Dagur - 05.01.1952, Page 6
6
D A G UR
Laugardaginn 5. janúar 1952
Þorp í álögum
Saga eftir Julia Truitt Yenni
jjU~. 17- DAGUR
Vel meðfarin Silver Cross
barnakerra
til SÖlll.
Sverrir Pálsson,
Möðruvallastr. 10.
Sími 1957.
Húsnæði
ÝMÍSLEGT FRÁ BÆJARSTJÓRN
BÆJARRÁÐ HEFUR — í tilefni erindis er því hefur borizt —•
skorað á verksmiðjustjórn SÍS að láta bæjarbúa framvegis sitja
fyrir atvinnu við verksmiðjm' þess í bænum. Erindi þessu og sam-
þykkt mun einkum stefnt að Glerárþorpsbúum. — Bæjarráð treyst-
ir sér ekki til að mæla með því að bærinn hefji atvinnubótavinnu
fyrir bílstjóra. Bílstjórafélagið hafði sent tvö erindi um málið. —•
Bæjarstjórn hefur hafnað forkaupsrétti sínum að býlinu Melum.
----o---
(Framhald).
Afl það, sem leyst hafði verið
úr læðingi í Ármóti tók á sig æ
ófrýnilegri mynd. Það nálgaðist
æ meir, að verða áþreifanlegt,
óhugnanlegt og nær því óttalegt
Það virtist snerta alla bæjarbúa
á einhvern hátt.
„Jæja, svo að þarna kom lausn-
in,“ sagði Lem Miller við konu
sína. „Þannig fórstu að því að
koma þeim í lóg!“
Hún kipptist til, þar sem hún
sat í stólnum. ,,Eg veit ekki hvað
þú ert að tala um.“
„Þú veizt það fullvel. Mig
grunaði alltaf að þú eyddir ekki
öllum peningunum. Það gat varla
verið. Ekki er sú dýrðin viðhöfð
hér heima.“
„Þú ert ekki með sjálfum þér,
Lem,“ sagði Pearl. En svipur
henr.ar bar vott um innibyrgðan
ótta og hann hafði aldrei fyrr
séð votta fyrir öðru en viljafestu
og sjálfsánægju þar.
„Eg veit að vísu, að þú grefur
þá. ekki í jörð eða holar þeim í
kjallarann eins og vitlausa kerl-
ingin í bókinni. Líklegast þekkir
hún þarna, sem skrifaði söguna,
ekkert til þín. En þetta rann allt
upp fyrir mér, þegar eg las bók-
ina. Eg sá í einu vetfangi, hvern-
ig þú hefur farið að öll þessi ár.
Hefur komið peningunum ein-
hvers staðar, svo að einhver geti
fundið þá þegar við erum bæði
dauð.“
„Þú talar eins og þú sért með
óráði,“ sagði hún. En hendurnar,
sem héldu á prjónunum, skulfu.
En stundum var andi'úmsloft-
ið léttara en hjá þeim Lem og
Pearl.
„Skrítið er það,“ sagði Dolly
Stillwell og horfði hvasst á nál-
araugað, sem hún var að reyna
að þræða, „að hún skyldi alltaf
muna eftir að láta kvenmanninn
kalla það „gistihús", finnst þér
ekki?“
Sigurhrósið var löngu gufað
upp úr andlitinu á Fern Ferris.
Hún var grá og guggin í framan.
„Hvers vegna skrítið?“ spurði
hún.
„Bara skrítið — það er allt og
sumt,“ svaraði Dolly og brosti
ofurlítið tvírætt.
Fern leit þykkjulega til henn-
ar. Tungan var þurr og henni
fannst sífellt hún ganga með
grjót í maganum. Hún hefði get-
að bent á, að ef maddaman á
Páfastöðum í bók Faith Good-
bind, virtist bera ofurlítinn keim
af móður hennar heitinni, mátti
eins benda á, að presturinn með
whisky-nefið væri meira en lít-
ið líkur afa Anny, bæði að útliti
og daglegri hegðan. En baráttu-
viljinn hafði yfirgefið hana.
