Dagur


Dagur - 09.05.1951, Qupperneq 8

Dagur - 09.05.1951, Qupperneq 8
8 Miðvikudaginn 9. maí 1951 1Dagur Kantötukór Aknreyrar þátttakandi í norrænu söngmóti í Stokkliólmi í næsta ifíánuði Kantötukórinn er vandanum vaxinn, segir dr. Urbantschitsch ]ón Oddgeir rómaði mjög áhuga Eyfirðinga fyrir slysavaraamálum Fyrir helgina komu hingað til bæjarins þeir dr. Victor Ur- bantschitsch, fonnaður söng- málaráðs Landssambands bland- aðra kóra, og Edvald B. Malm- quist, formaður Sambandsins, og var erindi þeirra að kynna sér undirbúning Kantötukórs Akur- eyrar til norræna söngmótsins í Stokkhólmi í næsta mánuði, en kórinn mætir þar fyrir hönd Sambandsins og syngur auk þess opinberlega víða í Svíþjóð og í Noregi og Danmörk. Blaðamenn ræddu við þá dr. Urbantschitsch og Malmquist fyrir helgina. Dr. Urbantschitsch hafði hlýtt á söng kórsins og lét vel af því. Hann kvaðst télja kór- inn vandanum vaxinn og fulla ástæðu til að ætla að hann gæti sér gott orð á söngmótinu og í söngkeppni þeirri, sem þar er fyrirhuguð. Kvað hann augljóst að kórinn hefði starfað vel og dyggilega í vetur að undirbún- ingi fararinnar. Mesta söngmót Norðurlanda. Sveriges Körförbund bauð til móts þessa og var ákveðið á að- alfundi Landssambands bland- aðra kóra í fyrra, að Kantötukór Akureyrar skyldi mæta fyrir hönd Sambandsins. Mótið verður dagana .12.-18, júní, en dagur íslands á mótinu verður 17. júní. Alls taka um 5000 söngmenn þátt í mótinu, þar af um 4000 Svíar. Svíar greiða fyrir för aðkomu- kóranna á ýmsan hátt. Á söng- mótinu fer fram söngkeppni, í tveimur flokkum, þjóðlagakeppni og keppni um flutning þriggja laga. Kantötukórinn tekur þátt Skíðalyftan hefur verið tekin í notkun Ekki gat orðið úr því að skíða- lyftan yrði tekin í notkun sl. fimmtudag eins og boðað var hér í blaðinu, en hún var reynd á sunnudaginn skammt frá Fálka- felli, og reyndist vel. Taugin er 500 metrar, og er lyftan 2 Va—3 mín. að draga upp brekkuna í áframgír, en nokkru lengur í aft- urábakgír. Verður lyftan endur- bætt til að afkasta meiru. All- margt fólk reyndi lyftuna á sunnudaginn, en annars var veð- ur slæmt þann dag. Það eru þeir Kristján Sigurðsson hótelstjóri, Hermann Stefánsson íþrótta- kennari og Haraldur Sigurðsson íþróttakennari, sem hafa komið lyftunni upp, en skíðamenn í bænum hafa drengilega stutt þá með sjálfboðavinnu. Þeir félag- ar hafa í hyggju að reyna að koma lyftunno fyrir á varanleg- um stað, þar sem fólk geti notað hana meðan snjó rendist og helzt iram á sumar. í þjóðlagakeppninni. — Fimm manna dómnefnd dæmir og er dómnefndarmaður frá hverju Norðurlandanna. Héðan Páll ís- ólfsson, en í forföllum hans mun Haraldur Sigurðsson píanóleikari væntanlega sitja í nefndinni. Auk hljómleikanna í Stokkhólmi, sem fram fara í sambandi við mótið, í Konserthúsinu, og skemmti- görðum borgarinnai, mun Kan- tötukórinn ferðast víðs vegar um Svíþjóð og halda hljómleika, svo og í Osló og væntanlega í Kaupmannahöfn. Söngstjórar í förinni verða þeir Björgvin Guðmundsson tónskáld og Áskell Jónsson söngstjóri, og mun Björgvin stjórna köflum úr óratóríóverki sínu Strengleikum. íslenzk músík verður eingöngu flutt af kórnum. Lagt af stað fyrir mánaðamót. í förinni verða um 70 manns, þar af 55 söngmenn. Fararstjóri er Jón Sigurgeirsson kennari. — Formaður Kantötukórsins er Jón Júl. Þorsteinsson kennari.