Dagur - 23.04.1952, Blaðsíða 12

Dagur - 23.04.1952, Blaðsíða 12
12 Daguk Miðvikudagiiin 23. apríl 1952 Bændur fengu 212 aura fyrir mjólkina á síðastliðnu ári Minna mjólkurmagn á síðastliðnu ári, meðal annars vegna sam<íön2iierfiðleika Ársfundur Mjólkursamags KEA var haldinn á Akureyri fimmtu- daginn 17. apríl sl. — Á fundin- um mættu auk stjórnar, fram- kvæmdastjóra og mjólkursam- lagsstjóra 144 fulltrúar mjólkur- framleiðenda og einnig margir gestir. Rekstursskýrsla og reikningar Mjólkursamlagsins fyrir árið 1951 báru með sér, að móttekið mjólk- urmagn hafði verið 7.483.260 ltr. og hafði minnkað um 2,4% frá ór- inu á undan. Fitumagn innlagðrar mjólkur var 3.56%. Úr mjólkinni var framleitt: Gerilsneydd mjólk 2.349.454 ltr. Rjómi 103.763x/2 ltr. Smjör 146.005% kg. Mjólkurostur 116.231 kg. Skyr 192.733 kg. Mysuostur 19.155 kg. Mysingur 20.429 kg. Til kaseingerðar hafði farið 1.137.000 ltr. eða 15% af hinu samanlagða mjólkurmagni. Ævisaga Brontesystra í Skjaldborgarbíó Skjaldborgarbíó sýnir um þess- ar mundir kvikmynd um ævi Brontesystranna, hinna heims- frægu ensku skálda. Systurnar voru uppi á öndverðri öldinni sem leið, prestsdætur í Yorkshire. Allar systurnar skrifuðu skáld- verk, sem lifa í dag. Frægustu verk þeirra eru Jane Eyre eftir Charlotte Bronte og „Wuthering Heights" eftir Emily Bronte. — Frægar amerískar leikkonur leika systurnar. Kvöldvaka nemenda í leiklistarskóla Jóns Norðf jörð Síðasti. föstudag hé!t Jón Norð- fjörð, leikari, kvöldvöku í hátíða- sal Mennatksólans með nemend- um úr leikskóla sínum. Komu þar fram 15 af 17 nem- endum hans í vetur og skemmtu með upplestrum og samtals- og leikþáttum. Voru flestir nemend- anna úr M. A., og allir eða nær allir byrjendur á sviði leiklistar- innar. Tók Jón Norðfjörð fram í ávarpi, er hann flutti í byrjun kvöldvökunnar, að hann hefði lagt megináherzluna á það að kenna nemendum sínum skýran og réttan framburð, því að það væru undirstöðuatriði, sem aldrei mættu gleymast, venja af þeim feimni og síðan lítilsháttar kenna þeim látbrigði. Er slík kennsla vissulega góðra gjalda verð og spurning, hvort hún ætti ekki meiri rétt á sér í almennum skól- um en sumar aði’ar námsgreinai'. 212 aurar fyrir ltr. Meðálvfel'ð' ntjólkarinnar til framleiðenda reyndist vera 212 aurar á hvern •iiinveginn mjólk- urítra kominn til mjólkúrstöðvar- innar. Þetta útborgunarverð var 17%'hærra heldur en árið áður. Samanlagður reksturskostnað- ur Samlagsins og sölukostnaður hinna framleiddu mjólkurvara varð um 42 aura á hvern mjólk- urlítra og hafði hækkað á árinu um rúmlega 30%. — Af móttek- inni mjólk hafði 31% selzt sem neyzlumjólk, en 69% farið til vinnslu. Rætt um áburðarnotkun. Á fundinum flutti Árni Jónssdn tilraunastjóri fróðlegt erindi um heyfóðurframleiðslu, áburðar- notkun og heygeymslu. Hvatti hann bændur til aukinnar áburð- arnotkunar yfirleitt. Einnig hvatti hann bændur til að byggja háa votheysturna og notkun saxblás- ara í sambandi við þá. — Auk þessa ræddu fundarmenn og gerðu fyrirspurnir um fjölmörg ati-iði er snerta ræktunar- og framleiðslumál bænda í Eyjafirði. Minni fóðurbætisgjöf. Jónas Kristjánsson mjólkur- samlagsstjóri hefur í samtali við blaðið sagt, að samdráttur mjólk- urmagnsins 1951 um 2,4% miðað við árið á Undan, stafi af hinum miklu samgönguerfiðleikum, sem hér ríktu sl. vetur, er mjólkur- flutningar gengu mjög erfiðlega og sumar sveitir komu mjólkinni ekki frá sér langtímum saman. Einnig mundi það hafa áhrif, að ^yfirðingar hafa mjög farið eftir þeim tilmælum búnaðarmálastj. að.gæta hófst í fóðurbætisnotkun. Hefur fóðurbætisnotkunin í hér- aðinu mjög minnkað síðan