Dagur - 09.01.1954, Page 1
KOSNIN G ASKRIFSTOF A
Framsóknarmanna er op-
in daglega kl. 10—12 f. h.
1—7 e. h. og frá kl. 8.30
á kvöldin
AGUR
DAGUR
kemur út á reglulegum
iitkomudegi, miðvikudag-
inn 13. janúar.
XXXVII. árg.
Akureyri, laugardaginn 9. janúar 1954
2. tbl.
Ullarþvottavélin - 56 metra löng
Berníiarð Stefánsson
alþm. 65 ára í gær
Bernharð Stefánsson alþingis-
niaður varð 65 ára í gær. Þessa
þjóðkunna Eyfirðings var minnzt
hér í blaðinu nýlega, í tilefni af
35 ára þingmannsafmæli hans og
verður því ekki birt afmælisgrein
um Bernharð að þessu sinni, þótt
verSugt væri. En blaðið árnar
þessum merka þingfulltrúa og
ágæta Eyfirðingi allra heilla og
þakkar honum langt og ánægju-
legt samstarf.
Myndin er frá Ullarþvottastöð SÍS á Gleráreyrum og sér inn eftir
verksmiðjunni og mestur hluti hinnar stóru samstæðu sem þvær
meiriparlinn af ullarframleiðslu landsins.
70 ára afmæli Géðtemplarsregl-
unnar á Islandi er á morgun
Reglan var stofnuð í kvistherbergi í Frið-
bjarnarhúsi við Aðalstræti hér í bæ
Á morgun eru liðin rétt 70 ár
síðan 12 mcnn komu saman í
kvistherbergi í húsi Friðbjarnar
Stcinssonar við Aðalstræti hér í
bæ og stofnuðu góðtemplarastúk-
una ísafold nr. 1 og var þar með
hafið starf góðtemplara hér á
landi.
Stofnandi stúkunnar var norskur
maður, er hér var búsettur um hríð,
OJe Lied að nafni, en aðalhvata-
maður og raunverulegur brautryðj-
andi góðtemplarastarfsins hér var
Friðbjörn Steinsson bóksali, og
heiðra templarar jafnan minningu
hans sem eins hins merkasta for-
ustumanns félagsskaparins. Hafa
templarar hér látið gera brjóstmynd
af Friðbirni, og verður hún sett
upp hér í bænum á næstkomandi
sumri.
Utbreiðsla starfsins.
Innan 2l/2 árs frá stofnun stúk-
únnar hér voru góðtemplarastúkur
stofnaðar í öllum fjórðungum
landsins, og 20 árum síðar var
Stórstúka íslands stofnuð, og voru
þá starfandi 20 stúkur talsins.
Góðtemplarareglan hér á Akur-
eyri lét snemma mjög til sín taka,
ekki aðeins með því að vinna að
menningarlegra félags- og skemmt-
analíti og aukinni bindindissemi,
heldur réðist hún í það stórvirki
árin 1906 og 1907 að reisa hér sam-
komuhús, sem var þá og lengi á
eftir veglegasta samkomuhús lands-
ins. Ber húsið enn vott um stórhug
og dugnað góðtemplara á þessum
tíma, því að enn í dag er það með
reisulegustu húsum bæjarins (Sam-
komuhúsið).
Á seinni árum hafa templarar
enn ráðizt í stórvirki, og eiga nú
eitt veglegasta samkomuhús bæjar-
ins, Varðborg, sem kunnugt er.
Fjórar stúkur starfandi.
I dag eru fjórar stúkur starfandi
hér í bænum, en á öllu landinu
eru nú 11 þúsund félagsmenn í
stúkunum.
Árið 1904 var stofnuð stúkan
Framhald á 8. síðu.
Stórbruni
á Reykjaiundi
í fyrrinótt
«/
Um kl. 4.30 í gærmorgun kom
upp eldur í stórum herskála að
vinnuheimili SÍBS í Reykjalundi
og varð af mikill eldur. Brunnu
tveir skálar til kaldra kola og
með þeim mikil verðmæti. Er
tjónið alls metið á 700 þús. kr.
f skálanum, sem í kviknaði, var
þvottahús heimilisins, búið full-
komnum vélum og eyðilagðist
það alveg og jafnframt brann
mikið af alls konar fatnaði er þar
var, bæði eign vistmanna og
heimilisins, t. d. sængurföt á 200
rúm. í hinum skálanum var m. a.
alls konar varningur og brann
allur, m. a. 1500 pör af vinnu-
vettlingum, sem framleiddir eru
á Reykjalundi, 20.000 skápahöld
úr plastik og margt fleira. Skál-
ar og varningur var sæmilega
vátryggt.
13 meno hafa fasta atvimiu við þetta nýja
fyrirtæki Sambandsins - vinnulaun rösklega
hálf milljón króna á síðastliðiiu ári
Síðasfi dagur áfengissölu á Ákur-
eyri er í dag
Mjög mikil verzlun síðustu daga - í gær annar
Þorláksdagur
Jafnframt alþingiskosningunum
í sumar ákváðu Akureyringar að
loka útsölu Áfengisverzlunar ríkis-
ins hér í bæ samkvæmt heimild um
héraðabönn í áfengislögum, sem nú
var látin koma til íramkvæmda.
Féllu atkvæði Jiannig, að 1730 voru
með lokun, 1274 á móti, 332 seðlar
c
voru auðir og ógildir voru 33. —
Lokun skyldi koma til framkvæmda
sex mánuðum eftir kosningar, og
er nú að því komið. Dagurinn í
dag er síðasti dagur áfengisútsölu
hér, fyrst um sinn að minnsta kosti.
