Dagur - 23.04.1952, Side 10

Dagur - 23.04.1952, Side 10
10 D AGUR MiðvLkudaginn 23. apríl 1952 I liggur út úr þorpinu heim að hús- Þorp í álögum Saga eftir Juli'a Truitt Yenni 30. DAGUR. (Framhald). Allt í einu kom hreyfing á hóp- inn, sem stóð við útidyrnar. Ein- hver utanaðkomandi olnbogaði sig inn í stofuna. „Við erum að leita að lækninum,“ sagði hann. Hann var móður og auðséð var að hinum var mikið niðri fyrir. „Þeir eru búnir að finna Jónatan Bricker. Hann var niður við Beechers-vað, með skautana sína á fótunum. DrukkfTaður!" Dúnalogn datt á, en það stóð aðeins andartak. Pískur og hvísk- ur fyllti stofuna aftur. Faith stóð kyrr, þögul, hugsaði að þetta væri endahnúturinn. Nú mundi öllu lokið. En svo mundi hún allt í einu eftir Evu Larch. Eva var staðin á fætur. Andlit hennar var allt í einu gamalt og þreytulegt. „Eva,“ sagði Amos, en sneri sér svo að Faith. „Við verðum að fara héðan.“ Faith horfði þögul á þau hæði. Hún fann hvernig magavöðvarnir herptust saman, henni var að verða óglátt. 'Húri '£ól ándlitið- í. höndum sér. „Hef eg gert þetta?“ sagði hún hljómlaust. Áður en Amos komst til þess að svara, hafði Eva rétt út höndina og lagt hana mjúklega á öxl hennar. Andlit hennar var ekki lengur þreytulegt, svipurinn lýsti sjálfsfyirrlitningu. ”Allt, sem gerzt hefur, höfum við sjálf gert,“ sagði hún. „Og það löngu áður en þú komst hingað. Það er eins og Lúcíus sagði: Við höfum horft í spegil.“ Amos tók mjúklega í axlir hennar og sagði: „Faith, við verð- um að fara héðan.“ ,,Nei,“ svaraði Faith. „Farðu með Evu. Eg ætti ekki að láta sjá mig með henni.“ Nú hljómaði rödd að baki þeirra: „Nei, Faith ,barnið gott — hvað gengur á hér?“ Hún varð ekkert undrandi að sjá Hampton og Stafford. Ekkert hefði getað gert hana undrandi á þessu augðnabliki. Mælirinn var fullur. „Við skulum fylgja þér heim,“ sagði Stafford. „Eða kannske að réttast sé að þú komir með okkur til borgarinnar í bráðina að minnsta kosti.“ Hún horfði á hann, svo rann upp fyrir henni, hvað hann var að segja. Eg get komizt burt úr þessu, hugsaði hún, á næsta augnabliki get eg gengið með þeim inn í bílinn þeirra og ekið burt og aldrei komið hingað aft- ur! Haldið áfram að ferðast, eins og pabbi. Hún leitaði að Amos með aug- unum. Hann leit til baka til henn- ar, um leið og hann þokaði Evu á undan sér í gegnum mannþröng- ina. En hún leit undan. Eg get ekki beðið Amos um hjálp til þess að taka þessa ákvörðun, hugsaði hún, eg verð að standa ein, þetta er örlagaaugnablik. „Þakka ykkur fyrir. En eg held eg vilji heldur ganga heim,“ sagði hún. „Þið getið fundið mig þar á eftir, ef þið óskið.“ Báðir mótmæltu þegar. „Það er ekkert vit,“ sagði Stafford. „Góða barn,“ sagði Hampton, „lofaðu okkur að hjálpa þér.“ „Það er ekkert að. Eg get ósköp vel gengið heim. Eg verð að ganga heim, ganga gegnum þorpið. Það er síðasta tækifærið ■ sem eg hef til þess áð gera það sem heima- maður.