geng- isfellingin varð og verð fóðurbæt- is hækkaði mjög, enda þótt menn gefi hárrijólka kúm að sjálfsögðu fóðurbætir sém áður. Jónas taldi að þessi samdráttur mjólkurmagnsins væri því stund- arfyrirbrigði, enda mundi ræktun í héraðinu hafa aukizt. Á fyrstu þremur mánuðum þessa árs varð innlögð mjólk hjá Samlaginu 244 þús. ltr. meiri en á sama tímabili árið 1951. Orðsending; frá Mæðrastyrksnefnd Mæðrastyrksnefnd Akureyrar hefur ákveðið að styrkja engar mæðúr til sumardvalar í þetta sinn, aftur á móti ætlar nefndin að borga með nokkrum börnum á barnaheimilinu Pálmholt. Vill nefndin því biðja mæður þær, « • 4 sem æskja þess, að borgað verði með börnum þeirra, að gefa sig fram við skrifstofu nefndarinnar, Strandgötu 7, opin á mánudaga og föstudag frá kl. 5 til 7 e. h. Fimmtugur í dag Skáldið Halldór Kiljan Laxness á fimintugsafmæli í dag. Fjársöfnun , fyrir „Pálmholti; á morgun Eins og að undanförnu mun kvenfélagið „Hlíf“ hafa fjársöfn- un á suinardaginn fyrsta fyrir starfsemi sína ,en eins og bæjar- búum er kunnugt, rekur félagið barnaheimilið „Pálmholt“ að sumrinu. Bazar verður í Túngötu 2 kl. 2 e. h. og barnaskemmtun í Sam- komuhúsinu á sama tíma. Þar fara fram ýms skemmtiatriði, svo Skáldverk samkvæmf pöntun Áveitu- og skipaskurðafram- kvæmdir Sovétstjórnarinnar eru mjög lofsungnar í blöðum komm- únista um heim allan og vist mun þarna vera um að ræða merkileg- ar framkvæmdir, þótt ýmsum finnist sumt af framkvæmdum heima fyrir vera frásagnarverð- ari. Tæknilega séð hefur fjöldi manna vitaskuld mikinn áhuga á því, sem þarna er að gerast, og vafalítið munu Ráðstjórnarríkin skipa þarna til verks fjölmennt- uðum tæknisérfræðingum. Kem- ur það ekki á óvart. Hitt er frem- ur í frásögur færandi, að þessi mannvirki, til dæmis skipaskurð- urinn frá Krasnavodsk til Aral- vatns, hafa mikil og vaxandi áhrif á andlegt líf í Sovétríkjunum. Aðeins á tímabili Stalíns. Bókmenntatímaritið Littera- turnaja Gazetta, sem er málgagn rithöfundasambands Sovétríkj- anna og bókmenntastefnu ríkisstjórnarinnar, lagði um sl. áramót þá spurningu fyrir ýmsa af kunnustu skáldsagnahöfundum Rússa, hvað þeir hefðu fyrir stafni, og hér á eftir er getið nokk urra svara við spurningunni. Skáldkonan Vcra Inber er að semja mikinn kvæðaflokk, sem fjallar að verulegu leyti um skipaskurðinn í Turkmeníu, sem fyrr var nefndur — stærsta skipa skurð veraldar, segir í kvæðinu, sem aðeins gæti hafa orðið til á þeim lofgerðaróðum, sem nú er verið að skrifa um mannvirki rússnesku ríkisstjórnarinnar. — Áveituframkvæmdir og skipa- skurðir ná út yfir bókmenntir og andlega framleiðslu. Efasemdirn- ar eru styrktar af þeirri stað- reynd, að það hefur oft hent, að rithöfundarnir hafa mátt standa frámmi fyrir embættismönnum stjórnarinnar, eins og óþægir krakkar fyrir framan kennara, og játa að þeim hafi ekki tekizt að tala það pólitíska tungumál íil hlýtar, sem stjórnin vill helzt lreyra. Verk þeirra falla og standa líka á þessu pólitísku tungutaki. Ekki fleiri dauðar sálir. Rithöfundarnir austur þar mega ekki sjálfir finna þau veikefni, sem þeim leikur helzt hugur á að skrifa um, þeir fá þau send með eftirkröfu frá stjórninni og eiga að innleysa hana á tilsettum tíma. Og hér kemur framhaldsfrásögn af iðju kunnra rússneskra höf- unda um þessar mundir: A. Step- anov er að skrifa skáldsögu um hina hetjulegu vörn Rússa við Port Arthur í rússnesk-japanska stríðinu, og er sagan jafnframt ævisaga hetjunnar frá þessum dögum, Kondratenko hershöfð- ingja. V. Yerminlov er að skrifa bók um Gogol út frá þeim sjón- ai-hóli, að baráttu Gogols fyrii mannréttindum sé nú framhaldið „gegn þeim herrúm, sem geta hugsað sér að gera allt mannkyn- ið að dauðum sálum.