Dagur - 22.11.1952, Qupperneq 5
Laugardaginn 22. nóvcmbcr 1952
5
Eiríkur Gíslason
frá Merkigili
NOKKUR MINNINGARORÐ
40 ára leikaraafmæli í dag
Um mánaðamótin ógúst-sept. sl.
andaðist að heimili sonar síns að
Tyrfingsstöðum í SJcagafirði Eir-
ákur Gíslason, er oftast var kennd-
ur við Merkigil í Austurdal, því
þar mun hann hafa dvalizt lengst
x sama stað.
Fæddur mun Eirikur hafa verið
að Höskuldsstöðum í Blönduhlið
um miðjan desember 1871, og í
Akrahreppi átti hann heima alla
aevi, utan tvö ár, er hann var vinnu-
maður að Bústöðum í Austurdal.
Foreldrar hans voru hjónin María
Olafsdóttir, bróðurdóttir síra Jóns
Hallssonar, síðast prófasts að
Glaumbæ, og Gísli Þorláksson,
Finnbogasonar, Þorkelssonar á
Vatnsskarði, bróður Olafs á
Frostastöðum, Jónssonar, og er
það merkur ættleggur. Var Gísli
vinnumaður og verkstjóri hjá síra
Jóni Hallssyni.
Þau hjón voru snauð af fjár-
munum en rík af börnum, er leiddi
til þess að þau urðu að fara úr j
foreldrahúsum jafnskjótt eða fyrr
en þrekið leyfði. Af systkinum Eir-
íks munu a. m. k. tvö vera á lífi
enn: Jóhanna, nú búsett á Siglu-
firði, móðir Gunnlaugs Tr. Jóns-
sonar, fyrr ritstjóra og bóksala á
Akureyri, og þeirra systkina, og
Gísli, búsettur í Blönduhlíð.
Eiríkur ólst upp í Blönduhlíð
fram yfir tvítugs aldur, en þá réðst
hann vinnumaður að Merkigili til
hinna nafnkunnu hjóna þar, Egils
Steingrímssonar og Sigurbjargar
Jónatansdóttur, sem sátu það höf-
uðból meira ep hálfa öld. Þótti
hann ágætur til allra verka, en þó
einkum fjárgæzlu, enda sérstaklega
hneigður fyrir hana. í nokkra vet-
ur hirti hann sauðfé á Miðhúsum,
sem éru beitárhús frá Merkigili,
og er talin vera ein hin lengsta
beitarhúsaganga sem var í Skaga-
firði, og eigi hættulaus sakir svella-
laga. En þrátt fyrir þá löngu göngu
munu ótaldir þeir eldiviðarpokar,
sem Eiríkur bar á bakinu heim af
húsunum á kvöldin, því að enn var
sá siður sums staðar að leggja
slíkt aukastarf á beitarhúsamann-
inn.
Framundir síðari búskaparár
þeirra hjóna var fært frá á Merki-
gili á sumrum, oft á annað hundr-
að ám. Það kom tíðum í hlut Eir-
íks að smala þeim heim til mjalta
á kvöldin eftir að hætt var að sitja
hjá þeim. Var hann vel til þess
fallinn, og meðal annars fyrir það
að hann hafði venjulega ágætlega
vanda fjárhunda, eins og flestir
góðir smalar höfðu á þeirri tíð.
Land Merkigils er víðáttumikið
og all-vandleitað. En svo var trú-
mennska Eiríks mikil, að illa leið
honum, ef ærnar komu ekki allar
að kvöldi.
Eitt lítið atvik úr þeim verka-
hring Eiríks var haft að gamni
manna á milli þar í Dölum á sinni
tíð. Að Merkigili kom oft margt
gesta, einkum um helgar á sumrin,
og sumir langt að. Var þar ætíð
veitt af rausn mikilli, og þá stund-
um vín í boði. Sunnudag einn, er
svo stóð á, varð Eiríkur ölvaður
nokkuð, svo að hann fann að sjón
sín hafði sljóvgazt það, að ekki sæi
hann nú kindur í fjarlægð. En án-
um vildi hann umfram allt smala
heim. Fékk hann þá stúlkukrakka,
10—12 ára, sem var þar á heim-
ilinu, með sér til að „sjá“ fyrir sig,
að hann sagði. Reiddi hann hana
á hnakknefinu fyrir framan sig á
góðhesti sínum, og eftir hennar til-
vísun sendi hann svo fjárhund sinn
fyrir ærnar, sem hann ekki sá, og
kom seppi með þær til þeirra, og
er ekki annars getið, en að þær
hafi allar mætt til mjalta þá um
kvöldið.
