Dagur - 20.01.1954, Page 5
Miðvikudaginn 20. janúar 1954
D AGUR
5
FrambjóSandi Þjóðvarnar hér í sumar rak
!Vli
rrar
Skömmu áður en haun kom hingað íiorðui* til þess m. a. að
prédika Jieiðarleika44 í opinhemm störfum, ritaði hann
bændum hréf, sem sýnir misnotkun opinbers trúnaðar
LAUST OG FAST
f ltosningunum í sumar lögðu
þjóðvarnamenn áherzlu á tvennt
aðallega: Fyrst Keflavíkurmálin,
sem voru og eru þeirra aðalmál,
og svo nauðsyn .þess að vinna
gegn spillingu í opinberu lífi.
Til þess töldu þeir sig sjálfir
kjörna. í bæjarstjórnarkosningum
hafa þeir lítið talað um Keflavík-
urmálin, en því meira um nauðsyn
heiðarleika í opinberu lifi, og til
þeirrar varðstöðu telja þeir sig enn
allra manna bezt fallna. í blaða-
umræðum síðan í sumar hefur
komið í Ijós ,að Þjóðvarnar-
menn eru engir eftirbátar annarra
flokka manna í lúxusflakki, bif-
reiðakostnaði fyrir opinbert fé o.
s. frv., og nú er uppvist, að fram-
bjóðandi þeirra hér á Akureyri í
sumar, og efsti maður þeirra á
framboðslistanum í Reýkjavík,
hefur rekið einkaviðskipti í skjóli
opinberrar stöðu og freklega mis-
notað trúnað, sem honum er veitt-
ur sem opinberum starfsmanni.
Maður þessi er Bárður Daníelsson
verkfræðingur, starfsmaður raf-
orkumálaskrifstofu rikisins. Dag-
blaðið Tíminn birti i gær bréf,
sem þessi framámaður Þjóðvarnar-
liða skrifaði mörgum bændum 11.
júní s. I., eða nokkrum dögum áð-
ur en hann kom hingað norður til
að prédika „heiðarleikann". Starf
hans hjá raforkumálaskrifstofunni
var að veita þeim bændum, sem
reistu smærri vatnsaflsstöðvar,
leiðbeiningar og annast mælingar
fyrir þá og hafa eftirlit með upp-
setning stöðvanna, en þessa þjón-
ustu lætur ríkið í té. í þessu opin-
bera starfi, sem hann hefur nú lát-
ið af til þess að taka sér annað,
hjá Brunabótafélaginu og þiggja
hjá því utanför fyrir opinbert fé
— ritaði þessi frambjóðandi Þjóð-
varnar allmörgum bændum eftir-
farandi bréf:
Bréf frambjóðandans:
Ég hefi undanfarið veitt
nokkrum bændum tæknilegar
ráðleggingar, varðandi vatns-
virkjanir, og útvegað þeim nauð-
synlegar vélar til þeirra. Raf-
orkumálaskrifstofan hefir látið
mér í té lista yfir þá menn, sem
hafa í hyggju að virkja í náinni
framtíð, og eruð þér einn af
þeim.
Ef að þér hafið ekki þegar
fest kaup á vatns-túrbinu og
rafal, þá er ég fús til að senda
yður tilboð í vélarnar. Verk-
smiðjur þær er ég hefi skipt við
eru brezkar, og hafa þær fall-
izt á að veita talsverðan afslátt,
ef um kaup á mörgum vélum
væri að ræða.
Bændur þeir, sem ég hefi
þegar sent tilboð, telja þau mun
hagkvæmari en önnur tilboð,
sem þeir hafa fengið.
Ég sé um að útvega gjald-
eyris- og innflutningsleyfi, ef
óskað er. Það á að vera auðvelt,
ef fjárfestingarleyfi er fengið.
Ef þér hafið hug á að fá tilboð
frá mér, þá gerið svo vel að
láta mig vita hið fyrsta.
í sumar mun ég ferðast all-
viða um landið og athuga virkj-
unarskilyrði. Mun ég á því ferða
lagi, ef því verður við komið,
heimsækja þá, sem panta vélar
hjá mér, og gefa þeim nauðsyn-
legar leiðbeiningar um tilhögun
virkjuninnar. Slíkar leiðbeining-
ar veiti ég ókeypis, en á vélar,
sem ég útvegar, legg ég 6—7%,
og er það i'samræmi við ákvæði
verðlagseftirlitsins.
Ef þér skylduð vilja ná tali
af mér í síma, þá hringið í áætl-
unardeild Raforkumálaskrifstof-
unnar (sími 7400), en þar er ég
við daglega á venjulegum skrif-
stofutíma.
Virðingarfyllst
Bárður Daníelsson.“
Þetta bréf þarf ekki mikilla skýr
inga við. Það sýnir, að maðurinn,
sem ráðinn er af opinberri stofnun
til að veita mönnum hlutlausar,
tæknilegar leiðbeiningar, notar sér
aðstöðu sína sem opinber og hlut-
laus starfsmaður til að reyna að
selja þessum mönnum velar, sem
hann sjálfur hefur umboð fyrir og
tekur heildsalagróða af. Og þetta
er ekki aðeins eitt tilfelli, því að
í bréfinu segir „bændur þeir, sem
ég hefi sent tilboð“ svo að þetta
hefir verið töluvert víðtæk fjár-
öflunarstarfsemi.
