Dagur - 05.01.1952, Page 8
8
Baguk
Laugardagmn 5. janúar 1952
Ekkert tilboð um iðgjaldalækkun
Átta kunn andlit frá allskerjarþingi Sameinuðu þjóðanna
hefur komið fram frá
Brunabótafélaginu
Bæjarstjórn ber að fylgja fast eftir kröfunum
um fullt frelsi í brunatryggingamálum
Ekkert (ákveSið) tilboð um iðgja
í ágústniánuði sl. voru bruna-
trygginganiál bæjarins rædd í
bæjarráði að viðstöddum for-
ráðamönnum Brunabótafél. ís-
lands, sem lögum samkvæmt hef-
ur einkarétt á brunatryggingum
húsa alls staðar á landinu nema
í Reykjavík.
Á fundi þessum skýrði tals-
menn Brunabótafélagsins svo frá,
að það mundi „taka til at-
hugunar“ allverulega lækkun
brunabótagjalda að vissum skil-
yrðum upfylltum. Kváðu þeir
ekki unnt að tilgreina lækkunina,
þar sem ekki hefði enn verið
reiknað út hve miklu hún mundi
nema, en unnið væri að því í
samráði við norskan verkfræð-
ing, sem var í för með þeim.
Búizt yar við skjótri afgreiðslu.
Er beðið eftir þingslitum?
Þessar viðræður og þessi fyr-
irheit munu hafa orðið til þess að
bæjarráðsmenn hurfu frá því að
svo stöddu að fela þingmanni
kaupstaðarins að bera fram að
nýju frumvarp það, er flutt var
að tilhlutun bæjarins fyrir
nokkrum árum um undanþágu
frá þessu ákvæði, en frumv. það
mætti þá harðri andspyrnu af
hálfu formanns Alþýðuflokksins,
sem jafnframt er förstjóri Bruna-
bótafélágsins. Nú er komið nýtt
ár og hyllir senn undir þing-
lausnir, en enn eru engin ákveðin
tilboð komin frá Brunabótafélag-
inu.
Vekur dráttur þessi og mála
tilbúnaður allur þann grun, að
ætlunin sé að draga málið svo
lengi, að vonlaust sé að það
komi fyrir þetta þing og má
vera að það hafi þegar tekizt
Bæjarstjórn ber að hefjast handa
Bæjarmenn munu yfirleitt
telja, að bæjarstjórn beri fyllsta
skylda til að vinna einarðlega að
því að létta af þeim ranglátum
skatti, þar sem eru brunabóta-
gjöld mun hærri en í höfuðstaðn-
um, þar sem frjálst útboð trygg-
ingamála ríkir, og vissulega
hærri en mundu hafa gilt hér
síðustu ár, ef Akureyri hefði haft
þá aðstöðu á þessum vettvangi,
sem höfuðstaðarbúar tryggðu sér.
Má því telja vafasamt í meira
lagi að málið skyldi lagt til hliðar
í sumar og hefði verið eðlilegra
að það hefði komið fram á Al-
þingi í þingbyrjun og hefði þá
verið talsverð von um úrlausn
þegar á þessu ári. En þegar nú er
ljóst orðið að foi'róðamenn
Brunabótafélagsins ætla að láta
bæjarbúa greiða háu iðgjöldin
áfram og koma ekki fram með
tilboð það, er heitið var, er þess
að vænta, að bæjarstjórnin taki
málið til meðferðar nú þegar og
beiti sér fyrir því, að það komi til
meðferðar á yfirstandandi þingi.
Frjálsar tryggingar er krafa
tímans.
Þótt hér hafi einkum verið
rætt um brunatryggingamál Ak-
ui-eyrar, er ljóst, að lögbinding
annarra staða við eitt trygginga-
félag, er fyrirkomulag, sem eng-
an rétt á sér lengur og ber að af-
nema. Ef þetta lögverndaða
tryggingafélag er samkeppnis-
fært, hlýtur það viðskipti lands-
manna áfram. Ef það er ekki sam
keppnisfært, er lögbindingin fé-
fletting almennings, sem ekki
verður réttlætt. Frjáls trygginga-
starfsemi í landinu er krafa tím-
anna. Einokunaraðstaða Bruna-
bótafélagsins er hróplegt rang-
læti gagnvart almenningi úti á
landi, sem með lögþvingun er
neyddur til að búa við aðra og
óhagstæðari skipan brunatrygg-
ingamála en höfuðstaðarbúar.
