Dagur - 20.01.1954, Side 8

Dagur - 20.01.1954, Side 8
8 Bagijk Miðvikudaginn 20. janúar 1954 Hraðfrystihússmálið rætt í bæjarráði: Heppilegasl falið a5 ÚlgerSarfélag Akur- eyringa h.l. eigi húsið og starfræki það Ekki gert ráð fyrir að útgerð jörundar6 taki þátt í frystihússbyggingunni Eisenhower flytur þjóðþinginu skýrslu Nýlega flutti Eisenhower Bandaríkjaforseti þjóððþingi Bandaríkj- anna skýrslu um ástand og horfur í innanlandsmálum og á alþjóða- vettvangi. Vakti ræðan mikla athygli og fær lof í blöðum hins vest- ræna heims. Myndin er af forsetanum í ræðustól, í baksýn Nixon varaforseti t. v. og Martin þingforseti. Fjárhagsáætlun bæjarins afgreidd: Úfsvörin 8 miilj. 765 þús. kr. - 400 þús. kr. ián fil aðljúka sundhöll Á fundi bæjarráðs s. 1. fimmtu- dag var hraðfrystihússmálið tek- ið til umræðu og tók stjórn Út- gerðarfélags Akureyringa h.f. og forstjóri félagsins þátt í fundin- um. í fundargerð bæjarráðs segir svo frá málinu: Útgerðarfélagið byggi og starf- ræki. „Málið var talsvert rætt og komst fundurinn að þeirri niður- stöðu að heppilegast sé, að Út- gerðarfélag Akureyringa h.f. eigi frystihúsið og reki það fyrir eigin reikning, en gengur jafnframt út frá, að útgerðarmönnum sé gefinn kostur á að selja félaginu hráefni og að samningar þar að lútandi séu gerðir milli félagsins og Guð- mundar Jörundssonar útgerðarm. og annarra útgerðarmanna sem þess kunna að óska. Jakob Frí- mannsson óskaði bókað, að hann telji heppilegast að allir togarar bæjarins séu jafnir þátttakendur í frystihússbyggingunni." Útgerðarfélagið hefur ekki af- greitt málið. Stjórn Útgerðarfélags Akur- eyringa hefur ekki tekið endan- lega ákvörðun í málinu enda þótt talið sé að hún sé því fylgjandi að hefjast handa, enda hljóti félagið nægilegan stuðning frá bænum til fjáröflunar og aðra aðstoð, sem bærinn getur látið í té. Eins og málið liggur nú fyrir, má telja líklegt að ákveðið verði innan skamms að hefjast handa og að það verði Útgerðarfélag Akureyringa, sem hefur fram- kvæmdir með höndum en ekki hin togaraútgerðin í bænum hlut- fallslega til jafns við það enda þótt ýmsum virðist það eðlileg- asta lausnin. En eins og kemur fram í fundargerð bæjarráðs er talið að ekkert sé í vegi fyrir því að samningar takist um upplag hráefnis frá öðrum útgerðaraðil- x B-listinn í suraar efndu Framsóknar- félögin hér til happdrættis til þess að standa undir kostnaði við undirþúning alþingiskosn- inganna. Allmargir umboðs- menn þessa happdrættis hafa um í bænum og ætti sú hlið máls- ins þá að vera örugg enda gert ráð fyrir samningum um það. Vingjarnleg bók um r Island Skömmu fyrir jólin var mér send frá Osló bók, sem ber heitið „Med bestefar til Island“. Höfund- urinn er Sverre Halse, ferðalangur mikill, er ferðast hefur víða og jafnan skrifað bækur um viðkom- andi lönd. Hann mun hafa gert ferð sína til íslands sumarið 1952, og bók þessi fjallar um það ferða- lag. I formála ,sem höfundur skrif- ar við bókina, segir hann m. a.: „Fyrir flestum af oss eru ná grannalönd vor aðeins Svíþjóð og Danmörk. Við gleymum Finn- landi — nema þegar Ólympíu-' leikarnir eru háðir þar — og ís- landi. Við ættum þó að vita jafn mikið um ísland og við vitum um Svíþjóð og Danmörk. En — leggið höndina á hjartað — gerum við það?