Dagur - 30.01.1952, Síða 1

Dagur - 30.01.1952, Síða 1
Kaupsýslu- og iðnaðarmenn! Fleiri Akureyringar og Ey- firðingar lesa auglýsingar í Degi en í nokkru öðru blaði. Ferð til Miðjarðarhafsins er meðal margra ágætra vinninga í blaðahapp- drætti Framsóknarmanna. Frestið ekki að kaupa miða! XXXV. árg. Akureyri, miðvikudagiiui 30. janúar 1952 5. tbl. Herra Sveinn Björnsson í Lystigarði Akureyrar, er hann kom hér i opinbera heimsókn. HERRA SVEINN BJÖIINSSON, fyrsti forseti íslenzka lýðveldisins, andaðist í Landakotsspítala í Reykjavík aðfara- nótt iöstudags 25. þ. m., kl. 3.30. Banamein hans var hjarta- slag. Andlát forsetans bar óvænt að höndum. Hann hafði að vísu átt við alvarlegan sjúkleika að stríða, en var talinn á batavegi og mun sjálfur hafa verið vongóður um aukinn starfsþrótt með vori og hækkandi sól. En enginn má sköp- um renna. Andlát forseta varð brátt kunnugt um landið, og setti menn hljóða. Þjóðin haíði slaðið einhuga um forseta sinn. Hann var sameiningartáknið í þessu sundurlyndisins landi. Hann naut ástar og virðingar allra íslendinga. Á föstudags- morguninn iannst hverjum þegn þjóðin fátækari en áður. Það skarð, sem höggvið var í fylking beztu sona hennar, mundi vandfyllt. Um hádegið tilkynnti forsætisráðhenann, Steingrímur Steinþórsson, þjóðinni tíðindin og vottaði hinum látna for- seta þökk og virðingu þjóðarinnar. Starf féli hvarvetna niður það sem eítir var dagsins. Fánar blöklu í hálfa stöng um gjörvallt landið. Syðra var bjartviðri, en nyrðra norðanbylur. Bæði sunnan- lands og norðan hljóðnaði umferð og ys dagsins. Aíargir þjóðkunnir menn hafa minnzt herra Sveins Björns- sonar og starfa hans í þágu fóstui jarðarinnar. Erlendis hefur hins látna þjóðhöfðingja verið minnzt af blöðum, í útvarpi og af forustumönnum nágrannaþjóðanna. Minningarorð voru flutt á þingi Sameinuðu þjóðanna í París. Mikiil fjöldi samúðarkveðja liefur borizt frá ríkisstjórnum, ]»jóðhöfðingjum, þjóðfulitrúum og fjölmörgum öðrum úr f iestum menningarlöndum. Sveinn Björnsson var fæddur í Ivaupmannahöfn 27. febr. 1881, sonur Björns Jónssonar ritstjóra og síðar ráðherra, og Hann varð yfirréttarmálaflutningsmaður í Reykjavík sama ár Elísabetar Guðnýjar Sv.insdóttur, prófasts á Staðastað. Sveinn Björnsson tók stúdehtspróf árið 1900 og lögíræðipróf 1907. (Framhald á 2. síðu). Hraðfrysihússrekstur hér yrði að byggjast nær ein- göngu á togaraútgerðinni 100 daga vinnsla og lö þúsund tonn hráefnis er lágmark — Frá umræðufimdi Stúdentafélagsins Áfengissala á Ákureyri minnkaði um 400 þús. Samkvæmt skýrslu Áfengis- verz'unar ríkisins um áfengis- sölu á sl. ári nam hún á öllu landinu 66,5 millj. kr., en var 65,5 millj. árið 1950. Aukningin varð í tveimur hæjum aðeins, Reykjavík og Vestmannaeyj- um. Annars staðar varð áfeng- issala minni að krónutali. Mest minnkaði hún hér, úr kr. 6,558,668,00 1950 í 6,174,270,00 Áfengisneyzla í landinu pr. íbúa hefur minnkað ár frá ári