Dagur - 07.03.1951, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 7. marz 1951
D A G U R
5
FRÁ BÚKAMARKAÐINUM
Richard Beck: Ættland og
erfðir. Urval úr ræðum og
ritgerðum. — Bókaútgáfan
Norðri. Reykjavík 1950.
Um langt árabil hef eg fylgzt
með flestu því, ’sem dr. Richard
Beck hefur skrifað um bók-
menntir í innlend og erlend tíma-
rit og lesið ræður hans og rit-
gerðir um íslenzkar menningar-
erfðir í blöðum vestan hafs, og
er þetta orðið geysimikið ritsafn
að vöxtum, ef öll kurl kæmu til
grafar.
Hann gisnar ekki, penninn, í
höndum þessa atorkusama
fræðimanns og fingurnir kólna
ekki, meðan hann fær unnið
þjóð sinni gagn með því að kynna
bókmenntir hennar út á við og
inn á við, efla metnað hennar og
skilning á sínum dýrustu ger-
semum, þeim auði, sem mölur og
ryð ekki grandar, því „metfé,
sem engan kann lögtak að
svipta“, eins og Stephan G. komst
að orði:
Eitt hljóðfæri var það. Með
hugina fleygu
og hljómana alla feðranna eigu,
sem grétu þar, léku þar, loguðu
og sungu,
sem lögðu þar öldunum raddir á ^ar
'. tungu.
Þetta er arfleifðin, sem dr.
Beck hefui- reynt að vernda og
halda til haga meðal landa vorra
í dreifingunni vestan hafs, þar
sem brimöldur annarrlegrar
menningaf soga til sín mestan
hluta æskunnar, meðan aðrar
hærri öldur draga hina eldri kyn
slóð niður í djúpið. Þessi barátta
verður alltaf erfið,. en samt er
hún ekki þýðingarlaus. Meðan
nokkur maður af isíenzku bergi
brotinn man til upprufta síns, er
hann betur á vegi staddur og líf
hans auðugra og fyllra, ef hann
kann frekar tvær tungur en eina,
og ef hann hefm- einhverja
fjallasýn af íslandí, þó að sléttan
verði byggð hans og gröf. Þetta
hefur dr. Beck aldrei þreytzt
að brýna fyrir Vestur- íslending-
irr: „Vanræksla við ætt og erfðir
hefur aldrei til langframa reynzt
einstaklingum eða þjóðum ham-
ingjuspor. Það hefur alltaf hefnt
sín grimmilega að afneita hinu
bezta í sjálfum sér, í ætt sinni og
arfleifð og gerast hermikráka
annarra. Slíkt er einhver greið-
asta leiðin niður á jafnsléttu
meðalmennskunnar og allar götur
niður í djúp gleymskunnar."
Hugsun allra hiinna beztu
þjóðræknismanna ýestan hafs
hefin- verið sú, að sá maður verði
einnig betri þegn í annarri álfu,
sem fleygir ekki fyrir glingur
hnossum þeim, sem hann hlaut í
vöggugjöf, heldur eykur með
þeim dáð sína og manngildi:
Það leiðir af annarra loftunga að
vera
en lítið og ekkert úr sínum hlut
gera.
Það lækkar. Menn hefjast við hitt
að horfast í augu við hátignir
allar
og hagræða um sitt. (St. G. St.)
Það er sál þjóðarinnar, reynsla
hennar og lífsvizka, sem bók-
menntir vorar geyma, fornar og
nýjar. Þegar þessi heimur lokast
og þjóðarbrotið gleymir uppruna
sínum, er hætt við að það týni
sjálfu sér og hverfi eins og dropi
sjóinn.
