Dagur - 19.06.1952, Side 8
8
Fimmtudaginn 19. júní 1952
Togaraútgerðin greiðir hluthöfum
5 % arð fyrir síðastliðið ár
Frá aðalfundi Útgerðarfélags Akureyringa h.f.
Aðalfundur Útgerðarfélags Ak-
ureyringa h.f. var haldinn sl.
laugardag og var vel sóttur. For-
maður félagsstjómar, Helgi Páls-
son bæjarfulltrúi, setti fundinn,
en fimdarstjóri var kjörinn Erl-
ingur Friðjónsson. — Formaður
flutti skýrslu um rekstur félags-
ins á sl. ári, ræddi aðstöðu félags-
ins í dag og fraintíðarverkefni.
Á 6. þúsund tonn.
Togaramir þrír voru gerðir út
allt árið og öfluðu vel, enda hafa
þeir alla tíð verið meðal afla-
hæstu skipa flotans. Þeir fóru
samtals 54 veiðiferðir á árinu, 20
með ísfisk til Bretlands, 23 í
hræðslu, 7 í saltfisk og 4 fyrir
innlend frystihús. Aflinn var
samtals: Harðbakur 5378 lestir,
Kaldbakur 5330 lestir og Sval-
bakur 5033 lestir. Kaupgreiðslur
félagsins á sjó og landi námu TVz
millj. króna.
5% arður.
Samþykkt var tillaga stjórnar-
innar um að greiða hluthöfum
5% arð íyrir sl. ár, og nemur sú
upphæð um 155 þús. kr. Óskað
var að hluthafar, sem eiga að fá
meira en 500 kr. greiddar í arð,
taki hlutabréf í félaginu fyrir
arðinum.
Framkvæmdir.
Félagið hefur haldið áfram að
byggja fiskverkunarstöð sína á
Oddeyri og vinna þar margir
menn að staðaldri. Félagið keypti
húseignina Gránufélagsgötu 4 á
sl. ári og er flutt þangað með
skrifstofur sínar. Munu netaverk
stæði félagsins einnig fá húsrúm
þar..Vinnulaun í landi námu um
1,5 millj. króna.
Erfiðari afkoma.
Enda þótt félagið greiði hlut-
höfum arð fyrir sl. ár, var upp-
lýst á fundinum, að afkoman var
mun erfiðari sl. ár en áður, aðal-
lega vegna stóraukins kostnaðar
við alla útgerð. Hafa útgerðar-
vörur flestar stórhækkað í verði.
Upplýst var að aflaverðmæti tog-
aranna nemi: Kaldbakur um 20
millj., Svalbakur 12,7 millj. og
Hai’ðbakur 6,5 millj., fram til sl.
áramóta. Fimm ár eru síðan
Kaldbakur hóf veiðar.
Almenn ánægja.
Á fundinum ríkti almenn
ánægja yfir hag og rekstri félags-
ins og hlutu framkvæmdastjór-
inn, Guðmundur Guðmundsson,
stjórnin og hinir duglegu og afla-
sælu skipstjórar togaranna, Auð-
unssynir, verðskuldað lof og
þakklæti fyrir frammistöðuna.
Kvenfélagið Framtíðin efnir nú
mn helgina til fjölbreyttra Jóns-
messuhátíðahalda á túnunum
sunnan við sundlaug bæjarins, til
ágóða fyrir sjúkrahúsið nýja.
Hafa konurnar lagt fram mikið
undirbúningsstarf og vænta þess
að bæjarmenn fjölmenni á hátíð-
ina og njóti þess, sem þar verður
á boðstólum.
Hátíðin hefst á laugardagskvöld
kl. 8.30. Koma þar þá fram
Lúðrasveit Akureyrar, Karlakór-
Islenzk-amerískt
félag stofnað
Sl. mánudagskvöld var hér hald-
inn stofnfundur Islenzk-amerísks
félags, sem hyggst vinna að menn-
ingarlegúm og viðskiptalegum
tengslum íslands og Bandaríkjanna
í samvinnu við Islenzk-ameríska fé-
lagið í Reykjavík og The American
Scandinavian Foundation í Netv
York.
