Dagur - 16.12.1953, Side 5
Miðvikudaginn 16. desember 1953
D AGUR
5
Leikfélag Akureyrar:
Bfff
Frumsýniug síðastliðið fimmtudlgskvöld
Fyrsta viðfangsefni Leikfélags
Akureyrar á þessum vetri er am-
erískur gamanleikur, „Fjölskyld-
an í uppnámi“ eftir Harry Delf,
sem ókunnur mun flestum hér á
landi, en kann sitt handverk að
því er Icikur þessi vottar.
Þýðinguna gerði séra Árelíus
Níelsson og hefur leikurinn ekki
verið sýndur hér á landi áður.
Vekur það nokkra eftirvæntingu
í upphafi. Er ástæða til að fagna
því, er tekin eru til meðfeiðar
leikrit, sem ekki hafa verið sýnd
annars staðar á landinu né flutt í
útvarpi. Hefur mér jafnan fund-
izt, að líklegra væri skemmtunar
og þroska fyrir félag og áhorf-
endur jafnt, að ryðja þannig nýj-
ar brautir fremur en feta gamal-
kunnar slóðir.
Leikrit þetta er léttviðrislegur
gamanleikur, dálítil svipmynd af
stuttum kafla í lífssögu hvers-
dagslegrar fjölskyldu vestur í
Bandai-íkjum; en af því að mann-
skepnan er ósköp svipað innrétt-
uð, hvort sem hún lifir og starfar
hér við Eyjafjörð eða vestur í
New York, vekur leikurinn hlát-
ur hér sem þar, ef leikendur
kunna skil á hlutverkum sínum.
Hér er uppistaðan hröð og hnytt-
in tilsvör og góður látbragðsleik-
ur. Það, sem gerizt á leiksviðinu,
er ekkert nema hversdagurinn í
heimili smáborgarans. Spéspeg-
illinn er stilltur til þess að skerpa
sjón áhorfandans en ekki til þess
að afskræma. Ef vel er á haldið,
eiga atburðimir á leiksviðinu
ekki að koma neinum á óvart,
heldur vekjá þá kennd, að áhorf-
andinn þekki til þessara hluta
sjálfur, geti sett sig í spor per-
sónanna og komið auga á það
spaugilega í fari þeirra — og
sjálfs sín. Þessi áhrif koma raun-
ar allvel fram í sýningu leikfélags
ins, undir leikstjórn Guðmundar
Gunnarssonar. Leikurinn gengur
hratt yfir sviðið — þetta er með
skemmstu leiksýningum, sem
lengi hafa verið svið settar hér —
og frammistaða leikenda er yfir-
leitt ánægjuleg, þótt á skorti, að
öll tækifæri leikritsins til
skemmtunnr séu fullnotuð.
Hjónin Emmu og Joe Heller
leika þau frú Jónína Þorsteins-
dótitr og Sigurður Kristjánsson.
Hlutverk Jónínu er stærsta og
vandasamasta hlutverk leikrits-
ins. Tekst frúnni yfirleitt vel —
og stundum ágætlega — einkum
þó þegar líða tekur á leikinn. Hin
grunnfæra en þó umhyggjusama
moðir verður allspaugileg persóna
í meðferð hennar. Á reikning
leikstjórans verður það væntan-
lega að skrifast, að frúln gerir of
mikið að því að tala fram í salinn,
til áhorfenda, þegar manni virð-
ist hún eiga að tala við persón-
urnar og heimilisfólk sitt á svið-
inu. Húsbóndinn á heimilinu er
vel gerð persóna hjá Sigurði
Kristjánssyni, og víst gæti hann
verið hversdagslegur borgari hér
sem þar. Heimilisáhyggjurnar og
vafstrið er víst svipað á flestum
norðlægum breiddargráðum. Yf-
irleitt. tekst Sigurði vel að gera
heimilisföðurinn að trúlegri ner-
,sónu, en varla bó að ly;ft.a hlut-
verkini!. Leikur hans ev okki með
öllu óbvíngaðnr. né heldnr ræða
hans eðlilpg á stundum. E. +. v.
hafn hér aðeins verið bráða-
birvðamerki frumsvningar-
skíálfta. sem 1-vpssí revndi leikari
hefur la«t aS baki í seirtni sýning-
um. Elskendurng ungu leika þau
frk. Brynhildur Steingrímsdóttir
og Vignir Guðmundsson. Frk.