í þessari bók: Ættland og
erfðir, er fyrri hlutinn úrval úr
erindum um þjóðræknismál Vest-
ur-íslendinga og menningar-
tengsl við heimaþjóðina, sem höf-
undurinn hefur haldið á þingum
Þj óðræknisfélagsins í Winnipeg,
Dar sem hann var um langt skeið
forseti, og ræðum, er hann hefur
flutt víðs vegar á samkomum ís-
lendinga í Vesturheimi. I öllum
sessum ræðum logar hin fölskva-
lausa ættjarðarást og eldlegur
áhugi fyrir viðhaldi íslenzks
jjóðernis eins lengi og auðið
verður. Og þetta eru ekki orð
innantóm, svo handgenginn sem
höfundurinn er því efni, sem
hann talar um. í því andar hann,
hrærist og lifir. Hjartað er með,
sem undir slær. Hvergi unna
menn ættjörð sinni meir en í út-
legðinni, og hvergi verður þeim
ljósara tjónið af því, sem for-
görðum fer, en á hættusvæðinu,
sem sérmótaðar kynslóðir
sökkva í deiglu þjóðablendings
ins mikla, sem enn er í sköpun
og á sér svo litla fortíð. En jafn-
hollur lestur er þetta líka fyrir
þá, sem heima sitja, og áminning
um að geyma betur og meta meir
sín barnagúll.
Seinni hluti bókarinnar eru
veigamildar ritgerðir um ýmis
höfuðskáld vor, eins og t. d. Jón
Þorláksson, Matthías Jochums-
son, Grím Thomsen, Orn Arnar-
son, Huldu, Davíð Stefánsson,
Þorstein Gíslason o. fl. Hefur
sumum þessara skála eki verið
gerð ýtarlegri skil annars staðar,
enda hefur prófessor Richard
Beck mörg hin síðustu ár kann-
að manna mest stefnur og
strauma í kveðskap íslendinga á
síðari öldum eins og sjá má af
Ijóðasögu þeirri hinni miklu, sem
hann reit fyrir skömmu á enska
tungu, og eg hef nýlega getið um
hér í blaðinu. Sjálfur er hann
prýðilega skáldmæltur og ritar
því inn þessa hluti af næmum
skilningi og þekkingu.
Er því öllum þeim, sem lesa
vilja bókmenntir sér til gagns,
gott að njóta leiðsagnar hans.
Slíkar ritgerðir gefa meiri yfir-
sýn og draga athygli að mörgu,
sem annars kynni að fara fram
hjá. Bókmenntaþjóð þarf að
eignast góða bókmenntagagm-ýni.
Of fátt af slíkum ritum hefur ver-
ið gefið út og hér erum vér að
auðugri. Hafi dr. Richard Beck
þökk ^Eyrir drengilegt handtak í
þessa átt. Benjamín Kristjánsson.
Jóhann Snorrason
skákmeistari
Norðurlands
Nýlokið er hér í bænum keppni
í rheistaraflokki á Skákþingi
Norðurlands. Leikar fóru þannig
að Jóhann Snorrason varð hlut-
skarpastur, tapaði cngri skák, en
fékk tvö jafntefli.
1. Jóhann Snorrason 5 vinn-
inga, 2.—3. Jón Ir.gimarsson og
Júlíus Bogason 4% vinning, 4.—
5. Unnsteinn Stefánsson og Har-
aldur Bogason 2 vinninga og 6.—
7. Steinþór Helgason og Margeir
Steingrímsson 1% vinning.
Úr bænum og nágrenninu:
Það hefur oft kostað mikið erfiði, að
koma mjólkinni til bæjarins í vetur
ÞAÐ TELZT til tíðinda, ef
a mjólkurflutningar hingað til bæj-
arins stöðvast algerlega, þótt ekki
sé nema einn dag. Þessi vetur
hefur samt verið erfiður fyrir
m j ólkurf lutningabílst j óra og
bændurna og stundum hafa þeir
lagt nótt við dag til þess að koma
mjólkinni til bæjarins. í bréfi,
sem blaðinu hefur borizt frá
bónda í Eyjafirði, er lýst nokkuð
flutningaerfiðleikunum í síðustu
viku febrúarmánaðar. Er fróð-
legt að kynnast nánar því starfi,
sem að baki mjólkurflutninganna
býr, og fer hér á eftir þessi frá-
sögn.
