Dagur - 29.03.1950, Síða 8
Baguk
Miðvikudaginn 29. marz 1950.
á vegum kirkjunnar sl. sunnudag
Starfsemi Æskulýðsfélags kirkjunnar verð-
skuldar atygli og stuðning bæjarbúa
Almenni, kristilegi æskulýðs-
iundurinn, sá áttundi í röðinni,
var haldinn sl. sunnudagskvöld
að Hótel Norðurland. Hófstiund-
urinn kl. 8.30 og stóð yfir nokkuð
á þriðja klukkutíma.
í upphafi lék Lúðrasyeit Ak-
ureyrar göngulög undir stjórn
Jakobs Tryggvasonar. Jón Ragn-
ar Stcfánsson, formaður 1. deild-
ar setti síðan fundinn og bauð
félaga og gesti velkomna. Söngur
fundarins var „íslands æskulý’,-
ur, upp með radda hljóm.“ Lagið
er eftir Sigfús Halldórsson tón-
skáld, en ljóðið er eftir skáldkon-
una Hugrúnu. Var ljóðið og lagið
ort í tilefni æskulýðsfundanna.
Fyrst var ljóðið kynnt þannig, að
fundargestir og fyrirlesari lásu
það upp, síðan söng Jóhann Kon-
ráðsson það, sömuleiðis Æsku-
lýðskórinn undir stjórn Jakobs
Tryggvasonar og ennfremur var
það leikið af hljómsvéit, er Lýður
Sigtryggsson hafði æft. Þau sem
léku á hljóðfærin voru: Gígja
Jóhannsdóttir, Ingimar Eydal,
Guðrún S. Jóhannsdóttir, Svala
Gunnarsdóttir, Dua Kristjáns-
dóttir, Jóna Axfjörð og Unnur
Axelsdóttir.
Ritningarlestur annaðist Mar-
grét Ásgrímsdóttir en bæn flutti
Bolli Gústafsson. Jóhann Kon-
ráðsson söng einsöng með undir-
leik Áskels Jónssonar. Ræður
fluttu Jón Þorsteinsson kennari,
Ásdís Karlsdóttir og Ólafur Hall-
grímsson. Einleik á fiðlu lék
Gígja Jóhannsdóttir, nemandi frk.
Ruth Hermanns. Lýður Sig-
Logið með tölum
Eftir þriggja vikna þögn hef-
ur ritstj. Alþýðumannsins
loksins mairnað sig upp í það
að reyna að skjóta stoðum
undir fyrri fullyrðingu þess
efnis, að ein togaraskipshöfn
greiddi „hærri skatta“ en öll
fyrirtæki samvinnufélaganna á
Akureyri. Þar sem staðhæfing
þe: si á sér enga stoð í veru-
leikanum verður ritstjórinn að
grípa til dálítið nýstárlegrar
aðferðar í umgengni sinni við
tölur og staðreyndir. sem sé
þeirrar, að fella alveg niður
allan skatt, sem KEA greiðir
samki'æmt skattalögunum frá
1942, eða um 200 þús. kr. fúlgu,
með þeím forsendum, að þessi
skattur sé lagður á samkv.
öðrum regluvn en annar skatt-
ur og geti því ekki talizt skatt-
ur o .s. frv., eða með öðrum
orðum eintóm þvæla og vit-
leysa. Utkoman er því sú, að
þegar ritstjórinn þykist „gefa
tölum orðið“ í blaði sínu í gær,
eru það aðeins þær tölur, sem
honuni þykir henta að nefna
máli sínu til framdráttar, cn
ekki allar tölur, sem til sam-
anburðar koma. Hefur alþýðu-
málgagn þetta því viðurkennt
fyrri blekkingar, og er það ný-
stárlegt í þeim hcrbúðum.
tryggsson harmonikuleikari, sem
staddur er hér á Akureyri um
stundarsakir lék einleik á har-
moniku. Mun hann hverfa aftur
innan skamms út til Noregs.
Þá fór fram spurningakeppni
úr kristinfræði og íslandssögu. —
Flesta vinninga fékk Gunnlaugur
Kristinsson og hlaut hann í verð-
laun íslenzkan borðfána á stöng
með áletrun frá fundinum.
Þegar fundargestir höfðu sung-
ið tvö erindi af söngnum „Vökum
og biðjum“, fluttu formenn deild-
anna bæn, en að henni lokinni
sameinuðust allir í bæninni „Fað-
ir vor“. — Edvard Sigurgeirsson
sýndi litkvikmyndir, m. a. af því,
er Sunnudagaskóli Akureyrar-
kirkju fór í heimsókn til sjúkra-
hússins. — Almennur söngur var
mikill. Við orgelið var Jakob
Tryggvason, en við píanóið Áskell
Jónsson.
Fundarsókn var mjög mikil og
urðu margir frá að hverfa. Æsku-
lýðsblaðið var selt á götum bæj-
arins og einnig við anddyrið áður
en fundurinn hófst. — Æskulýðs-
félagið vill þakka þeim mörgu,
sem sýndu félaginu og starfsem-
inni stuðning sinn og hlýhug.
