Dagur - 16.12.1953, Qupperneq 1
GJALDDAGI
blaðsms var 1. júlí. — Léttið
innheimtuna! Sendið afgr.
áskriftargjaldið!
AGUR
DAGUR
kemur næst út á laugai'-
dag næstk. eg síðan mið-
vikudag 23. desember.
XXXVI. árg.
Akureyri, miðvikudagmn 16. desember 1953
63. tbl
Sjúkrahússbyggingin, t. v. sóttvarnarstöð, spennistöð og líkhús.
FrðmsóknarféiögÉn efna fi! fundar
usn bæjarstjórnarkosningar
Framboðslisti flokksins vcrSur lagður fram
á fundiiutm á fimmtudagskvöldið
Framsóknarfélögin á Akureyri
efna til sameiginlegs fundar á
Hótel KEA kl. 8,30 annað kvöld
og verða bæjarstjórnarkosningarn-
ar til umræðu þar.
Fyrir fáum dögum luku upp-
stillingarnefnd og fulltrúaráð
félaganna við till.umframboðslista
flokksins við bæjarstjórnarkosn-
ingarnar 31. janúar og verður þessi
tillaga lögð fram á fundinum. —
DAGUR
Dagur kemur aftur út á laug-
ardaginn kemur. Næst síðasta
tbl. árgangsins. Síðasta blað
kemur miðvikudaginn 23. des-
ember. Með laugardagsblaðinu
verður jólalesbók, 32 blaðsíður.
Útgáfa blaðsins féll niður síð-
astl. laugardag vegna snögg-
legra og óvæntra veikinda Jak-
obs Emilssonar prentara, sem
stjórnar prentvél blaðsins. Var
hann skorinn upp í sl. viku, en
er nú á batavegi.
Kirkjnni berst gjöf
í gær barst mér í hendur fögur
gjöf til Akureyrarkirkju. — Er
það kristalsvasi fyrir blóm, sem
ætlast er til að standi á altari
kirkjunnar. — Gefendurnir eru
systkin, ungir kirkjuvinir, sem
ekki vilja láta nafna sinna getið.
— Þess gjöf er fagur vottur um
hollustu, virðingu og þakklæti til
kirkjunnar frá hinum ungu gef-
endum. — Guð blessi þeim gjöf-
ina og þann góða hug sem að baki
hennar býr.
15. desember 1953.
Pétur Sigurgeirsson.
Skorað er á flokksmenn að fjöl-
menna á þennan fund, sem verður
síðasti fundur Framsóknarmanna á
þessu ári.
20 prósent lækkim
beinna skatta
Við 3. umræðu fjárlaganna í
fyrrakvöld skýrði Eysteinn
Jónsson frá því, að stjórnar-
flokkarnir hefðu samið svo um
afgreiðslu fjárlaga, að hin nýju
skattalög, sem milliþingancfnd
í skattamálum er nú að semja
frumvarp að, skuli við það mið-
uð að þau gefi í heild 20% lægri
skatttekjur til ríkissjóðs en
gildandi skattalög hefðu gert
við sömu aðstæður. — Eru
þetta merk tíðindi, sem athygli
vekja mn land allt. — Þá skýrði
fjármálaráðherrann frá því, að
nefnd væri starfandi á vegum
ráðuneytisins til þess að gera
tillögur um, hvernig unnt væri
að færa til tollabyrðina til
liagsbóta fyrir iðnaðinn og mun
það mál koma til meðferðar á
þessu þingi. Franthald 3. um-
ræðu um fjárlögin var í gær-
kveldi.
Síðastl. laugardag opnaði Kaup-
félag Eyfirðinga nýja verzlun í
verzlunarhúsi sínu við Hafnar-
stræti 93 og er þetta véla- og
búsáhaldadeild.
Þetta er stærsta og langsam-
lega glæsilegasta verzlunarbúð
bæjarins. Eru innréttingar allar
mjög fallegar og vandaðar, svo og
lýsing. Teikningar að innrétting-
unum gerði Halldór Jónsson
arkítekt, en Ólafur Ágústsson
húsgagnasmíðamestari sá um
smíðina. í þessari deild eru á boð-
stólum alls konar heimilisvélar og
varahlutir til þeirra,bifreiðavara-
hlutir, búsáhöld og ljósatæki og
margt fleira.
Mikil þröng viðskiptamanna
Síldveiði í gær og
fyrradag
í fyrradag var góð síldveiði hér
á Pollinum. Þessi skip lönduðu í
Krossanesi: Snæfell 238 mál, Von
226, Garðar 201 og Stjaman 67.
