstilli Marshall stofnunarinnar, fengið fyrstu sendinguna af nýju amer- ísku undralyfi, sem hefur meiri lækningamátt gagnvart blóð- leysissjúkdómum, en nokkurt annað lyf. Lyf þetta er kallað „Rauða vítamínið“ eða Vítamín B—12, og er aukaframleiðsla við strepto- mycin-fiamleiðslu. Lyfið örvar framleiðslu beinamergsins á blóðkornum og er miklu hrað- virkara og þægilegra í notkun en hin venjulegu lyf, sem notuð hafa verið í slíkum tjlfellum, og unn- in eru úr dýralifur. Lækninga- máttur rauða vítamínsins er furðu lega mikill, segir í fréttagrein þessari ,eða sem svarar því, að 2 grömm af lyfinu nægi til inn- sprautingar í 200.000 tilfelli. „Hið furðulega rauða vítamín“. Þessi fréttagrein er stutt og ónákvæm. En.svo vel vill til, að í síðasta hefti ameríska ritsins Reader’s Digest, sem hingað hef- ur borizt, er löng grein um lyf þetta eftir hinn kunna lækni og rithöfund Paul de Kruif. Fara hér á eftir nokkur atriði úr grein hans, sem hann kallar „Hið furðulega rauða vitamín“. Hann segir m. a. svo: Lækningamáttur rauðu kryst- allanna í hinu nýja Vítamíni B-— 12, er stórfenglegur. Ein teskeið inniheldur meira en nóg magn til þess að bjarga lífi 50.000 manna. Brot úr milljónasta hluta úr únsu af þessu undralyfi nægir til þess að halda í skefjum flestum blóð- leysissjúkdómum og hinum lífs- hættulegu taugahrörnunarafleið- ingum þeirra, hann læknar al- ræmda hitabeltissjúkdóma (sprue) og hrekur þreytu sem fylgir ýmsum öðrum sjúkdómum á brott.“ Síðan rekur Paul de Kruif samtöl sín við fólk á bandarískum spítölum, sem notið hafa lyfs þessa, og virðast þau leiða í ljós, að lyfið hafi gert dauðvona menn alheilbrigða á skömmum tíma. Fólk þetta þjáðist af ýms- um blóðleysissjúkdómum (ane- mia) og_ taugahrörnun samfara þeim. Haim skýrir síðan frá því, að mögulegt sé að- framleiða hið nýja B—12 vítamín ótakmarkað. Lyfið var. fy.rst einangrað árið 1948, og var það árangur starfs, sem hófst fyrir 25 árum, er nó- belsverðlaunahafinn í læknisvís- ihdum, dr. Minot, uppgötvaði að stór, daglegur matarskammtur af lifur hjálpaði þeim, sem þjáð- ust af blóðleysissjúkdómum. — Gallinn á þessari læknisaðgerð var, að sjúklingarnir þurftu að borða mikið magn af lifur til þess að halda lífinu. Farið var að sjóða kjarna úr lifrinni og sprauta þeim í sjúklingana. Og mikil framför hefur orðið á þessu sviði á und- anförnum árum. En þessar sí- felldu innsprautingar voru óþægi legar og gátu stundum leitt til kvilla og sjúkdóma. Var hægt að finna einfaldari aðferð? Lifrin er samsett af þúsundum efna, og samsetningin er mjög flókin. Gat verið, að eitthvert eitt þessara efna væri hinn máttugi læknir? Leitin stóð í mörg áf. Erfiðleik- arnir voru einkum þeir, að til- raunadýr með blóðsjúkdóma voru ekki til. Árið 1946 komst bakteríufræðingurinn dr. Mary Shorb í Bandaríkjunum að því, fyrir tilviljun, að gerlar þeir,.sem sýra mjólk, uxu furðulega við það áð þeim var gefið sérstakt lifrar- efni og þá það helzt, sem spraut- að var í sjúklinga til þess að halda í þeim lífinu. Þessi upp- götvun leysti tilraunadýravanda- málið. Samstarf vísindamanna leiddi til þess, innan tveggja ára, að undralæknirinn, sem hið óþekkta efni var kallað á rann- sóknartímabilinu, var leiddur fram í dagsljósið sem örsmáir, rauðir kristallar. 