síðan 1946. Þá var neyzlan 2 ltr. hreinn spíritus á mann, er nú 1,390 ltr., eða hefur minnk- að um 30%. ísinn er ótraustur! í frostunum síðustu daga hefur Pollinn lagt og börn og unglingar leita því út á ísinn til skautaferða, en ísinn er ótraustur hér hið ytra á Pollinum, einkum undan Torfunefi og þar í grennd. Undan aðalbryggjunum er auð vök. — Inni á Leirum er ísinn aftur á móti traustur og góður. Foreldrar ættu að benda börnum sínum á þetta. Forðumst slysin! Rauðikrossinn eignast nýjan sjúkrahíl Nú eftir áramótin kom hingað til bæjarins nýr sjúkrabíll til Rauðakrossdeildar Akureyrar og var hans mikil þörf. Þetta er nýr og vandaður Dodge-vagn og hef- ur þegar verið tekinn í notkun. Bækistöð bílsins er í Slökkvi- stöðinni. Hásetahlutur á Jörundi 70 þúsimd krónur í síðasta tbl. var frá því skýrt, að hásetahlutur á togurum Út,- gerðarfélags Akureyringa h.f. hefði sl. ár'verið 43—51 þús. kr. að meðaltali. Hásetahlutur á „Jörundi“ á árinu mun hafa num ið um 70 þús. kr. Munar þar mjög um hinn ágæta síldarafla skips- ins sl. sumar, en „Jörundur“ var aflahæsta skip gíldveiðiflotans á sumrinu. Leitað tilboða urn leigu dráttar- brautamia Hafnarnefnd Akureyrar hefur ákveðið að leita tilboða í fasta leigu fyrir dráttarbrautirnar á Oddeyri. Gert er ráð fyrir að minni brautin veroi nothæf í maí næstk. Tilboð eiga að vera komin fram fyrir 10. febrúar næstk. Afdrif hraðfrystihússniálsins á bæjarstjórnarfundinum fyrra þriðjudag urðu þau, að málinu var vísað aftur til nefndar þeirr- ar, er undirbúning hefur haft með höndum, til frekari athug- unar, m. a. í sambandi við fjár- öflunarmöguleika og frekari rök- stuðning við kostnaðar- og relcst- ursáætiunina. Var á fundinum bent á ýmsar veilur í áætlun þeirri er fyrir liggur (og rakin var í síðasta blaði) og líkur fyrir því að hún væri mikils til of lág. Yfirleitt var það skoðun bæjarfulltrúanna (annarra en kommúnista) að ekki væri unnt að taka afstöðu til málsins að svo komnu vegna ónógs undirbúnings. Uinræðufundur Stúdenta- félagsins. Á fimmtudagskvöldið hafði* Stúdentaféalg Akureyrar um- ræðufund um hraðfrystihúsmálið og bauð til fundarins bæjarfull- trúum, hraðfrystihússnefndinni, fréttamönnum o. fl. gestum. Hall- grímur Björnsson verkfræoingur, verksmiðjustjóri í Krossanesi, hafði framsögu og flutti mjög ýt- arlegt erindi, byggt á vísindaleg- um grundvelli, um hraðfrystingu almennt, einkum í sambandi við frystingu togarafisks og geymslu- þol hans. Ennfremur ræddi hann f j árhagsgrundvöll fy rirhugaðs frystihúss og studdist mjög við reynslu Norðmanna af slíkum rekstri og tilraunum um géymslu þol fisks, er gerðar hafa verið þar í landi. Var erindi hans stórfróð- legt, enda lagði ræðumaður sig fram að skýra málið frá öllum hliðum og hrapaði hvérgi að órökstuddum fullyrðingum. 