Dagur


Dagur - 13.08.1952, Qupperneq 2

Dagur - 13.08.1952, Qupperneq 2
Z D A G U R Miðvikudaginn 13. ágúst 1952 Sextugur: Jón Ferdinantsson, Birningsstöðum Jóhann Franklín Kristjánsson húsagerðarmeistari Hinn 9. ágúst átti sextugsaf- mæli góður drengur og gegn, Jón Ferdinantsson, bóndi á Birnings- stöðum í Ljósavatnsskarði. Jón er svarfdælskur að ætt, sonur hjónanna Solveigar Jóns- dóttur og Ferdinants Halldórsson ar, en þau bjuggu á Þorleifsstöð- um í Svarfaðardal. Mun Jón bera nafn móðurföður síns, ágætis manns, Jóns bónda á Gönguskörð um. Mjög ungur missti Jón föður sinn. Nokkrum árum síðar giftist móðir hans vestur í Skagafjörð og fluttist þangað, ólst Jón upp með henni til fullorðinsára á nokkrum stöðum í Skagafirði, en lengst í Hjaltastaðahvammi í Blönduhlíð. Mjög er Skagafjörður rómaður vegna náttúrufegurðar og sízt að ástæðulausu, en þó mun hið fagra hérað ekki búa yfir meiri töfrum annars staðar en í æsku- sveit Jóns, má vita, að Jóni eru enn rík í huga uppeldisáhrif þeirra töfra, því að hann kann flestum betur að meta mikla nátt- úrufegurð. í Blönduhlíð komast Jón fyrst í kynni við skagfirzka góðhesta og hefur jafnan síðan verið kær að góðum hestum og kunnað á þeim örugg tök. Eftir að Jón hafði lokið bú- fræðinámi á Hólum, kvæntist hann Hólmfríði Jónsdóttur frá Fornastöðum í Fnjóskadal, góðri konu og grómlausri. Bjuggu þau fyrst nokkur ár vestur í Kol- beinsdal, en fluttust vorið 1919 á æskuheimili Hólmfríðar, síðar að Skógum, en þaðan að Birni'gns- stöðum, keyptu þá jörð og hafa búið þar nálægt tveim tugum ára. Ekki hefur Jón að jafnaði set- ið auðum höndum um dagana, og ekki skemmt sér með því að hvíl- ast sjálfur og horfa á aðra vinna, því að hann hefur verið starfs- samur áhugamaður og oft lagt nótt við dag í þrotlausu erfiði. Og víst bera Birningsstaðir því fagurt vitni, að þar hefur verið tekið höndum til. Á fyrstu árum Jóns á Birnings- stöðum mátti telja, að hann væri fátækur einyrki, en þó hóf hann þegar harða sókn í jarðabótum og byggingum, sem hann hefur haldið fram síðan. Eru nú Birn- ingsstaðir hin prýðilegasta jörð. Véltækt tún og atorkureistar b^^ggingar gefa nú heimilinu fag- urt svipmót, en héimamönnuni þægindi og unað. Þótt Jón hafi lengi staðið í miklum framkvæmdum heima fyrir, hefur hann samt haft tíma til að sinna ýmsum fleiri störfum. Hann hefur stundum verið lang- dvölum að heiman við smíðar og byggingar, hefur hann verið eft- irsóttur til þeirra starfa, því að hann er með ágætum hagur og smekkvís. Aldrei hefur önn dagsins sótt svo fast að Jóni, að hann hafi ekki gefið sér nokkurn tíma til að temja hesta og rækja skyldur sínar við góðhesta sína — en þar er hann enginn meðalmaður. — Hann er mapna skyggnastur á, hvað í hverjum hesti býr, og flestum snjallari að laða fram kosti þeirra og móta í góðri tamn- ingu. Og nú á þessari vélaöld, þegar bifreiðar og annar véla- kostur víkur hestinum til hliðar í daglegri önn sveitanna, má bú- ast við, að Jón á Birnringsstöðum verði síðasti Oddaverjinn, síðasti hestamaðurinn hér á norðurslóð- um, sem skilur til fullrar hlýtar góðhestinn sinn og rækir við hann jafnaðarvináttu. Þótt Jón væri um langt skeið einyrkjabóndi, hefur hann víða farið