Dagur - 16.12.1953, Qupperneq 3
Miðvikudaginn 16. desembcr 1953
DAGUR
a
Nýjar Norðra bækur
Undir tindum
Ævisöguþættir og sagnir Böðvctrs Magníissoiiar á Lnugarvatni
Jafnframt því að vera merk ævisaga hins umsvifamikla
stórbónda, er gaf jörð sína til þess að hrinda fram stóru máli,
þá er þetta samfara því saga þess mesta framfaratímabils, sem
birzt hefir í íslenzku þjóðlífi til sjávar og sveitar. Verður
mörgum hugleikið að fá tækifæri til að ganga undir hönd
Böðvars á Laugarvatni, sjá og heyra umrót heillar aldar líða
yfir jörðina hans, heimasveitina, héraðið, landið og þjóðlíf
þess.
Hetjur hversdagslífsins
Skrásett hefir Hamies J. Magnússon skólastjóri.
Sérstæð bók. — Myndasafn úr lífi alþýðunnar. Þú heyrir
raddir mannanna, sem plægja, sá og uppskera, sem leggja
stein við stein í byggingu framtíðarinnar, sfem ryðja vegina
og byggja brýrnar, sem fæða og ala nýjar kynslóðir handa
framtíðinni. Upp af svitadropum þessa fólks hafa vaxið þau
lífsgrös menningar, tækni og þæginda, sem tdð búum við
í dag.
Vegur var yfir
eftir Sigurð Magnússon kennara.
Höfundur þessarar bókar er fyrir löngu þjóðkunnur vegna
ágætra útvarpserinda og snjallra greina. Hér segir hann m. a.
frá hópferðum íslendinga til Norðurlanda, kynnum af veiði-
mönnum á austurströnd Grænlands. Hann lýsir bardaga í
Bangkok, hann strandar norður i íshafi, er handtekinn í Síam
stendur við dauðans dyr í Kína, fer til selja í Noregi o. m. fl.
Bóndinn á Stóruvöllum
Ævisöguþættir Páls H. Jónssonar, Stóruvöllum skráðir eft-
ir sögn hans sjálfs og öðrum hcimildum af Jóni Sigurðssyni í
Yztafelli. Páll H. Jónsson, sem nú er orðinn 93 ára að aldri,
lýsir í bók þessari viðburðaríkri ævi og segir merka sögu
nærri heillar aldar, sent er í senn sérstæð og athyglisverð og
lýsir, baráttu og þreki þess fólks, sem 'byggt hcfir einn sér-
stæðastá dál'þessa lands, Bárðardal, í jaðri Ódáðahrauns,
þar sem tröll og*útiiegumcnn Ivafa lifað sitr fegursta-r þjóð-
trú íslcndipga.
Þrek í Jjráutum
Guðvmndur G. Hagalín skrásctti.
í þessari bók birtast sannar sögur af konum og körlum,
sem lent hafa í miklum jrrautum og þrekraunum. Hjá þeirn
lcoma franúþeir eðliskostir íslcndinga, scm um aldir hafa
reynzt þeim vopn og vcrjur í stríði við harða náttúru og við
öfl erlendrar og innlendrar kúgunar. Þessir kostir eru óbil-
andi þrek og þrautsegja, óbilug trúmennska og trú á hulin
máttarvöld. Þetta er cfnismikil bók, þrungin hrífandi atburð-
um og átakanlegum, scm seint munu gleymast.
Hraltniugar og heiðavegir, 3, bindi
Skráð hafa Pálmi Hannesson og Jón Eyþórsson. *
Þrátt fyrir marglofaða tækni nútímans fara menn sér enn
að voða á heiðarvegum og öræfum þessa lands. Bókin flytur
fjölmarga örlagaþrungna þætti af fangbrögðum íslendinga
við hina barðráðu og svipulu náttúru landsins. Ivjarni hinna
þjóðlelgu spakmæla að „enginn ræður sínum næturstað“
gengur sem rauður þráður gegnum bókina. Þetta er þjóðleg
bók í beztu merkingu þeirra orða.
Göngur og rétíir, 5. bindi
Bragi Sigurjónsson bjó til prentunar.
Mcð þessu bindi lýkur stærsta og sérstæðasta heimildar-
ritinu um íslenzka þjóðhætti. AIIs er ritsafnið orðið 1.462
bls. að stærð. Göngur og réttir njóta sívaxandi vinsælda,
enda geymir ritið mcrkar hcimildir um einn hugstæðasta
þátt í búskaparsögu þjóðarinnar um aldaraðir, hætti og siði
feðra vorra, örnefni á afréttum og lýsingar á ýmsum land-
svæðum, auk fjölda mynda hvaðanæva af landinu.
