Dagur - 16.12.1953, Blaðsíða 8
8
Miðvikudaginn 16. desember 1953
Þingeyingar felja ríkisframiag ti!
raforkumála ófullnægjandi
Fulltrúafundur um raforkumál að tilhlutan
Bændafélagsins
Fimmtudaginn 19. nóvember sl.
boðaði stjórn Bændafélags Þing-
eyinga saman á íund á Fosshóli
kjörna fulltrúa úr öllum sveitum
Þingeyjarsýslu, samkv. ákvörðun
fundar á sama stað 19. september
þ. á., sem eiga að mynda raforku-
ráð í raforkunotendafélagi sýsl-
unnar.
Formaður Bændafélagsins, Jón
Sigurðsson í Yztafelli, setti fund-
inn og nefndi til fundarstjóra
Baldur Baldvinsson, en til fundar-
ritara Jón Gauta Pétursson og
Jón Haraldsson. Ennfremur ósk-
aði hann þess að sýslumaður Þing-
eyinga, Júlíus Havsteen, sem
mættur var á fundinum og starfað
hefur að framgangi raforkumála
sýslunnar undanfarið, gæfi skýrslu
um þau störf.
Fulltrúar hreppanna.
Sem kjörnir fulltrúar sveitanna
voru mættir: Frá Grýtubakka-
hreppi Jóhannes Jónsson, Hóli,
Hálshreppi Stefán Tryggvason,
Hallgilsstöðum, Svalbarðsstrand-
arhreppi Jóhannes Laxdal, Tungu,
Bárðdælahreppi Hermann Guðna-
son, Hvarfi, Skútustaðahreppi Jón
Gauti Pétursson, Gautlöndum,
Reykdælahreppi Teitur Björnsson,
Brún', Aðaldælahreppi Þrándur
Indriðason, Aðalbóli, Ljósavatns-
hreppi Haukur Ingjaldsson, Garðs-
horni, Reykjahreppi Jón H. Þor-
bergsson, Laxamýri, Tjörneshreppi
Ulfur Indriðason, Héðinshöfða, úr
Laxárdal Jónas Snorrason, Þverá.
Frá Flateyjarhreppi var enginn
fulltrúi mættur.
Viðræður við stjómarvöld,
Sýslumaður, Júlíus Havsteen,
gaf þá skýrslu sína. Hafði hann
verið í Reykjavík á umliðnu
hausti og starfað þá, ásamt þing-
manni kjördæmisins, Karli Krist-
jánssyni, að því að fá rafmagns-
málum héraðsins hrundið í fram-
kvæmd. Eftir það ræddu fundar-
menn þessi rafmagnsmál, skýrðu
frá fundahöldum í sveitunum og
gátu um samþykktir, sem þar voru
gerðar.
Kosin var fimm manna stjórn
Rafmagnsnotendafélags Þingey-
SÍÐUSTU FERÐIR FYRIR JÓL.
(Framhald af 1. síðu).
við Eyjafjörð. Flogið verður í
milli Rvíkur og Akureyrar alla
daga til jóla, ef veður leyfir, og
bílferðír verða á miðvikudag og
laugardag samkv. áætlun, og
aukaferðir á mánudag og þriðju-
dag og e. t. v. á Þorláksdag. —
Húsavíkurbíll fer í dag og aftur á
laugardag og sennilega á Þor-
láksmessu. Rétt er að pósta öll
bréf sem fyrst og athygli er vakin
á tilkynningu póststofunnar um
innanbæjarpóst annars staðar í
þessu blaði.
inga. Kosningu hlutu: Jóhannes
Laxdal, Jón Gauti Pétursson, Bald-
ur Baldvinsson, Teitur Björnsson
og Jón H. Þorbergsson.
Stjórnin skaut á fundi og tók til
athugunar tillögur, sem komið
höfðu fram á fundinum og sam-
ræmdi þær og bar þær síðan fram
í eftirfarandi formi.
Telur fjárframlög ófullnægjandi.
Fulltrúar í félagi rafork-unot-
enda í Suður-Þingeyjarsýslu, stadd-
ir á fundi að Fosshóli 19. nóv.
1953, semþykkja eftirfarandi:
1. Fundurinn teliu* það eitt af
höfuðviðfangseínum íslendinga
næstu ár að veita rafmagni mn
sveitir Iandsins.
2. Fundurinn telur framlag það,
sem frumvarp til fjárlaga fyrir
1954 ætlar til raforkufram-
kvæmda, algerlega ófullnægj-
andi, jafnframt því, sem hann
telur það skýlaust brot á yfir-
lýstuin stjómarmyndunarsamn
higi. Skorar hann því á alþingi
að standa yið áður gefin loforð
stjórnarfíokkanna um þetta
efni.
3. Fundurinn telur óeðlilegt og
ósanngjarnt að rafmagn til
sveita sé selt hærra verði en
annars staðar, og skorar á AI-
þingi að samþykkja framkomið
lagafrumvarp um verðjöfnun á
seldu rafmagni.
Jafnframt skorar fundurinn
á raforkumálastjórn ríkisins að
gera þær breytingar á gjald-
skrá héraðsrafveitna, að af-
numið verði fastagjald véla til
súgþurrkmiar á heyi, og ein-
ingargjöld þau, sem nú er kraf-
izt af búpeningshúsum, án þess
að slíkt leiði til hækkunar á
kílóvattastund.
4. Fundurinn lýsir yfir að hami
telur þau héruð, þar sem orku-
ver landsins eru staðsett, eigi
að ganga fyrir öðrum um dreif-
ingu rafmagns frá þeim, enda
telur fundurinn að ekki eigi að
koma til mála að reisa ný orku-
ver fyrr en betur er búið að
nýta þá orku, sem þegar er
virkjuð.