„Ókeypis leiðbciningar.“
Og opinberi starfsmaðurinn
gyllir boð sitt: „í sumar mun
eg ferðast allvíða um landið og
athuga virkjunarskilyrði. Mun
eg á því ferðalagi, ef því verð-
ur við komið, heimsækja þá,
sem panta vélar hjá mér, og
gefa þeim nauðsynlegar leið-
beiningar.. .. Slíkar leiðbein-
ingar veiti eg ókeypis, en á
vélar sem eg útvega, legg eg
6—7%“. Með öðrum orðum:
Hinn hjálpsami Iciðbeinandi
segist ætla að sinna þessum
einkaviðskiptum sínuin um
leið og hann ferðast sem starfs-
maður Raforkumálaskrifstof-
unnar. Og svo veitir hann allar
leiðbeiningar ókeypis! Það er
gullið tilboð, þar sem liami er
einmitt ráðinn fyrir kaup til að
veita slíkar leiðbeiningar ó-
keypis. En er nú von að mað-
urinn gangi lengra í heiðar-
leikanum? Auðvitað verður
hann að fá venjulega heildsölu-
álagningu fyrir vélarnar.
Og svo er niðurlag bréfsins:
Þessum einkaviðskiptum er
hann reiðubúinn að sinna í skrif-
stofutíma sínum hjá hinni opin-
beru stofnun, sem hann þjónar,
og sími hennar er þar líka til
reiðu.
Góð þóknun.
Það er ekki ljóst, hve mörg-
um bændum Bárður hefur selt
vélar, en yfirlýsing bréfsins um
að hann hafi snúið sér til all-
margra bænda,’ virðist benda til
nokkurra viðskipta. í því tilfelli,
sem ræðir um, var tilboði hans
ekki sinnt, því að bónda þeim,
sem hann skrifaði, þótti annað
tilboð heppilegra og taldi auk
þess harla óeðlilegt, að maður í
slíkri opinberri leiðbeiningar-
stöðú notaði aðstöðu sína til slíkr-
ar verzlunar fyrir sjálfan sig. En
þess má geta, að hefðu vélarnar
í þessa rafstöð verið keyptar hjá
Bárði, mundi ágóði hans af söl-
unni samkvæmt yfirlýstri álagn-
ingu hans sjálfs, hafa numið 12—
15 þús. krónum.
Hræsjii á hástigi.
Bréf þetta er ófagur vitnis-
burður um þennan framámann
Þjóðvarnarliða. Hann er skjal-
lega uppvís að því samkvæmt
eiginrituðu bréfi að hafa reynt
að notfæra sér aðstöðu sína
sem opinber starfsmaður, ráð-
inn af ríkinu til að veita hlut-
lausar leiðbeiningar, til að
selja með drjúgum ágóðahlut í
eigin vasa vélar, sem hann
hefir sjálfur verzlunarumboð
fyrir.
Hann er uppvís að því að
hafa gegnt þessum verzlunar-
(Framhald á 7. síðu).
HITTI NAGLANN Á HÖFUÐIÐ.
Tólf ára snáði hlýddi á stjórn-
málaumræður fullorðna fólks-
ins og varð afa hans að orði,
að þessir svokölluðu Þjóð-
varnarmenn væru ekkert ann-
að en kommúnistar. „Já,“
greip strákur fram í, „komm-
únistar í þjóðbúningi“.
ÚR R7EÐUM ÞJÓÐVARN-
ARLIÐA.
Konunúnistablaðið segir svo
frá s. 1. föstudag, að þegar
agitatorar þjóðvarnarliða hitti
að máli liðsmenn konnnún-
ista, þá, sem ekki eru í þjóð-
búningi þjóðvarnar, taki þeir
svo til orða m. a.: „Okkar
framboð er til þess ætlað að
sundra Framsókn og íhaldinu,
því er síður en svo beitt gegn
sósíalistum (kommúnistum),
við þá og Alþýðuflokkinn vilj-
um við hafa samvinnu að
kosningum loknum “ Og
fordæmi til samvinnunnar
hafa þeir sbr. kosningarnar á
Alþingi 9. des. s. 1., er komm-
únistarnir í þjóðbúningunum
kusu með kommúnistunum í
kósakkabuxunum og hjálpuðu
þannig Kommúnistaflokknum
til að fá menn kjörna í nefnd-
ir, sem annars var útilokað.
Er lítill vafi, að þessi fyrir-
heitna samvinna er þegar ráð-
gerð, en á því máli sá eini
galli, að bæjarmenn eiga eftir
að segja síðasta orðið og æ
fleiri á þeirri skoðun, að
þjóðvarnarliðar eigi ekkert
crindi í bæjarstjórn enda muni
flokkur þeirra ganga saman í
kosningunni 31. janúar.