Myndin sýnir kunna fulltrúa á AHsherjarþinginu, sem nú situr í París, talið frá vinstri, efri röð: Luis
Padilla Nervo, Mexíkó, forseti þingsins, Finn Moe, Noregur, formaður stjómmálanefndarinnar, Selirn
Sarper, Tyrkland, form. dagskrárnefndar, og Wait haykon prins, Thailand, form. fjárhagsnefndar. —
Neðri röð: Senora Ana Figuroa, Chile, form. félagsmálanefndar, Max Urena, Domíníkanska lýðv., for-
maður gæzluverndarnefndar, Thomas Stone, Canada, form. stjórnskipunarn. og Manfred Lachs, Póll.
r
Alfadans os brcnna
á þrettándanum
íþróttafélagið Þór hefur álfa-
dans og brenna á Þrettándanum
úti á Þórsvelli.
Þaf kemur fram fjöldi álfa, m.
a. svartálfar, auk þess risi o. e. v.
fleiri undraverur. Sviðið verður
skrautlýst • og flugeldum skotið.
Kveikt verður í brennunni rétt
fyrir kl. 8 og álfarnir birtast
skömmu síðar. — Þess er óskað
að áhoi'fendur séu viðbúnir að
greiða aðgangseyri — kr. 7 fyrir
fullorðna og kr. 3 fyrir börn —
án þess að þurfa að skipta. —
Sömuleiðis að menn búi sig vel
gegn kuldanum.
By ggingaverkf ræð-
ingur slökkviliðsstjóri?
Bæjarstjórn Akureyrar hefur
ákveðið að auglýsa eftir bygg-
ingaverkfræðingi, sem getur tek-
ið að sér lóðaskrárritun, lóða-
mælingar og fleiri skyld störf
jafnframt því að gegna embætti
slökkviliðsstjóra. Hefur verið
ákveðið að umsóknarfrestur sé til
1. marz næstk.
Finnur Jónsson,
alþm., látinn
,Hinn 31. des. sl. lézt að heimili
sínu í Reykjavík, Finnur Jónsson
alþm. og fyrrv. ráðherra, 57 ára
að aldri. Hafði hann legið sjúkur
um fjögurra mánaða skeið. Finn,-
ur var þjóðkunnur athafna- og
stjórnmálamaður og mikils met-
inn. Hann dvaldi ungur hér á
Akureyri og starfaði að póstmál-
um og verzlun. Átti hann hér
marga vini frá gömlum dögum.
Skautaféiag Akureyrar 15 ára - hefur
viðhaldið skautaíþrótt og unnið mark-
vert starf meðal æskumánna
Skautafélag Akureyrar varð 15
ára á nýjársdag og minntizt af-
mælisins með skautamóti á ísnum
austan við Gróðrarstöðina dag-
ana 29.—31. dcsember.
Varð árangur í því móti all-
góður.
Forgöngumenn að stofnun fé-
lagsins voru þeir Gunnar Thor-
arensen verzlunarm., Kristján
Geirmundsson fuglafr. og Ágúst
Ásgrímsson verkam. Félagið hef-
ur lengst af verið fámennt og fá-
Miklir mannflutnin«ar
til Reykjavíkui'
Nú eftir nýjárið hefur verið
mikið um mannflutninga á veg-
um flugfélaganna, héðan til
Reykjavíkur. Hafa hópar manna
frá Ólafsfirði, Dalvík og fleiri
nærliggjandi stöðum farið hér
um á leið til vei'stöðvanna við
Faxaflóa. Þá hefur skólafólk ver-
ið á leið hingað og héðan. Þegar
2. jan. voru famar mai’gar flug-
ferðir á dag í milli Reykjavíkur
og Akux’eyrar.
