Dagur - 06.06.1951, Qupperneq 9
Miðvikudaginn 6. júní 1951
DAGUR
9
ÍÞRÓTTIR
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningu við and-
lát og jarðarför
KRISTJANS JÓSEFSSONAR, Sandvik.
Vandamenn.
Výja útibúið
í Ránargötu 10
selur allar þær vörutegundir, sem
kjötbúðin og matvörudeildin
selja.
ODDEYRINGAR!
Lítið inn í útibúið, Ránargötu 10,
og beinið viðskiptum yðar þangað.
S e n d u m li e i m !
Oddeyrarboðhlaupið
fór fram sl. laugardag. Var
hlaUpið frá Þórsvellinum suður
að lögreglustöðinni, austur Eiðs-
vallagötu ,norður Norðurgötu að
slippnum, norður fyrir litunar-
stöðina, upp með Glerá og inn á
völlinn aftur. — Að þessu sinni
var hlaupið spennandi. K. A.
hafði unnið Blómabikarinn, gef-
inn af Kaupfélagi Eyfirðinga,
tvisvar í röð. Ynni félagið nú
hefði það þar méð eignast bikar-
inn. — Þór hafði aftur unnið
maíboðhlaupið í vor, svo að tví-
sýnt var um úrsííf. — Frá þess-
um félögum mættu nú 20 manna
sveitir til leiks. Eftii; fyrsta sprett
inn var Þór rétt á undan. En
þegar hlaupararnir fóru út af
vellinum hafði Jón Arnþórsson,
K. A., tekið forystuna — næst
sáust hlaupararnir í Norðurgöt-
unni. K. A. var þá ca. 15 m. á
undan. 400 m. sprettinn í Norð-
urgötu hlupu þeir Hreiðar Jóns-
son, K .A., og Einar Gunnlaugs-
son Þór. Virtist bilið á milli
þeirra haldást nokkuð jafnt
sprettinn út. — Þannig hélzt
hlaupið, þar til 300 metra sprett-
urinn, sem endaði inni á vellin-
um, hófst. Þá voru líkur til að
K. A. gengi með sigur af hólmi.
Nú tók við keflinu sjálfur form.
Þórs, Sig. Bárðars., og kom því
um 2 m. á éftir K. A.-manninum
til Baldurs Jónssonar, sem tók
fljótlega forystuna. Seinasti
spretturinn var mjög spennandi.
Mátti vart á milli sjá, hvort fé-
lagið ynni. Þór vdnn naumlega á
tímanum 8 mín. 19.4 sek. Tími
K. A.-sveitarinnar var 8 mín 19.6
sek. — Svona eiga boðhlaup að
vera. Tvísýn og spennandi
keppni dregur alltaf að áhorf-
endur.
íþróttakeppni Sjómannadagsins.
Að venju fór hér fram á sjó-
mannadaginn fjölbreytt íþrótta-
keppni. Hófst hún með kappróðri
á laugardagskvöld.
Úrslit kappróðurskeppninnar
voru sem hér segir:
*
Róður drengja.
Æskulýðsfél. Akureyrarkirkju,
sveit úr Glerárþorpi, vann á tím-
anum 2.37.4 mín. Reri Glóa nær
landi.
jf
Stýrim.: Gunnar Hjartarson.
Ræðarar: Njáll Bergsson, Jóh.
Þórðarson, Kristján Hannesson,
Gylfi Þorsteinsson.
KappróSur kvenna.
Sveit Fataverksm. Heklu vann
á 2.13.0 mín.
Stýrim.: Þórdís Aðalbjörnsd.
Ræðarar: Ebba Ebenharðsd.,
Hrafnhildur Baldvinsd., Björg
Ólafsdóttir, Svala Gunnarsdóttir,
Þrúður Gunnarsdóttir, Arnfríður
Gunnarsdóttir.
Vann verðlaunabikar gefmn af
Sápuverksm. Sjöfn.
Kappróður karla.
Sigur úr býtum bar sveit Vél-
stjórafélags Akureyrar á 2.28.8
mín.
Stýrim.: Eggert Ólafsson.