Mæðan hafði setzt við völd. Það
fór að líkum, eftir atburði síðustu
daga.
Henni varð hugsað til morg-
unsins í Saddlers-veitingastofu
og hún reyndi að rifja upp, hvað
hún hafði sagt við Rósu Silver-
nail og hverju Rósa hefði svarað.
En hún mundi ekki orð. Hún
vissi það eitt, að eitthvert ógn-
arlegt afl hafði verið leyst úr
læðingi og nú virtust engin tök
að stöðva það á miskunnarlausri
rás þess....
—o—
Gamli John Cartwright var
alltaf síðastur til að hætta störf-
um og halda heim. Hann lagði
síðustu hönd á eikarkistuna,
sem hann var að smíða. Amos
stóð við teikniborðið sitt og
horfði á gamla manninn snur-
fusa smíðisgripinn og að lokum
grípa snjáða frakkann sinn og
hattkúfinn.
„Eg held hún verði góð,“ sagði
hann. „Veit þó ekki hvernig
þeim geðjast að því að hafa hana
úr eik. Fólk er svo skrítið. En
smíðin er gallalaus. Það ábyrgist
eg.“.: ' " , '
„Þakka þér fyrlr, John.“
Þegar gamli maðurinn var far-
inn, stóð Amos enn við teikni-
borðið og dútlaði við myndina á
blaðinu. Honum varð hugsað til
Johns gamla, til Les Hardy og
Dutch Fenstermacher. Allir
voru þeir fyrsta flokks húsgagna-
smiðii',' en fyrir 10 árum höfðu
þeir allir dregið fram lífið við
ýmiss konar önnur störf, sem
hendi voru næst.
Líklegast, hugsaði hann, eru
bæir á borð við Ármót til víðs
vegar um landið, bæir, sem eitt
sinn voru iðandi af lífi og starfi,
en höfðu nú — á tíð bíla og járn-
brauta, dagað uppi, litu út eins
og minnismerki löngu liðins tíma.
Á slíkum stöðum lifði gömul
handverkskunnátta heilli kyn-
slóð lengur en annars staðar, en
einnig hér mundi hún hverfa í
gröfina með þeim, sem nú voru
hnignir að aldri, og glatast að ei-
lífu. En þó varla í Ármóti, hugs-
aði hann. Að minnsta kosti ekki
húsgagnasmíðin, sem hvíldi á
gamalli og skemmtilegri hand-
verkskunnáttu. Hann fann, að
ást hans á Árdalssmiðjunum var
ekki aðeins tengd hinum tryggu
handverksmönnum. Smiðjurnar
voru barn hans — áþreifanleg
sönnun um tilgang með hérvist
Hans. Stólamir, borðin, kisturnar
og aðrir gripir, sérkennilegir að
gerð, sterklegir en með mjúkum
gamaldags línum, urðu fyrst til á
teikniborðinu hans. Hann vissi að
þessi varningur var góður — já
fyi'sta flokks. Hann vissi líka, að
hlutirnir voru ekki aðeins ávöxt-
ur hugkvæmni hans og iðjusemi
starfsmannanna, heldur beinlínis
sprottnir úr jörð Ármótsbæjar.
Tveggja til þriggja lier-
bergja íbúð óskast nú þeg-
ar eða síðar.
Upplýsingar gefur
Sigurður Jónasson.
Sími 1592.
Til sölu:
Nokkrir pokar af góðum
Gullauga-kartöflum á 90
kr. pokinn. Einnig smælki
á 25 kr. pokinn.
Upplýsingar hjá Jóni Krist-
inssyni, rakara.
íþróttafélagið Þór.
Danskar
Súpujiirtir
Þurrkað hvítkál
Þurrkað rauðkál
nýkomið.
KJÖTBÚÐIR KEA
Hafnarstræti 89. Sími 1714.