Brynhildur er vafalaust ein
bezta leikkona meðal hinna yngri
kvenna hér um slóðir og frammi-
staða hénnai' í þessu hlutverki,
sem er á ýmsan hátt erfitt, veld-
ur ekki vonbrigðum. Hún er lát-
Jaus og eðhleg á sviðinu, og þeg
ar að kreppir, tekst henni vel að
gera skapbrigði eðlileg og áhrifa
rík. Má ætla, að hún valdi því að
hafa méð höndum rismeiri hlut-
verk en þetta. Unga manninn í
leiknum, elskhugann, leikur
Vignir Guðmundsson. Hlutverkið
er ekki veigamikið, en eig að síð
ur erfitt að gera því góð skil, því
að ungi maðurinn má lítið annað
aðhafast en að vera ástfanginn og
það getur tekið á þolrifin. En
Vignir sfenzt þéssa þolraun vel
Leikur hans er látlaus og eðli-
legur oftast og .gefur ekki tilefni
til sérstakra athúgasemda. Soninn
á heimilinu leikur Guðmundur
Ágúsísson, ungúr piltur, sem ekki sma
mun hafa stigið á fjalirnar fyrr
Hér er vafalaust leikaraefni
ferð. Honum hættir að vísu til að
„yfirdrífa“ á stundum, en það má
kalla eðlilegt hjá nýliða, og það
svo ungum, en hann gerir annars
hlutverkinu góð skil og kannske
leikfélagið hafi þarna fundið efni,
sem mergur verður í þá tímar
líða? Yngri dótturina á heimilinu
leikur Bergbóra Gústafsdóttir, 12
ára, og gerir það mjög vel, hi-
spurslaust og eðlilega að slíkra
telpna hætti og væri vel, ef hún
ætti enn þetta hispursleysi er ár-
in kenna henni aðra lífsreynslu,
ef hún á þá eftir að koma fram á
leiksviði. Móðuf elskhugans leik-
ur frú Jónína Steinþórsdóttir, og
er það lítið hlutverk, mjög sóma-
samlega af hendi leyst og gefur
ekki tilefni til sérstakra athuga-
semda. Saumakonuna, sem lítt
kann að hafa hemil á tungu sinni,
leikur frk. Matthiídur Olgeirs-
dóttir og gerir það á ýmsan hátt
mjög vel, einkum er framsögn
hennar góð en síður látbragð.
Loks er annað bam í leiknum,
Hákon Eiríksspn, sem leikur
ungan bróður elskhugans, kemur
aðeins einu sinni inn á sviðið og
er næsta fátalaður, en kann sitt
verk. Heildarmynd sýningarinnar
er góð, leileurinn fjörugur og
hnyttinn, tíminn skammur og líð-
ur skjótt. Enginn þarf að iðrast
eftir að verja kvöldstund til að
sjá þetta nýjasta viðfangsefni
leikfélagsins. Það er ekki ætlað
til langvinnra áhrifa heldur til
skemmtunar eina kvöldstund, og
þeim áfanga er náð.
Eins og fyrr segir hefur séra
Árelíus Níelssoij þýtí leikinn.
Málfar hans er gott, en e. t. v. full
bóklegt fyrir þessa tegund sjón-
leikja. Tjöld eru óbrotin, þau hef-
ur Þorgeir Pálsson unnið smekk-
lega, ljósameistaíi er Ingvi Hjör-
leifsson, búninga annaðist Guðrún
Scheving, hárgreiðslu María Sig-
urðardóttir, en leiksviðsstjóri er
Oddur Kristjánsson. í leikslok
voru leikendur og leikstjóri kall-
aðir fram og leikrtum fagnað með
dynjandi lófataki.
ORÐSENDING
til stjórnar S. N. E.
Skömmu eftir að stjórn S. N.
E. hafði sagt Bjarna Arasyni upp
starfi fyrir sambandið, óskuðu 14
bændur í Búnaðarfélagi Sval-
barðsstrandar eftir því að hald-
inn yrði hið fyrsta fundur í félag-
inu. Litu þessir menn svo á, að
nauðsyn bæri til þess að fá
glöggar og greinagóðar upplýs-
ingar um þetta mál. Þess vegna
var óskað eftir því, að á fundin-
um mættu form. stjórnar S. N. E.
og ráðunautur.
Form. stjómar S. N. E. bað um
frest til að mæta. Loks var fund
ur haldinn 9. des. sl., og þá bregð-
ur svo kynlega við að form. mæt-
ir ekki eða nokkur fyrir hans
hönd, og engin afsökun send.