Ræðarar: Sigmar Benedikts-
son, Vigfús Vigfússon, Jóhann
Þorsteinsson, Jón Hannesson,
Jóhann Guðmundsson, Jón B.
Jónsson.
Sveitin vann Kappróðrarbik-
arinn, sem gefinn var af Vél-
stjórafél. Akureyrar, en þann
bikar hafði það unnið einu sinni
áður. Af 13 kappróðrum, sem
fram hafa farið hér á Sjómanna-
daginn, hefur Vélstjórafélagið
unnið átta sinnum.
Fjöldi fólks fylgdist með kapp-
róðrinum, og mikill áhugi ríkti
við veðbankann.
Hátíðahöld á sunnudaginn.
Á sunnudaginn kl. 2 hófst svo
keppni að nýju við sundlaugina.
Áður en keppnin hófst, flutti
sr. Pétur Sigurgeirsson ávarp.
Helztu úrslit keppninnar urðu
þessi:
! r'. 1 I 1 V. J - • 1
Stakkasund 35 m
Það vann Magnús Lórenzson á
45.8 sek. Vann Magnús Sjómann-
inn, gefinn af Axel Kristjánssyni
h.f.
Björgunarsund 25 m
Magnús Lórenzson vann það á
32.5 sek. og hlaut Nafnlausa bik-
arinn.
Boðsund.
Kvennasveit Slysavarnadeild-
arinnar vann á 2.16.2 mín. Karla-
sveit Sjómannadagsráðs var önn-
ur á 2.45.4 mín.
Keppni þessi vakti mikinn
fögnuð áhorfenda.
Að sundkeppni lokinni hófst
aftur keppni á hátíðasvæðinu
sunnan sundlaugarinnar. Var þar
keppt í reiptogi, naglaboðhlaupi
og handknattleik.
í reiptogi kvenna sigraði sveit
Slysavarnardeildar kvenna.
Reiptog karla lyktaði með sigri
Vélstjórafélagsins. Var keppnin
milli þeirra og Skips.tjórafélags-
ins mjög tvísýn og skemmtileg.
Þá fór fram naglaboðhlaup
milli sveitar Slysavarnardeildar
kvenna og sameinaðs liðs úr
Glerárþorpi og netahnýtingar-
verkstæðis Kaldbaks. Vann hið
sameinaða lið eftir tvísýna
keppni.
Að lokum fór svo fram hand-
knattleikur milli Slysavarnar-
deildar kvenna og Sjómanna-
dagsráðs. Ráðið vann með 4 :1
mörkum.
Áhorfendur voru mjög margir
og var keppnin hin ánægjuleg-
asta, að undanskildu því, að hún
gekk nokkuð seint.
Aðalverðlaun dagsins, Atla-
stöngina, sem er gefin af vél-
smiðjunni Atla, vann Magnús
Lórenzson fyrir samanlögð beztu
afrek dagsins.
Afrek hans eru þessi:
Fyrstur í björgunarsundi 35 stig
Fyrstur í stakkasundi 25 stig
í fimmtu róðrarsveit 1 stig
Samtals 61 stig
Þetta er met í keppni Sjó-
mannadagsins hér. Næst bezta
afrek á Páll A. Pálsson, 56 stig.
Magnús er aðeins 16 ára gam-
all.
Flest merki seldu: Elsa Svav-
arsdóttir og Stella Stefánsdóttir.
Flest blöð seldu: Eggert Egg-
ertsson og Gísli Kristinn Lór-
enzson.
Gullmerki dagsins var sæmd
frú Margrét Sigurðardóttir,
Fjólugötu 2.
Um kvöldið voru dansleikir
Sjómannadagsins að Hótel KEA
og Hótel Norðurlandi.
Merki dagsins og Sjómanna-
dagsblaðið seldust mjög vel. —
Veður var hagstætt.
—o’—
Frá Golfklúbbnum.
