Dagur


Dagur - 06.06.1951, Qupperneq 6

Dagur - 06.06.1951, Qupperneq 6
6 D AGUR Miðvikudaginn 6. júní 1951 r D A G U R Ritstjóri: Haukur Snorrason. Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta: Erlingur Davíðsson Skrifstofa i Hafnarstræti 87 — Sími 1166 Blaðið kemur út á hverjum miðvikudegi. Gjalddagi er 1. júlí. Árgangurinn kostar kr. 40.00. PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR H.F. KEA 65 ára I DAG ERU RÉTT 65 ár síðan Jón Vídalín í Múla skrifaði Eyfirðingum bréf um verzlunarmál héraðsins og benti á möguleika til þess að komast í beint samband við erlent verzlunarhús. Þetta bréf hans, dags. 6. júní 1886, var hið ytra tilefni fundarins, sem haldinn var að Grund 19. sama mánaðar þar sem formlega var gengið frá stofn- un Kaupfélags Eyfirðinga. Með þessum aðgerðum fékk barátta Eyfirðinga fyrir verzlunarsjálfstæði fast form. En löngu áður höfðu ýmsir beztu menn héraðsins séð og skilið, að fyrsta skilyrðið til þess að hefja sókn í efnalegum og menningar- legum efnum, var að vekja fólkið til skilnings á mætti samtakanna og gildi þess starfs, sem unnið væri í anda samvinnuhugsjónarinnar. Samvinnu- hugsjónin er því eldri en 65 ára hér . í. Eyjafirði, en þar verður ekki bent á neinar dagsetningar, eða ártöl. Hitt er staðreynd, að í þess\im ; júní- mánuði eru rétt 65 ár síðan hinn sögulegi fundur var haldinn að Grund. Nú eru því tímamót og til- efni til að líta um öxl, minnast starfs frumherj- anna og hugsjóna þeirra, og glöggva sig á því, hvert stefnt er í dag. HVER VAR HUGSJÓN forustumanna Eyfirð- inga árið 1886, er þeir bundust samtökum í verzl- unarmálunum? Áreiðanlegt er, að enda þótt þeim væri það efst í huga, að fá í senn góðar og ódýrar vörur fyrir sauðina sem þeir sendu Zöllner í Newcastle, og verða þannig óháðir Akureyrar- kaupmönnum, hafa þeir séð í þessum samtökum möguleika til alhliða viðreisnar í héraðinu. Sú sýn hefur að vísu verið fjarlæg, í draumheimi þess menningarþjóðfélags, sem góðir íslendingar hafa á öllum öldum séð við yzta sjóndeildar- hring. Það hefur þurft mikið ímyndunarafl til þess að ger^gér í hugarlund verzlunaraðstöðuna á Akureyri árið 1951 fyrir þann, sem fyrir alda- mótin stóð á Oddeyrartanga og fékk mælt korn í pokaskjatta undir berum himni af því að félagið átti þá enga verzlunarbúð. En samt er það víst, að hugsjón frumherja samvinnustarfsins hér í Eyjafirði var, að skapa í héraðinu þá möguleika til menningarlífs, sem nú blasa við okkur. Það var aldrei stefna þeirra, að samtökin yrðu elski annað og meira en févana pöntunarfélag. Það kom bezt x ljós, er Hallgrímur Kristinsson hófst handa um að framkvæma þessar hugsjónir. Hann stóð þá ekki einn uppi, heldur fylgdu samvinnu- menn héraðsins honum fast eftir. Samhliða fram- sókn og viðreisn var stefnan, og þannig hefur verið unnið síðan, undir forustu Hallgríms og Sigurðar Kristinssona, Vilhjálms Þói*, Einars á Eyralandi, Jakobs Frímannssonar ,og Þórarins á Tjörn. J EF MENN EIGA ríkt ímyndunai’afl geta þeir í huga sér brugðið upp mynd af bæ og héi'aði í dag, ef búið væri að taka burt öll hin sýnilegu og ytri merki samvinnustarfsins í Eyjafirði, nema á brott verksmiðjumar og verzlunai'húsin og alla þá aðstöðu, sem samvinnustai'fið hefur skapað