FOSTUDAGINN 22. febrúar
var mjólk flutt til Akureyrar
framan úr Eyjaf. vestanverðum,
eftir tveggja daga stórhríð. Byrj-
að var að moka snemma á
fimmtudagsmorguninn. Fannfergi
var gífurlegt og sóttist seint. —
Komið var til bæjarins klukkan 7
á föstudagsmorguninn og lagt af
stað heimleiðis um hádegi. Um
kvöldið klukkan 11 kom bíllinn
úr Hrafnagilshreppi að Grund,
en Saurbæjarhreppsbílarnir náðu
ekki heim fyrr en undir morgun.
Hafði slóðina fyllt meðan bílarnir
voru í bænum. í þessu volki voru
allir leiðangursmenn glaðir og
reifir.
Á srmnudaginn gerði ófært
veður, með sunnan skafrenningi
og var enn byrjað að moka,
klukkan 2 á mánudagsnótt, með
tveimur ýtum, og aðrar tvær
komu til hjálpar á þriðjudag. —
Komið var að mjólkursamlaginu
kl. 5,30 e. h. og þar mættu okkur
brosandi andlit og framréttar
hendur tóku á móti brúsunum og
losuðu þá. í samlaginu sögðust
þeir ekki skrifa eftirvinnu þegar
svona stæði á. Er ánægjulegt að
mæta slíkum skilningi í erfiðr
leikum. Samlagsstjórann hittum
við á skrifstofu sinni þótt klukk-
an væri farin að ganga 7, og í
matvörudeild kaupfélagsins feng
um við ágæta afgreiðslu þótt
komið væri fram yfir lokunar-
tíma. Allt þetta ber að þakka og
viðurkenna.
fcKHKHKHKBKHKBKHKHKHKHKHKHKBKHKHKBKHKHKHKHKBKHKHaí
LEIÐBEININGAR
uin meðferð og söltun á húðum og skinnum
1. Fláningu verður að vanda sem bezt. Rista skal
þannig fyrir, að húðin haldi eðlilegu lagi, svo að sem
minnst verði af sepum og vikum í jöðrunum. Á aftur-
fótum skúl rista fyrir aftan a hæklunum, ekki innanfótar
eins og oft er gert. Á gripum er bezt að iosa húðina af
kjötinu með kollóttu barel'li, en það verður þó að gera
með gætni, svo að hárramurinn springi ekki. Fláningu
með hníf verður að framkvæma með mestu varkárni,
og er það verk ekki fyrir aðra en liandlagna menn eða
æfða slátrara. Hver hnifrisþa eða skurður í húðina gerir
hana verðminhi. Fláningarhnífurinn á að vera með bog-
inni egg og vel beittur. Þegar brýnt er, skal brýnið síð-
ast dregið þeirn megin á eggina, sem snýr að húðinni,
þegar flegið er.
2. Farið hrqinlega rneð húðirnar, þegar slátrað er, og
látið þcer kólna sern fyrst, án þess að holdrosinn skurni.
Hreinsið burt öll óhreinindi bæði úr hári og holdrosa,
strax og skinnið er orðið kalt. Ef skarnkleprar eru fastir
í hári, má þvo þá af með ilvolgu vatni, enda sé sápan
skoluð vel út á eftir. Þess verður að gæta vel, að vatnið
sé ekki svo heitt, að það lileypi eða meyri skinnið.
