Dagur - 04.10.1950, Side 6
6
D A G U R
Miðvikudaginn 4. október 1950
Viðburðarríkur dagur
Saga eftir Helen Howe.
11. DAGUR.
(Framhald).
Líklegast mundi Clara aldrei
hafa farið frá Freetown ef ef hún
hefði ekki trúlofast Earl Hed-
man, læknisfraeðistúdentinum.
En þegar hann hóf starf varð
hún að fylgja honum eftir og
fyrsta árið bjuggu þau í New
York. Þetta fyrsta ár, sem þær
vinkonurnar voru aðskildar,
hafði verið erfitt fyrir Faith.
Móðir hennar var að smá hraka
til heilsunnar, unz yfir lauk að
lokum. Þetta ár varð föður henn-
ar ofraun. Hánn hafði aldrei ver-
ið sterkbyggður. Honum fannst
hann ekki geta lifað lífinu einn.
Ekki voru nema sex mánuðir
liðnir er hann gekk að eiga
hjúkrunarkonu þá, er stundað
hafði móður Faith í sjúkleikan-
um. Og viku síðar hafði Faith
fengið skeyti um að þau væru
farin í brúðkaupsferð til Atlantic
City, en þar fékk hann .hjartaslag
og andaðist. Það var þá, sem hún
lét undan óskum vinkonu sinnar
og flutti til hennar í New York.
Clára naut augsýnilega endur-
fudnanna, er þ'ar sátu tvær vin-
konurnar í gildaskálanum. „Eg
vildi bara að dömurn»r í Free-
town -gætu séð þig núna í þess-
umt kjól,“ ; sagði hún brosandi.
„Það'er gaman að sjá, að þú hef-
ur það gott. Þú áttir það inni.“
Faitb var þegar á verði.
„Lífið er ágætt, nema hvað það
leýfir ökkur of sjaldan að sjást,“
sagði hún. „Én þú lofaðir að segja
mér frá Sonny, hvað er að hon-
um?“
„Han ner veikur. Eg þori varla
að hugsa um hversu mikið veik-
ur hann er í rauninni.“
„En hvað er það, og hvéhær
veiktist hann?“
„Það kom allt smám saman.
Hann hefur ekki verið hraustur í
mörg ár og nú upp á síðkastið
hefur hann fengið óbærilegan
höfuðverk. Loksins heimtaði
Earl rækilega skoðun og
myndatöku, og það, sem kom í
ljós, var ekki skemmtilegt. Eg
skil það ekki, en það er talinn
hættulegur hjartasjúkdómur."
„En er ekki hægt að gera eitt-
hvað?“
„Jú, það er hægt að gera eitt-
hvað. Það er hægt að skera upp
við því, en það er vandasamur
og stórhættulegur skurður.
Læknarnir segja að sæmileg von
sé um að slík aðgerð takist.“
Faith heyrði að Clara óttaðist
það, sem fram mundi köma. Og
hún var fljót að koma henni til
hjálpar.
„Já, en þetta er dásamlegt,
Clara. Framfarirnar í skurð-
lækningum á síðustu árum
ganga kraftaverki næst. Þú mátt
ekki vera of svartsýn.“
„Eg er bjartsýn,“ sagði Clara,
en það fylgdi engin sannfæring
orðunum. Báðar voru þögular
um stund.
„Sonny er skemmtilegur og dá-
samlegur drengur,“ sagði Clara.
„Eg gæti ekki afborið að sjá hann
hálfgerðan aumingja allt lífið.
Eg held nærri því að eg vildi
heldur. . . .“ Það lá við að rynni
út í fyrir henni. „Hann er samt
svo þolinmóður og góður. Maður
finnur svo sárt til með honurn."
■Faith gat ekki varnað því, að
tár komu fram í augu hennar.
„Já, lífið virðist ætla að verða
okkur báðum erfitt,“ sagði hún.
„En það er ekki erfitt fyrir
þig?“ sagði Clara undrandi.
„Hvað er að?“
Fyrir augnabliki hafði Faith
verið full samúðar í högum
Clöru. En nú var taflið snúið við.
Clara var full samúðar og
áhyggju yfir vinkonu sinni.
„Eg hafði ekki ætlað mér að
segja þér frá því,“ sagði Faith.
„Þú hefur nóg um að hugsa
sjálf.“
„Vitleysa. Hvað er að? Segðu
mér það vina, kannske get eg
gefið þér góð ráð?“
„Aðeins það, að eg uppgötvaði,
að Eric hefur átt barn með ann-
arri konu.“
Undrun lýstí í svip Clöru. „Eg
trúi því ekki,“ sagði hún.
„Þú verður nú samt að gera
það, því miður. Það er satt.“
„Kannske þú hefðir átt að bíða
eftir Freddy eftir allt saman,“
sagðí ’Clara.
Þær vinkonurnar höfðu aldrei
enn hitzt svo á síðari árum, að
Clara hefði ekki hvíslað að vin-
konu sinni: „Hefurðu frétt nokk-
uð?“
Það hafði jafnan reynst til-
gangslaust fyrir Faith að láta,
sem hún skildi ekki hvað hún
var farin að segja: „Frétt
hvað?“ Clara hélt ævinlega á-
fram: „Þú veist vel hvað ég
meina. Frétt nokkuð af Freddy.“
En nú hvísiaði hún ekki, heldur
sagði hárri röddu: „Faith How-
ard! Hefurðu séð blöðin í morg-
un?“ Hún fór dfan í töskuna sína
og kóm-með síðásta eintak New
York Times. „Sjáðu hér,“ sagði
hún um leið og hún breiddi úr
blaðinu á börðinU. „Lestu þetta!“
í fyrirsögn var 'sagt frá því, að
skipið Mauretariía hefði lagst að
bryggju kvöldið áðúr með margt
kunnra manna innanborðs. Marg-
ar myndir fylgdu frásögninni.