hér. Ef mönnum tekst að framkalla slíka mynd í huga sér, sjá þeir e. t. v. betur en áður, hvað hefur áunnist, hvert er orðið samvinnustai'fið í 65 ár. Hér í þessu héraði er ekki hægt að benda á neitt afl, sem fremur hefur lyft fólkinu til efna- legs- og menningarlegs sjálf- stæðis en máttur samvinnunnar. Arðurinn af starfi og striti fólks- ins hefur að vei-ulegu leyti stað- næmst hér heima í héraðinu vegna starfs Kaupfélags Eyfirð- inga. Hann hefur hér skapað at- vinnutæki til lands og sjávai’. Hann birtist í óteljandi myndum þróttmikils athafnalífs. EYFIRÐINGAR mega í dag miiiriast með þakklæti þeirra manna, sem á liðnum áratugum hafa af alhug starfað að því að gera þetta hérað og þennan bæ að mesta samvinnubyggðarlagi þessa lands. En þeir eiga ekki þar fyrir að halda að sér hönd- um. Samvinnustai'fið er ævar- andi. Ekkert lát má vei'ða á því starfi að byggja upp þetta hérað og þetta land ,til hags og heilla fyrir heildina. Reynslan hefur þegar kennt, hvei'nig það starf vei’ður bezt unnið. Ái’angurinn næst ekki með pólitískum bægslagangi, með hjálp neinna „isma“ eða kreddukenninga, heldur með bx’óðurlegi'i sam- vinnu fólksins við sjó og í sveit. Hin friðsamlega uppbygging samvinnunnar er öruggasta leið- in til framtíðarríkisins. FOKDREIFAR Landið norðan heimskauts- baugs. A MANUDAGINN voru mér gefin nokkur Grímseyjaregg, en svo er tízka að kalla álku- og langvíuegg hér um slóðir, og raunar öll sjófugla-egg, sem úr Gi’ímsey koma. Á Vestfjörðum voru þessi egg kennd við Horn- stx-andir í mínu ungdæmi. Þá kom stundum vélbátur af Strönd um inn. á vestfirzku firðina og bátsmenn höndluðu þar i hverri höfn og þóttu góðir gestir. Hér fjrrr á árum var jafnan hægt að £á keyp.t Grímseyjaregg hér um slóðir, en nú er.af sú tíð og ekki sér maður þau lengur nema þeg- aj’ góðvinir par í eyjunni sjá aiXtnuf á manni. Annai-s er éggjataka ittiklu minna stunduð í Gi’ímsey en áður var. Mér er sagt af kunnugum, að óvíst sé, hversu mikið varpið hafi minnk- að þar á liðnum árum, en það heyrir maður oft nú, að bjarg- fugl verpi minna hér við land en áðui’. Aðalástæðan til þess, hve Grímseyjaregg eru fátíð „í landi“ sé sú, að Grímseyingar gefi sér ekki tíma til að stunda hinn bættulega atvinnuveg sem fyrr- um og er þeim það ekki láandi, énda munu sigmenn nú til dags síga í bjargið með sama hugar- fari og íþróttamaður leggur tiL keppni, en ekki með neina at- vinnu- eða gróðavon hæst í huga. Á þessu vori var mikið varp í bjarginu og mikil fugla- mergð við eyjuna og hefur ekki orðið nein bretying á til hins verra nú upp á síðkastið ^ið þessu leyti. Ein fuglategund, sem verpti í Grímsey fyrrum, er þó alveg horfin þaðan. Það er haf- súlan. Þar sem hún verpti, varð hrun í bjarginu fyrir allmörgum árum, og síðan hefur hún ekki sézt þar og sakna Grímseyingar þessa fagra og tígulega fugls. A ÍSLANDSKORTINU, sem eg lærði í barnaskóla, gekk norð- urheimskautsbaugurinn yfir Grímsey þvera og þar liggur hann enn í vitund minni, hvort sem þetta kort hefur nú verið rétt di'egið eða ekki. Nú er sum- ar í lofti, sólríkir dagar og blíður blær á nóttu jafnt sem degi að kalla má. Hin nóttlausa voraldar veröld siglir harðbyri til yfirráða í náttúrunnar ríki hér norður frá. Það er fagurt að líta héðan til norðursins síðla kvölds og snemma morguns, og þó raunar allan sólarhringinn. Einhvern veginn fær maður það á tilfinn inguna, að því fegurra gerizt í þessum nóttlausa heimi þessa norðui'hjara alls, því norðar sem dregur. Þegar eg var að spyrja góðvin minn úr Grúnsey, sem færði mér eggin á dögunum, frétta úr eyjunni, var hann sagnafár um fiskveiðar og at- vinnuhorfur. En hann sagði: „Það veit enginn hér, hversu dá- samlegt er í Grímsey á svona vori.