1/30 úr únsu var allt magnið, sem vísinda- mennirnir gátu fengið úr heilli smálest af lifur. En hvílíkur máttur var fólginn í þessu únsu- broti! Innsprauting örsmárra skammta af lyfinu í blóðveikis- sjúklinga leiddi til þess, að beina- mergurinn hóf aftur að framleiða rautt blóð á heilbrigðan hátt. — Lyfgjöfin var svo örsmá, að hún var ósýnileg með berum augum. En þennan mátt geymdi hún samt. Eftir þetta var sannað á til- raunastofnun og sjúkrahúsum, að B—12 stöðvaði líka taugahrörnun og aðra sjúkdóma, sem fylgja blóðleysi. En B—12 dugði ekki til algerrar lækningar. Það þarf að gefa það inn annað veifið, en stundum aðeins með löngu milli- bili. Meðan jafn mikið magn lifrar þurfti til að vinna úr því örlítið magn af lyfi, var svo að sjá, sem efni þetta mundi verða of dýrt og torfengið fyrst um sinn. En hamingjan var aftur með vísinda- mönnunum. Þeir uppgötvuðu að B—12 er aukaframleiðsla við strep1,omycingerð. Þar með var birgðavandamálið leyst. Það er hægt að framleiða eins mikið af B—12 og þörf er fyrir. Aukin kjötframleiðsla. Reynsla sú, sem þegar er feng- in af B—12 gefur til kynna, að það sé einn.hinn dásamlegasti líf- gjafi síðari tíma. Hins vegar er talið, áð það muni ekki koma í stað lifrarefnanna, sem áðUr voru notuð, að öllu leyti. Lifur er enn ein dásamlegasta lyfjalind nátt- úrunnar og líklegt má telja, að vísindamennirnir eigi eftir að finna í henni fleiri slík efni er tímar líða. En B—12 hefur fleiri eiginleika geymda en lækninga- máttinn ,segir Paul de Kruif í lok greinar sinnar, sem hefur verið rakin lauslega hér að framan. Það heldur á lofti stórri von fyrir allt mannkyn — nefnilega möguleik- anum til stóraukinnar kjötfram- leiðslu. Húsdýr þau, sem aðallega fæða manninn, þrífast engan veg- inn bezt á jurtafæðu einni saman, bændur verða að bæta það fóður. með próteinefnum. Mest af þeim er aukaframleiðsla fiskiiðnaðar- ins, og það hefur jafnan verið skortur á þeim. Nú er komið i ljós, að það efni, sem dýrin raun- verulega þarfnast og fá í prótein- fæðunni, er einmitt B—12. Fram- leiðsla þess er raunar engum tak- mörkunum háð, og það þýðir, að hægt er að gefa skepnunum það, sem þær þurfa af því. Það þýðir aftur aukna kjötframleið,slu og þar með aukna framleiðslu allra vítamína, ásamt með B—12. Því að þau finnast í ríkum mæli í kjöti. f Ijós hefur komið að ef B— vítamínum er bætt í mjöl og koi-n, fyrirbyggir það að menn taki sjúkdóma eins og beriberi. Orannsakaðir eru þeir möguleik- ar, hvort B—12 getur ekki fyrir- byggt sjúkdóma, sem það læknar svo undursamlega, þ. e. gefið okkur, betra blóð, styrkari taug- ar, lengra og heilbrigðara líf. ; Febrúar—marz 1950 \,2.—3. hefti 4. árg. ’ . HUNDRAÐ BLAÐSÍÐUR . I; Ef.ni: ;;Farbæn, kvæði eftir Kristján I; Einarsson frá Djúpalæk. 