Dagur - 17.02.1954, Síða 1
ÐAGUR
kemur næst út á reglul.
útkomudegi, miðvikudag-
inn 24. febrúar.
ÁSKRIFTARSÍMI
blaðsins er 1166. Gerizt
áskrifendur!
XXXVU. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 17. febrúar 1954
10. tbl.
Penicillm-framleiðsla í Júgóslafíu
HeilbrigðisstofnUn Sameinuðu þjóðanna hefur aðstoðað júgóslafnesk
stjórnarvöld við að koma upp pencillin-verksmiðju í landinu,
skammt frá Belgrad. Verksmiðja þessi gegnir þýðingarmikiu hlut-
vefki í heilbrigðismálum landsins. Myndin sýnir júgóslafneskar
starfsstúlkur láta pencillin á glös í gerilsneyddu herbergi í verksm.
Lítil flugvél hefur þegar lent á vellinum og
hafið sig þaðau til flugs
í vetur hefur verið unnið að
því að yfirfara og hreinsa vélar
sanddælunnar, sem er afkasta-
mesta tækið við gerð nýja flug-
vallarins hér skammt frá bæn-
um.
Er ætlunin að hefja flugvallar-
gerðina að nýju eins snemma í
vor og tíð leyfir og er jafnvel bú-
izt við að það geti orðið seint í
næsta mánuði ef áframhald verð-
ur á því veðurfari, sem hér hefur
ríkt í vetur. Vegna þess hve tíð
hefur verið góð hefur verið hægt
að vinna með jarðýtu á flugvall-
arsvæðinu við skurðruðninga og
fleira.
Þá er ráðgert að hefja undir-
búning að nauðsynlegum bygg-
ingaframkvæmdum á vellinum,
en þar þurfa að koma flugskýli,
afgreiðsluhús, húsakynni fyrir
flugstjórn o. fl.
Stefnt er að því að flugvöllur-
inn verði nothæfur seint á þessu
:ári, a. m. k. fyrir minni flugvél-
ar. Ein lítil flugvél hefur þegar
setzt á völlinn og hafið sig þaðan
til flugs. Var það á sl. hausti, en
mikið vantar samt enn til þess að
flugvöllurinn verði almennt not-
hæfur.
Eins og áður er greint frá hér í
blaðinu, er nú ákveðið að koma
upp radartækjum á flugvellinum
hér og verða það fyrstu tækin,,
sem upp verða sett hér á landi
fyrir utan Keflavíkurflugvöll. Er
stefnt að því að gera þennan flug-
völl hér nyrðra sem allra bezt úr
garði og auka þannig öryggi
flugsins, sem er ómissandi þáttur
samgöngumála héraðsins.
Slysfarir. Það hörmulega slys
varð á Faxaflóa sl. fimmtudag, að
Jón Hermannsson, háseti á Sæ-
finni, féil fyrir borð og drukkn-
aði. Jón var um tvítugt, til heim-
ilis í Aðalstræti 54 hér í bæ.
llsljóri gekk 8 k
snarbr
Leifur Bjarnason fórst
í bílslysi í New York
Síðastl. föstudagsmorgun lenti
Leifur Bjamason, framkvæmda-
stjóri skrifstofu SÍS í New York,
í bílslysi. Slasaðist hann alvar-
lega, var fluttur í sjúkrahús, og
lézt þar samdægurs. Leifur
Bjarnason (Þorleifs Bjarnasonar
menntaskólakennara) hafði lengi
gegn't störfum fyrir SÍS, heima og
erlendis. Hann var ungur maður,
mjög vel kynntur og hinn bezti
drengur.
Enn tapar Alþýðu-
flokkurinn
Alþýðuflokkurinn hélt áfram
heljargöngu sinni í kosningunni
í Kópavogshreppi á sunnudaginn.
Hann tapaði þar sæti, sem hann
hafði, til Framsóknarflokksins,
sem hlaut nú í fyrsta sinh mann
kjörinn í Kópavogi. Sjálfstæðis-
flokkurinn hlaut og 1 mann kjör-
inn, en Finnbogi Rútur Valdi-
marsson og liðsmenn hans héldu
enn meirihluta sínum, fengu 3
menn. Það bar enn til tíðinda í
Kópavogi, að efsti maður á Al-
þýðuflokkslistanum var svo mjög:
strikaður út, að hann hefði ekki
náð kosning-u, þótt flokkurinn
hefði fengið fulltrúa í hrepps-
nefndinni. Af þeim 130 mönnum,
sem greiddu Alþýðufl. atkvæði í
kosningunum, breyttu 76 röð
manna á listanum!
iiiiiiniiiiiii
11111111111111111
Fnm-
sóknarfélaganna
Fyrir nokkrum dögum var drcgið í happdrætti Framsókn-
arfélaganna á Akureyri og í Eyjafjarðarsýslu hjá bæjarfóget-
anum á Akureyri, og komu þessi númer upp:
1. Nr. 2509 Far til Norðurlanda.
2. Nr. 1604 Hrærivél.
3. Nr. 1920 Flugfar Rvík—Akureyri.
4. Nr. 1314 Sjómannaúígáfan.
5. Nr. 505 Lamb afhent í sláturtið.
6. Nr. 948 Fornaldarsögur Norðurlanda.
7. Nr. 4242 Peningar 250 kr.
8. ’Nr. 4731 Peningar 250 kr.