Lélegur afli
í botnvörpu
Mjög lélegur afli hefur að und-
anförnu verið hjá stóru togurun-
um og einnig lakur hjá togbátun-
um. Sjómenn gera sér vonir um
að afli muni glæðast nú næstu
vikurnar. Akureyrartogararnir
Svalbakur og Jörundur eru á
veiðum, en Kaldbakur mun fara
á veiðar í dag. Ætlunin mun vera
að þessi skip selji afla sinn í Bret-
landi fyrir og eftir páska og það
verði síðustu aflasölur þeirra í
Bretlandi að sinni.
Formaður Fjárhags- og
félagsmálaráðs
Dagheimili barna tekur til starfa
í sumar
Kvenfélagið Hlíf hefur komið því upp
án opinbers stuðnings
HERNAN SANTA CRU7
er hvort tveggja í senn, formaður
Fjárhags- og félagsmálaráðs
Sameinuðu þjóðanna, og formað-
ur sendinefndar Chile hjá S. Þ.
Úthlutun skömmtunar-
seðla stendur yfir
Úthlutun skömmtunarseðla fyr-
ir næsta skömmtunartímabil
stendur yfir þessa dagana. Á hin-
um nýja seðli er aðeins sykur og
smjörlíki og 3 skammtar að auki,
en ekkert hefur verið tilkynnt
um, hvort þeir taka gildi nú eða
fyrir hvaða vörur. Margir höfðu
vænzt þess að skömmtunin yrði
látin niður falla nú hið bráðasta,
en sú virðist ekki ætla að verða
raunin á.
í blaðinu í dag birtist auglýs-
ing frá Kvenfélaginu Hlíf hér í
bær, þar sem auglýst er eftir um-
sóknum um dvöl á dagheimili fé-
lagsins í sumar. Blaðið hefur aflað
sér upplýsinga um það, að ráðgert
cr að dagheimilið taki til starfa
um miðjan júní. Rúmast þar um
50 börn. Félagið Ieitar nú góðra
starfskrafta til þess að vinna við
heimilið.
Dagheimili Hlífar, sem stendur
j hér skammt ofan við bæinn, er
senn fullgert. Félagið hefur kom-
ið því upp af eigin ramleik og
ekki notið opinbers stuðnings
fyrr en nú á þessu ára, er bærinn
hefur lagt nokkurt fé til málsins.
Framkvæmd málsins hefur kost-
að mikið stai’f af hálfu meðlima
félagsins og hefur það mætt mest
á formanni þess, frú Elinborgu
Jónsdóttur, sem auk forgöngunn-
ar hefur stutt málið á ýmsan hátt,
ásamt manni sínum, Sigurði
Sölvasyni. T. d. gaf Sigurður allt
gluggaverk í húsið og er það
mikils virði.
Félagið hefúr árlega leitað til
bæjarbúa um fjárstuðning og
hefur fjársöfnunardagurinn verið
sumardagurinn fyrsti. Hafa bæj-
arbúar brugðist vel og drengilega
við. Margir hafa og heitið á dag-
F ramsóknarwhist
n. k. sunmidagskvöld
Framsóknarfélag Akureyrar
stofnar til skemmtikvölds að
Hótel KEA næstk. sunnudag kl.
9 e. h. Til skemmtunar verður:
Ávarp flult, spiluð Framsóknar-
whist og síðar dans. Verðlaun
verða veitt fyrir flesta og fæsta
slagi alls. — Framsóknarwhistun-
um fer nú að fækka í vetur, þann-
ig, að hver seinastur fer að verða
að komast að. Vinsældir þessara
skemmtikvölda hjá Framsóknar-
félögunum fax-a sífellt vaxandi,
þannig, að vissara er að mæta
stundvíslega til að fá sæti við
spilaborð. Oftast verða einhverjir
frá að hvei-fa. Munið að taka með
ykkur spil og blýant.
Styrkir úr Sáttmála-
sjóði til íslendinga
Á fundi hinn 26. janúar sl. út-
hlutaði hin danska deild Sátt-
málasjóðs eftirfarandi styi-kjum
til íslenzkra ríkisborgárá: 27 hafa
fengið úthlutað 300 dönskum
krónum hver til dvalar við ýmsar
námsstofnanir, 1 hefur fengið 500
kr. styrk til framhaldsnáms í
læknisfræði. 23 stúdentar hafa
fengið úthlutað 500 kr. námsstyrk
hver. Til eflingar dansk-íslenzkri
samvinnu var úthlutað: 2 Dön-
um var úthlutað 3000 kr. til náms
ferðalaga til íslands, 1000 kr. var
úthlutað til vísindalegi’a athugana
á jai’ðfi’æðilegum í’annsóknum og
500 kr. til fræðiiðkana á íslenzk-
um miðaldar sagni’itum. Að lok-
um fékk Árna Magnússonar
nefndin 50.000 kr. styrk til útgáfu
á forníslenzkri orðabók.