Eirikur var aldrei búandi, heldur
alltaf í vinnumennsku, eða lausa-
maður. Aldrei mun hann hafa eign-
azt nautgrip á æfinni, en um skeið
átti hann margt sauðfé og venju-
lega tvo hesta eða stundum fleiri.
Eftir að Egill á Merkigili minnk-
aði bú sitt, nokkru eftir aldamót,
hafði Eirikur Miðhús til eigin af-
nota um nokkur ár. — Með skepn-
ur sínar fór hann afburða vel, enda
voru þær fallegar. Hann átti oft
góða hesta. Einna minnisstæðastur
þeirra er þeim, er þetta ritar, rauð-
ur hestur, glófextur, er hann nefndi
Glóa. Fór hann oft með hann í
fjallferðir, og skilaði þá vel áfram,
ef þörf gerðist. Eitt sinn urðum við
saman í göngum við Eyfirðinga-
polla á Nýjabæjarafrétt, þannig,
að hann fór austan við þá, en ég að
vestan. Ætið hefur það verið talin
ófæra að fara um Polla með hesta
j vegna rótleysis og foræðis. Eiríkur
reið Glóa og teymdi annan hest.
Þegar hann hafði skammt farið,
spretta upp tvö lömb og hlaupa út
í Pollana. Þarna er „rústar“-lands-
lag, háir og sprungnir þúfnahrauk-
ar, miklir um sig, en á milli þeirra
eru forarlægðir, oft með miklum
tjarnargróðri þó. Sést því illa yfir
þetta svæði. Eiríkur sleppti nú
lausa hestinum og hugðist ríða fyr-
ir lömbin, en þau urðu fljótari til
og komust út í Pollana. Urðu þarna
harðar sviptingar. Sá ég annað
slagið ofan á manninn og faxið á
Glóa, sem sveiflaðist til sem í
stormi væri. Hina stundina hvarf
allt niður í lægðirnar. Bjóst ég við
á hverri stundu að hesturinn sykki.
Að síðustu fór þó svo, að lömbin
urðu sigruð. — Er við hittumst,
spurði ég Eirík hvernig honum
hefði þótt reiðfærið um Pollana.
Eg hafði engan tima til að hugsa
um það, svaraði hann, en hann
Glói minn fór yfir það allt ein-
hvern veginn, og bjargaði okkur
báðum.
Eiríkur var kunnasti fjárleitar-
maðurinn um hina erfiðu Nýjabæj-
arafrétt annar en Hrólfur bóndi
Þorsteinsson á Stekkjarflötum,
enda sjálfsagður förunautur hans
um langt skeið í flestar fjallgöngur
og eftirleitir þar, á meðan heilsan
leyfði. Lá hann þá marga haust-
nóttina úti suður í óbyggðum við
kuldaleg kjör. Hann hafði unun af
að tala um allt þar að lútandi, og
virtist meta ám sínum það frekar
til gildis að þær voru oft f jallsækn-
ar umfram aðrar. Það var engu
líkara en virðingarhreimur væri í
rómnum, er hann minntist þeirra,
enda taldi aldrei eftir sér að elta
þær uppi.
Eiríkur kvæntist aldrei, en son
eignaðist hann á unga aldri, Jó-
hann, nú bónda á Tyrfingsstöðum.
Síðar bjó hann mörg ár saman með
annarri stúlku, en þau eignuðust
ekki börn.
Eiríkur var jarðsunginn að Á-
bæjarkirkju, að eigin ósk. Ábær
hefur nú verið í eyði undanfarinn
áratug, innstur býla í hinum svip-
mikla Austurdal. Ér því kyrrt um
Eirík þar og hávaðalaust. En svo
var ævi hans öll. — En ef til vill
hefur hann hugsað sér að verða
enn um sinn eins konar útvörður
austdælskrar byggðar og nábúi
fjallanna þar fram, þar sem svo
margar minningar hans voru við
bundnar.