“ „Við skulum ekki mikla hlutina um of fyrir okkur,“ sagði Staf- ford. „Nei, við skulum ekki gera það,“ svaraði Faith, en hún vissi að þeir skildu hana ekki. Þeir þekktu ekki sögu hennar: En eitt- hvað í látbragði hennar batt orð- in á tungu þeirra. Þeir sögðu ekki meira. Faith stóð kyrr litla stund. En svo gekk hún í gegnum stof- una og út á götuna og sem leið inuýúti á enginu. Eva lagði töskuna sína frá sér í forstofunni og var lengi að því. Hún hafði ekkert annað með tím- ann að gera. Hún gat að vísu farið úr kápunni, en það var gott að eiga það inni, geyma það, ef ein- hver skyldi taka upp á því að koma í heimsókn, ef einhver færi að horfa á hana og hún gæti ekki lengur haft vald á andlitssvip sín- um. Jónatan Bricker. Ó, Jónatan, kæri vinur, hugsaði hún, en hratt hugsuninni frá sér. Hún mátti ekki ganga sorginni og örvæntingunni á hönd. Þá mundi öllu lokið. Hún varð að hrinda hugsuninni frá sér, hugsa um eitthvað annað, hvað svo sem það væri. (Framhald). I Vald. V. Snævarr: Tjarnarkirkja í Svarfaðardal sextug (Nokkrir þættir úr sögu hennar) (Framhald). Á Bakka: Jón Zophoníasson, Svanhildur Björnsdóttir. í Syðra-Garðshorni: Kristján Jónsson, Solveig Jónsdóttir. Á Grund: Tvíbýli, Jón Friðriksson, Margrét Björnsdótt- ir; Sigfús Jónsson, Anna S. Björnsdóttir. I Brekku: Baldvin Jóhannsson, Guðlaug Sigfúsdóttir. I Brekkukoti: Jóhann Jónsson, Steinunn Zophoníasdóttir. Á Jarðbrú: Jón Jónsson, Solveig Björnsdóttir. í Tjarnar-Garðshorni: Sigurður Halldórsson, Friðrikka Daníelsdóttir. í Gullbringu: Sigurður Jóhannsson, Þorbjörg Þórarins- dóttir. Á Tjörn: Séra Kristján Eldjárn Þórarinsson, Petrína S. Hjörleifsdóttir. Á Ingvörum: jón Kristjánsson, Helga Jónsdóttir frá Hóli. Á Helgafelli: Sigurður Guðmundsson, Soffía Pálsdóttir. í Syðra-Holti: Tvíbýli, Sigfús Pálsson, Kristín Gunn- laúgsdöttir; Hallgrímur Kristjánsson, Pálína Pálsdóttir. í Ytra-Holti: Jóhannes Helgi Þorkelsson, Guðrún Gísla- dóttir. I Halldórsgerði: Júlíus Guðmundsson, Helga Magnús- dóttir. Ekki mun nokkur vafi á því, að fleira fólk en bændur einir og konur þeirra hafa sótt kirkju þennan dag, en hverj- ir komu og hverjir sátu heima, veit nú enginn. Allt er þetta blessaða fólk nú senniléga dáið, en hins vegar skipa enn liina fornu bekki kirkjunnar menn og konur sömu ætta, og jafnvel börn þeirra og barnabörn. Kirkjan er í mörgum aðalatriðum óbreytt frá því,1 sem hún var á vígsludegi sínum 1892. Þó er að vísu mörgu breytt og Ölíu til batnaðar, og ýmsa nauðsynlega muni hefur hún eignazt. Þá var engin hvelfing í henni, en nú er hvelfing í henni allri, gerð 1896 eða 1897. — Þá var hún ómáluð, en nú er hún vel máluð. Það gerðu þeir Páll Sigurðsson og Steingrímur Þorsteinsson á Dalvík 1951. — Þá var kirkjan ofnlaus. Nai er hraðhitandi olíuofn í henni, keyptur 1943. — Númeratafla var keypt 1925. — Einhvern tíma á árunum 1925—1933 hefur söngloft það, er var í kirkjunni, verið FLUGSLYS Um háloftin fljúga svo heiS og blá er hjartfólgin mannsandans bernskuþrá.-- Þau hófu sig, lyftu sér himni nær í hráðfleygri vél, þó að land og sær regnskýja mistursins hyldust hjúpi. — Hel beið í þokudjúpi. Sem líkhringing vábrestur leið um fjöll, en loginn varð náklæði, hreint sem mjöll, og hamrarnir stóðu þar heiðursvörð, er höggdofa beið þeirra móðurjörð. — Líksöngur hljómaði’ úr hafsins bárum, himinn grét sorgartárum. /• Nú drottnar hryggðin um bæ og borg, í blæðandi hjörtunum ríkir sorg. Eins augnabliks slys verður aldrei bætt. — Hinn eilífi Guð fær einn meinin grætt. Miskunn hans lækni öll sorgarsárin, sarnúð hans þerri tárin. SÆMUNDUR G. JÓHANNESSON. <B3<H><BS<H><B5<B><B5<B5<B5<B5<BS<B><HÍB5<B><H><BÍ<BS<B5<B><B5^^ SILVERCROSS Silvercross-barnavagnarnir og kerrurnar eru án ;; efa þeir vönduðustu og glæsilegustu vagnar, sem ;j hérjhafa komið. ;j Nokkrir vagnar og kerrur í ljósum litum vænt- ;i anlegir með næstu skipsferð. ;! Tökum.