—Far- ið verður héðan fyrir n.k. mán- aðamót, en 30. maí frá Rvík með Dr. Alexandrine. Komið heim 1. júlí, flugleiðis. Dr. Urbantschitsch gat þess að í ráði væri að halda hljómleika í Reykajvík áður en kórinn leggur upp í ferðina. Hinn 5. þ. in. kvað sakadómar- inn í Reykjavík upp dóm í út- varpsmálinu svokallaða, en það er mál, er dómsmálaráðuneytið lét höfða í tilefni af rannsókn á fjárreiðum útvarpsins í sam- bandi við skrif Helga Iljörvar um þau og útvarpsstjórann. í dóminum er talið að útvarps- stjórinn hafi ekki átt tilkall til lántökugjalds fyrir milligöngu um lántökur úr framkvæmda- sjóði útvarpsins og er hann dæmdur til að greiða 3000 kr. sekt til ríkissjóðs og bera allan kostn- að sakarinnar, en að öðru leyti er hann sýknaðui' af áburði þeim, er fram kom í bæklingi Helga Hjörvar, þ. á. m. í sam- bandi við ráðningu venzlamenna í kvartett o. s. frv. í dómsforsendum kemur fram að útvarpsstjóri hefur rætt við þáv. fjármálaráðherra um það, hvort sér væri heimilt að taka þóknun fyrir milligöngu, en ráð- herra taldi samtalið lauslegt rabb en ekki embættissamtal og hvað engar tölur þar hafa verið nefndar. v ■ ■ =? Von um að imilent lán fáist til sjíikra- hússins Vonir standa nú til að inn- lent lán fáist til þess að full- gera sjúkrahúsið hér og var bæjarstjóra veitt heimild til þess að taka slíkt lán á bæjar- ráðsfundi sl. mánudag. Er nú unnið að málinu. Upphaflega var ætiunin að fá erlent lán, en á því voru vandkvæði. Áætlað er að með 2 millj. kr. lánveitingu megi að mestu Ijúka sjúkrahússbyggingunni og taka hana í notkun. 80 ára afmæli Barna- skólans Síðastl. sunnudag minntust barnaskólabörnin 80 ára afmælis skólans með hátíðlegri skrúð- göngu um bæinn. Fór Lúðra- sveitin fyrir fylkingunni. Síðar um daginn var handavinnusýning barnanna og var þar margt fall- ega gerðra muna. Til sýnis voru og Ijósmyndir frá starfi skólans á ýmsum árum. Afmælisins mun verða minnst með samsæti 11. þ. mán. Jörundur landar í Ólafsfirði „Jörundur“ hefur landað tvisvar í Olafsfirði og er aflinn frystur og saltaður þar. Skipið flaut greiðlega að bryggju og hefur löndunin gengið vel. - Varnarliðið í Keflavík (Framhald af 1. síðu). f KEFLAVÍK og Reykjavík, og raunar um land allt, tóku lands menn tíðindunum með jafnað- argeði. Engin merki æsinga voru neins staðar sjáanleg nema í kommúnistablöðunum. En kommúnistar höfðu undir- búið jarðveginn með skrifum sínum að undanförnu. Þeir voru búnir að Iýsa því yfir að þessara tíðinda væri von. Þeir voru líka búnir að eyða öllum stóryrðunum og landráða- brigslunum, svo að þegar her- inn loksins kom, voru stóryrði þeirra og brigsl ekkert nema endurtekning á því, sem þeir voru áður búnir að skrifa og segja og féllu máttlaus til jarð- ar. Kommúnistar þykjast vera sérstakir snillingar í áróðri — og stundum eru þeir sniðugir — en þarna brást þeim boga- listin Þetta stóra áróðursmál þeirra datt sundur í höndum þeirra. Fólkið hlustar ekki lengur á þá. Jón Oddgeir Jónsson, erind- reki Slysavarnafélags fslands, dvaldi hér í bænum um skeið í síðasta mánuði og fram yfir mán- aðamótin og hélt hér námskeið, erindi og kvikmyndasýningar fyrir slysavarnamálin, fyrir for- göngu Slys-avarnadeildanna hér og Rauðakrossdeildarinnar. Þátttakan í námskeiðum og fundahöldum var mjög góð. — Rómaði Jón Oddgeir mjög áhuga manna hér um slóðir fyrir slysavarnamálum, og kvað allan undirbúning hér af hendi slýsa- varnadeildanna og Rauðakrossins hafa verið með ágætum. En félög- in telja að sínu leyti að verulegt gagn hafi orðið af komu erind- rekans. Góð þátttaka. Hér á Akureyri