Dagur - 05.01.1952, Side 7
Laugardaginn 5. janúar 1952
D A G U R
7
frá Eeykjaíióli
Hann er til moldar borinn í |
dag.
Ekki var hann mikill fyrir
mann að sjá, lægri meðalmanni,
og mátti ekki grennri vera, en
harðskarpari mann til allra verka
hef eg naumast þekkt. Það var
líkt og þessi fremur smái maður
væri af stáli gjör.
Eg man hann fyrst er faðir
minn, þá búsettur vestur í Skaga-
firði, fékk hann haust eitt um
aldamótin til smíða og lagfær-
inga undir veturinn. Hann ham-
aðist frá morgni til kvölds svo
sem ætti hann líf að leysa. Við
drengir stóðum yfir honum og
störðum undrandi á aðfarimar.
Svo er kvöld var komið og hann
var kominn inn í baðstofu, hafði
hann ávallt tíma til að tegla eitt
og annað, úr spýtukubbum er
hann hafði inn með sér, með
sporjámi sínu handa okkur
strákum, sem vel var þegið og
okkur þótti nauðsynlegt. Aldrei
hafði eg slíkan snilling séð með
sporjárn. Mér þótti sem hann
mundi alla hluti gert geta með
þessu litla áhaldi.
Guðmundur var ekki marg-
máll, en okkur drengjum fannst
sem hann skildi okkur vel. Hann
svaraði ótal spumingum okkar,
við vinnu sína, með fáum orðum
en greinagóðum og við skildum
hann, er hann talaði um verkfæri
sín og áhöld, sem voru okkur
ókunn og vöktu forvitni okkar.
Hann var mér alltaf frá þessu
hausti eins konar töframaður,
fullur fróðleiks, fáorður að vísu,
en hann vissi ávallt rneira en
hann sagði okkuf. Fyrir það var
hann mér enn hugstæðari.
Eftir að Guðmundur giftist og
fói' að búa hafði eg enn af honum
nokkur kynni og undraðist hann
máske enn meir en áður. Hann
var hamhleypa við heyskap og
sláttumaður svo af bar. Eg starði
oft á hann á teignum, eins og
fyrr við smíðarnar, dáðist að
sláttulagi hans og undraverðri
lipurð. Að sjá hann slá í þýfi var
unun, líkt og að horfa á leikfim-
isíþróttir nú til dags.
Hingað til Akureyrar flutti
hann fyrir röskum tíu árum,
þreyttur og slitinn. Hann hélt þó
ekki að sér höndum, heldur tók
til við smíðar og smfðaði aðallega
líkkistur. Eg kom ósjaldan á
verkstæðið til hans og mér sýnd-
ist svo, að sama væri kapp hans
sem áður. Eg minntist notalega
bernsku minnar þá eg, smár
drengur, tvísté yfir honum og
safnaði hefilspónum í litla lófa.
Eg gat ekki stillt mig um stund-
um að grípa fallegan spón og
bregða upp í mig. Þá brosti Guð-
mundur hlýlega til mín. Eg sá
það á enni hans og augum. Yfir-
skeggið huldi munnbrosið. Fá-
máll var hann sem fyrr, en hlýr
og notalegur.
Guðmundur Guðmundsson var
vel gefinn til vits og verka,-sár-
vandaður og strangheiðarlegur.
Hlédrægur var hann og enginn
mælgismaður, geðríkur þó, en
stillti skap sitt hverjum manni
betur.
Eg kveð hann með þakklæti og
vinsemd. Mér finnst sem nokkurt
brot af mínum beztu árum hverfi
í gröf með þessum gamla og góða
sveitunga mínum.
Á gamlársdag 1951.
Sveinn Bjarman.
Guðmundur Guðmundsson var
fædduL' að Flatatungu í Skaga-
firði 20. október 1880. Faðir hans
var af ágætum skagfirzkum
bændaættum en móðir hans
svarfdælsk. Mun hann og séra
Friðrik Friðriksson verið hafa
þrímenningar. Hann giftist 1907
Guðrúnu Guðmundsdóttur, sem
látin er fyrir nokkrum árum, og
hófu þau búskap að Goðdölum.
Fluttust þaðan að Bi’ekku við
Víðimýri, en þaðan að Reykjar-
hóli í Seyluhreppi 1916. Þau
brugðu búi 1935 og fluttust til
Sauðárkróks. Hann lærði smíðar
hjá Þorsteini Sigurðssyni tré-
smíðameistara á Sauðárkróki og
leysti þar sveinsbréf um 1904.
Hingað fluttist hann 1941.
Þeim hjónum varð þriggja
barna auðið. Var Sigrún elzt, gift
Pálma Þorsteinssyni frá Hjalta-
stöðum í Skagafirði, nú búsett í
Reykjavíkur, næstur Bjöm lög-
reglumaður hér í bæ og yngstur
Aðalsteinn lögfræðingur er and-
aðist 1945.