“ Þessu trúi eg vel. Maður getur ímyndað sér hvernig muni vera umhorfs um bjarta og heiða júnínótt þar norður frá, þegar fuglarnir hafa tekið völdin í náttúrunni og öll eyjan er iðandi af lífi. Heimskautsbaugurinn gengur í gegnum Grímsey miðja. Á suðurhelmingnum er byggðin, þar gengur lífið svipað og annars staðar á þessum tíma árs og er ekki margt í frásögur fært það- an. En fyrir norðan bauginn er nýr heimur. Þar er bjargið og þar drottna álkur, langvíur, skeglur og aðrir sjófuglar. Og þar heyja eyjarskeggjar spenn- andi leik á hverju vori, þegar einn grannur strengur skilur í milli lífs og dauða og steinvala getur orðið mannsbani. Þessi heimur er hér í grennd við okk- ur en ókunnur og lokaður. Þegar vorar, leitum við gjarnan suður á bóginn, í leit að sólskini og birtu ,eftir vetrarhörkurnar. En á þessum árstíma er birtan norð- ur frá. Við heimskautsbauginn, í Grímséy, er ævintýralandið á hverju vori. En þetta er okkur flestum lokaður h^imur, ekki af neinu járntjaldi, heldur af röngu mati okkar á því, hvert sé að sækja fegurð og tilbreytni. Við leitum þessara gæða í suðurátt — ef þess er nokkur kostui’. En mundi júnínótt á þessum norð- urslóðum ekki eins eftirminnileg og suðurganga um torg og stræti? Mikil verðmæti eyðilögð. Bíleigandi skrifar blaðinu: „ÞIÐ VORUÐ að spyrjast fyr- ir um það á dögunum, hvort bæjaryfirvöldin héldu enn áfram að aka sjó á götui-nar. Eg get upplýst ykkur um, að þetta er þeirra daglega iðja um þessar mundir. Og sjóinn taka þeir ekki inn við Höepfnersbryggju, þar sem hann mun eitthvað blandað- ui' fersku vatni, heldur láta þeir sig hafa það að taka hann við Oddeyrartanga, enda ná þeir þar í úthafið og þá saltprósentu, sem fljót er að vinna á bílum bæjar- manna. Það er haft á orði, og ekki að ástæðulausu, að hvergi á landinu eyðileggist annað eins af bílskermum og hér á Akureyri. Kunnugir fullyrða, að eyðilegg- ingin nemi tugum þúsunda króna á ári. Kostnaðurinn við að fá nýja skerma á bíl skiptir nú þús undum og hér í bæ eru fleiri hundruð bílar. Við núverandi kringumstæður endast skermarn ir ekki hálft á móti því sem eðli legt er. Tjón bílaeigenda er því svo mikið, að það má alveg furðulegt heita, að þeir skuli ekki fyrir löngu hafa risið upp gegn þessu eyðileggingar fyrir- komulagi bæjaryfirvaldanna. Eg vil spyrja bæjarfulltrúana: Ætla þeir að horfa upp á það eitt sum- (Framhald á 11. síðu). Hugleiðingar árla morguns „Ef þú annt fegurðinni, þá skaltu fara snemma á fætur og ganga út,“ sagði vinur minn við mig á dögunum, „Akureyri er aldrei fegurri en á morgn- ana.