Formaður Islenzk-ameríska félags-
ins í Reykjavík, Vilhjálmur Þór
forstjóri, er gekkst fyrir stofnun fé-
lagsins, lýsti tilgangi þess. Eru stofn-
endurnir um 70 talsins.
Undirbúningsnefnd félagsstofn-
unarinnar hafði boðið á fundinn
fulltrúum frá sendiráði Bandaríkj-
anna og varnariiðinu, og voru mætt-
ir Mr. Sidney Sober, sendifulltrúi,
J. E. McGaw, hershöfðingi, dr. Ol-
son, blaðafulltrúi sendiráðsins, og
nokkrir aðrir gestir. Avörpuðu þeir
Mr. Sober og hershöfðinginn fund-
inn.
I stjórn hins nýja félags voru
kjörnir þessir menn: Haukur
Snorrason ritstjóri, formaður, séra
Pétur Sigurgeirsson, varaformaður,
Jónas G. Rafnar alþm., gjaldkeri,
Geir S. Björnsson prentsm.stjóri,
ritari, og meðstjórnendur Jakob
Frímannsson kaupfélagsstjóri, séra
Friðrik J. Rafnar vígslubiskup,
Sverrir Ragnars framkv.stjóri og
Jón Egils framkvæmdastjóri.
I íundarlok fiutti Bragi Sigur-
jónsson ritstjóri erindi um ferð
sína til Bandaríkjanna nú fyrir
skömmu.
inn Geysir og fimleikaflokkur. Þá
verða opnuð tjöld á hátíðasvæð-
inu og þar fást alls konar veit-
ingar. Þar verða ennfremur tvö
spákonutjöld og svo hið vinsæla
Tivoli-tjald, og býður upp á
margvísleg skemmtiatriði. — Á
sunnudaginn hefst hátíðin klukk-
an 1.30 með leik Lúðrasveitarinn-
ar. Þá flytur frú Laufey Pálsdótt-
ir, formaður Framtíðarinnar,
ávarp, þá verður guðsþjónusta og
prédikar séra Pétur Sigurgeirs-
son undir berum himni. Þá mun
Fjölbreytt JónsmessuhátiS til ágóða
fyrir sjúkrahúsið um næstu helgi
71. aðalfundur K. Þ. haldinn
í Reynihlíð um helgina
71. aðalfundur Kaupfélags Þing-
eyinga var haldinn að Reynihlíð
við Mývatn á laugardaginn og
sunnudaginn var og sátu hann 91
fulltrúi auk félagsstjómar, kaup-
félagsstjóra og endurskoðenda,
en auk þess komu á fundinn
margir gestir.
Heiðursgestur fundarins í til-
efni af 70 ára starfi félagsins, var
Sigurður Bjarklind, fyrrverandi
kaupfélagsstjóri.
Karl Kristjánsson, formaður
félagsstjómar, flutti skýrslu fé-
lagsstjórnar og minntist 70 ára
starfs félagsins í setningarræðu.
Þórhallur Sigtryggsson kaup-
félagsstjóri flutti ársskýrslu sína
og endurskoðendur greinargerð
um reikninga.
Vörusala félagsins sl. ár var
13,2 millj. kr. og samþykkti fund-
urinn að endurgreiða 4% í stofn-
sjóð félagsmanna ,af ágóðaskyld-
um viðskiptum. Félagsmenn eru
nú rúmlega 1420.
Á laugardagskvöldið skemmtu
sameinaðir kirkjukórar Reykja-
hlíðar- og Skútustaðasókna full-
truum og gestum með söng undir
stjórn Sigfúsar Hallgrímssonar.
Ennfremur lásu upp Amfríður
Sigurðardóttir, skáldkona, og
Sólveig Stefánsdóttir, húsfreyja í
Vogum, frumsamin ljóð, og Ingi-
björg Steinsdóttir leikkona
skemmti með upplestri. Pétur
Jónsson, gestgjafi í Reynihlíð, las
upp minningaþátt, ritaðan af Ás-
rúnu Árnadóttur frá Garði.
