Dagur - 20.08.1952, Síða 8
8
Dagur
Miðvikudaginn 20. ágúst 1952
Kommúnistar neita 20 mönnum
inngöngu í Yerkamannafélag
Akureyrarkaupstaðar
Vildu láfa þá greiða félagsgjald, áður en þeir voru
samþykktir félagar!
Eins og áður er frá skýrt hér í
blaðinu töpuðu konunúnistar
brottrekstrarmáli því, er þeir áttu
við 17 félaga í Verkamannafélagi
Akureyrarkaupstaðar. Alþýðu-
sambandsstjórnin neyddi þá til
þess að láta af lögleysum sínum
og tilkynntu kommúnistar hinum
17 mönnum, að þeir hefðu á ný
fengið full félagsréttindi í Verka-
mannafélaginu.
En kommúnistar virðast lítið
hafa lært af þessum hrakförum,
því að enn halda þeir áfram lög-
leysum í stjórn sinni á félagiíiu.
Neita 20 mönnum.
Á síðasta fundi V. A. gerðist
það, að 20 inntökubeiðnir verka-
manna í bænum voru ekki born-
ar upp undir atkvæði af stjórn-
inni á þeim forsendum, að við-
komandi menn hefðu ekki greitt
félagsgjaldið. Er þetta hin furðu-
legasta viðbára, því að viðtekin
regla er, að menn séu samþykktir
félagsmenn áður en þeir eru
krafðir um félagsgjöld. Mun hér
um hreina lögleysu að ræða.
Golfmeistaramót
Akureyrar
hófst um síðastl. helgi með því
að leiknar voru á laugardag 18
holur og á sunnudag 36 hokir.
Beztum áröngrum náðu í
meistaraflokki:
Sigtr. Júlíusson 246 högg. —
Jóhann Þorkelsson 249 högg. —
Hörður Svanbergsson 253 högg.
— Jón Egilsson 256 högg.
í I. flokki eru efstir:
Ágúst Olafsson 304 högg. —
Guðjón Eymundsson 306 högg.
Gestur Magnússon og Árni Ingi-
mundarson.
Mótinu lýkur næstk. laugardag
kl. 2 e. h.
Hrossakjöfsát í Bretlandi
Manchester Guardian skýrir
svo frá nú laust eftir mánaðamót-
in síðustu, að Bretar hafi jetið
kjöt af 53000 hestum á árinu 1951
og að auki talsvert af asna- og
smáhestakjöti (ponies). Telur
blaðið þetta mesta hrossakjötsát
í Bretlandi á síðari tímum. Sam-
kvæmt brezkum lögum eru veit-
ingahús skyld til þess að taka
fram á matseðlum ef hrossakjöt
er notað í mat, en blaðið telur að
mikill misbrestur sé á þessu og
fái menn víða hrossakjötsrétti
undir annarlegum nöfnum. Um
það bil 3/4 af hrossakjötsátinu
fór fram í London, segir blaðið.
Vilja halda félaginu lokuðu.
Ástæðan til þessara aðfara
kommúnista er auðsæ: Alþýðu-
sambandskosningar fai'a í hönd.
Kommúnistar óttast um valdaað-
stöðu sína í félaginu og vilja því
fyrir hvern mun halda því lokuðu
fram yfir fulltrúakosningarnar,
einkum þó fyrir mönnum, sem
þeir óttast að fylgi þeim ekki að
málum, heldur séu andvígir ein-
ræðisbrölti þeirra öllu.
Utanfélagsmenn og útlendingar?
í einu bæjarblaðanna nú í vik-
unni eru þær sakir bornar á
kommúnistastjórnina í Verka-
mannafélaginu, að hún hafi hvað
eftir annað í sumar — mitt í at-
vinnuleysi sumra félagsmanna —
látið utanfélagsmerm og jafnvel
útlendinga taka vinnu frá bæjar-
mönnum. Virðist allt á sömu
bókina lært hjá kommúnistum í
þessu efni, ef þessi ásökun hefur
líka við rök að styðjast.
Slys á Sauðárkróki
.gwptf-r ~ v ^ ~ X ~ >3 **« O'CV
Það slys varð á Sauðárkróki 17.
þ. m., að múrveggur féll á ungan
mann, er þar var að vinnu, og
slasaðist hann alvarlega. Var
fluttur flugleiðis á sjúkrahúsið
hér. Ungi maðurinn, Snorri Frið-
riksson, liggur hér á sjúkrahús-
inu, þungt haldinn.
Framfærsluvísitalan 151
stig - kaupgjalds-
vísitalan 150
Kauplagsnefnd hefur reiknað
út vísitölu framfærslukostnaðar í
Reykjavík hinn 1. ágúst sl., og
reyndist hún 157 stig, miðað við
grundvöllinn 100 hinn 1. marz
1950.
Kauplagsnefnd hefur ennfrem-
ur reiknað út kaupgjaldsvísitölu
fyrir ágúst, með tilliti til ákvæða
3. mgr. 6. gr. laga nr. 22/1950, og
reyndist hún vera 150 stig.