“ Bókin skiptist í 9 kafla og út úr hverri Iínu andar góðvild til ís- lands og Islendinga. Kaflarnir eru þessir: Með Dronningen i vik- ingenes kjölvand — Reykjavík, byen med de varme kjeldene — Þingvellir — Geysir — Hekla — Snorre Sturlason — Med kyst- baat fra Reykjavik til Nordlandet — Akureyri, hovedstaden paa Nordlandet — Med buss fra Akur- eyri til Reykjavik. Bókin er að mestu í samtals- formi, þar sem Pétur og afi hans tala við ferðafélaga og aðra kunn- ingja og fá hjá þeim fræðslu um land og þjóð. Með þessu móti er komið að ótrúlega miklum fróð- leik um land og þjóð, allt frá land- námsöld vorra daga. Þarna heldur maður á pennanum, sem auðsjáan- lega vill veg Islands sem mestan, en þó er nálega alls staðar sagt rétt frá. Eg minnist ekki að hafa lesið bók, sem öllu betur fullnægir þoim tilgangi að kynna land og þjóð frá fyrstu tíð. Þeir, sem lesa þessa bók heima í Noregi, vita ótrúlega mikið um land vort og þjóð á eftir, og það, sem meira er um vert: Með henni eru knýtt vin- áttubönd á milli þessara tveggja frændþjóða, svo hlýleg er hún og full af góðvild. Fjöldi mynda prýða bókina, og er hún öll hin smekklegasta og eigulegasta. Hannes J. Magnússon. enn ekki gert skil, en nú eru síðustu forvöð að gera það, því að dráttur fer fram strax upp úr mánaðamótum. Er frestur til þess að gera skil settur til 28. janúar. Norskur maður ráðinn héraðsdýralæknir Hingað er kominn norskur dýralæknir, Guðmund Knutsen að nafni, og er hann ráðinn hér um eins árs skeið sem héraðs- dýralæknir, í stað Guðbr. Hlíðar, en Sverrh’ Markússon, sem hef- ur gegnt hér störfum um sinn, er á förum héðan. Guðmund Knutsen er útskrifaður frá norsk- um dýralæknaháskóla og hefur síðan starfað um 1—IV2 árs skeið í Noregi. Hann er frá Asker í Noregi, ungur maður og mjög geðfelldur. Fyrsta skautamót vetrarins síðastliðinn sunnudag Þannig hefur viðrað hér í vet- ur, að það var fyrst s. 1. sunnu- dag, sem tök voru á að halda hér skautamót og fór það fram á flæðunum við Brunná hér sunn- an við bæinn. Skautafélag Akur- eyrar stóð fyrir mótinu. Úrslit urðu þessi: 500 m. hlaup: 1. Hjalti Þorsteinsson, á 51.9 sek., 2. Björn Baldursson, á 52.0 sek., 3. Óskar Ingimarsson, á 53.4 sek. — 5000 m. hlaup: 1. Björn Baldursson, á 11.01.5 mín., 2. Guðlaugur Bald- ursson, á 11.29.0 mín., 3. Jón D. Ármannsson, á 11.40.8 mín. 500 m. hlaup drengja, 14—16 ára: 1. Kristján Árnason, 62,5 sek., 2. Sigfús Erlingsson, 66.7 sek. 300 m. hlaup drengja innan 14 ára: 1. Gylfi Kristjánsson, 38.8 sek., 2. Bergur Erlingss., 57.5 sek. Hörmulegt slys varð hér í bæn- um um kl .3 í gær, er lítil telpa, Baldvina Sigríður Jónsdóttir, 3 ára, Aðalstræti 23, drukknaði við Leirugarðinn. Atvik voru þau, að litla telpan var, ásamt nokkrum öðrum börnum, að leik í fjörunni við Leirugarðinn. Fjara var á og hægt að ganga þurrum fótum að álnum, sem er austan við Leirugarðs- endann. Féll litla telpan