Hefpr Krossanes þá alls tekið á
móti rétt um 9500 málum síldar.
í gær var og einhver síldveiði á
Pollinum, en ekki kunnugt, hvert
magn skipin höfðu er blaðið fór í
pressuna.
hefur jafnan verið í nýju búðinni
síðan hún var opnuð og það er
almannamál, að þessi nýja og
bjarta verzlunarbúð sé bæjar-
prýði og félaginu til sóma.
SRrifstofa Framsóknar-
flokksins í nýju hús-
næði
Skrifstofa Framsóknarflokks-
ins í Hafnarstræti 93, er flutt í
Ráðhústorg 7, þar sem áður
var skrifstofa Rafveitu Akur-
eyrar. Sími er sem áður 1443.
Skrifstofan mun verða opin
daglega fram yfir bæjarstjórn-
arkosningar og verður skrif-
stofutími auglýstur í næsta
blaði.
Síðustu ferðir fyrir jól
Síðustu póstferðir austur og
ve.stur á firði fyrir jól, verða n.k.
föstudag, er Esja og Hekla verða
hér, annað skipið á austurleið,
hitt á vesturleið. Þá fer póstbát-
urinn til Grímseyjar á föstudag-
inn (pósta þarf bréf á morgun)
og venjulega leið til-Sauðárkróks,
og aftur fer báturinn á þriðjudag,
til Ólafsfjarðar, Siglufjarðar og
Sauðárkróks, auk viðkomustaða
(Framhald á 8. síðu).
Fyrir biríiugtt í gærmorgoii vorii 47
sjáklingar fiuttir ár gamia spítalan-
uiíi í nýja sjekraliásið - sjö ár og
fjórir mánuðir liðnir síðan horn-
steinninn var lagður
Dagurinn í gær var merkisdagur í sögu liæjarins. Sjö árum og
fjórum mánuðum eftir að hornsteinninn var lagður að nýja fjórð-
ungssjúkrahúsinu, fluttu sjúklingar, læknar og hjúkrunarlið úr
gamla spítalanum, sem notaður hcfúr verið hér meira en hálfa öld,
í hina glæsilegu nýbyggingu uppi á Syðribrekkum.
Flutningarnir hófust kl. 5 í
gærmorgun og gengu mjög greið-
lega. Voru 47 sjúklingar, sem
voru á gamla spítalanum, fluttir
Gangur á nýja sjúkrahúsinu.
(Edvard Sigurgeirsson tók
allar myndirnar.)
á rösklega klukkustund, í sjúkra-
bíl og einkabifreiðum og þegar
birta tók var flutningunum lokið
og nýji spítalinn tekinn til starfa.
Margt skortir þó enn til þess að
sjúkrahúsið sé fullbúið öllum
húsgögnum og tækjum, sem þar
eiga að koma. Er hvort tveggja,
að ýmis búnaður, sem er í pöntun,
er ekki kominn, og ýmislegt hefur
enn ekki verið pantað vegna fjár-
skorts. Eigi að síður er sjúkra-
húsið þegar búið öllum nauðsyn-
legum tækjum og húsgögnum og
er aðstaða lækna og hjúkrunar-
fólks og sjúklmga nú allt önnur
en var í gamla húsinu, enda er
þetta sjúkrahús hin glæsilegasta
og vandaðasta bygging í hví-
vetna og allt með nýtízku sniði.
Rekstursvandamálið óleyst.
Þótt rekstur nýja sjúkrahúss-
ins sé þannig hafinn, eru rekst-
ursvandamál þess óleyst, því að
Alþingi hefur enn ekki afgreitt
frumvarp það um styrk til
sjúkrahúsa, sem spratt af viðræð-
um sendimanna Akureyrarkaup-
staðar og heilbrigðismálaráðherra
á sl. sumri, en því mun treyst, að
frumvarp það nái samþykki og
geri reksturinn mögulegan. Ýmis
önnur fjármál sjúkrahússins eru
óleyst, t. d. hvort ætlast er til
þess að ríkisstyrkur til bygging-
arinnar nái eingöngu til hússins
sjálfs, en bærinn verði að bera
kostnaðinn af öllum búnaði þess,
sem er ósanngjarnt og raunar
fráleitt. Þá liggur og fyrir að
(Framhald á 8. síðu).
Frá sjúkrastofu þriggja manna.