Hinsvegar mætti ráðunauturinn.
Fundurinn tók svo málið fyrir
og samþykkti eftirfarandi tillögu
mótatkvæðalaust:
„Fjölmennur fundur í Búnað-
arfélagi Svalbarðsstrandarf sem
fer með málefni nautgriparækt-
arinnar) haldinn 9. des. 1953 lít-
ur svo á, að engin frambærileg
ástæð hafi verið færð fyrir upp-
sögn Bjarna Arasonar frá starfi
fyrir S. N. E., sem búfjárræktar-
ráðunautur og forstjóri Sæðing-
arstöðvar Sambandsins. Skorar
fundurinn því á stjórn S. N. E.
að taka nú þegar aftur uppsögn
d. s. 11. nóv. s. 1. ef það
Fimmtugur:
Þorsteinn Vaídimarsson
hreppstjóri í Hrísey
Mér finnst þaS nærri ótrúlegt,
að vinur minn Þorsteinn Valdimars
son, hreppstjóri x Hrísey hafi átt
fimmtugs afmæli 3. þ. m., en þetta
segja víst allir um vini sína fimm-
tuga.
Það er ef til vill ekki af ástæðu-
lausu. Við erum alvarlega minntir
á þann sannleik að árin líða, hvort
sem okkur líkar betur eða ver. —
Innan skamms erum við orðnir
mætti verða til þess, að Bjarni
Arason fengist til að gegna starfi I gamlir menn. Hví skyidum við
sínu áfram, ásamt meðstarfs- æðrast? Við geturn þó skarað í
manni sínum Bjarna Finnboga- gamlar glæður og ornað okkur við
syni. Ennfremu lýsir fundui'inn minningar liðinna ára. Já, -— þá
yfir fullu trausti á þessum starfs- hópast nú fyrst fram myndir minn-
mönnum S. N. E. inganna, en hvar skal byrja, hvar
Verði stjórn S. N. E. ekki við skal standa?
þessum tilmælum fundarins um Það var í lok septembermán-
að kalla aftur uppsögnina, þá aðar ário 1927, að tveir ungir
felur hann þremur mönnum, sem menn höfðu tekið sér far til
kosnir verði af fundinum að boða Reykjavíkur með m. s. Dronning
til almenns bændafundar á sam- Alexandrine. Þetta voru skólapilt-
bandssvæði S. N. E. svo fljótt sem ar, er hleyptu heimdraganum í
verða má, til þess að taka þar fyrsta sinn í því skyni að stunda
málið upp að nýju.“ nám í höfuðborginni. Því verður
f nefndina voru kosnir undir- ekki neitað, að ef til vill bærðist
ritaðir, sem votta jafnframt að í brjóstum þeirra kvíðablandin til
framanritað er í alla staði rétt til hlökkun, en þeir voru ákveðnir að
fært.
Garðsvík, 11. des. 1953.
Jóhannes Laxdal.
Jón Bjarnason.
Þór Jóhannesson.
FLÓRU
kosta aðeins
kr. 10.50 glasið.
Gott
orsel
til sölu.
Afgr. vísar á.
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeildin
og útibú.
Flóru búðingar
eru lang-ódýrastir:
Van illebúðingar
Cítrónubúðingar
Möndlubúði ngar
Súlckulaðibúðingar
Ananasbúðingar
Rommbúðingar.
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild
og útibú.
mæta öllu, er fyrir kynni að koma
með járnkaldri ró. Að vísu var lagt
út í nokkra óvissu, því heldur var
farareyririnn léttur, en um slíkt
tjáði ei að tala, þeir höfðu sjálfir
ákveðið þetta og því var ekki við
neinn að deila. Annar farþeginn
var vinur minn Þorsteinn Valdi-
marsson, er hafði ákveðið að setj-
ast í Samvinnuskólann. Þar stund-
aði hann nám í tvo vetur og lauk
prófi með góðum vitnisburði. Eg
er viss um það að þetta nám, þó
eigi væri langt, hefur veitt Þor-
steini þá undirstöðu, er komið
hefur honum í góðar þarfir vegna
margháttaðar starfa, sem á hann
hafa hlaðist. Þorsteinn var og er
reyndar enn þéttur á velli og þétt-
ur í lund, enda lagði hann mjög
stund á íþróttir á skólaárunum og
raunar miklu fyrr. Var hann dáð-
ur af sínum samherjum, þótti fim-
ur og framar mörgum í þeirri list
þótt skemur hefði numið en marg-
ir aðrir félagar hans. En þegar
Þorsteinn er minntur á að hann sé
gamall Armenningur, þá brosir
hann bara sínu alkunna góðláta
brosi, og vöðvarnir hnykklast
ósjálfrátt. Þorsteinn hefur glaða
og lipra lund, og fer honum vel
að taka þátt í græskulausu gamni,
enda er hann næmur á gamansama
hluti og kann frá mörgu skemmti-
legu að segja. Getur verið hrókur
alls fagnaðar í glöðum vinahópi.