Kálgarðar bariianna
rændir
í Fokdreifapistlum blaðsins í
dag greina kennarar vinnuskóla
bæjarins frá því, að nú á dögun-
um hafi kálgarðar bamanna hér
ofan við bæinn verið rændir. —.
Hafa einhverjir óþokkar skorið af
fallegustu hvítkálshöfuðin og haft
heim með sér, til sárrar sorgar
fyrir börnin. Munu allir sammála
um að fordæma þetta lubbalega
athæfi.
Leyfi veitt fyrir
sn jóbíl til Akur-
eyrar
Þorsteinn Svanlaugsson bif-
reiðastjóri hefur að undan-
förnu unnið að því að fá Ieyfi
til þess að kaupa snjóbíl hingað
til Akureyrar og hafði einkum
í huga 14-manna sænskan
snjóbíl, svokallaða „Nova“-
gerð, frá Volvoverksmiðjunum.
En bílar þessir eru dýrir, kosta
um 39 þús. sænskar krónur, en
taldir mjög fullkomnir og
stei'kir og henta vel í hálcndi.
Hafði Þorsteinn þá einkum í
huga þörfina á ferðum yfir
Vaðlaheiði á vetrum, en þar
múndi snjóbíll gegna þýðingar-
miklu hlutverki. f sl. viku fékk
Þorsteinn leyfi til þess að
kaupa snjóbíl í Svíþjóð, en sá
galli var á að leyfið var allt of
lítið, aðeins 37 þús. ísl. kr., í
stað 39 þús. sænskar. Er nú
óséð, hvort unnt reynist að fá
því breytt, eða hvort Þorsteinn
hvei-fur að því ráði að fá kana-
dískan snjóbíl, sem eru mmi
ódýrari, en óvíst að dugi eins
vel við þær sérstöku aðstæður,
sem hér eru. Óhætt er að full-
yrða, að koma snjóbíls í hérað-
ið gæti orðið til margvíslegra
þæginda og aukins öryggis, og
er þess að vænta, að úr málinu
greiðist á sem beztan hátt.
Akureyrartogararnir
afla vel á Grænlands-
miðum
Svalbakur losar hér þessa dag-
ana 350 lestir af saltfiski,, af
Grænlandsmiðum, og er það
ágætui- afli. Harðbakur og Kald-
bakur eru báðir á heimleið af
Grænlandsmiðum, einnig með
ágætan afla. Búizt var við því í
gær, að allir togararnir mundu
Embættismenn og ferðamenn
fjölmennlu til Grímseyjar
síðastliðinn fösfudag
Á föstudagsinorgxui snemma
lagði varðskipið Ægir hér úr höfn
með ýmsa embættismenn, kaup-
sýslumenn og ferðamen ninnan-
borðs og var förinni heitið til
Grímseyjar. Veður var fagurt og
gott í sjóhm.
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðar-
sýslu þarf árlega að komast út í
Grímsey til að þinga og var full-
trúi hans, Sigurður M. Helgason,
í ferðinni. Þá var vígslubiskupinn
Friðrik J. Rafnar, til að visitera
prestakallið, og fer hann slika för
annað hvert ár. Grímsey er sér-
stakt prestakall og var gert að
kennsluprestakalli í nýju lögun-
um um prestakallaskipanína. Þá
var í förinni Jakob Frímannsson
kaupfélagsstjói'i, Snorri Guð-
mundsson byggingameistari og
Jóhannes Kristjánsson pípulagn-
ingameistari, og var erindi þeirra
að líta á mannvirki þau, er Kaup-
félag Eyfirðinga á í Grímsey.
Félagið starfrækir þar útibú og
I hefur gert um langt árabil. — í
þessari ferð voru ennfremur
Guðmundur Karl Pétursson yfir-
læknir, Steindór Steindói'sson
menntaskólakennari, Pálmi Hann
esson rektor, Þór Guðjónsson
veiðimálastjóri, ennfremur yfir-
maður landhelgisgæzlunnar Pét-
ur Sigurðsson. Þá nokkrir blaða-
menn og ýmsir aðrir ferðamenn.
70 íbúar.
Grímseyingar fögnuðu ferða-
fólkinu vel. Þeir eru nú um 70
talsins, flest mun hafa verið 132
í eyjunni. Hefur fækkað mjög
þar hin síðari ár og mundu þó
fleiri leita til lands ef þeir gætu
komið eignum sínum í verð. —
Ymsir af ferðamönnunum höfðu
orð á því, að mikið mætti rækta í
Grímsey og á annan hátt búa
fólki þar sæmilega lífvænlega að-
stöðu, en það kostar fé og fjár-
magn til þeirra hluta er ekki til
í Grímsey. Sýndist ýmsum að
hætta væri á að fólki fækkaði enn
verulega í Grímsey — jafnvel svo
að til landauðnar horfði, nema
gripið yrði til sérstakra ráðstaf-
ana af hálfu hins opinbera til þess
að efla atvinnulíf Grímseyinga og
bæta aðstöðu þeirra.
Athyglisverð kvikmynd
frá Álaska
í Norðurlandsbíó sýna Jón H.