Ránargötu 10. Sími 1622.
Hangikjöf og
Magál
borða allir
á Þrettándanum.
Sendum heim.
KJÖTBÚÐIR KEA
Hafnarstræti 89. , Sími 1714.
Ránargötu 10. Sími 1622.
Rafvirkjar!
Kosning iðnráðsfulltrúa fer
fram að Túngötu 2, sunnu-
daginn 6. janúar, kl. 2. e. li.
Rafpirkjafélag A kureyrar.
Á MEÐAL UMSÓKNA, sem bæjarstjórn bárust í des. um fjár-
styi'ki á þessu ári, var 50 þús. kr. styrkur vegna fyrirhugaðrar utan-
farar Karlakórsins Geysis og 10 þús. kr. til styrktar Golfklúbb Ak-
ureyrar, styrkbeiðni frá Olympiunefnd íslands og umsókn um fjár-
styrk til minnisvarða Jóns Arasonar á Hólum. Bæjarráð mælti ekki
með þessum beiðnum, en endanlegur úrskurður bæjarstjómar er
ekki fallinn.
------o------
UNNIÐ ER AÐ ÞVÍ um þessar mundir að setja nýja heilbrigðis-
reglugerð fyrir bæinn. Er hún sniðin eftir heilbrigðissamþykkt
Reykjavíkur. — Verkalýðsfélögin hér hafa keypt þvottahúsið við
Gránufélagsgötu og hafa fengið leyfi bygginganefndar til að gera
ýmsar breytingar á því. Húsið er ætlað til fundahalda og annarrar
skyldrar starfsemi.
—-----o------
Á FUNDI FRÆÐSLURÁÐS bæjarins í des, sl. var mættur full-
trúi frá fræðslumálastjórninni, er gengið var frá fjárhagsáætlun
Gagnfræðaskólans. Bókað er, að fulltrúinn hafi tekið fram, í sam-
bandi við aðra gagnfræðaskóla, og miðað við það verklegt nám, sem
framkvæmt er í G. A., telji hann reksturskostnaði mjög í hóf stillt
og við lauslegan samanburð virðist hann vera mun lægri en í sam-
bærilegum skólum.
------o------- i '• , 1
BÓKASAFNSNEFND hefur lagt til að Davíð Stefánssyni verði
greiddar 9000 kr. á ári í grunneftirlaun, frá sl áramótum, vegna
bókavarðarstarfsins. — Ráðgert er að gera giðingu umhverfis lóð
Húsmæðraskólans. Áætlað til þess verks 48 þús. kr. á rekstursáætlun
skólans. Á fundi skólanefndar í des. var til umræðu sá möguleiki, að
reka skólann í tvennu lagi, ca. 4% mán. fyrir hvern flokk. Fulltrúi
fræðslumálastjóra benti á, að slíkt fyrirkomulag sé andstætt lögum,
en þó ekki útilokað að sækja um undanþágu til ráðherra. Skóla-
nefndin var sammála um, að sækja um þess konar undanþágu, jafn-
vel þótt auglýst yrði fyrst eftir umsóknum um skólavist, miðað við
það fyrirkomulag, sem nú er.
Til kaupenda
Þeir, sem enn liafa ekki greitt blaðgjaldið fyrir
síðastliðið ár, mega búast við ví að verða sviptir
blaðinu án frekari aðvarana. Enn liggja nokkrar
póstkröfur fyrir andvirði blaðsins ógreiddar á
póstbúsum víðs vegar um land, og liafa menn
látið undir höfuð leggjast að vitja þeirra. Nú
eru síðustu forvöð að gera það.
Dagur.
Hsppdrætti Háskóla íslands
Sala miða er liafin. Fastir viðskiptavinir liafa
forgangsrétt að miðum sínúm til 10. janúar
næstkomandi.
Dregið verður 15. janúar.
Munið að endurnýja í tíma!
Bókaverzlun Axels Kristjánssonar h.f.
(Framhald).