“ Eg fór að ráði hans, og sannarlega hafði hann rétt að mæla; Akureyri er aldrei fegurri en einmitt á morgnana. Og eg fór að velta því fyrir mér, hvern- ig mundi standa á því, að við erum yfirleitt svo vær á morgnana, komumst ekki úr rúmunum, fyrr en langt er liðið á dag. Það liggur beinast við að álykta, að morgundróm- inn stafi af því, að við komumst ekki í rúmið á kvöldin, fyrr en allt of seint, og einhvern tíma verðum við að sofa. En hvers vegna komumst við ekki í rúmið á kvöldin? Sumir vilja halda því fi'am, að það stafi af birtunni, að við getum ekki fengið okkur til þess að hátta, þegar bjart er eins og um hádag og oft undurfagurt. En hvernig gengur þá með háttatimann á vetrum, þegar svartamyrkur umlykur allt? Förum við nokkuð fyrr að hátta þá? Kannske sumir, en eg efast um að mikil brögð séu að því. En það er önnur ástæða, sem miklu veldur. Við erum a. m. k. einni klst of seint á ferð með allt okkar hafurtask, bæði skemmtanir, störf, útvarp o. fl. Ef hafizt væri handa kl. 8 á morgnana, mætti loka skrifstofum kl. 4 e. h. og verzlunum kl. 5. Þá væri hægt að borða kvöldverð kl. 6, og fréttir útvai’psins mætti flytja kl. 6.30. Af þessu leiddi, að fundahöld, skemmtanir, kvikmyndasýningar o. fl. af þessu tagi, gæti hafizt kl. 7—7.30, og það væri hægt að bjóða kunningjum heim til sín á svipuðum tíma. Af þessu leiddi aftur, að við ættum að geta farið í rúmið kl. 10—11, jafnvel þótt við færum í bíó og fengjum okkur kaffisopa á eftir. Eins og það er nú, er ekkert slíkt hægt að gera, hvorki fai-a í kvik- myndahús, til kunningja eða á fund, án þess að það di'agist fi'am undir eða yfir miðnætti ,og svo verð- um við vær næsta morgun og komumst ekki á kreik fyrr en komið er fram á dag. „Elskaðu ekki svefninn, svo að þú verðir ekki fátækur,“ segir hinn vísi Salómon, og víst er um það, að moi'gunverkin eru drjúg, og talshátturinn „morgunstund géfur gull í mund,“ hefur ái-eiðan- lega ekki orðið til af tilviljun. Það má því segja, að það sé ekki aðeins ávinningur frá fagurfræðilegu sjónarmiði að fara snemma á fætur á morgnana, heldur og frá hagfræðilegu, og getui' þá nokkur ef- ast? Við getum sjálf breytt þessu, ef við kærum okkur um. Vill ekki einhver leggja oi'ð í belg? RÉTTUR VIKUNNAR. í síðasta kvenandálki var enn rætt um skyrið og minnt á að hægt er að nota það til margs. Réttur vikunnar er einnig úr skyri að þessu sinni og er mjög ljúffengur og auðgerður, þegar hægt er að fá appelsínur. Rétturinn er í senn heilnæmur, ljúffengur og fallegur á borði. Skyrið er hrært mjög vel, þynnt með mjólk og sykrað eftir smekk. Þá er eggjarauða hi’ærð saman við, og mun hæfilegt að nota eina eggjarauðu í skyr handa fjórum, annars getur hver ráðið þessu, og fer það eftir smekk hvers og eins. Appelsínurn- ar eru skornar í sundur, þannig, að skorin er ofan af þeim væn sneið, en hinn hlutinn er látinn halda sér. Hve mikið er skorið ofan af, fer að sjálfsögðu eftir stærð ávaxtanna, og hinar stærstu má eflaust skera í sundur í miðju. Appelsínan er tekin var- lega innan úr hýðinu, steinarnir og mestu tæj- urnar teknar burtu, en safinn og annað af appel- sínunni (marið) hrært saman við skyrið. Til gam- ans má skera lauf í brúnir barkarins, því að börk- inn notum við sem skálar undir þennan ágæta rétt, og berum þær síðan á borð á undirskálum eða desertdiskum. Skyr og appelsína eiga betur saman, en mann grunar í fyrstu.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.