Er blaðið átti tal við útsöluna
hér í gær, var þar mikil verzlun,
og hefur svo verið síðustu daga, og
birgðir óðum að þrjóta. Tölur gat
blaðið ekki fengið um söluna, en
talið var, að dagurinn í gær mundi
verða „annar Þorláksdagur", en þá
var metverzlun hér; nam salan þá
í milli 70 og 80 þúsund krónum.
Langsamlega stærsta og um-
fangsmesta „nýsköpun“, sem gerð
lieíur verið í atvinnulífi Altur-
eyrar á sl. f jóruni árum, er fram-
kvæmdir Sambands ísl. sam-
vinnufélaga við Glerá.
Þar er nú risið upp stærsta og
nýtízkulegasta verksmiðjufyrir-
tæki landsins, Gefjun nýja, sem
veitir miklum fjölda bæjarmanna
lífvænlega atvinnu, og fyrir rösk-
um fjórum árum var lokið bygg-
ingu Ullarþvottastöðvar SÍS á
Gleráreyrum, sem er merkilegt
fyrirtæki, þótt hljótt hafi verið
um það hér í blöðum. Þetta er
sjálfstætt fyrirtæki, starfrækt af
Utflutningsdeild SÍS, enda í nán-
um tengslum við útflutnings-
framleiðslu landsmanna.
Akureyri mesta ullarútflutnings-
höfn landsins.
Síðan ullarþvottastöðin tók til
starfa hefur Akureyri verið mesta
ullarútflutningshöfn landsins, því
að hingað kemur meginið af ull-
arframleiðslu landsmanna til
mats og þvottar og er síðan sent
héðan úr landi, það sem ekki fer
til vinnslu á Gefjuni eða til anh-
arra innlendra nota.
Nýtízkuleg vcrksmiðja.
Ullarþvottastöðin er mikið hús,
70 metra langt og 14 m. breitt, alls
um 8600 rúmmetrar, en gólfflötur
er 980 fermetrar. Á efri hæð eru
geymslur fyrir óþvegna ull og þar
fer allt ullarmat fram, en þaðan
fer ullin um rennu á neðri hæð-
ina og þar er hin stóra ullar-
þvottavél ásamt með tæturum.
Þessi þvottasamstæða er alls 56
metra löng og er frá kunnri am-
erískri verksmiðju, og hið vand-
aðasta tæki, enda kostaði það
mikið fé. Kom maður frá verk-
smiðjunni hingað á sínum tíma til
þess að setja samstæðuna upp.
Afköstin eru miðuð við að hægt
sé að þvo alla ullarframleiðslu
landsmanna, þótt hún aukizt
verulega frá því, sem nú er.
Vinnslan á siðastliðnu árL
Blaðið átti í gær tal við fram
kvæmdastjóra Ullarþvottastöðv-
arinnar, Ófeig Pétursson, og
skýrði hann svo frá, að á sl. ári
hefði stöðin tekið á móti 453 lest
um af óþveginni ull, úr öllum
sýslum landsins og mun þetta
vera mun meira en helmingur
allrar ullarframleiðslunnar, en
afgangurinn fer til ullarverk-
smiðjanna beint eða til heimilis-
nota. Ur þessum 453 lestum feng-
ust 256 lestii' af hreinni ull, og er
rýrnunin við þvottinn því um
44%. Ullarþvottastöðin var 9
mánuði ársins að meta, tæta og
þvo þessa ull og höfðu 18 menn
fasta atvinnu við þetta starf. Átta
menn vinna við ullarmatið, 5 við
þvottinn, 3 við að balla ullina og
1 við flutninga og vigtun. Auk
þess er svo framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, eða samtals 18
menn. Vinnulaun á sl. ári námu
530 þúsundum króna.
J
Vöxtur iðnaðar.
Bygging og starfræksla Ullar-
þvottastöðvarinnar er enn einn
liður í þeirri stefnuskrá Sam-
bandsins að gera Akureyri að
höfuðmiðstöð þess iðnaðar, sem
Sambandið starfrækir. Hafa sam—
vinnumenn gert hér stórvirki á
sl. fjórum árum, með þessari
framkvæmd, hinni miklu endur-
byggingu Gefjunar, starfrækslu
skóverksmiðjunnar Iðunnar og
Fataverksmiðjunnar Heklu, en
öll þessi fyrirtæki veita nú
hundruðum manna atvinnu og
eiga einna mestan þátt í því að
Akureyri er einhver öflugasta
iðnaðarmiðstöð landsins. Þetta
eru athyglisverðar staðreyndir til
samanburður við fullyrðingar um
að rekstur samvinnumanna sé
fjötur um fót heilbrigðri efna-
hagsþróun í bænum. Er slíkt tal
einhver hin mestu öfugmæli,
sem hugsast má, og þó má oft
sjá slíkt á prenti og ekki sízt er
líður að kosningum.
Sameiginlegur listi
Framsóknarmanna og
Sjálfstæðismanna
í Húsavik
Samkomulag hefur orðið um
sameiginlegan framboðslista
Framsóknarmanna og Sjálfstæð-
ismanna í Húsavík við bæjar-
stjórnarkosningarnar og skipa
efstu sætin þessir menn: Karl
Kristjánsson alþm., frú Helena
Líndal, Þórir Friðgeirsson gjald-
keri, Finnur Kristjánsson kaup-
félagsstj., Ari Kristinsson lög-
fræðingur og Þorvaldur Árnason
framkvæmdastjóri.