Guðmundur andaðist hér í
sjúkrahúsinu sl. Þorláksdag, 23.
f. m.
- Fjárhagsáætlun
bæjarins
(Framhald af 1. síðu).
þús., lán til Laxárvirkjunar 500
þús., lán til flugvallar (fyrsta
greiðsla af 500 þús.) 160 þús.,
endurbætur á íþróttahúsinu 40
þús., útgáfa Sögu Álasunds,
vinabæjar Akureyrar, o. fl., 45
þús., til verkfærakaupa 50 þús.,
til dagheimilisins Pálmholt 15
þús., óvænt og óviss útgjöld 150
þús., til Sunnudagaskóla 5 þús.,
til SÍBS 10 þús., til Skákfélags 2
þús., til íþróttabandalags Akur-
eyrar 10 þús., til skógræktar 15
þús., til Mæðrastyrksnefndar 6
þús., Skautafélag 1500 hundruð,
skátafélögin 3 þús., Svifflugfélag
3 þús., Heimilisiðnaðarfél. 3 þús.,
lúðrasveit 10 þús., söngfélögin
1500 kr. hvert, leikfélagið 6 þús.,
Lystigarðurinn 30 þús., mann-
talskostnaður 6 þús.
Tekjur aðrar en útsvör.
Við athugun á fjárhagsáætlun,
einkum tekjuliðum hennar og
samanburði þeirra á sl. árum,
virðist margt benda til þess að
tekjur, aðrar en útsvör, séu of
lágar og hafi ekki fylgt þeirri
þróun, sem orðin er í peninga-
málunum. Má í því sambandi
benda á, að svo virðist sem tekj-
ur bæjarins af lóðum sínum og
jarðeignum nemi aðeins 120 þús.
kr. árlega og fasteignaskattar
samtals aðeins 290 þús. kr. Hlut-
ur bæjarsjóðs af skattgreiðslum
bæjarmanna til ríkisins virðist
vera einar 13 þús. kr.! Sýnist
þörf á að taka þessa liði alla til
sérstakrar athugunar.
Athugun á rekstri bæjarins.
Bæjarstjórn hefur nú fengið
til athugunar álit Sparnaðar-
nefndar, sem skipuð var í nóv.
sl., og eru þar ýmsar ábendingar
um sparnað og aukna hagsýni í
rekstri bæjarins. Er nánar að
þeim vikið annars staðar í blað-
inu.
r
- Alit sparnaðar-
nefndar
(Framh. af 5. síðu)
ur nefndin rétt að þetta sé athugað
nánar. Verð á grjótmulningi hér
mun vera svipað og í Reykjavík.
Bæjarverkstjóri hefur skýrt frá
því, að hann telji hægt að vinna
bæjarvinnuna ca. 10—15% ódýr-
ari, ef ekki þyrfti að vinna hana
að töluverðu leyti sem atvinnu-
bótavinnu. Telur hann m. a. mögu-
leika á að bjóða eitthvað af henni
út í ákvæðisvinnu, svo sem t. d.
gangstéttagerð og jafnvel sorp-
hreinsun.
Bærinn rekur steinsteypuverk-
istæði, þar sem tveir menn vinna
að jafnaði að vetrarlagi, og eru
þar steyptar hellur, kantsteinar og
rennusteinar, en rör eru hins veg-
ar aðkeypt, og þannig samið við
verktaka, að hann hafi jafnan fyr-
irliggjandi ákveðið magn af ýms-
um rörtegundum. Nefndin telur
ekki ástæðu til, eftir fengnum
upplýsingum, að gera athugasemd-
ir við þetta fyrirkomulag.
Bærinn rekur vísir að viðgerð-
arverkstæði á bifreiðum og áhöld-
um bæjarins í brakkahúsi á Gler-
áreyrum og hefur aflað sér í því
skyni nokkurra verkfæra. Sumar
stofnanir bæjarins, t. d. rafveitan,
hafa samið við ákveðið bifreiða-
verkstæði í bænum um viðgerðir
á bifreiðum sínum með forgangs-
rétti, og láta því eigi gera við bif-
reiðar sínar á verkstæði bæjar-
ins.
Nefndin er sammála um að
leggja til, að verkstæði þetta verði
rekið til að annast ýmiskonar við-
gerðir og viðhald á áhöldum og
bifreiðum bæjarins og stofnana
hans, eftir því sem heppilegt þyk-
ir, en telur þó ekki rétt að auka
verkstæðið sem neinu nemur frá
því, sem nú er.