3. Saltið húðirnar strax eflir að þcer eru orðnar kaldar
og áður en 'holdrosinn byrjar að þorna. Látið aldrei hjá
liða að salta sama daginn og slátrað er. Sé dregið lengur
að salta, gengur saltið ekki eins vel inn í húðina. En
það er skilyrði fyrir góðri geymslu, að húðin gegnum-
saltist á sem skemmstum tíma. Hinn rnikli aragrúi
baktería, seni þekur yfirborð húðarinnar, byrjar að
starfa að upplartsn og rótnun húðvefjanna strax og lífi
skepnunnar er lokið. ()g þessi starfsemi getur gengið
ótrúlega fljót’t, ef ekki er komið í veg fyrir liana þegar
í.byrjun. Bezta vörnin er fljót og góð söltun og geyinsla
á svölum stað. Þegar saltað er, verður vandlega að breiða
úr öllum skæklum og jöðrum og dreifa saltinu vel yfir
alla liúðina. Eltir því sem skinnið er þykkra, þarf meira
salt. Einkuf þarf að salta rnikið, þar sem skinnið er
þykkt og laust í sér, svo sem í liáls og kviði á nautshúð-
Um. Fyrir hvér 3 kg. áf hráhúðarvigt þarf sem næst 1 kg.
af salti. Mikið saít gerir aldrei skaða, og er því betra að
salta of mikið én of lítið. Notið ávallt ln eint og fínt salt.
4. Kýsaltáðar húðir má ekki brjóta saman i búnt til
að geynia þcer þannig. Þær eiga að liggja flatar, lítið eitt
liallandi, svo hið blóði blandaða vatn, sem saltið dregur
úr húðinní, geti runnið buft. Má salta þannig hverja
húðina ofan á aðra í stalfa og snúa holdrosanum upp á*
hverri húð. Húðirnar verða að liggja þannig flatar, þar
til þær eru gegnsaltaðar, en það tekur venjulega 1—2
vikur. Þá má, þegar hentugt þykir, taka þær upp og
búnta til flutnings eða geymslu. Aðeins með þessari
söltunaraðférð er hægt að geyma húðirnar óskemmdar.
Búntsaltaðar liúðir eru venjulega meira og minna
skemmdar og geta yfirfeitt ekki talist fyrsta flokks vara.
Ef ekki er hægt, á heimilum þar sem gripum er slátrað,
að geyma húðirnar á þennan liátt, verður að búntsalta
til bráðabirgða og salta þá jafnframt í hárraminn, þegar
vafið er saman. Síðan verður að koma liúðunum sem
fyrst á sölustað og,salta þær þar aftur á réttan hátt.
5. Nýjar, ósaltaðar húðir verður að vcrja gegn frosti,
því frostið gerir leðrið laust og gróft. Húðir má ekki
láta liggja við járn, því járnið getur orsakað ryðbletti
og skemmdir.
6. Húðir .og skinn af gripum, kálfurn, sauðfé og geit-
um œtti aldrei að herða eða þurrka. En sé slíkt gert, þarf
að strá í hárið naftalíni, til að verja skinnin fyrir möl.
NÚ UM MÁNAÐAMÓTIN —
28. febrúar — er komin hláka og
farið að sjá í dökka díla hér. og
þar, og mega hrossin, sem úti
ganga, verða fegin, en þau eru,
sem betur fer, fá. Forðagæzlu-
menn hefðu mátt sinna sínu starfi
betur. En snjór er samt feykilega
rnikill og hætt við skemmdum ef
bráða hláku gerði, ekki sízt á
vegunum, þar sem ruðningar eru
miklir. En hér sem annars staðar
getur gott eftirlit bætt úr skák.
Kaupfélag Eyfirðinga.
hKhkhKhKhkhkhkhKhKhkhkhkhkhkhKhkbkhkhkhkhkhkbkhkj
HÚS TIL SÖLU 1
Tilboð óskast í húseignina Aðalstræti 34. — Tilboð-
um sé skilað til undirritaðs fyrir 10. þ. m.. — Húsið er
til sýnis frá 5—7 e. lr. alla daga.
Þorgeir Lúðviksson.