og kynnst skaplyndi margra manna, eins og Hómer segir um Odysseif. Og á stundum hefur hann gegnt þeim erindum, sem mörgum öðrum hefði orðið tor- velt að rekja. Þessum erindum hefur Jón jafnan komið fram, vel og án allra vandræða. Hefur-þar mestu valdið, að hann er prýði- lega skyggn á menn, eðli þeirra og eigindir og kann að lesa þá furðuvel ofan í kjölinn, án þess að hafa af þeim löng kynni. Þó ber hitt af, hve sýnt honum er um að lað'a fram hinn betra hlut, sem í hverjum manni býr og vinna menn til góðra samskipta. Fyrir hönd vina og kunningja vil eg nota tækifærið og árna Jóni, konu hans, móður hans og börnum allra heilla um ókomin æfiár. Allmikil brögð munu að því, að lax- og Silungsyeiðilögin séu brotin, bæði vitandi og óafvitandL Menn gera sér ekki það ómak að kynna sér ákvæði laganna og fara sínu fram, hvað sem hver segir. Yfirvöld virðast líka stund- um óþarflega miskunnsöm við lögbrjóta í þessu sambandi. Nokkur ákvæði laganna ættu að vera á hvers manns vitorði, til leiðsögu. Þar á meðal þessi: Um ósa og leirur. Eigi má hafa ádrátt í ósum í sjó eða á leirum við sjó. ... Eigi má veiða fisk í ósum úr stöðu- vötnum þeim, er lax- eða gongu- silungur fer um, né 50 metra upp eða niður frá slíkuin ósum. (15. grein laganna). Ádráttarveiði er eigi heimil eftir 31. ágúst. (16. grein). Um friðun í viku hverri. Lax- og göngusilungur skal vera friðaður fyrir allri veiði, annarri en stangaVeiði, 60 stund- ir á viku hverri, frá föstudags- kvöldi kl. 9 til mánudagsmorguns kl. 9. Ádrátt má auk þess aldrei hafa frá kl. 9 síðd. til kl. 9 árd., og aldrei nema þrjá daga í viku hverri, frá mánudegi til mið- vikudags.... (17. grein). Þann tíma viku, sem á er friðuð, sbr. 17. grein, skulu öll lagnet upp tekin, eða svo um þau búið, að fiskur geti með engu móti í þau veiðzt eða hindrast af þeim á göngu. Um ádrátt og net. Ádráttarnet, sem nota á í ám, er lax- og göngusilungur fer um, mega eigi vera smáriðnari en svo, að 4,5 cm. séu í milli hnúta, þá net eru vot Eigi má draga dráttarnet yfir meira en 2/3 hluta af breidd ár í senn, og skal fisk- „Hvíti daiiðinn“ á hröðu undanhaldi á íslandi Berldadauðinn hér á landi er kominn niður í 26 dauðsföll á ári, eða sem svarar 17 af hverjum 100 þús. íbúum. Um síðustu alda- mót voru dauðsföll af völdum þessa válega sjúkdóms a. m. k. tífallt fleiri en nú ,eða um það bil 2 menn af hverju þúsundi. Sennilega er það mest að þakka þeirri markvissu baráttu, sem háð hefur verið gegn berkla- veikinni á síðustu árum, að ís- lendingar eru nú komnir í fremstu röð þeirra þjóða, sem sigursælastar hafa verið í stríð- inu gegn „hvíta dauðanum". — Talið er, að berkladauðinn sé nú minnstur í Danmörku, en þar deyja nú 13 af hverjum 100 þús. íbúum úr þessum sjúkdómi. för jafnan vera frjáls og óhindrúð um þriðjung af breidd árinnar. — Fyrirstöðunet . eða annað, er tálmar undankomu Tiáks, má cigi nota við ádrátt. Eigi mega ádrátt- arnet vera tvöföld. (29. gr.). — Adrei má lagnet, króknet eða leiðari frá því ,ná lengra út í á en svo að 2/3 hlutar af breidd árinn- ar séu UTAN ÞEIRRA, og aldrei svo, aðalstraumlína ár sé girt. Eigi má nota tvöföld net. (28. gr.). Bannað er að styggja eða teygja fisk í fastar veiðivélar