Þó kann hann vel að stilla öllu
slílcu í hóf og er sennilega meiri
alvörumaður en margur hyggur.
Fæddur er Þorsteinn 3. desem-
ber'arið 1903 að Litla-Árskógi í
Árskóghreppi, sonur sæmdarhjón-
anna Valdimars Guðmundssonar,
skipstjóra og bátasmiðs og lconu
hans Þórdísar Bjargar Hallgríms-
dóttur frá Stóru-Hámundarstöðum.
Hann er næst yngstur sinna syst-
kina og tíunda barn þeirra Þórdís-
ar og Valdimars. Árið 1906 fluttist
hann með foreldrum sínum til Ol-
afsfjarðar, sem bjuggu þar til árs-
ins 1917, en þá fluttist hann með
þeim til Hríseyjar og hefur átt þar
heima síðan.
Þorsteinn hefur lagt gjörva hönd
á margt í Hrísey. Lengi var hann
landformaður við útgerð og leysti
það starf af hendi með ágætum.
Árið 1930 til 1934 rak hann
sjálfur útgerð í félagi við Jón
bróður sinn. Þá var hann um
nokkurt skeið verkstjóri við frysti-
hús Kaupfélags Eyfirðinga í Hrís-
ey.,
Árið 1931 varð Hrísey sérstakur
hreppur, og frá þeim tíma hefur
Þorsteinn starfað míkið fyrir
sveitarfélagið, og held eg að þær
verði á fingrum taldar nefndirnar,
sem hann hefur ekki starfað í.
Hann var kosihn í hreppsnefnd
1938, og var hann þá kjörinn cdd-
viti hreppsins. Því starfi gegndi
hann samfleytt í tíu ár. Og enn var
hann kjörinn oddviti 1952 og
gegnir því starfi til þessa dags.
Hann var skipaður hreppstjóri
1947, og stöðvarstjóri Landsímans
hefur hann verið frá 1949.
Eins og sjá má af því, er hér
hefur verið rakið, þá hafa störfin
verið æði mörg og margt er enn
ótalið, sem hann hefur orðið að
verja miklum starfstíma til. Vil eg
í því sambandi minna á Ut-
gerðarfélag Hríseyjar, er hann
gekkst fyrir, ásamt fleirum, að
stofnao var árið 1948. Hefur hann
verið framkvæmdastjóri þess allt
til þessa.
Eg, sem þessar línur rita, hef
unnið mjög mikið með Þorsteini að
ýmsum málum, en fáa þekki eg
jafn samvinnuþýða. Hann er eng-
inn hamhleypa, en hann hefur skil-
að miklu verki.
Þorsteinn hefur sennilega tamið
sér hið gullvæga ráð: „Flýttu þér
hægt“, og þess vegna hefur hann
líka komist áfram.
Giftur er Þorsteinn Láru Sigur-
jónsdóttur Jónssonar bónda frá
Bröttuhlíð í Árskógshreppi og
konu hans Kristínar Benedikts-
dóttur.
Lára er mesta dugnaðar- og
greindarkona, og er heimili þeirra
hið myndarlegasta á allan hátt.
Þau hjón hafa eignast 5 börn og
eru fjögur á lífi. Kristín, student
í Reykjavík, Valdis, frú á Akur-
eyri, Steinar og Þóra í foreldra-
húsum.
Eg veit að margir munu hafa
heimsótt þau hjón 3. desember, til
þess að taka í höndina á húsbónd-
anum á þessum merkisdegi ,en vin-
irnir í fjarlægð hafa efalaust sent
hlý hugskeyti.
Vinur.
Kjólföt,
lítið notuð, með eða an
smókingjakka, eru til sölu
með tækifærisverði.
Til sýnis í
Saumastofunni Hrönn,
Brekkugötu 5.
Stúlka
óskast á gott heimili í Rvík.
Upplýsingar í síma 1284.