Clara benti á nokkrar línur í
greininni: „Frederick Goodridge,
rithöfundur, erfingi Goodridge-
blaðahringsins, var meðal far-
þeganna. Þegar blaðamenn
spurðu hann um framtíðarfyrir-
ætlanir hans, sagði hann, að hann
hefði þá nýlega undirritað samn-
ing við franskt kvikmyndafélag
um að gera kvikmyndir í Afríku-
nýlendum Frakka. Mr. Good-
ridge sagðist mundi hverfa aftur
til Parísar til þess að undirbúa
fyrstu förina, til Sómalílands."
Tíu ár höfðu enn ekki kennt
Faith að láta sér standa á sama
er hún heyrði þetta nafn. Hjartað
sló örlítið hraðar en fyrr. Hún
vonaði að Clara sæi ekki, að
henni var alls ekki rótt.
„Jæja, þá veit maður, að Freddy
er kominn og á förum aftur. En
hvað kemur það við okkar mál-
um?“
„Vitaskuld hefur hann með
okkar mál að gera, eftir það, sem
þú sagðir mér,“ sagði Clara. „Þú
meinar ekki í alvöru, Faith, að
þú ætlir bara að láta sem ekkert
hafi gerzt?“
„Eg sé ekki, að ég geti gert ann-
að. Eg get ekki látið sem mér þyki
það skemmtilegt — en ég sé enga
aðra leið.“
„En hvar er sjálfsvirðing þín?“
„Eg lifi ekki lengi á henni.“
Hún hafði ekki haft svar á reið-
um höndum, er Mona hafði sagt
þetta við hana, en nú fannst henni
þessi setning innantóm og aum.
Clara horfði undrandi á hana. „Eg
skil ekki hvað þú ert að fara. Ef
þú átt við að þú þurfir að vera
hjá Erie af því að hann sjái fyrir
þér, þá hefurðu breytzt svo, að
eg þekki þig varla aftur.“
(Framhald).
r
U they
til splu, 100—150 hestar,
sumt a£ ræktuðu landi.
A£gr. vísar á.
Til sölu:
Orgel, útvarpstæki í bíl
og radíógrammófónn.
SÖLUSKÁLINN
Sími 1427.
Til sölu
sem ný, tvíhneppt smok-
ingföt og drengjaföt.
GUFUPRESSAN s.f.
Skipagötu 12.
Höfum fengið
ný hreinsunarefni, þau
beztu, sem framleidd eru
til fatahreinsUnar.
GUFUPRESSAN s.f.
Skipagötu 12.
Barnavagn
til sölu á morgun, fimmtu-
dag, kl. 2—3.
Hafnarstrceti 100.
Armbandsúr
Vil selja herra-armbandsúr.
Afgr. vísar á.
Bókfærslunámsskeið
Undirritaður hefur bókfærslunámsskeið hér í vetur,
og hefst kennsla væntanlega í næstu viku. Þeir, sem hug
hafa á að sækja námsskeiðið eða afla sér frekari upplýs-
inga um það, tali við mig sem fyrst.
Sigurður M. Helgason.
Sími 1543, eftir kl. 6 e. h.
Iðnskóiinn á Akureyri
verður settur mánudagimi 16. október n. k., kl. 8 e. h.
Iðnmeistarar, sem þurfa að koma nýjum nemendum til
náms í skólanum, eru beðnir að tilkynna mér það sem
fyrst, sömuleiðis, ef eldri nemendur, sem gert hafði
verið ráð fyrir að yrðu á þeirra vegum í skólanum, eru
horfnir frá námi.
Almenn kvöldkennsla
Skólinn mun, sem að tmdanförnu, taka óreglulega
nemendur til náms í almennum námsgi'einum, svo sem
tungumálum, reikningi o. fl., meðan rúm leyfir. Fáein-
ir slíkir nemendur geta enn fengið skólavist, en ættu þá
að hafa tal af undirrituðum sem allra fyrst.
Akureyri, 3. október 1950.
Jóhann Frímann,
skólastjóri.
Tónlistarskóli Aknreyrar
verður settur að Lóni, laugardaginn 7. októher n. k.,
kl. 5 e. h.
Þeir nemendur, sem hafa hug á að stunda nám við
skólann í vetur, en liafa ekki tilkynnt þátttöku, eru
beðnir að gefa sig fram við Finnboga S. Jónasson, Skrif-
stofu K. E. A., sem fyrst.
Tónlistarbandalag Akureyrar.
Tilkynning til bænda
Eftir 4. október verður tekið á móti
fé til slátrunar á sláturhúsi voru
þriðjudaga og föstudaga.
Sláturhús
Sirni 1306.
Kosningadagar auglýstir síðar.
AUGLYSING
frá Bílstjórafélagi Akureyrar
Trúnaðarmannaráð félagsins hefir samþykkt að við-
hafa allsherjaratkvæðagreiðslu á fulltrúavali fyrir félag
ið á 22. þing Alþýðusambands íslands. — Kjósa ber 2
aðalfulltrúa og 2 til vara.
Er hér með auglýst eftir framboðslistum, en til þess
að listi sé löglegur, þarf hann að vera studdur a£ minnst
22 fullgildum félagsmönnum og vera kominn til kjör-
stjórnar félagsins fyrir kl. 6 e. h. fimmtudaginn 5. þ. m.
STJÓRNIN.