Bæjarverkstjóri og bæjarverk-
fræðingur benda á skipulagsleysi
og of öra útþenslu í byggingarmál-
um bæjarins, t. d. að lagnir í göt-
ur samkv. fyrra skipulagi sé nú
víða inni í miðjum húsalóðum og
stór, auð svæði séu meðfram göt-
um. Leiðir þetta að sjálfsögðu til
mikils kostnaðarauka fyrir bæjar-
sjóð.
Fasteignir og fegrun bæjarins.
Bæjarverkstjóri hefur eftirlit
með öllum jarðeignum bæjarins
og skrásetningu landanna utan
kaupstaðarlóðarinnar. Aðalkostn-
aður við eignir þessar er fólginn
í skurðgreftri, viðhaldi og bygg-
ingu girðinga og vegalagningu.
Nokkuð af þessari vinnu mun vera
unnið sem atvinnubótavinna, eink-
um skurðgröftur, og þá oft við
óhagstæð skilyrði. Af þessu leiðir
að meira er unnið að þessari vinnu
með handafli heldur en ella væri.
(Framhald).
Rafeldavél,
sem ný, til sölu.
Afgr. vísar á.
Stúlka
óskar eftir virinu — lielzt
ekki vist.
Afgr. vísar á.
Seðlaveski
fundið 22. desember. Vitj-
ist í
Munkaþverdrstr. 32.
ÚR BÆ OG BYGGÐ
□ Rún.: 5952167 — Frl. H—V.
Kirkjan. Messað á Akureyri á
Þrettándanum, 6. jan., kl. 2 e. h.
F. J. R.
Akureyringar! Munið eftir að
gefa litlu fuglununi.
Hjónabönd. Guðrún Lovísa
Stefánsdóttir, Akureyri, og Ás-
geir Olafsson, Grænumýri, Sel-
tjarnarnesi. Gift 24. des. — Anna
Kristjánsdóttir, Akureyi'i, og
Bjarni Guðjón Bjarnason, matsv.,
Reykjavík. Gift 25. des. — Guð-
rún Árnína Guðjónsdóttir og
Guðmundur Reynis Antonsson,
velstj., Akureyri. Gift 30. des. —
Jónína Guðrún Jóhannsdóttir og
Jóhann Gunnar Ragúels Ingi-
mundarson, Akureyri. Gift 1. jan.
F. J. R.
Zíon. Samkomur næstu viku.
Sunnud. kl. 10.30 f. h.: Sunnu-
dagaskóli. Kl. 8.30 e. h.: Almenn
samkoma. (Fórnarsamkoma). —
Þriðjudaginn kl. 5 e. h.
Fundur fyrir telpur 7—13 ára. —
Miðvikud. kl. 8.30 e. h.: Biblíu-
lestur. — Fimmtud. kl. 8 e. h.:
Fundur fyi'ir ungar stúlkur. —
K. F. U. M., Akureyri. Fundur
í Zíon næstk. sxmnudag. Y. D.
(yngsta deild, drengir í barna-
skóla frá 9—13 ára) kl .1 e. h. U.
D. (unglingadeild, di-engir og
piltar yfir bai'naskólaaldur) kl.
2 e. h.
Áheit á Strandarkirkju. Kr. 50
fi-á Rúnu. Mótt. á afgr. Dags.
Hjónaefni. Á jóladag opinber-
uðu ti'úlofun sína Júdith Sveins-
dóttir og Bergsteinn Garðarsson,
Glerái'þorpi. — Einnig Þórdís
Gísladóttir og Andrés Bergsson,
Glerárþoi'pi.
Hjúskapur. 27. des. voru gefin
saman í hjónaband í Khöfn ung-
frú Helga Jónasdóttir (Sveins-
sonar læknis) og stud. polyt. Jó-
hann Indi'iðason (Helgason'ar
rafvii-kjameistara), Akureyri, —
Heimili ungu hjónanna er Nor-
masvej 27, Valby.
Utvarpsfréttamennirnir geta
ekki látið vera. Þeir eru að
vísu hættir að tala um „al-
þýðuherinn“ í Kóreu, en um
jólin endurvöktu þeir nafn-
giftina „norðanmenn“ í frétta-
lestri frá London. Ekki er hér
orðaval brezka litvarpsins. Það
kallar kommúnista kommún-
ista og ekkert annað. í sama
fréttalestri var kommúnista-
stjómin kínverska ncfnd „kín-
verska alþýðustjómiri1. Þctta
cr fölsun á orðalagi fcrezka út-
varpsins. Stjórn sú er þar yfir-
leitt nefnd kommúnistastjórnin
kínverska eða Pekingstjórnin.
Utvarpsmennimir okkar ættu
að breyía formála þeim, er þeir
hafa fyrir fréttalestrinum: 1
stað „frétta frá London“ ættu
þeir að kynna: Fréttir, í aðal-
atriðum efíir brezku útvarpi,
endursagöar af íslenzka ríkis-
útvarpinu með tilliti til hags-
muna kommúnistaflokksins.