1; Dásamleg björgun, saga eftir ;; Úlf Austan. ;' Draumaráðningar. ;! Leynilögregla Bandaríkja. ; Ástin kallar, smásaga. : Galdraklerkurinn á Felli, eft- ; ir Oscar Cláusen. ð ; Ráðning, sem dugði, smá- ; saga. ? Sannar afbrotasögur, 3. saga |; Gæðakonan frú Becker. Ljóðbrot og lausavísur, sagn- ir um Hallgrím Pétursson. ÍLífið byrjar um borð, smá- Ú j> saga. '; Kvikmyndaþáttur: Kvik- í; 1; mynd um Maríu mey. j; ;; Gleðisagan: Roland gengur;; jf í svefni. ;; ;; Nokkrar sagnir úr Eyjafirði;; eftir Kristínu Sigfúsdóttur. ;j jj Undarlegt fyrirbæri, smá-j: i; saga. jl j; Smáleturssagan: Handtakaj: 1; að næturlagi. If !; Svipleiftur úr sögu mann-:; j; kynsins: Dómur einvald-;; ;j ans. i; í vesturveg, eftir C. S. Fore-1; ster, bókarkafli.. i[ j: Heimþrá, texti við danslag.;; !; Algleymi, framhaldssaga. ;; I; Smælki. Frá Skíðaráði Akureyrar. Sunnudaginn þ. 26. marz var Skíðamóti Akureyrar 1950 haldið áfram og keppt í bruni og svigi. Brunbrautin var í Vaðlaheiði sunnan til, lengd brautarinnar mismunandi eftir flokkum, en fyrir A- og B-flokk um 2.5 km. löng og hæðarmismunur um 500 metrar. Urslit urðu þessi: Fyrst í kvennaflokki og þar með brun- meistari Akureyrar 1950 varð XJnnur Árnadóttir, K. A., á 54 sek. 2. Dóra Bernharðsdóttir, Þór, 74 sek. 3. Margrét Sigþórsdóttir, M. A., 76.4 sek. A-flokkur karla: Fyrstur og brunmeistari Akureyrar 1950: Magnús Brynjólfsson, K. A., 129 sek. 2. Jón Kr. Vilhjálmsson, Þór, 151 sek. 3; Bargir Sigurðsson, Þór, 160 sek. B-flokkur karla: 1. Hermann Ingimarsson, Þór, 149 sek. 2. —3. Bergur Eiríksson, K. A. og Halldór Ólafsson, K. A. 151 sek. C-flokkur karla: .......... t ... • '“-‘it' t. L Sigtryggur Sigtryggsson, K A., 102 sek. 2. Haukur Jaköbsson, K. A., 103 sek. ; 3. Pétur Þorgeirsson, K. A., 105 sek. í svigi kvenna varð fyrst, og þar með svigmeistari Akilreyrar 1950: Unnur Árnadóttir, K. A., 42.1 sek. 2. Margrét Sigþórsdóttir, M. A., 52.0 sek. 3. Dóra Bernharðsdóttir, Þór, 54.7 sek. C-flokkur karla: 1. Sigtryggur Sigtryggsson, K. A., 54.2 sek. 2. Haukur Jakobsson, K. A., 56,- sek. 3; Björn Ólsen, K. A., 56.5 sek. í aukakeppni allra flokka karla: 1. Magnús Brynjólfsson, K. A., 68.7 sek. 2. Jón Kr. Vilhjálmsson, Þór, 73.5 sek. 3: Birgir Sigurðsson, Þór, 74.5 sek. Veður og færi var hagstætt. Áformað er að skíðamótinu Ijúki um næstu helgi með 4 sinn- um 10 km. boðgöngu á laugardag kl. 4 og svigi í A- og. B-£lokkum karla kl. 11 á sunnudag i Vaðla- heiði. Akureyringar á Badmintonmóti íslands. Badmintonmót íslands á að verða í Stykkishólmi um pásk- ana. Það var í Rvík um þetta leyti í fyrra og íslandsmeistari varð þá Ágúst Kr. Bjartmars í Stykkishólmi. Nú er ákveðið að tveir Akureyringar, Benedikt Hermannsson, K. A., og Jóhann Egilsson, Þór, fari vestur og keppi í þessu móti — á vegum 1. B. A. Þeir taka þátt bæði í einmenn- ingskeppni og tvíkeppni. Við spá- um heldur vel fyrir þeim, ef þeir þola sæmilega „loftslagið og fæð- ið“ þarna vestur í Hólminum! Magnús Brynjólfsson fer nú daglega með skíðamönn- um til æfinga. Magnús er sem kunnugt er einn af beztu svig- mönnum íslands og orðinn vanur að segja til. Skíðafólk á Akureyri ætti að reyna að nota tækifærið og njóta nú góðra leiðbeininga í þessum hópi. Það er bezt að vera vel undirbúinn, þegar páskafríið kemur. Skemmtilegt skíðamót. íþróttafélagið Þór hafði innan- (Framhald á 6. síðu). ★ ★ Guðtn. Guð- mundsson, K. A., eitin hinna efnilegustu skíðamanna bæjarins. Var fyrstur í skíða göngu á Ak- ureyrarmót- ínu nú og.náði langbeztum tíma á mótinu

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.