voru haldin námskeið í lífgun, hjálp í viðlög- um og hvernig varast beri hætt- ur á vinnustöðum o. s. frv. og sóttu þau um 120 manns. Þá voru haldin námskeið í Húsmæðra- Verkfalli lijá vegagerð- inni frestað Bílstjórafélag Akureyrar sam- þykkti nú um helgina að fresta um óákveðinn tíma þáttt. í verk- falli hjá Vegagerð ríkisins, sem hefjast átti snemma nú í mánuð- inum. Samningar við Vegagerð ríkisins gilda yfirleitt til 18. þ. m. og eftir þann tíma munekkiverða unnið að vegaviðgerðum nema samningar hafi tekizt eða fleiri félög fari að dæmi bílstjórafélags- ins hér. Tveir togarar koma með saltfisk Tveir togarar komu inn nú um helgina með saltfisk og fisk til vinnslu í Krossanesi. Svalbakur landaði 175 tonnum í Krossanesi í fyrradag, Harðbakur losar þar einnig nokkurt magn. Bæði skip- in hafa talsvert af saltfiski, sem hér fer í land. Kemst skriður á flug- vallarmálið? Marteinn Björnsson verkfræð- ingur kom hingað til bæjarins sl. mánudag, á vegum flugmála- stjórnarinnar, og er erindi hans að gera nokkrar framhaldsat- huganir á flugvallarstæðinu fyr- irhugaða í Eyjafjarðárárhólmum. Nokkur hreyfing er nú á flug- vallarmálinu og standa vonir tíl að undirbúningur flugvallargerð- arinnar hefjist í sumar. skólanu.m, Barnaskólanum og Menntaskólanum og leiðbeint um umferðareglur (einkum fyrir börn) o. fl. — Þá voru kvik- myndasýningar fyrir almenning, og sýndar slysavarnamyndir. Var aðsókn ágæt. Sérstök sýning var fyrir kvennadeild Slysavarna- félagsins Og sóttu hana um 100 konur. Erindrekinn heimsótti vinnustaði hér í bænum og leið- beindi um slysavarnir. Utanbæj- ar starfaði hann í Dalvík, Saur- bæjarhreppi og Öngulstaða- hréppi. Tvær glæsilegar sölubúðir Laugardaginn 5. þ. m. opnaði Kaupfél. Þingeyinga á Húsavík tvær sölubúðir í hinu stóra og nýbyggða verzlunarhúsi sínu. — Er þetta nýlenduvörudeild og járn- og glervörudeild. Deildar- stjórar í þessum nýju búðum eru þeir Jón Haukur Jónsson og Jón- as Egilsson. í þessari sömu bygg- ingu tók til starfa kjötbúð fyrir rúmu ári. Kjötbúðarstjóri er Kristján Guðmundsson. - Varnarsanmiiigurinn (Framhald af 1. síðu). um endurskoðun leiðir ekki til þess, að ríkisstjórnirnar verða ásáttar innan 6 mánaða frá því að málaleitanin var borin fram, getur hvor ríkisstjórnin, hvenær sem er eftir það, sagt samningn- um upp, og skal hann þá falla úr gildi 12 mánuðum síðar. Hvenær sem atburðir þeir verða, sem 5. og 6. grein Norðuratlantshafs- samningsins tekur til, skal að- staða sú, sem veitt er með samn- ingi þessum, látin í té á sama hátt. Meðan aðstaðan er eigi notuð til hernaðarþarfa, mun ísland annað hvort sjálft sjá um nauð- synlegt viðhald á mannvirkjum og útbúnaði, eða heimila Banda- ríkjunum að annast það. Áttunda grein. Samningur þessi er gerður á íslenzku og ensku. og eru báðir jafngildir. Hann gengur í gildi, er hann hefur verið undirritað- ur af réttum yfirvöldum íslands og Bandaríkjanna og ríkisstjórn íslands hefur afhent ríkisstjórn Bandaríkja Norður-Ameríku til- kynningu um að samningurinn hafi verið fullgiltur af íslands hálfu. Gert í Reykjavík 5. maí 1951. Fyrir hönd ríkisstjórnar íslands (sign) Bjarni Benedkitsson, utanríkisráðherra íslands. Edward B. Lawson (sign) sérlegur sendiherra og ráðherra með umboði fyrir Bandaríki Ameríku á íslandi. Undirréttardómur fallinn í útvarpsmálinu: Útvarpsstjóri átti ekki tilkall til lán- tökngjalds - sýknaður af öðrum ábnrði

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.