Benni í skóla
Ymsir þeirra, scm lesið hafa Benna-bækurnar, hafa látið
í ljós þá ósk við höfundinn, W. E. Johns, höfuðsmann, að
hann segði eitthvað frá unglingsárum Bennft. Hefir höf.
orðið við þeirri beiðni og segir í bók þcssari frá skólaárum
Bcnna. Ævintýrin clta hann á röndum þá eins og síðar á
lífsleiðinni. Það gerast alltaf óvæntir atburðir og spennandi
í návi'st Benna.
Merkar bækur og athyglisverðar.
Sérstæðar bækur og skemmtilegar.
-^insælustu bækur ársins.
NÝJA BÍÓ
í kvöld kl. 9:
| Bulldog Drummond f
skerst í leikinn |
[ 5pcnnandi ensk-amcrísk kvik- i
í mynd um leynilögreglu- }
1 manninn fræga.
Aðalhlutverk:
I WALTER PIDGEON \
i Laugardag kl. 9:
Dulið hatur
\ Dularfull og afar spennandi i
amerísk kvikmynd.
| Aðalhlutverk: i
í CLAUDETTE COLBERT \
i Seinna í vikunni:
| „Eigingirni“ [
Í Amerísk mynd frá Columbia, \
i sem var valin sem ein af fimm i
Í beztu myndum ársins.
Aðalhlutverk:
| JOAN CRAWFORD
iiiiiiiiiiiiim ■■■ 11111111111111111111111111 iiiiiiuiiiiiiiiiiin7
Lítil íbúð
2—3 herbergi, óskast til leigu
sem fyrst.
Afgr. vísar á.
Höfum mjög fljölbreytt
úrval af:
Silfurvörum,
Kristalsvörum,
Postulínsvörum,
Keramikvörum,
allt mjög hentugt til
jólagjafa.
BLÓMABÚÐ KEA
Akureyringar!
Eyfirðingar!
Nýkomin vönduð
JÓLAKORT
mjög ódýr.
BLÓMABÚÐ KEA
Jólagjafir sem skemmta mest
og reynast bezt eru:
GUITARAR
MANDOLIN
BANJO
MÁLVERK og MYNDIR
Ranimagerð Jóhanns Árnasonar
Hafnarstræti 91.
Frá Eðnskóla Akureyrar
Kennsla í 3. bekk skólans hefst mánudaginn 4. janúar
næstkomandi.
Væntanlegir nemendur komi til viðtals í skólann 21.
þ. m., kl. 5—7 síðdegis, og greiði þá um leið skólagjöld
sín, enda geta þeir ekki hafið nám sitt í skólanum fyrr
en þau eru að fullu greidd.
Upplýsingar varðandi skólann gefur Guðmundur
Gunnarsson, Laugargötu 1, sími 1772.
SKOLANEFNDIN.
Frá Hásmæðraskóla Akureyrar
Námskeið halda áfram í skólanunt eftir áramót í mat-
k reiðslu, fatasaum og sniðteikningu.
j: Upplýsingar veittar í síma 1199.
VALGERÐUR ÁRNADÓTIR.
Þvegillinn
verður vinsæl jólagjöf.
Útsala á Akureyri:
Kaupfélag Eyfirðinga, járn- og glervörudeild.
Verzlunin Vísir.
Ofnasmiðjan h.f.
Reykjavík.
íslendingar!
Árið um kring halda skip vor uppi rcglubundnum samgöngum milli hinna
dreifðu hafna á landinu, og yfir veturinn eru þetta oft einu samgöngutækin, sem
fólk getur treyst til að skila farþegum og farmi heilum og óskemmdum í höfn.
Þess á milli cru fjölþættir möguleikar til flutninga, sem fela ekki í sér neitt varan-
legt öryggi um samgöngur, og er það því hagsmunamál landsbúa sjálfra að beina
sem mest viðskiptum til vor. Með því styðja þeir og styrkja þjónustustarf vort
og stuðla að því, að það geti aukizt og batnað.
Taxtar vorir fyrir vöruflutning eru yfirleitt án tillits til vegarlengdar, þar eð
þjónusta vor miðar að því að jafna nokkuð aðstöðu landsbúa til samgangna, og er
þess vænzt, að þeir, sem betur eru settir varðandi samgöngur, skilji þetta og meti.
Skip vor cru traust og vel útbúin og skipshafnir þaulæfðar, og er þetta
mikils virði fyrir viðskiptamennina, enda viðurkennt af tryggingarfélögunum, sem
reikna þeim, er vátryggja, lægsta iðgjald fyrir vörur sendar með skipum vorum.
Þetta fyrirtæki er eign stærsta fclagsins á landinu, þjóðfélagsins. Sumum finnst
það félag svo stórt, að þeir finna vart til skyldleika eða tengsla við það, en sá
hugsunarháttur þarf að breytast.
SKIPAÚTGERÐ RÍKISINS.