Norskir togbátar
fá uppbót
Vegna aukinna útgjalda fiski-
skipaflotans norska, hefur orðið
samkomulag milli togbátaút-
gerðarmanna og ríkisstjórnarinn-
ai’, að útgei’ðarmenn fái 5 aui’a
uppbót á saltfisk frá ídkinu,
segir í nýlegu Norges Handels-
og Sjöfartstidende. Hin auknu út-
gjöld standa í sambandi við
hækkað verð á olíu og veiðar
færum.
heimilið. Á sumai’daginn fyrsta
næstk. mun félagið enn leita til
bæjai’búa um stuðning, og er þess
að vænta að hann verði fúslega
af hendi látinn, þar sem dagheim-
ilið er nú svo að segja tilbúið og
aðeins herzluinunui’inn að það
taki til starfa.
Stjórn Hlífar skipa þessar kon-
ur: Elinborg Jónsdóttir, Helga
Jónsdóttir og Laufey Ti’yggva-
dóttii’. Varastjórn: Dóróthea
Kristjánsdóttir, Sigrún Ásgeirs-
dóttir og Jónína Steinþórsdóttir.
Brezki togarinn
„Andanes44 sagður full-
komnasta botnvörpu-
Nýlega var fxxllgerður hjá
Cochrane & Sons í Selby í Eng-
landi togarinn „Andanes", sem
brezk blöð segja að sé fullkomn-
asta botnvörpuskip, sem til er. —
Cochrane byggði nokkra af nýju
íslenzku togurunum. Andanes er
198 fet á lengd, 31 fet á breidd og
16 fet á dýpt. Slcipið er nýlega
farið á veiðar. Skipstjóri er Is-
lendingurinn Páll Aðalsteinsson.
manns á bílauppboði í Keflavík!
Þau tíðindi gerðust á Keflavík-
urflugvelli sl. laugardag, að nefnd
sú, er sér um sölu setuliðseigna í
umboði fjármálaneytisins, aug-
lýsti uppboð á gömlum og aflóga
setuliðsbílunx og ýmsu dóti til-
heyrandi þeim.
Uppboðið sóttu um 4000 manns
á 7—800 farai’tækjum. Uppboðs-
haldið líktist aðsókninni að því
leyti, að bílagarmar þessir voru
keyptir á okurverði, allt að 23
þús. kr., enda þótt enginn bílanna
væri í ökufæru standi og flestir
væi’u taldir ónýtir ræflar. — Alls
seldust þarna 30 bílagai’mar.
Afmælishljómleikar
Karlakórs Akureyrar
Karlakór Akureyrar hafði af-
mælishljómleika í Nýja-Bíó sl.
sunnudag við húsfylli og ágætar
viðtökur áheyranda. Einsöngvar-
ar voru Jóhann Koni’áðsson, Jó-
steinn Konráðsson og Svei’i’ir
Magnússon. Söngski-áin var fjöl-
breytt. Kórinn er ágætlega þjálf-
aður af söngstjói’anum, Áskeli
Jónssyni. í sönghléum söng Einar
Sturluson óperusöngvaii, sem nú
dvelur hér nyrðra við söng-
kennslu.
SAMVINNAN. Nýlega er jafn-
febr. hefti Samvinnunnar komið
út. Ætlunin var að flytja rítið aft-
ur til Reykjavíkur, en úr því
vei’ður ekki að sinni og kemur
ritið út hér á Akureyri þetta ár
Ritstjóri er Haukur Snorrason. —
Þetta hefti flytur margar athygl
isverðar greinar um ýms efni og
er pi’ýtt mörgum myndum.
Prentarar heiðra
Olaf Ilvanndal
Starfsfólk prentsmiðjanna hér
nokkrir blaðamenn efndu til sam-
sætis að Hótel KEA sl. laugar-
dagskvöld. Var þar mai’gt maima
saman komið. Ólafi Hvanndal
hafði séi’staklega vei’ið boðið til
hófs þessa og var hann heiðurs-
gestur þess. Ólafur er brautryðj-
andi í pi-entmyndagerð hér á
landi og stofnaði fyi’stu prent-
myndagerðina í Reykjavík og nú
á sl. ái’i hér á Akui’eyi’i. Hvann-
dal varð sjötugur í fyiTa. Blaða-
mannafélag íslands heiði’aði hann
af því tilefni með samsæti í Rvik.
Állt að 18 mánaða
fangelsi iyrir upp-
þotiS 39. marz sl.
Nýlega kvað sakadómarinn í
Reykjavík upp dóma yfir óaldar-
seggjum þeim, sem stóðu að upp-
þotinu í Reykjavík 30. marz í
fyrra. Voru 20 rnenn dæmdir í allt
að 18 mánaða fangelsi, en 4 sýkn-
aðir. Dómunum hefur vcrið
áfrýjað.