Dagur - 12.07.1950, Síða 8
tlllHHIIIIIMtllllllllllllllblHIMItlllllll'1
8
Daguk
Miðvikudaginn 12. júlí 1950
VefnaSarvörur
Vörujöfnun á vefnaðarvörum til félagsmanna
vorra, gegn vörujöfnunarmiða 1949, reitirnir 4 —
6 — 7, verður hagað þannig, meðan birgðir endast:
Miðvikudaginn 12. júlí, fimmtudaginn 13. júlí, fpstu- i
daginn 14. júlí, mánudaginn 17. júlí og þriðjudag- i
inn 18. júlí: Akureyrardeild, og verða félagsmenn af- \
greiddir eins og hér segir: =
Aliðvikudagurirm 12. júli, fél.nr. 981—1120. Kl. 9—10, í
fél.nr. 981—1000. Kl. 10-11, fél.nr. 1001-1020,' !
Kl. 11-12, fél.nr. 1021-1040. Kl. 14-15, fél.nr. \
1041-1060. Kl. 15-16, félrtr. 1061-1080. Kl. 16- \
17, fél.nr. 1081-1100. Kl. 17-18, fél.nr. 1101- I
1120. |
| Fimmtudagurinn 13. júli, fél.nr. 1121 — 1260: Kl. 9—10 [
fél.nr. 1121—1140. Kl. 10-11, fél.nr. 1141-1160. !
Kl. 11-12, fél.nr. 1161-1180. Kl. 14-15, fél.nr. j
1181-1200. Kl. 15-16, fél.nr. 1201-1220. Kl. 16- I
17, fél.nr. 1221-1240. Kl. 17-18, fél.nr. 1241- j
f 1260. j
| Föstudagurinn 14. júli, fél.nr. 1261—1400: Kl. 9—10, \
fél.nr. 1261-1280. Kl. 10-11, fél.nr. 1281-1300. j
Kl. 11-12, fél.nr. 1301-1320. Kl. 14-15, fél.nr. j
1321-1340. Kl. 15-16, fél.nr. 1341-1360. Kl. 16- j
17, fél.nr. 1361-1380. Kl. 17-18, fél.nr. 1381- j
j 1400. j
\ Mánudagurinn 17. júli, fél.nr. 1401—1540: Kl. 9—10, \
fél.nr. 1401-1420. Kl. 10-11, fél.nr. 1421-1440. j
Kl. 11-12, fél.nr. 1441-1460. Kl. 14-15, fél.nr. !
1461-1480. Kl. 15-16, fél.nr. 1481-1500. Kl. 16- j
17, fél.nr. 1501-1520. Kl. 17-18, fél.nr. 1521- í
j 1540. j
i Þriðjudagurinn 18. júli, fél.nr. 1541—1680: Kl. 9—10, [
fél.nr. 1541—í560. Kl. 10-11, fél.nr. 1561-1580. j
Kl. 11-12, fél.nr. 1581-1600. Kl. 14-15, fél.nr. j
1600-1620. Kl. 15-16, fél.nr. 1621-1640. Kl. 16- j
17, fél.nr. 1641-1660. Kl. 17-18, fél.nr. 1661- !
j 1680. j
; Góðfúslega komið með umbúðir
1 Félagsmenn með önnur núrner auglýsast síðar. f
| Dráttarvél
(Mnssey Harris) ásamt sláttuvél og ýtu, allt §
í góðu lagi og lítið notað, til sölu.
TÓMAS BJÖRNSSON, Akureyri.
Sími 1155.
Lokað
vegna sumarleyfa frá 15.—31. júlí.
Brauðgerð Kr. Jónssonar & Co.
Jónsmessuhátíð
Framtíðarinnar
Að vanda ætlaði kvenfélagið
Framtíðin að halda hátíðlega
Jónsmessuna. Svo illa vildi til að
þessu sinni, að leiðinda veður,
rok og kuldi hamlaði því, að
skemmtunin færi fram á réttum
tíma, 24. júní. Var þetta sérlega
bagalegt, þar sem allur undir-
búningur hafði verið miðaður við
að hátíðin færi fram á réttum
tíma. Skemmtuninni var því
frestað um eina viku.
Utiskemmtanir fóru fram á
skemmtisvæðinu sunnan sund-
laugarinnar. En veður var ennþá
kalt, svo að aðsóknin varð minni
en skyldi. Þrátt fyrir þetta voru
þó mjög margir sem sóttu
skemmtunina.
Skemmtiatriði voru marg-
breytileg. Dávaldur dáleiddi Jón
Norðfjörð, erlendir þjóðdansar
voru sýndir, Karlakór Akureyrar
söng og Lúðrasveit Akureyrar
lék, hvoru tveggja undir stjóm
Jakobs Tryggvasonar, spákonur
spáðu fyrir um framtíðina og
sögðu mönnum hvað á daga
þeirra hefði drifið o. m. fl.
Þá var handknattleikskeppni
milli kvenna úr Hlíf og Framtíð-
inni. Var leikurinn skemmtileg-
ur og dramatískur á stundum.