Gunnarskeppnin er senn hálfn-
uð og standa leikar þannig, að
Jóhann Egilsson er efstur, en
næstur er Jakob Gíslason og
þriðji er Ágúst Ólafsson. Keppn-
in hélt áfram í gærkvöldi - og
verður haldið áfram annað kvöld
kl. 8. — Næstkomandi laugardag
hefst keppnin um „Mickey-cup“
og er sú keppni forgjafakeppni
að 2/3 og verður keppt þann dag
og á sunnudaginn kl. 8.45 og á
kepprtinni þá að Ijúka.
ÚRRÆÐI SAMVINNUNNAR.
(Framhald af 2. síðu).
ryðja sér til rúms. Hér á landi
reka samvinnufélögin myndar-
lega bókaútgáfu, sem gefið hefur
út fjölda góðra rita. Þá reka þau
og myndarlegan verzlunarskóla,
Samvinnuskólann, bréfaskóli S.
f. S. er orðinn stór stofnun og
gagnmerk. Þá styðja einstök
kaupfélög hvers konar menning-
arstai-fsemi heima í héruðum.
Hér hefur mjög stuttlega ver-
ið vikið að starfsemi samvinnu-
félaganna, og að sjálfsögðu
mörgu sleppt. En þessar línur
nægja til að undirstrika, hverj-
um Grettistökum samvinnan
hefur lyft hér á landi. Og þó er
ónuminn vettvangur og óleyst
mörg verkefni í ýmsum greinum,
sem áreiðanlega verða bezt leyst
á samvinnugrundvelli. Og það
sannast æ betur, að hin hægfara,
lýðfrjálsa samvinna, er traustasti
vegurinn til efnalegra framfara.
T. A.
Héraðsþing U.M.S.E.
á sunnudaginn
Héraðsþing U. M. S. E., sem
fresta varð í vetur vegna ótíðar,
er ákveðið næstkomandi Sunnu-
dag. Er þess fastlega vænst að
þingfulltrúar mæti stundvíslega.
Er það því fremur nauðsynlegt
að það stendur aðeins yfir í einn
dag að þessu sinni.
Múrara vantar,
að múrliúða hús. Múrara-
réttindi ekki nauðsynleg.
Afgreiðslan vísar á.
Nnralín litiir
kominn ajlur.
17 litir fyrirliggjandi.
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild "■
og útibú.
Flauelskápur
Peysufatakápur
Gabardin-díragtir
Sumarkjólar
Eftirmiðdagskjólar
Útsaumaðar blússur
VERZLUN B. LAXÐAL
Sokkabandateygja,
hvit og grá.
Strengteygja
Sportbolir,
hvitir og mislitir.
Garðstólar
nýkomnir.
Svartíugl
Sviðinn svartfugl
Reyktur svartfugl
nýköminn.
Kjötbúð KEA
og útibúið Ránargötu 10
Tek að sauma
sniðnar buxur og fleiri snið-
inn fatnað.
Upplýsingar í Halgemagra-
stræti 21. Sími 1620.
Tilkynning
Þeir, sem eiga poka með
tuskum (ívafi) hjá Guð-
rúnu Jóhannesdóttur, Há-
teigi, eru beðnir að sækja þá
fyrir 10. þ. m., annars verð-
ur þeim brennt.
Stúlku
vantar til að vera í sumar-
bústað nálægt Reykjavík í
sumar. Gott kaup.
Upplýsingar í síma 1315,
eða á Kotá.
Til sölu:
Ný sláttuvél frá I. H. C.,
fyrir Farmall A traktor.
Stefán Júliusson,
Leifshúsum,
Svalbarðsströnd.
Sumarfríin eru
að hef jast
Mikið úrval af nesti.
FISKBOLLUR í heil- og hálf-
dósum.
FISKBÚÐINGUR.
SARDÍNUR í tórnat og olíu.
SARDÍNUMAUK.
HRÖKKBRAUÐ.
TE - KAFFI - KAKO.
BÚÐINGAR.
TÓBAKSVÖRUR, allar teg-
undir.
5ÓLOLÍA - SÓLKREM.
KEX, margar tegundir.
SÚPUR í pökkum og dósunr.
VPPELSÍNUR o. m. fl.
Kaupfélag Eyfirðinga
Njlenduvörudeildin
og útibú.