Á sunnudaginn hélt fundurinn
áfram og voru þá rædd ýmis mál
og ályktanir gerðar. Var sam-
þykkt að efna til almennrar sam-
vinnuhátíðar í héraðinu í sumar
í tilefni af 70 ára starfi fálagsins.
Fjallkonan koma fram og loks
syngja þeir Sverrir Pálsson og
Jóhann Konráðsson nokkur lög.
Tjöldin verða opin allan daginn
til veitingasölu og margs konar
skemmtana. Kaffisala er báða
dagana í Gagnfræðaskólahúsinu.
Jónsmessuhátíðir Framtíðar-
innar hafa jafnan þótt hin betza
skemmtun og tilbreyting í bæjar-
lífinu. Auk þess sem menn
skemmta sér þar á heilbrigðan
hátt, leggja þeir einu okkar mesta
nauðsynjamáli lið. Sækið því há-
tíðina um helgina og styðjið nýja
sjúkrahúsið!
Góðir vestur-íslenzkir
gestir
Hingað eru væntanleg í kvöld
Guðmundur J.ónasson fiskkaupinað-
ur frá Winnipeg og frú hans. Munu
þau dveljaíhér í nokkra daga. Guð-
mundur er framkvæmdastjóri og
eigandi Keystone Fisheries Ltd. í
Winnipeg, sem er þekkt fyrirtæki.
Hann er og kunnur fyrir þátttöku
í starfi Þjóðrækn isfélagsins vestra og
starfi Evangelisk-lútherska kirkjuié-
lagsins. Þessum góðu gestum mun
verða vel fagnað hér nyrðra.
Rannsóknaskip þriggja þjóða
hefja athuganir á göngu
Norðurlandssíldar
Skipin hittast á Seyðisfirði 25. þ„ m.
María Júlía hélt af stað frá
Reykjavík laust eftir sl. mánaða-
tnót í rannsóknarleiðangur vest-
ur og norður fyrir land.
Fyrst gerði skipið sjórann-
sóknir í Faxaflóa, en síðan er
kannaður sjórinn út af Vest-
fjörðum. Þá voru teknar sneiðar
norður í haf, út af Húnaflóa,
Siglufirði og Melrakkasléttu. Síð-
an var haldið frá Langanesi til
Jan Mayen og þaðan verður siglt
suður um hafið eftir 9. lengdar-
baug. Skipið kemur til Seyðis-
fjarðar 25. júní.
Norska rannsóknarskipið G. O.
Sars lagði af stað í rannsóknar-
leiðangur frá Álasundi 23. maí.
Tilhögun leiðangursins er þann-
ig, að fyrst er haldið norður með
Noregsströndum til þess að rekja
mörkin milli strandsjávarins og
úthafssjávarins. Þegar kemur
norður til Lofoten er farið til Jan
Mayen, en þaðan haldið beint í
norður þangað til komið er að ís-
röndinni. Þaðan er svo haldið til
Svalbarða. Síðan er siglt í suður-
átt og lýkur ferðinni á Seyðis-
firði 25. júní.
Þá lagði „Dana“ af stað frá
Færeyjum upp úr hvitasunnu, en
hafði áður verið rúman mánaðar-
tíma að rannsóknum í Norðursjó.
Hún á að kanna úthafið milli ís-
lands og Noregs frá Færeyjum
norður á móts við Austfirði og
lýkur hún störfum á Seyðisfirði
25. júní.
Tilgangur rannsóknanna er
fyrst og fremst leit að Norður-
landssíldinni, þar sem hún er á
ferð um hafið. Ennfremur eru
gerðar víðtækar sjó- og svif-
rannsóknir til þess að átta sig á
því, hvernig straumar liggja og
safna gögnum til að draga af
ályktanir um síldveiðahorfur við
Norðurland á komandi sumi-i að
svo miklu leyti sem það er hægt.
Oll skipin verða á Seyðisfirði
25. júní og verður þá borinn sam-
an árangurinn sem náðzt hefur og
gefin út tilkynning strax að fund-
inum loknum, þar sem sagt verð-
ur frá því hvar síld hefur fundizt,
og hvernig ætla megi að horfurn-
ar séu.