PEYSUMENN.
Það hefur vakið almenna
kátínu í bænum að sjá mál-
gagn forstjóraflokksins hér
hafa uppi tilburði til þess að
klæða frambjóðendur sína í
föt erfiðismanna og reyna að
fela raunveruleg störf þeirra
undir starfsheitum, sem þeir
sjálfir völdu sér þó ekki í
símaskránni þegar önnur sjón-
armið voru í huga. Þetta
minnir allt á lýðskrum komm-
únista, sem létu sig ekki muna
um að taka einn af bláða-
mönnum Þjóðviljans og færa
hann í duggarabandspeysu
heilmikla og birta mynd af
pilti til þess að sýna hvorum
megin hryggjar hann væri í
þjóðfélaginu. Og sömu ættar
er ákefð kratamálgagnsins hér
að forðast kenna sinn baráttu-
mann við titil, sem á honum er
í símaskránni af því að flokk-
urinn er ekki ósnortinn af því
lýðskrumi, sem í öllum þess-
um tilburðum gömlu nýsköp-
unarhersingarinnar felst. Þetta
varð allt saman heldur hjákát-
legt af því að þessir flokkar,
sem aldrei eru þó sammála um
neitt á yfirborðinu nú orðið,
ætluðu að gera sér mat úr því
að frambjóðendur á lista
Framsóknarmanna hér voru
kallaðir vinna þau störf, sem
þeim hefur verið trúað fyrir
og ekkert farið í felur með
það. En þetta vopn hefur snú-
ist í höndum þcirra, sem ætl-
uðu að beita því af vígfimi.
Málið er ómerkilegt í sjálfu
sér af því að hæfni manna til
þess að vinna opinber störf
fer ekki eftir því í hvaða þjóð-
félagsstöðu þeir standa, né
heldur eftir klæðaburði þeirra.
En svo litla trú hefur þessi
þrenning á dómgreind al-
mennings, en mikla trú á lýð-
skruminu, að þeir héldu í upp-
hafi að þessi peysumennska
mundi duga til áð lyfta þeirn
en fella aðra. Nú er málið orð-
ið opinbert lýðskrumsmál og
peysumennirnir að athlægi.
Það fer hverjum bezt að kann-
ast við stétt sína og stöðu,
jafnt í kosningum sem endra-
nær.
LÍTIL KVENHYLLI.
í ætt við peysumennskuna
er áróður kommúnista að til
standi fyrir þeirra tilverknað
að koma konu í bæjarstjórn.
Þar er ekkert nema sýndar-
mennska, verið að flagga
með hlutum, sem ekki eru til.
I síðustu bæjarstjórnarkosn-
ingum gátu kommúnistar trútt
um talað. Þá var kona í efsta
sæti þeirra. Þegar hún nú ekki
er í kjöri aftur, troða tveir
starfsmenn kommúnistafl.
sér í efstu sætin, en láta þriðja
sætið eftir húsmóður í bæn-
um, cr að sjálfsögðu hefur
enga möguleika til að ná kjöri.
Líklegast er að frúin verði 2.
varamaður flokksins. Komm-
únistar fóru hrakfarir miklar
í kosningunni hér í sumar og
misstu uppbótarþingmann-
inn, sem héðan var kallaður
að koma. Allt bendir til þess
að fylgishrunsskriðan sé
hvergi nærri öll og eftir muni
fara að þeir missi annan bæj-
arfulltrúa sinn. Fyrir þessa
framkomu munu kommúnist-
ar sízt njóta kvenhylli.
GÓÐ RÁÐLEGGING.
í blaði þjóðvarnarliða, því
síðasta, gefur einn „listamað-
ur“ þeirra, lesendum sínurn
og blaðsins eftirfarandi ráð-
leggingu: „Margir hverjir, því
miður, lesa og trúa á blöð
þess flokks, sem þeir fylgja.
Þetta er ákaflcga mikil villa
....“ Já, það er gott að hafa
höfuðið í lagi fyrir kosningar.
Barnavagn,
ódýr, til sölu.
Afgr. visar á.
Ungur maður,
reglusamur, óskar eftir at-
vinnu nú þegar. — Vanur
bilstjóri. —
ACsrr. vísar á.
&
I
I
I
I
I
I
I
I
Páll Magnuússon sextugur
15. janúar 1954
Heimar, sólir, himinsjóli,
hæstu verur, andar beztu,
græðir strendur, himinn, hauður,
liallir, meyjar, fjöll og dalir
greiði örlög-gullinþræði,
geymi fjör þitt, úti og heima,
beri hróður, birtu og gæði
og blessi þig á degi þessum.
Góðs þér, Páll, við óskum allir,
ætíð, Páll, þig góðvin köllum,
gleðjumst, Páll, að gamanspjalli,
gleðin, Páll, er fyrir öllu,
gott er, Páll, í hófi hollu,
lirós þitt, Páll, mun aldrei falla,
sit þú Páll, við sæmd til elli.
súptu, Páll, á vinafulli.
Baldur Eiríksson.
I
f
$