5. Fundurinn skorar á Alþingi og
ríkisstjórn að gera ráðstafanir
til þess að efla Veðdeild Bún-
aðarbankans, svo að hún verði
fær um að lána þeim bændum
fé til greiðslu heimtaugar-
gjalda, sem þess þurfa við.
6. Fundurinn telur að hagfellt sé
að sýslufélögin, hvert á sínu
svæði, önnuðust um fram-
kvæmdir við lagningu raflagna
undir yfirstjórn raforkumála-
stjóra ríkisins.
Tillaga kom frá Katli Indriða-
syna á Fjalli, sem vísað var til
stjórnar Raforkumálafélagsins til
athugunar.
Daguk
Nýja sjákrahúsið fullgert
Eldhús sjúkrahússins — eldavél og pottar, allt ný rafmagnstæki.
(Framhald af 1. síðu).
Áburðarpantanir
fyrir 20. deeember
Samkvæmt því sem auglýst hef-
ur verið í blöðum og útvarpi þurfa
allar áburðarpantanir að hafa bor-
izt Aburðarsölu ríkisins fyrir ára-
mót. Er þetta nokkru fyrr en verið
hefur að undanförnu og þýðir, að
áburðarpantanir hér þurfa að vera
skráðar fyrir 20. desember.
Gefur þetta vonir um að bændur
landsins og aðrir jarðræktarmenn
fái nú loksins áburðinn nógu
snemma og er það gleðilegt.
Hins þurfa menn þó að gæta, að
gera áburðarpantanirnar STRAX.
Viðskiptamenn KEA þurfa að láta
skrá pantanir sínar á skrifstofu
félagsins eða hjá formönnum deild-
arstjórna. Akureyringar geta og
skráð pantanir hjá garðyrkjuráðu-
naut bæjarins.
Jólatré og Jólakort
Landgræðslusjóðs
fást hjá
Skógræktarfélagi Ey firð 'rnga
Simi 1464.
Sent heim til bæjarbúa
ef óskað er.
Ármann Dalmannsson.
Pennaveski
mjög hentug til jólagjafa.
Jám- og glervörudeild.
M a n n t ö f I i n
ódýru, komin aftur.
Járn- og glervörudeild.
festa enn kaup á ýmsum tækjum
og húsbúnaði, en fé ekki fyrir
hendi til þess sem stendur.
Tvær * aðaldeildir.
Á nýja sjúkrahúsinu, sem alls
mun rúma a. m. k. 110 sjúklinga,
Frá hinni nýju röntgendeild. —
Ný, fullkomin tæki írá Philip-
verksmiðjunum.
eru tvær aðaldeildir, handlækn-
ingadeild og lyflækningadeild. Er
Guðmundur Karl Pétursson yfir-
læknir handlækningadeildar, en
Ólafur Sigurðsson yfirlæknir
á lyflækningadeild. Röntgendeild
stjórnar Árni Guðmundsson, en
fastráðinn svæfingalæknir er frú
Þorbjörg Magnúsdóttir. Aðstoð-
arlæknir í handlækningadeild er
Sigurður Ólason. Yfirhjúkrunar-
kona er frú Ragnheiður Árna-
dóttir. Ein hjúkrunarkona bætist
nú við lið hjúkrunarkvenna og
brjár starfsstúlkur til viðbótar
beim, er fyrir voru. Þá hefur Jón
Sigurgeirsson lögregluþjónn ver-
;.ð ráðinn viðgerðar- og hjálpar-
tnaður sjúkrahússins, en fram-
kvæmdastjóri verður ráðinn eftir
20. þ. m., er umsóknarfrestur um
bað starf er útrunninn.
Bæjarbúum boðið að skoða
húsið á sunnudag.
Engin vígsluathöfn er ráðgerð,
en almenningi er boðið að skoða
húsið næstk. sunnudag kl. 1—5 e.
h. Nánar verður síðar greint frá
gerð hússins og búnaði þess.
Myndarammar
Jám- og glervörudeild.
Myndavélar
F i 1 m u r á 7.50
Sjónaukar
Jám- og glervörudeild.
Jólatrésskraut
jnjög ódýrt.
Járn- og glervörudeild.
Jólapappír
á 50 aura örkin.
Járn- og gtervörudeild.
VINSÆLU
5 í kassa:
MANNTAFL
LÚDÓ
MYLLA
DA.MM
KÚLUSPIL
komin aftur.
Járn og glervörudeild
Húsgögn
Vegna brottfarar eru til sölu
ýmis húsgögn, ódýr.
Hjörtur Eiríksson.
Brekkug. 29 (kjallari).
Sími 1092 (Til viðtals kl.
6-8 e. h.)
ÍRiísaín Jóns Irausta 1-81
{ Bókaverzl. EDDA h.f. |
Akureyri |
„Góðir eiginmenn sofa
heima“ í Húsavík
Leikfélag Húsavíkur sýnir um
þessar mundir gamanleikinn
„Gqðir eiginmenn sofa heima“ er
sýndur var í Reykjavík á sl. vetri
við ágæta aðsókn. Leikstjóri er
Sigurður Hallmarsson, og leikur
hann jafnframt eitt aðalhlutverk-
ið. Aðrir leikendur eru: Inga
Jónasdóttir, Eysteinn Sigurjóns-
son og Benedikt Jónsson. Leik-
urinn hefur verið sýndur tvisvar
við mikla aðsókn og ágætar und-
irtektir.
Ný ýsa
Ýsuflök
og Smálúða
* dag.
Kjötbúðir IÍEA.
og titibú.