í álinn. Börn, sem með henni voru, náðu ekki til hennar sökum dýpis fyrr en 12 ára piltur, Ágúst Karlsson, Litla-Garði, er var á skautum eigi langt frá, kom þarna að. Óð hann út í álinn eins djúpt og hann komst og tókst að ná í telpuna. Hóf hann þegar að reyna lífgun- artilraunir. Fullorðið fólk bar brátt að og var telpan flutt heim í hús og læknar kvaddir á stað- Bæjarstjórn afgreiddi fjárhags- áætlun bæjarins á fundi í gær og eru útsvörin nú áætluð kr. 8 millj. 765 þúsund, en voru áætl- uð rösklega 8,3 millj. í fyrra. Við aðra umræðu í gær voru breytingartill. bæjarráðs sam- þykktar, en þær voru: að gera ráð fyrir 400 þúsund kr. lántöku til að fullgera sundhöllina, hækka framlag til Leikfélagsins um 5 þús. kr. og ennfremur, samkv. tillögu nokkurra bæjarfulltrúa, að veita Golfklúbb Akureyrar 5 þús. kr. styrk. Greiddi atkvæði gegn fjárhags- áætluninni í heild! Þau tíðindi gerfðust á bæjar- stjórnarfundinum í gær að annar fulltrúi Alþýðuflokksins greiddi inn. Lífgunartilraunir þar og á spítalanum báru ekki árangur. Þorskverðið á að verða kr. 1,22 Á mánudagskvöld sl. tókst samkomulag í deilu sjómanna og útgerðarmanna, sem staðið hefur undanfarið og stöðvað sjósókn í verstöðvum sunnan- lands. Slóð deilan um fiskverð- ið, sem hefur verið kr. 1.05, en sjómenn kröfðust kr. 1.30. Varð samkomulag um 16,2% hækk- un, í kr. 1.22, ennfremur um hærri slysa- og dánarbætur sjómanna. Samkomulagið var undirritað með þeim fyrirvara, að félög sjómanna og útgerðar- manna. sem lilut eiga að máli, staðfesti samkomulagið. atkv. gegn fjárhagsáætluninni í heild við lokaafgreiðslu hennar, er slíkt harla nýstárlegt. Templarar á Akureyri minntust sjötíu ára afmælisins Eins og sagt hefui' verið frá hér í blaðinu, átti stúkan ísafold- Fjallkonan nr. 1 hér á Akureyri, og um leið Góðtemplarareglan á íslandi 70 ára afmæli sunnudag- inn 10 jan. s. 1. Var þess minnst af templurum hér í bæ og víða annars staðar á landinu. Hér á Akureyri var guðsþjónusta í Akureyrarkirkju kl. 2 síðd. og var hún helguð þessu afmæli. Séra Friðrik J. Rafnar vígslu- biskup predikaði. Klukkan 8.30 um kvöldið var afmælisins minnst í Varðborg, félagsheimili templara, og hófst afmælishófið með almennri kaffi- drykkju. Undir borðum voru flutt ávörp og minni, og jafn- framt fór fram mikill almennur söngur. Eiríkur Sigurðss. minnt- ist Góðtemplarareglunnar og 70 ára starfs hennar. Hannes J. Magnússon mælti fyrir minni ís- lands. Stefán Ágúst Kristjánsson flutti kvæði um Akureyri, og Heimir Hannesson talaði fyrir hönd unga fólksins. Þeir Rós- berg G. Snædal og Jón Kristins- son fluttu gamanþætti, en Jóhann Ögmundsson söng einsöng með aðstoð Áskels Jónssonar. Stúk- unni bárust allmörg heillaskeyti og 500 kr. gjöf frá Rósu Guð- jónsdóttur, gömlum félaga stúk- unnar. Þorsteinn M. Jónsson skólastjóri þakkaði fyrir hönd gestanna. Að lokum var dansað. Hóf þetta sátu um hundrað manns. Fresfur til að gera upp happ- dræffismiðana til 28. janúar Hörmulegt slys - lítil telpa drukknaði við Leirugarðinn í gær

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.