Var leikinn handknattleikur,
knattspyrna, blak o. fl. jöfnum
höndum. Dómarinn bar þó af
öðrum leikmönnum að dugnaði og
skyldurækni við að hjálpa sínu
liði.
Vakti leikur þessi óskipta
kátínu áhorfenda.
Veitingar voru seldar í Gagn-
fræðaskólanum og gæddi margur
sér á Framtíðarkaffi. Þar var og
bazar. Um kvöldið var dansleik-
ur að Hótel Norðurland.
Allur ágóði af skemmtuninni
rann til sjóðs Elliheimilisins. -
14 ára telpa ók á hús
Nýlega tók 14 ára gömul reyk-
vísk telpa bifreið í óleyfi þar í
borginni og ók henni til Hafnar-
fjarðar. Er þangað kom rakst bif-
reiðin á timburhús og fór inn úr
veggnum. Telpan slapp ómeidd.
Fjárhagsráð vill
afnema bílainnflutn-
ingsleyfi
Nýlega samþykkti Fjárhagsráð
tillögu frá Sigtr. Klemenzsyni og
Jóni ívarssyni þess efnis, að
skora á ríkisstjórnina að afnema
nú þegar öll bílainnflutningsleyfi,
sem í umferð kunna að vera. —
Ekki hafði borizt svar í-íkis-
stjórnarinnar við þessari tillögu
er síðast fréttist.
Bændur!
Sel nótastykki yfir hcy.
Gamla víra og kaðla.
Guðm. Pétursson,
Sínii 1093.
Sigur í 400 metra hlaupi
Frá landskeppninni. Hér sjást úrs'itin í 400 m. hlaupi. Guðmundur
Lárusson er fyrstur, Þá Ásm. Bjamason og Danirnir langt á eftir.
Þingeyinagr héidu hátíðlegan
bændadag á sunnudaginn
Fjölmenni samankomið að Laugum
Bændafélag Þingeyinga og
Ungmennasainband Þingeyinga
gengust fyrir því að bændadagur
yrði hátíðlegur haldinn að Laug-
um sl. sunnudag. Sótti margt
manna samkomuna þrátt fyrir
óhagstætt veður.
Samkoman hófst klukkan 2
síðdegis með guðsþjónustu og
prédikaði séra Hermann Sigurðs-
son á Skútustöðum. Þá setti Jón
H. Þorbergsson á Laxamýri há-
tíðina með ræðu. Aðrir ræðu-
menn voru: Jónas Baldursson í
Lundarbrekku, Jón Sigurðsson í
Yztafelli, Hallgrímur Þorbergs-
son á Halldórsstöðum og Jón
Haraldsson á Einarsstöðum. —
Kirkjukói-ar Einarsstaða- og
Grenjaðarstaðasókna simgu, enn-
fremur Karlakór Reykdæla, und-
ir stjórn Páls H. Jónssonar.
Reykdælir og Mývetningar
glímdu, piltar sýndu sund og
sýnd var kvikmynd. Um kvöldið
var dansað.
Hátíðin fór hið bezta fram. —•
Þingeyingar halda slíkan bænda-
dag hátíðlegan árlega.
Gagnleg leiðbeiningabók um félags-
heimili komin út
Nýlega er komin út á vegum
Menntamálaráðuneytisins gagn-
leg handbók um byggingu og
rekstur félagsheimila í þorpum
og sveitum. Bókaútgáfa Menn-
ingarsjóðs sá um útgáfuna. Bók-
in fæst hjá bóksölum og kostar
10 krónur eintakið.
Eysteinn Jónsson, fyrrverandi
menntamálaráðherra, fylgir ritinu
úr hlaði með formálsorðum og
rekur þar löggjöf síðari ára um
aðstoð við byggingu félagsheim-
ila og erfiðleika þá, sem ýmis fé-
lagssamtök hafa átt við að stríða
í viðleitni sinni við að koma upp
menningarlegum samkomustöð-
um í sveitum og þorpum. Þá eru
birt lögin um félagsheimili frá
1947, sýnishorn af nokkrum gerð-
um samkomuhúsa, teikningar
eftir húsameistarana Bárð ísleifs-
son og Gísla Halldórsson. Þá eru
greinarnar Gerð félagsheimila
eftir Jakob Gíslason raforku-
málastjóra, Hitun félagsheimila
eftir Benedikt Gröndal verkfræð-
ing, Bókasafn í félagsheimili eft-
ir dr. Bjöm Sigfússon háskóla-
bókavörð og Um leiklist í bæ og
byggð eftir Lárus Sigurbjörnsson
rithöfund. Eru allar greinar þess-
ar hinar fróðlegustu og ritið allt
líklegt til þess að verða að gagni
þeim aðilum, sem hafa byggingu
félagsheimila á dagskrá.
(Lokað vegna sumarleyfa
frá 22. júlí til 7. ágúst, að báðum i
] dögum meðtöldum.
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
! Lokað vegna sumarleyfa
frá 22. júlí t'il 7. ágúst, að báðum {
dögum meðtöldum. i
Vélahókhandið lii.