“ (Kunnasta verk skáldsins heitir Dauðar sál- ir). Anatol Surow skrifar um májmiðjuverkamennina og lofar að vinna betur 1952 en hann gerði 1951 og loks er N. Virta að ljúka við leikrit um þá menn, sem sem: leikþættir, söngur, gaman- þættir o. fl. Klukkan 3 síðdegis hefst kaffi- sala að Hótel Norðurland, og drekka venjulega margir bæjar- búar síðdegiskaffið þar þennan dag. Þá verður dansleikur að Hótel Norðurland kl. 9 e. h. — Merkjasala verður allan daginn. Allt verður þetta nánar auglýst með götuauglýsingum — Bæjar- búar! Styðjið gott málefni! „Ævintýri Hoffmans“ í Nýja Bíó Nýja-Bíó sýnir um þessar mundir kvikmyndina „Ævintýri Hoffmanns", enska dans- og söngvamynd, sem byggð er á skáldsýnum þýzka skáldsins Hoffmanns og músík Offenbachs. Þetta er einhver skrautlegasta og íburðai-mesta kvikmynd, sem gerð hefur verið á seinni árum og hefur hvarvetna vakið mikla at- hygli. Frægustu ballett-dansarar Breta, Robert Helpman og Moira Sheaerer, leika þarna stór hlut- verk. Sömu kvikmyndastjórar og gerðu hina frægu ballettmynd „Rauðu skóna“ um árið, stjórn- uðu þessari kvikmyndatöku. Bærinn fær 800 þús. Félagsmálaráðuneytið hefur nú svarað málaleitun Akureyrar- bæjar um lán til þess að útrýma heilsuspillandi húsnæði og hefur samþykkt að veita bænum 800 þús. kr. í þessu skyni. ævitíð hins mikla Stalíns, og að- eins í landi, sem hefur tileinkað sér „sovét-lýðræðið“. Skáldið N. Nikitin er að kynna sér ýmislegt í sambandi við gerð skipaskurðsins og er það ætlun hans að skrifa skáldsögu um gerð hans og sögu. Skáldið Feodor Panferov er al- veg upptekinn við að kynna sér ýmis stórvirki stjórnarinnar, svo sem umsköpun jarðarinnar úr éyðimörkum í gróðurlendi. Hann er að skrifa margra binda skáld- verk, sem á að heita Móðir Volga. Þá er komið norður fyrir Túrk- menska skipaskurðinn, en andinn er svipaður á þeim slóðum og sunnar, enda á nokkuð af skáld- sögu þessari að fjalla um Volgu- Don-skipaskurðinn. Bót og betrun. Ymsir Vesturlandamenn eru haldnir efasemdum um ein- lægnina og sannleikann í öllum Bærinn rafmagnslaus í gær Um klukkan 1 í fyrrinótt bilaði háspennulínan frá Laxárvirkjun- inni og varð bærinn rafmagnslaus og var svo í gær. Bilunin var vestan í Vaðlaheiðarbrún. Hafði háspennulínan fallið af staurun- um þar á nokkrum kafla, vegna ísingar. Viðgerð hófst í gærmorg- un og lauk á 7. túnanum í gær- kvöld og fékk bærinn rafmagn skömmu síðar. Risjuveður var á Vaðlaheiði í gærdag ,er viðgerð- arflokkurinn héðan var þar að starfi, og aftakaveður í fyrrinótt, er bilunin varð. Flestir rússneskir skáldsagna- höfundar eru að skrifa skáldverk, sem eiga að varpa ljóma um Stal- ín. Ef Bretar væru eins foringja- hollir, ætti helmingur kunnra brezkra liöfunda að skrift lof- gerðarrollur um Churchill, segir Times. byggja upp „alþýðulýðveldi", en aðalhetjurnar á sviðinu eru Len- in og Stalín og barátta þeirra að viðhalda „hreinleika" flokksins. Hið gamla og virðulega blað Times í London getur þessara tíð- inda allra í vikulegu bókmennta- yfirliti sínu nú nýlega (Times Literary Supplement) og lætur þess jafnframt getið, að ef enskir rithöfundar störfuðu að heill lands og þjóðar í sama mæli og rússneskir höfundar, ætti um það bil helmingur þeirra nú að vera önnum kafinn við að semja skáld- verk, sem væri á einn eða annan hátt tengt ævi og starfi Winston Churchills forsætisráðherra. Lóan er korain! Ýmsir borgarar hafa skýrt blaðinu svo frá, að þeir hafi séð lóuna, fyrir og um sl. helgi. Hafa lóuhópar sést á nokkrum stöðum umhverfis bæin-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.