105 daga rckstur — 10 þús. lestir hráefnis. í erindinu leiddi hann rök að því, að frystihús það, sem hér er ráðgert, þyrfti að fá 10 þús. lestir hráefnis til vinnslu til þess að geta borið sig, eða vera starfrækt í 105 daga. Þá rakti Hallgrímur tilraunir um geymslubol fisks, or Norðmenn hafa gert, og sýndi fram á, að hámarkstímalengd, miðað við núv. aðstæður, til þess að til mála korni að nota hráefnið til hraðfrystingar ,er 8 dagar, en fiskur frá 2—3 fyrstu dögunum mundi þó ekki geta orðið fyrsta flokks vara. Því eldri, sem fisk- urinn er, bví minna verður geymsluþol hans eftir frystingu Skrifstofa Framsóknar- mamia opi i á ný Skrifstofa Frarrtsóknarfélaganna í Hafnar^tr. 93 verður opnuö á ný nú um mánaðamótin. Verður op- in á mánudögum kl. 6—7 e. h. og kl. 8.30—10.30 á þriðjudögum og fimmtudögum. Marteinn Sig- urðsson verður þar til viðtals. — Sími er 1443. og þolir hann ekki margra mán- aða geymslu, jafnvel við 25—30 gráðu frost, nema að hann sé til- tölulega nýr við frystingu. Með mjög miklu hreinlæti í fiskiskip- urtum og í allri meðhöndlun fisksins, mætti samt telja, að möguleikar til þess að nota tog- arafisk sem aðalhráefni fyrir hraðfrystihús, væru fyrir hendi. En ljóst var samt af þessum upp- lýsingum, að þessi hlið málsins er hvergi nærri eins einföld eða að- gengileg og ýmsir virðazt halda. Nær einvörðungu togarafiskur. Verkfræðingurinn leiddi rök að því, að frystihússreksturinn yrði að byggjast nær einvörðungu á togurum þeim, sem héðan eru gerðir út, því að ekki væri hægt að reikna með svo sem neinum bátafiski. Þeirri spurningu, hvort togararnir vildu binda sig við þennan rekstur eða gætu það af- {komu sinnar vegna, taldi hann sig ekki geta svarað og yrði það mál að rannsakast rækilega. En án náinnar samvinnu við togaraút- gerðina yrði þessi rekstur aldrei að raunveruleika. Aðstaðan í Krossanesi. í lok erindis síns ræddi Hall- grímur Björnsson staðsetningu frystihússins, ef úr framkvæmd- um yrði, og taldi mörg rök mæla með því, að rekstur þess yrði eft- ir bví sem unnt væri sameinaður rekstri bæjarins í Krossanesi og taidi að fé mundi sparast í rekstri og stofnkostnaði við staðsetningu fyrirtækisins þar. Aðstaða togai anna. Allmiklar umræður urðu um málið að erin.dí Ilallgríms Björns jonar loknu. Tóku til máls HelgL Pálsson, form. hraðfrystihúss- nefndar. Guðm. .Törundsson út- gerðarmaður. Svavar Guð- mundsson bankastióri, Steinn (Framhald á 8. síðu). Skálarnir á Melgerðis- ílugvelli brunnu Kl. um 6,15 í gærkvöldi kvikna'ði í afgreiðslu- og íbú'ð- arskálumun á Mclgerðisfiug- velli og mun þeir hafa brunnið til ösku .Hér er um að ræða 3 bragga með viðbyggingum er hýsti íbúð hjóanna frú Eriku og Ilöyers Jóhanncssonar af- greið'siumanns, veitinga- og biðskála og skála með talstöð- inni o. fl. Nánari fregnir voru ekki fyrir hendi, en fólk á nær- liggjandi hæjum, er blaðið tal- aði við í síina, taldi skálana hafa brunnið mjög skjótt og er hætt við a'ð litlu sem engu hafi verið bjargað, og þarna hafi orðið mikið tjón. 4

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.