Fundur verður haldinn í stúk-
unni Brynju nr. 99 mánudaginn
7. janúai'. Nánar auglýst í aug-
lýsingakössunum.
Áheit á Strandarkirkju. Kr. 60
frá G. K. Móttekið á afgr. Dags.
Hjúskapur. Á jóladag voru
gefin saman í hjónaband af séra
Guðbrandi Bjöi-nssyni í Hofsósi,
ungfrú Oddný Angantýsdóttir frá
Hrísey og Guðbrandur Bjarna-
son, Hólakoti.
Látinn er hér í bæ Stefán Stef-
ánsson járnsmiður Stefánssonar
jái'nsmiðs, ungur efnismaður,
eftir langvinnar sjúkdómsraunir.
Skrifstofa Framsóknarfélaganna
á Akureyri verður ekki opin í
janúar.
Æskulýðs-
q félag Akureyr-
/Sfc arkirkju. —
‘11 Yngsta deild.
|n$ — Fundur kl.
10.30 f. h. n.k.
sunnudag (Þrettándanum). Hvít-
smáasveitin.
Hjónaefni. Ungfrú Signa Ha!ls-
dóttir og Gunnlaugur B. Sveins-
son. — Ungfi'ú Hanna Hofsdal og
Axel Kvai-an.
Ljóslækningastofa Rauðakrcss-
ins er opin daglega í Hafnarstr.
100.
Hjónabönd. Þann 25. des. sl.
voru gefin saman í hjónaband:
Ungfrú Aðalheiður Ágústa Ax-
elsdóttir og Brynleifur Konráð
H. Jóhannesson, bílalakkari. —
Heimili þeirra er að Hafnarstræti
37, Akui-eyri. — 26. des.: Ungfrú
J óhanna Hei-mannsdóttir og
Hannes Björn Kristinsson, efna-
fiæðingui'. — Heimili þeiri-a er að
Hofteigi 14, Reykjavík. — 30.
des.: Ungfrú Kolbi'ún Magnea
Kristjánsdóttir og Þoi'valdur
Nikulásson, símam. — Heimili
þeirra er að Gi'ænumýri 11, Ak.
— 1. janúar: Ungfi'ú Guðný Að-
alsteinsdóttir og Guðbjörn Pét-
ui-sson, starfsm. á Gefjun. —
Heimili þeii-ra er að Oddeyrar-
götu 12, Ak.
Til fermingarbarna. Þau börn,
sem eiga að fei'mast á komandi
vori í Akui'eyrarkii'kju, eru
beðin um að mæta til viðtals í
kapellunni, sem hér segir: Til
séra Friðriks J. Rafnar vígslu-
biskups mánudaginn 7. jan. kl.
5 e. h. — Til séra Péturs Sigur-
geirssonar þriðjudaginn 8. jan.
kl. 5 e. h.
Frá Kristneshæli. Nýlega hafa
bókasafninu í Kristneshæli boi'izt
2 rausnarlegar bókagjafir: Fi’á
Ái’na Bjarnarsyni bókaútgefanda
75 bindi og Bókaútgáfunni
Noi'ðra 20 bindi. Eru þetta allt
nýjar og nýlegar bækur og bóka-
safninu hinn bezti fengur Sjúkl-
ingar í Kristneshæli flytja gef-
endum þessum innilegustu þakk-
ir, svo og öðrum stuðningsmönn-
um bókasafnsins fyrr og síðar og
áma þeim alls góðs á hinu ný-
byrjaða ári. Bókasafnsnefnd.
Góðar smábarnabækur
Bókaútgáfan Björk í Reykja-
vík hefur sent frá sér 4 ágætar
smábarnabækur, mjög hentugar
fyrir börn, sem eru að byrja að
stauta.
Benni og Bára er þeirra stærst,
eða 49 bls., með mynd á annarri
hvorri blaðsíðu, en lesmál á
hinni. Bókin er skrifuð á léttu og
einföldu máli og skemmtilega
bax-naleg. Enda er hún þýdd af
Vilbergi Júlíussyni kennai'a, sem
er kuixnur af góðum barnabóka-
þýðingum.
Þá eru tvær minni bóka: Bláa
konan og Græni hatturinn. Þess-
ar bækur eru báðar með falleg-
um litmyndum og stóru lesmáli.
Vilbergur hefur einnig þýtt
þessar bækur.
Loks er svo Stubbur litli, sem
kom út árið 1947, en seldist þá
strax upp og er nú út kominn í
2. útgáfu. Þessi skemmtilega
smábamabók er einnig þýdd af
Vilbergi Júlíussyni og er með
fjölda litmynda.
Eg tel þessar litlu smábarna-
bækur Bjai'kar einkar hentugar
fyrir 5—7 ára börn, sem eitthvað
eru byrjuð að stauta.
H. J. M.