Auðveldara hefði verið að flytja
lík hans til Reykjavíkur eða Aust-
fjarða heldur en þessa 15—20 km
leið frá Tyrfingsstöðum og fram
að Abæ. Var bæði gamli og nýi
DAGUR
BRÉF:
Nýr Lystigarður
á Akureyri
Guðm. Jónsson garðyrkjumað-
ur skrifar blaðinu á þessa leið:
„ÞAÐ VORU KONUR Akur-
eyrarbæjar, sem komu Lysti-
garðinum upp. Það stendur líka
á skilti í garðinum „Konur gerðu
gai-ðinn“. Það var stórvirki, sem
konurnar réðust í þegar þær
ákváðu að gera garðinn. En þær
sýndu þá, sem oftar, að þegar
þær ákveða að gera eitthvað, láta
þær ekki sitja við orðin tóm.
En mörgum erfiðleikum hafa
þær vafalaust mætt, því að þá
voru lystigarðar lítt þekktir hér
á landi, erfitt að fá plöntur, lítið
eða ekkert af fagmönnum til að
leiðbeina og þar við bættist að
fjárhagur almennings var yfir-
leitt mjög þröngur.
Margt hefur breytzt síðan kon-
urnar gerðu garðinn. Meðal ann-
ars hefur Akureyri hlotið nafnið
garðabærinn og á hún það nafn
með réttu, því að garðar eru nú
við næstum öll íbúðarhús, að
vísu eru þeir yfirleitt frumstæðir,
en verst er þó að margir þeirra
hefðu getað verið fallegri án þess
að kosta meira en þeir hafa kost-
að, ef þeir hefðu verið betur
skipulagðir.
Þrátt fyrir það, að ræktun
skrúðgarða er tiltölulega stutt á
veg komin hér á landi, hefur fólk
haft garða við hús sín síðan í
fomöld, þeir fyrstu garðar, sem
sögur fara af ,eru hengigarðarnir
í Babýlon. En miklum breyting-
um og framförum hafa garðarnir
tekið á umliðnum öldum. Þó
mest á seinni hluta síðustu aldar
og á yfirstandandi öld. En ég ætla
ekki að rekja sögu garðanna hér,
því að það yrði of langt mál. En
til að sýna fram á, hvað lítið við
eigum af lystigörðum, samanbor-
ið við aðrar þjóðir, skal eg geta
þess, að nýjustu skipulagskort
borga og bæja í nágrannalöndun-
um reikna með að stærð opin-
berra lystigarða sé 16 fermetrar
fyrir hvern íbúa. Auk hinna op-
inberu lystigarða bætast við
margir lystigarðar sem einstakir
menn og félög gera, en oftast nær
er ætlast til, að þeir séu aðeins til
afnota fyrir eigendur og búendur
íbúða í þeim byggðahverfum, þar
sem þeir eru, og ekki má gleyma
verksmiðjugörðunum, það er
ekki smáræðis fé sem iðnfyrir-
tækin eyða í að prýða umhverfið
við byggingar sínar, og þar að
auki er það ekki orðið óalgengt
að verksmiðjur eigi íþróttasvæði,
sem starfsfólkið má nota ókeypis
eftir vild í frístundum sínum. —
Ætli það sé ekki kominn tími til
að Akureyri eignist nýjan lysti-
garð? Eg held, að það sé alls ekki
of mikið að þeir séu tveir, síður
en svo.'En hver á að gera garð-
inn? Eg leyfi mér að koma með
þá tillögu að samvinnufyrirtækin
og starfsfólk þeirra geri það, því
að þótt samvinnufy rirtækin hafi
byggt margar myndarlegar bygg-
ingar hér í bænum og nágrenni
hans, veit eg ekki til að þau hafi
nokkurs staðar látið gróðursetja
tré eða blóm eða á nokkurn hátt
prýtt umhverfi húsanna með
gróðri. Er því hægt að segja með
góðri samvizku, að á því sviði séu
þau á eftir tímanum. Þó skal þess
getið að KEA hefur styrkt Skóg-
ræktarfélag Eyfirðinga myndar-
lega og höfðinglegan styrk veitti
(Framhald á 7. síðu).
tíminn í förum þar. Fyrst var kist-
an flutt á jeppakerru, síðan borin
yfir hið mikla og ferlega Merkigil,
þá flutt á hestkerru og síðast um
þverbak á hesti, eins og í gamla
daga.
Camall kunningi.
í dag eru 40 ár liðin síðan Ágúst
Kvaran kom fyrst opinberlega
fram á leiksviði. Hinn 22. nóv-
ember 1912 var frumsýning á
leikritinu „Verkfallið“ í Reykja-
vílí og þar lék hami hlutverk
Nikolaisen, þá aðcins 18 ára gam-
all.
