Dagur - 29.11.1950, Qupperneq 10
10
DAGUR
Miðvikudaginn 29. nóv. 1950
Viðburðarríkur dagur
Saga eftir Helen Howe.
17. DAGUR.
(Framhald).
Hún reyndi ekki að mæia
augnaráði hans, né heldur að
svara honum í þetta sinn. Hvern-
ig gat hún látið hann skilja þunga
tilfinninganna, sem brutust um í
hrjósti hennar þessa stundina?
Beiskja lífsins var of rík til þess
að jafnvel Freddy gæti skilið
það. Hún sniðgekk því sjálft mál-
efnið og sagði aðeins: „En hvað
um áframhald ævisögunnar? Eg
heyrði eitt sinn að þú værir í
Indó-Kína.“
sendur var til landssvæðis í
Indó-Kína áður en það land var
frelsað undan yfirráðum Japana
Eg var þar í sex mánuði áður en
Japanir gáfust upp. Það var
raunar dásamlegur tími, ævin-
týraríkt líf í frumskógunum. Eg
komst alla leið til Angkor.“
Hún fann nú, hvert tangarhaldi
Freddy hafði á henni eftir öll
þessi ár. Þarna sat hún, eins og
svo oft fyrrum, og horfði aðdá-
unaraugum á hann og drakk
hvert orð af vörum hans. Henni
hafði alltaf virzt hann eiga
ótæmandi sjóð af gamansögum
og hnittnum tilsvörum, en nú
varð hann allt í einu þögull.
Hann setti glasið á borðið, hallaði
sér áfram, horfði á hana og sagði:
„Þú manst að það var svo um
talað að þetta yrði sameiginlegt
hátíðahald. Nú er mín ævisaga á
enda, hvað þá um þína?“
„Mína? Hún er svo ákaflega
fátækleg í samanburði við allt
það, sem þú hefur að segja. Eg á
eiginmann og barn. Eg sé um
þrjár máltíðir á dag, geri inn-
kaupin til heimilisins, held íbúð-
inni í horfinu og sé um sumar-
húsið okkar á Kiscofjalli.11
„Eigið þið hús á Kiscofjalli?“
Hann talaði ákveðið og skýrt,
rétt eins og hann væri að lesa
henni algild sannindi. „Að hugsa
sér annað eins, að mín elskulega
Faith skuli vera orðin ein af
þeim, sem eiga hús á Kisco-fjalli.
Drottinn minn dýri! Það er þar
sem allir karlmennirnir fara til i
borgarinnar með lestinni kl. 8.02
á morgnana og koma heim
klukkan 5.04 á kvöldin og enginn
lætur sig vanta í þá lest vegna
þess að allir óttast breytingar á
daglegum venjum og háttum. Og
kvenfólkið! Flestar taugabilaðar,
'lifa í klúbbum, eins og eldspýtur
í laginu og hafa aðeins eitt
óhugamál: að börn þeirra verði
lifandi eftirmynd þeirra að öllu
leyti.“
Faith bældi niður augnabliks
tilhneigingu að fara að stæla við
hann. Hún var ekki komin hér til
þess að ræða eiginleika fólksins á
Kiscofjalli eða daglegar venjur
þess.
„Það er undarlegt að heyra þig
tala á þessa leið, Freddy," sagði
hún, „sérstakíega þar sem eg hef
í dag verið að gera upp eigin
reikniriga og méta, hvað eg hef
haft gott upp úr lífinu. Eg hef
ákveðið að hverfa að heiman, a.
m. k. í sumar.“
„Hvert ætlarðu? Hefurðu at-
hugað Parísarferð?“
„Þú gætir eins spurt, hvort eg
hefði í hyggju að fara tiþtungls-
ins. Hvers vegna skyldi eg íhuga
Parísarferð?"
„Eg sé eina gilda ástæðu," svar-
aði hann og horfði beint í augu
hennar. „Og hún er sú, að eg verð
þar í sumar.“
„Og hvað ætlar þú að gera í
París í sumar?“ Það var nýr
blær á málhreim hennar og
augnaráði.
„Eg verð þar í a m. k. 6 vikur,
áður en eg fer til Afríku.“
„Nei, Freddy, við skulum ekki
tala meira um þetta.“ Hún sagði
þessi orð lágt, í uppgjafartón.
En Freddy horfði enn fast á
hana, það var ákefð í augnatillit-
inu og í orðum hans. „Hvers
vegna ekki? Faith, þú verður að
segja mér, að þú sért mér ekki
eilíflega glötuð.“
„Það fer allt eftir því, við hvað
þú átt, er þú segir „glötuð“?“
„Eg á aðeins við eitt: Að ást
þín sé mér ekki eilíflega glötuð.“
„Við vorum ekki að tala um
ást.“ Hún hafði ekki algert vald á
röddinni lengur. Léttleikinn, sem
háfði búið í augnaráði hennar og
tilsvörum, var allt í einu horfinn.
„Þegar eg er með þér, er það
hið eina, sem eg get liugsað um
og talað um.“ Hann hallaði sér
frarn yfir borðið og greip hönd
hennar. „Við eyðum tímanum til
einskis hér, París bíður eftir okk-
ur. Gleymdu virkinu þínu á
Kiscofjalli, hugsaðu heldur um
hvernig lífið mundi verða með
mér fyrir austan haf. Eg segi þér
satt, það er einmanalegt að vera
þar án þín og Afríkudvölin verð-
ur löng, ef eg hef ekkert að
hlakka til við heimkomuna.
Failh, þú getur veitt mér þetta
allt og miklu meira.“
(Framhald).