Sjúkrasamlags-
gjald liér liækkar
ekki að svo
stöddu
Sjúki'asamlagsgjald í Reykja-
vík hækkaði upp í 25 kr. á mán-
uði nú um ái’amótin. Forstjóri
Sjukrasamlagsins hér hefur skýrt
blaðinu svo frá, að sjúkrasam-
lagsgjaldið hér, sem er 18 kr. pr.
mán., verði ekki hækkað að svo
stöddu, hvort sem nauðsyn kunni
að reynast að breyta því síðar á
árinu eða ekki.
Umframsamtölin kosta
nú 30 aura - samt ófull-
nægjandi símaskrá
Um áramótin ’ gekk í gildi ný
gjaldskrá hjá pósti og síma og' er
um verulega hækkun að ræða á
öllum þjónustugjöldum, sem ekki
eru bundin með samningum við
erlend ríki. Bjax'ga þeir lands-
mönnum frá hækkun á burðar-
gjaldi til útlanda og hefðu betur
bundið hendur póststjórnar okk-
ar ó fleiri sviðum. Umframsamtöl
í sírna kosta nú 30 aui’a í stað 20.
Ekki lét Landssíminn nýja bæj-
arsímaskrá fylgja þessari auknu
fjái'heimtu. Verða menn því að
greiða 30 aura í hvert sinn er þeir
hringja í 1010 til að fá upplýsing-
ar um þau fjölmörgu símanúmer,
sem ekki ei’u í símaskrá, Er þetta
einar hugulsamt fyrii’komulag
gagnvart símanotendum.
KFUM. Nýlega er stofnað hér á
Akureyri í fyrsta sinn kristilegt
félag ungra manna — KFUM —
og hefur þegar hafið starf.
tækt, en það hefur kappkostað að
viðhalda skautaíþróttinni hér og
glæða áhuga æskumanna fyrir
þessari fögru og hollu íþrótt,
enda má telja góða aðstöðu til
þess að stunda hana hér í bæ. —
Félagið hefur lítils opinbei's
styi’ks notið eða viðurkenningar.
Nú eru félagar um 100 og á þessu
15 ára afmæli verulegur óhugi
ríkjandi fyrir skautaíþrótt hér og
sumir methafar innan vébanda
félagsins. Félagið stóð fyrir
Skautamóti fslands á sl. ári.
Helztu úrslit í mótinu um
ái'amótin urðu þessi:
500 m. hlaup karla: 1. Þorvald-
ur Snæbjörnsson, SA, 54,5 sek.
1500 m. hlaup kvenna: 1. Edda
Indriðadóttir, SA, 3,51,1 mín.
500 m. hlaup drengja, 14—16
ára: 1. Guðlaugur Baldursson,
SA, 64,4 sek.
3000 m. hl. karla: 1. Jón D. Ár-
mannsson, SA, 6,26,7 mín.
1500 m. hlaup lcarla: 1. Björn
Baldui'sson, SA, 2,58,5 mín.
500 m. hlaup kvenna: 1. Edda
Indriðadóttir, SA, 72,3 sep.
300 m. hlaup drengja innan 14
ára: 1. Gylfi Ki'istjánsson, SA,
50,2 sek.
1500 m. hl. drengja, 14—16 ára:
1. Guðlaugur Baldursson, SA,
3,18,8 mín.
5000 m. hl. karla: 1. Jón D. Ár-
mannsson, SA, 10,35,5 mín.
3008 m. hl. kvenna: 1. Edda
Indriðadóttii’, SA, 7,42,8 mín.
Stigakeppni mótsins: 1. Bjöi’n
Baldui’sson, SA, 243,651 stig. —
2. Jón D. Ái’mannssón, SA,
245,500 stig.
í íshocky sigraði A-lið B-lið
félagsins með 2 : Ó.
í keppni á Þorláksdag setti
Edda Indi iðadóttir íslandsmet - í
500 m. hl. kvenna á 66,6 sek. og
Þorvsldur Snæbjörnsson Akur-
eyiannet á sömu vegalengd fyi’ir
kax-la á 51,3 sek.