Þetta er í fyrsta skipti er þrjár
þjóðir samstilla krafta sína til
þess að kanna hafsvæðið sem
Norðurlandssíldin gengur um
rétt áður en síldveiðar við Norð-
urland eiga að hefjast.
Ef veðurskilyrði verða sæmi-
leg og ef hepþnin er með má
vænta nokkur sárangurs, er ætti
að geta orðið síldarútveginum til
ómetanlegs gagns, eigi aðeins
næsta sumar, heldur og fram-
vegis.
Forystumenn rannsóknarskip-
anna eru Unnsteinn Stefánsson,
Finn Devold og Erik Bei’telsen.
- Menntaskólinn
(Framhald af 1. síðu).
Sigríður Helgadóttir, Ak. I. 6.73
Sigríður Jónsdóttir, Ak. I.G.41
Sigrún Brynjólfsdóttir, Ef. I. 7.07
Sigurður Richardsson, Rvík 11.5.64
Stefán A. Jónss., A.-Hún. (usk.) 1.6.50
Þóra Davíðsdóttjr, S.-Múl. 11.5.85
Þór. l’étursson, S.-Þfng. (usk.) II. 5.67
Þórey Kolbeins, Vestm: 1.6.83
Þórir H. Einarsson, A.-Hún. 1.6.62
Örn Þór, Rvík 1. 6.01
Stœrdfra’ðidcild:
Daníel Gestsson, Seyðisf. 1.6.71
Edda Emilsdóttir, S.-Múl. • II. 5.00
Gissur Pétursson, Ak. I. 6.09
Guðm. Samúelsson, Akran. II. 5.53
Gunnar Bahlvinsson, Ak. I. 7.24
Gult. Sigurbjarnarson, S.-Múl. I. 6.46
Haraldur Jónasson, S.-Þing. 11.5.89
Hákon Hertervig, Sigluf. II. 5.44
Hreggviður Hermannsson, Ef. 11.5.63
Hörður Þormar, S.-Þing. 1.7.18
Ingi Erlendsson, Rvík I. 6.04
Ingi Þorsteinsson, Rvík (usk.) II. 5.10
Jóhann Níelsson, Nesk. 1.6.16
Jón Jóhannesson, S.-Þing. I. 6.91
Jónas Jónsson, S.-Þing. II. 5.67
Jónas Oddsson, Ak. I. 6.69
Kristín Þorsteinsdóttir, EfT II. 4.84
Magnús Hallgrímsson, Ak. I.6.9I
ólafur Asgeirsson, Borg. II. 5.57
Ölafur Stefánsson, Borg. I. 6.46
Ragnar Júlíusson, Ak. 11.5,79
Sigm. Guðbjarnason, Akran. 1.7.25
Sigurður Emilsson, Hafn. 11.4.65
Stcfán Guðjohnsen, Rvk (usk.) III. 4.34
Stcfán Stefánsson, Ef. I. 7.10
Tryggvi Þorsteinsson, Vestm. 1.6.71
Þorgeir Þorgeirsson, Strand. I. 6.02
Þórarinn Þórarinsson, N.-Þing. II. 4.96
Bílaversfæðið Þórshamar er affur
fekið fil sfarfa á Gleráreyrum
Bifreiðaverkstæðið Þórshamar
hér í bæ er nú aftur tekið til
starfa í húsakynnum fyrirtækis-
ins á Gleráreyrum. Verkstæðið
eyðilagðist af eldi í október í
fyrra og hefur síðan verið unnið
að endurbyggingu þess. í vetur
starfaði- verkstæðið í bráðabirgða
húsnæði, í bílayfirbyggingar-
verkstæði KEA. Hið nýja verk-
stæðishús er reist á grunni hins
gamla en er stærra um sig og
allt hið vandaðasta. Enn skortir
verulega á að smíðinni sé að
fullu lokið og var unnið af kappi
þar ytra í gær, er Dagur kom
þangað í stutta heimsó.kn.
Verkstæðið er þegar vel búið
að vélum og tækjum og leggur
kapp á að bjóða bifreiðaeigend-
um góða þjónustu. Framkv.stjóri
fyrirtækisins er Kjartan Jó-
hannsson, en formaður stjórnar-
innar er Stefán Ái’nason.