eða ádráttarnet, svo sem með hávaða, grjótkasti, Ijósum eða þess konar. Eigi má veiða lax eða silung með krók eða sting eða í háf. — Eigi má veiða eða styggja fisk í fiskvegum né nær neðra mynni þeirra en 50 metra og nær efra myimi en 30 metra. Sektir fyrir brot gegn lögunum eru allt að 1000 kr. við fyrsta brot. Álit milliþinganefndai- innar í áfengismálum væntanlegt í næsta mánuði Blaðið hefur komið að máli við Brynleif Tobiasson, áfengismála- ráðunaut ríkisins, og spurt hann að því, hvað liði starfi milli- þinganefndar þeirrar, sem sett var til þess að gera tillögur um endurskoðun áfengislöggjafar- innar. Brynleifur varðist allra frétta um störf nefndarinnar með því að þeim væri enn ekki lokið. En búizt væri við því að nefndin mundi skila álitsgerð til ríkis- stjórnarinnar í næsta mánuði. Þau sorglegu tíðindi gerðust nýlega, að Jóhann Fr. Kristjáns- son arkitekt varð bráðkvaddur við starf á nýbýli sínu skammt frá Reykjavík, og var hann greftraður í Fossvogsgarði 24. þ. m. Með Jóhanni er til rnoldar geng- inn merkismaður og sæmdar- maður, sem verðskuldar að hans sé rækilega minnzt, þótt það verði ekki gert hér. Hann var einn af þeim dáðadrengjum, sem gott var að kynnast. Jóhann var fæddur að Litlu- Hámnndarstöðum á Árskógs- strönd 7. maí 1885. Voru foreldr- ar hans hin miklu sæmdar- og greindarhjón þau, Kristján Jóns- son og Guðrún Vigfúsdóttir frá Hellu, Gunnlaugssonar, og voru þeir albræður Þorvaldur á Kross um og Vigfús. Stóðu að Jóhanni sterkar og merkar ættir hér um Eyjafjörð. Þau Litlu-Hámundarstaðahjón áttu marga syni, og minnist eg þess, hve mannvænlegur sá hóp- ur þótti á sinni tíð, enda hefur hann reynzt vel og svarið sig í ættina með afburða dugnaði sín- um, hagsýni og umbótavilja, og var Jóhann þar enginn eftirbátur. Árið 1902 hóf Jóhann trésmíða- nám á Akureyri og lauk því námi eftir 3 ár með mjög lofsamlegum vitnisburði. Næstu árin vann hann svo við smíðar. En 1908 hleypti hann heimdragrtnuitý þgj réðist í Noregsför. Var Kristján bróðir hans, nú bóndi á Hellu, þá ytra við búnaðarnám og vann það sumar með mér uppi á regin- fjöllum. Þangað kom Jóhann til okkar og með mér fór hann um haustið til Voss og réðst þar í Lýðháskóla Lars Eskelands, hins mikla æskulýðsleiðtoga, og var þar um veturinn. Hafði hann, sem fléiri, afar gott'af þeirri skólavist, sem var eins og framhald af fögr- um draumum þeirra, er ástfóstri tóku við hugsjón ungmennafélag- anna og eins konar uppfylling þeirra draumvona. Minntist Jó- Akureyri fær 800 þ ús. króna lán Akureyrarbær fær 800 þús. kr. lán af fé því, er síðasta Alþingi veitti til þess að útrýma heilsu- spillandi húsnæði. Mim bærinn láta byggja 4 íbúðir, en afgang- inum er ráðstafað til bygginga- lána til nokkurra bæjarmanna, frá 20—80 þús. kr. á mann. Meðlimir V.A. fengu fulla uppreisn Kommúnistar töpuðu brott- rekstrarmálinu gegn nokkrum fé lögum Verkamannafélagsins, er mest var um rætt í vor. Stjórn ASÍ skrifaði kommúnistum bréf og úrskurðaði að hinir 17 brott- reknu félagar skyldu teknir í félagið aftur. Hóuðu kommúnist- ar þá saman fundi og átu ofan í sig fyrri samþykktir og hafa nú iilkynnt félagsmönnunum 17 að þe.ir hafi full félagsréttíndi ’á ný. hann jafnan