Kaffibætisverksmiðjan
F R E Y J A
Akuréyri
Eiríkur Sigurðsson
bóndi á Sandhaugum.
— MINNING. —
Heljar lúður í hlustum gellur.
Hraðað er för til dáinsranna.
Hver af öðrum fer og fellur,
fyrri aldar búand manna.
Einum er von þegar svellur.
Allt er í flaumi byltinganna.
Enginn veit nær yfir skellur
aftaksbylur skilnaðanna.
Einn varst þú af öfundarverðum,
afreksmönnum fremri sveita.
Reyndur að þoli, fleygur í
ferðum.
Framdalamaður og öræfaleita.
Lá þér ætíð létt á herðum,
löngunin til að flytja og breyta.
Fremstur að ytri og innri gerðum.
Á þig var jafnan gott að heita.
Konu og bömum unnir, og unnu.
Ohvikult á vegi löngmn.
Mannkostina sem meta kunnu.
Meginsókn frá högunum þröngu.
Bújörð móti morgunsunnu.
Mikla víðáttu’ spillta að öngu.
Bjarkir, sem upp í brekku runnu.
Bættum kjörum frá höggum
ströngu.
Ilvar væri annars láns að leita,
liggi það ekki í þínum störfum?
Mega huga og handa neyta.
Horfa á efnin svipi djörfum.
Viðurkenning sólskinssveita.
Sinna og annarra bæta úr
þörfum.
Saman fortíð — framtíð skeyta.
Ferðalok hjá vöskum örfum.
Hér kom engum óvænt kallið.
Allir falla nú vegir greiðir.
Sá, sem áður fór yfir fjallið,
farinn er nú á hærri leiðir.
Yfir dinnna dauða hallið
dagsbrún sér, og bráðum heiðir.
Létt varð honum því lúðurgjallið.
Lcikvangur nýr, þar sem úr sér
breiðir.
KETILL INDRIÐASON, Fjalli.
.......................... n
Munið
BS A
Sími 1909
......................................nmi,;
Yörubílar
Simar 1218 og 1547.
Bifreiðast. Stefnir s.f.
heldur k\enfélagið Hjálp-
in að Saurbæ. 1. des. og
hefst kl. 10.
Bögglauppboð — Veiting-
ar á staðnum.
Nýjar bækur - Gjaíabækur
MINNINGAR BJÖRGVINS.
ÍÞRÓTTIR FORNMANNA (Dr. Björn frá Viðfirði),
FORMANNSÆVI í EYJUM, Þorsteinn í Laufási.
MERKIR ÍSLÉNDINGAR, IV.
FAÐIR MINN.
ÚR FYLGSNUM FYRRI ALDA, Friðrik Eggerz.
GUÐMUNDUR FRIÐJÓNSSON. ÆVI lians og störf.
MÁLVERKABÆKUR Kjarvals, jóns og Ásgríms.
SKAMMDEGISGESTIR, Magnús H. Jónsson.
BÓNDINN Á HEIÐINNI, Guðl. Jónsson.
BÚVÉLAR OG RÆKTUN.
SÖGUR ÍSAFOLDAR, IV.
SÖGUSAFN AUSTRA.
SUSANNE LENOX. Ástarsaga.
ÞEGAR HAMINGJAN VILL, F. Slaughter.
í FAÐMI SVEITANNA, Elinborg Lárusdóttir. (Minn-
ingar Sigurjóns Gíslasonar.)
DAGUR FAGUR, Jón Björnsson.
UNDRA MIÐILLINN.
DRAUMSPAKIR ISLENDINGAR, Oscar Clausen.
HOUDINI.
VEGIR SKILJAST, W. Corsari.
MAÐUR OG MOLD, Sólveig í Hlíð.
BEVERLY GRAY VINNUR NÝJA SIGRA.
ADDA I KAUPAVÍNNU, Jenna og Hreiðar.
LITLI DÝRAVINURINN, Þorst. Erlings. Myndaútg.
Á REKI MEÐ HAFÍSNUM, Jón Björnsson.
VASKIR DRENGIR.
EIRÍKUR GERIST ÍÞRÓTTAMAÐUR.
HÖGNI VITASVEINN, Óskar Aðalsteinn.
BJÖSSI Á TRÉSTÖÐUM, Guðm. L. Friðfinnsson.
ÆRSLABELGUR Á VILLIGÖTUM.
STÍNA KARLS. (Rauð bók.)
Við sendum yður bækur í póstkröfu hvert á land sem er.
Ritsöfn og stærri verk látum við með afborgun.
Við búum um bækur til útlanda.
BÓK
Sími 1444.
Pósthólf 53.
/p
Manntal
Bændur! - Bú
AÐVÖRUN
Rafmagnsnotendur d veitusvœði Rafveitu Akureyrar!
Gætið þess, þegar spenna er óeðliléga lág, að nota
ekki, eða hafa í sambandi, rafmagnstæki, sem geta
skemmst við of lága spennu, svo sem ísskápa,
þvottavélar o. fl.
Rafveita Akureyrar.
Vegna manntals þess sem fram á að fara 1. des.
n. k., eru það vinsamleg tilmæli þeirra, sem
að manntalinu vinna, að allir, og þó sérstak-
lega húsráðendur og fjölskyldufeður, verði
lieima frá lú. 1—4 þann dag, því að á þeim
tíma er ráðgert að manntalið fari fram.
BÆJARSTJÓRI
SÍLDAR- OG FISKSALAN, Helgamagrastræti 10,
býður saltaðar kinnar ög bútung í 50 kg. pökkum.
Hentugur matarforði, þar sem ekki næst daglega
neyzlufiskur. — Birgðir takmarkaðar.
Pöntunum oftast sinnt í síma 1546.