Á þessu 40 ára skeiði hefur
Kvai’an ekki aðeins ieikið fjölda
hlutverka bæði í Reykjavík og
h'ér á Akureyri, heldur á hann
einnig að baki langa og glæsilega
starfssögu sem leikstjóri og leið-
beinandi. Mega Akureyringar
sérstaklega minnast beggja þess-
ara þátta í leiklistarstarfi þessa
fjölhæfa og ágæta leikhúss-
manns.
Á árunum 1912—1927, meðan
Kvaran átti heima í Reykjavík,
lék hann fjölda hlutverka á veg-
um leikfélagsins þar syðra og
kom þar brátt í ljós að hann var
miklum leikarahæfileikum gædd
ur, enda vakti hann brátt athygli
leikhússgesta og gagnrýnenda. Á
meðal hlutverka hans á þessu
tímabili eru þessi: Torfi í Lén-
harði fógeta, Bergkóngur í Kinn-
arhvolssystrum, Laroqe í Frú X,
Álfakóngurinn í Nýjársnóttinni,
Björn hreppstjóri í Fjalla-Ey-
vindi, Lutz í Alt Heidelberg, Ver-
mundur í Ævintýri á gönguför,
Guðm. Álfsson í Veizlan á Sól-
haugum, Ógautan í Öansinn i
Hruna, Scrubby í Á útleið, Príor-
inn í Munkunum á Möðruvöllum
og Kári, í Fjalla-Eyvindi, í sam-
bandi við Alþingishátíðina árið
1930.
Eftir að Ágúst Kvaran flutti
hingað til bæjarins hóf hann
brátt þátttöku í leiklistarlífi bæj-
arins og varð koma hans hingað
til þess að færa nýtt líf í leiklisl-
arstarfið hér. Á meðal eftirminni-
legra hlutverka, sem hann hefur
farið með hér nyrðra, má nefna
þessi: Nathan í Dauði Nathans
Ketilssonar, Ógautan í Dansinum
4
í Hruna, Scrubby í Á útleið og
séra Sigvaldi í Manni og konu og
Þóroddur skattkaupandi í „Fróð-
á“.
í leik sínum skapaði Kvaran
heilsteyptar og eftirminnilegar
persónur. Hann er tvímælalaust
einhver glæsilegasti skapgerðar-
leikari, sem stigið hefur á fjal-
irnar hér nyrðra, listamaður, sem
lifir í hlutverkinu og lyftir því til
þess að verka sannfærandi á
áhorfandann.
Annar þáttur í leiklistarstarf-
semi Kvarans — og engu ómerk-
ari — er leikstjórn hans. Hann
hefur stjórnað sýningum margra
sjónleika fyrir Leikfélag Akur-
eyrar, nú síðasta „Uppstigningu“,
Ókunna manninum og Ævisög-
unni, er hann setti hér á svið nú
hin síðustu ár eftir nokkurt hlé á
þátttöku í starfi Leikfélagsins.
Áður hafði hann sett hér á svið
þessi leikrit: Ævintýri á göngu-
för, Tveir heimar, Franska ævin-
týi’ið, Landafræði og ást, Fröken
Júlía, Hinrik og Pernilla, ímynd-
unarveikin, Maður og kona, Á
útleið, Skugga-Sveinn, Ðansinn í
Hruna, Fróðá, Þorlákur þreytti
og Skrúðsbóndinn. Ennfremur
söngleikinn Alt Heidelberg á
vegum Geysis. — Hann er fram-
úrskarandi vandvirkur leikstjóri,
smekkvís og öruggur, kröfuharð-
ur við sjálfan sig og aðra. Hafa og
leiksýningar hans hlotið verð-
skuldaða viðurkenningu.
Þessi upptalning sýnir, að hér
er merkrar starfssögu að minnast.
Bæjarmenn mega vel staldra við
í dag og þakka Ágúst Kvaran
margar ógleymanlegar stundir í
leikhúsinu hér. Skerfur hans til
þess að gera lífið hér norður við
heimskautsbaug ánægjulegra og
menningarlegra en ella er veru-
legur. Leikur hans og leikstjórn
hafa veitt okkur útsýn til leik-
listarmenningar fjölmennisins. —
Slíkur árangur er eigi lítið dags-
verk á hálfnaðri ævi.