Vinninganna, eða ávísana á þá, sé vitjað til Guðmundar
Blöndal, Sjöfn, Akureyri.
Stórfnrðulegt að meimiroir skyldu komast lífs
af, er stór vöruflutniiigabíll fauk út af veginmn
á máiiudagsmorguniim
f miili kl. 8 og 9 á mánudagsmorguninn varð bifreiðaslys í Gilja-
rertum á Öxnadalsheiði. Stór vöruflutningábíll héðan af Akureyri,
A—37, hlaðinn varningi til Reykjavíkur, fór út af veginum og hrap-
aði niður í gilið, um 60 metra leið, um klungur og urð allt að ánni,
sem rennur um gilbotninn.
11111 ■ 11 ■ 111 ■ i ■ 1111
Bíllinn brotnaði mjög mikið, en
mennirnir tveir, sem í honum
voru, komust lífs af.
Byijaveður á heiðimii.
Bifreiðin, eign Heildverzl. Val-
garðs Stefánssonar hér í bæ, lagði
af stað héðan um 7 leytið á mánu-
dagsmorguninn. Þór Arnason,
ungur maður úr Glerárþorpi, ók
bílnum, en farþegi var Stefán
Jónsson, Brekkugötu 12 hér í bæ,
19 ára piltur, er stundar háskóla-
nám í Reykjavík. Þetta er stór
yfirbyggð vöruflutningabifreið.
Voru keðjur á afturhjólum er lagt
var á Oxnadalsheiði, enda svell-
bunkar á veginum. A heiðinni var
mjög hvasst og gekk á með bylj-
um. Þegar bíllinn kom að Gilja-
reitum, var vegurinn svellaður,
og í sama mund skall á mjög
snörp vindhviða, sem svipti bíln-
um til á veginum svo að aftur-
hjólin fóru út af. Skipti engum
togum, að billinn endasteyptist
niður brekkuna og fór margar
veltur unz hann staðnæmdist á
eyri í gilbotninum og hafði þá
hrapað um 60 metra vegalengd,
yfir urð og kletta. Var bíllinn all-
ur mjög brotinn og lá brak úr hon-
um á stóru svæði umhverfis slys-
staðinn.
Þrekraun bílstjórans.
Furðulegt má kallast, að menn-
irnir í bílnum skyldu sleppa lif-
andi frá þessu. Bílstjórinn mun
ekki hafa misst meðvitund og
tókst honum að komast út úr brak-
inu og bjarga félaga sínum, sem
misst hafði meðvitund. Voru þeir
báðir mikið meiddir, Þór kjálka-
brotinn, mikið marinn og lemstr-
aður, og Stefán skaddaður á höfði
og marinn og blóðugur. Þór tókst
að koma Stefáni upp snarbratt
gilið og upp á þjóðveginn, en þar
varð hann að skilja hann eftir
meðan hann fór að sækja hjálp.
8 km. ganga.
Næsti bær við slysstaðinn er
Fremri-Kot og þangað er 8 km
vegalengd. Þór Arnason gekk
þessa leið á hálfum öðrum tíma
og var þá brugðið skjótt við að
sækja -hinn slasaða mann á þjóð-
veginum í Giljareitum, og ná til
lækna og hjúkrunarliðs hér á
Akureyri. Bóndinn á Fremri-Kot-
um, Gunnar Valdimarsson, ók
þegar í vörubíl á slysstaðinn og
fann Stefán þar og tókst honum
að koma homstn í bítinn og aka
heim að bænum. Var reynt að
hlynna að þeim félögum þar eft-
ir beztu getu, unz læknir og sjúkra-
bíll komu héðan frá Akureyri
nokkru eftir hádegið.
Eftir að læknirinn, Jóhann Þor-
kelsson héraðslæknir hér, hafði
veitt þeim þá aðhlynningu er unnt
var, voru þeir fluttir í sjúkrahúsið
hér og þar liggja þeir fólagar báð-
Þungt haldnir, en ekki í
iífshættu.
Þegar blaðið átti tal við yfir-
lækninn á sjúkrahúsinu hér síð-
degis í gær, sagði hann þá félaga
(Framhald á 8. síðu).
Skemmtisamkoma
F ramsóknarf élaganna
næstk. miðvikudag
Framsóknarfélögin hér á Ak-
ureyri efna til skemmtisamkomu
næstk. miðvikudagskvöld, að Hó-
tel KEA. Eru allir stuðningsmenn
B-listans í kosningunum í janúar
velkomnir á þessa skemmtun
meðan húsrúm leyfir. Verði að-
göngumiða verður stillt mjög í
hóf. Nánar verður auglýst um
fyrirkomulag skemmtunarinnar
síðar, en félögin beina því til fé-
lagsmanna sinna og annarra
stuðningsmanna B-listans, að
ráðstafa ekki þessu livöldi til
annars, heldur ráðgera nú að
sækja þessa skemmtun og stuðla
að því að hún verði sem fjölsótt-
ust og ánægjulegust.