Björnsson og kona hans, Margrét
Gunnlaugsdóttir, kvikmynd frá
Alaska, er þeir bræðurnir, Jón
og Árni, tóku þar sl. sumar. —
Myndan var sýnd bæði mánu-
dagskvöld og í gærkvöldi við
góðar undirtektir áhorfenda og
einnig verður hún sýnd aftur í
kvöld.
Alaskamyndin sýnir m. a.
skógarhögg, vinnslu trjáviðar,
laxastökk í einni beztu laxveiði-
á í Alaska. Þá má sjó margs kon-
ar dýralíf og dýraveiðar, vega-
gerð með öllum nýtízku vélum í
hinum mikla og langa vegi, sem
halda á Grænlandsmið aftur. í
lagður er frá Bandaríkjunum til
næsta mánuði mun einn togarinn
leggja upp farm í Esbjerg í Dan-
mörk, og 2 farmar verða lagðir
þar upp í október, úr Akureyrar-
togurunum. Ekki er búizt við að
neinn togarinn veiði fyrir Þýzka-
landsmarkað.
- Ummæli Ridgways
(Framhald af 1. síðu).
ekkert minnkað síðan í fyrra, og
sér virtist .því ótímabært að tala
um breytingar á varnarkerfi lýð-
ræðisþjóðanna. Enn skorti mjög
á, að allir hlekkir í keðju Atl-
antshafsríkjanna væru nógu
styrkir orðnir. Væri því sérstök
nauðsyn að samstarí Bandaríkja-
manna og Evrópuþjóðanna héld-
ist, enda kvaðst hann ekki þekkja
til neinnar stefnubreytingar hjá
Bandaríkjamönnum í þessu efni.
Þegar Rridgway var að því
spurður, hvort hann héldi að
Vesturveldin mundu ná því tak-
marki, sem þau settu sér á Lissa-
bonfundi Atlantshafsríkjanna í
febrúarmbánuði sl., svaraði hann
að hann teldi, að ríkin mundu
halda fast við fyrri ákvarðanir og
framkvæma þær að svo miklu
leyti, sem unnt væri. En áætlun-
in var: 50 herfylki tilbúin og
vopnuð á þessu ári.
Fékk kafbál í frollið!
Þegar brezki togarinn Queen'Al-
exandra var að veiðiim undan eyj-
unni Mön nú nýlega, sáu skips-
menn sér til skelfingar, að sjón-
pípa kafbáts kom upp á yfirborðið
rétt við vörpuna, og skipti síðan
engum togum, að varpan vafðist
um yfirbyggingu kafbátsins, sem
reif hana með sér og bvarf í djúpið.
Fimmtán mínútum síðar kom kaf-
báturinn upp á yfirborðið. Var
þetta brezkur bátur að æfingum.
„Þetta er sá stærsti fiskur, sem þú
hefur rtokkurn tíma sett í,“ hróp-
aði kafbátsforinginn til skipstjórans
á togaranum. „Já, og ég missti
hann," svaraði skipstjórinn.
Akureyringur gefur út
smásagnasafn
Komið er út á forlagi Pálma H.
Jónssonar smásagnasafn, sem heitir
„Septemberdagar". Höfundurinn er
Einar Kristjánsson, ráðsmaður við
Bamaskólann hér í bæ, og hefur
hann nokkuð fengizt við ritstörf
áður. Hafa sögur eftir hann birzt
í nokkrum tímaritum. í hinni nýju
bók eru tíu sögur: Vaxtavextir,
Allar vildu meyjar, Septemberdag-
ur, Þegar konan trúir, Perludrottn-
ingin, Sprettur, Huldukonan kallar,
Gott blóð, Logi og Endurfundir.
Bókin er 130 bls., prentuð í Prent-
verki Odds Björnssonar h.f.
Alaska.
Þá er ennfremur sýnt, hvernig
bræðurnir Árni og Jón söfnuðu
trjáfræi norður í Alaska og
hvernig þeir útbjuggu sér
þreskivél til að þreskja könglana
þar á staðnum. Er þessi þáttur
einn merkasti hluti myndarinnar
og stórfróðlegur. Auk þessa er
fjölmargt annað, sem sýnt er,
bæði fróðlegt og skemmtilegt.
Myndin er tekin í eðlilegum
litum og hefur myndatakan tek-
izt ágætlega. Jón skýrir myndina
sjálfur á meðan á sýningu
stendur.
Auk Alaskamyndarinnar eru
svo sýndar tvær aukamyndir:
Gamanmynd með skógarbjörns-
húnum, sem leika hinar ótrúleg-
ustu listir. Hin aukamyndin er
frá 17. júní-hátíðahöldunum í
Reykjavík nú í sumar, og er
þessi mynd í eðlilegum litum.
Sýningin stendur um tvo tíma.
Þau hjónin, Jón og Margrét,
eiga þakkir skilið fyrir þann
dugnað að ferðast um landið til
að sýna þessa ágætu mynd bæði
í sveitum og bæjum. Það má full-
yrða að kvikmyndasýning þessi
verður hverjum þeim ógleyman-
leg ,sem sér myndina, hvort sem
um er að ræða börn eða full-
orðna.