á móti pöntunum! I; Brynjólfur Svemsson h.f. Skipagötu 1. — Simi 1580. tekið niður, en söngpallur byggður í þess stáð. — Nú er dregill á kirkjugólfinu, en þá var hann enginn. — Nú prýð- ir altarið fagur dúkur og vel gerður, saumaður og gefinn a£ frú Sigrúnu Sigurhjartardóttur Eldjárn á Tjörn, — og altaris- klæði, gert af frú Unni Ólafsdóttur í Reykjavík, en gefið a£ safnaðarkonunum 1947. — Nú er hljóðfæri í kirkjunni, keypt 1915, en þá var hún hljóðfærislaus. KirkjúÖrgelið var að nokkru leyti keypt fyrir gjafafé, er ung stúlka í sókninni, Sesselja Kr. Eldjárn, safnaði og gaf til þess. Má söfnuðurinn minnast hennar með þakklæti. — Altaristaflan er hin sama, sem áður var í gömlu kirkjunni, henni gefin af séra Árna Snorrasyni, er Tjarnarstað hélt frá 1814—1833. — Altaris- stiakarnir, kvöldmáltíðarmunirnir og kirkjuklukkurnar eru sennilega arfur frá gömlu kirkjunni, en liins vegar er altari og prédikunarstóll gert um leið og kirkjan var smíðuð, 1892. Prédikunarstólinn gerði yfirsmiður kirkjunnar, Jón Stef- ánsson. Frá sjálfri vígsluathöfninni verður fátt greint. Til þess skortir öruggar heimildir. — Víst má telja, að helgir munir kirkjunnar liafi verið bornir í skrúðgöngu inn í liina nýju kirkju. Þá er örugg heimild fyrir því, að sóknarpresturinn hefur ávarpað söfnuðinn, sennilega úr kirkjudyrum, á þessa leið: „Kom pú scell, elskulegi söjnuður Drottins. Friður og velþóknun hins þríeina Guðs hvili yfir hinni fyrstu inn- göngu þinni i þctta hús. — í Jesú nafni. — Amen.“ Þá hefur og sjálf vígsluræðan geymzt, og verða hér birtir stuttir kaflar úr henni. Hún hefst á þessa leið: „Það var á hvítasunnudag nú fyrir hartnær 19 öldum síðan, að heilagur andi kom yfir postula Jesú ICristí, eins og eldtungur, og fyllti hjörtu þeirra guðmóði, en veitti þeim málsnilld, er með sigurvaldi bræddi hjörtun, en kveikti eld elsku, ljós trúar og vonar, í sálum til- lieyrenda.------“ „Það var á hvítasunnudag, að hin sýnilega kirkja Krists hér í heimi var stofnsett.-----“ „Það er því ekki að ófyrirsynju, að vér höfum valið þennan stórhá- tíðisdag til að helga þetta hús, sem vér höfum reist og reisa látið, oss til blessunar og nota, en Drottins nafni til lofs og dýrðar, — svo að þetta litla, fátæka Guðs musteri eigi hinn sama afmælisdag eins og hið mikla musteri Drottins: liristileg kirkja.-“ „Það cr nú aftur ruifhin upp sú tíð, sem betur fer, að menn víðast hvar hér um land láta sér ekki standa á sama, þótt lnis þau, sem ætluð eru til opinbcnar guðsþjónustu, séu líkari fénaðarlnisum cða geymslu- skemmum heldur en Guðs musterum. Menn finna það betur og betur, að það sýnir mikið skeytingar- og kæruleysi um þau efni, er heyra til guðsríki og sáluhjálparefnum kristinna manna, þá er menn neyta allrar orku til þess, að vanda og skreyta stundarbústað sjálfs sín, en vanrækja (Framhald).

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.