þessarar skólavistar á Voss með hrifningu og óbland- inni gleði, og fannst sem hún hefði verið eins konar vígsla til drengilegra og dáðríkra starfa, og að liið þögla vígsluheit mætti aldrei svíkja. Og það ætla eg líka, að Jóhann Kristjánsson hafi aldrei gert. Svo grandvar var hann, heiðarlegur og traustur, að eg hygg að hann hafi aldrei gert gælur við ranglætið í neinni mynd, enda var hann fyrirmynd- ar maður að reglusemi og trú- mennsku alla ævi. Eftir skólaveruna á Voss hóf Jóhann nám í „Den kgl. norske kunst og haandverksskole“ í Osló, og útskrifaðist þaðan eftir 2V2 ár með ágætum vitnisburði. Réðist hann þá til heimferðar og hefst þar með ævistarfið, er hann nú hefur skilað af sér með sæmd og prýði. Árið 1914 réðist hann til þess að vera byggingaráðu- nautur, og það var hann í raun og veru alla ævi, þótt hann hin síð- ustu ár starfaði ekki sem slíkur á opinberum vettvangi. En á meðan Bygginga- og landnáms- sjóður starfaði hér, var hann frá 1929 í stjórnarnefnd hans og réði miklu eða mestu um ýmsar bygg- ingar í sveitum, er sjóðurinn hafði afskipti af. Var Jóhann þá árum saman á sífelldu ferðalagi og óþreytandi við leiðbeininga- störf, og kom víða. Mun mega fullyrða það, að margir standi nú í mikilli þakkar^skuld við Jóhami f;'á þessum þj/t kj& íiann léí; sér #njög; ánnt um það,' að senr mest og sem haganlegast yrði úr þeim takmörkuðu möguleikum, sem fyrir hendi voru til þess að bæta húsakost sveitanna. Og smekkvísi hans og ráðdeild brást ekki. En Jóhanni Kristjánssyni vari ekki nóg að feta-slóðhv-HanuAiar' fullur af umbótahug og stöðugt að velta fyrir sér"hýjúm úrræð-; um og nýjum leiðum. Þannig', fann hann upp aðferíf.til þess að’ gera húsvegg'i -tvÖfaTda úr se- mentssteypu og sömuleiðis mót til þess að steypa í steina án véla- útbúnaðar. Ög ekki'er minnst um vert hversu hann endurbætti eldavélina með nýrri gerð um. reykganginn. Eru slíkar vélar víða komnar í sveitabæi til hags- bóta og hlýindaauka þar, og bera þessar vélar hugkvæmni hans gott vitni. Og eg hygg, að miklu fleira af slíku tæi hefði hann af- rekað, ef hin kröppu kjör, sem hann átti oft við að búa, hefðu ekki hamlað því. Það var skaði, sem nú verður ekki bættur. Jóhann Fr. Kristjánsson var sveitanna sonur og unni þeim af alhug. Þótt örlögin settu hann í bæ, varð hann þar aldrei rótgró- inn. Hann brann ætíð af þrá til ræktunarstarfa. Sú þrá hans varð svo sterk, að hann nú á efri ár- um réðist í það að reisa sér ný- býli og rækta land. Borgina var hann skilinn við til fulls. Og á þessu nýbýli sínu ætlaði hann sér að eyða hinum síðustu kröft- um og það gerði hann, þótt kall- ið kæmi fyrr en varði. En við bygginga- og ræktunarstörf féll hann í valinn, hinn heilsteypti sæmdar- og drengskaparmaður. Jóhann var kvæntur norskri konu, og höfðu þau skilið að samvistum fyrir nokkru. Áttu þau saman 7 myndarleg og mannvænleg börn, og eru 6 þeirra á lífi, en eitt, hinn efnilegi verkfræðingur Tryggvi, fórst í flugslysinu mikla við Héðinsfjörð, ásamt konu sinni og barni . Farðu Jieill, góði vinur og félagi. Snorri Sigfússon. Ganiall granni. Ákvæði lax- og silungsveiði- laganna um fyrirdrátt og aðra netaveiði

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.