Dagur - 17.02.1954, Blaðsíða 6
6
D A G U R
Miðvikudaginn 17. febrúar 1954
■ ' ■ ..........
ARSHATIÐ
Saumanámskeið
hefjast aftur í næstu viku.
Þær konur, sem hugsa sér
að taka þátt í þeim tali vin-
saml. við mig sem fyrst.
Jóhcmna Jóhannesdóttir.
Sími 1574.
Sjósfakkar
Nýjar tegundir.
Hood gúmmívettlingar
Vinnuvettlingar
Járn- og glervörudeild. •
Bækur til sölu
Búnaðarbl. Freyr, Gríma,
Dvöl, Nýjar kvöldvökur,
Ferðafélagsbækur o. fl.
Afgr. vísar á.
Járn- og glervörudeild.
Plast-herðatré
Járn og glervörudeild
Nýkomið:
Mikið lirval af þjzkum
vörum:
Kristall
P o s t u 1 í n
Mjög hentugt til tækifæris-
gjafa.
★
NÝKOMIÐ:
fílásið gler, svo sem:
r
Avaxtasett
Könnusett
margar teg.
Mjólkurkönnur
(ntargar stærðir)
Mjólkurglös
( á fæti)
Skálar
(margar stærðir)
*
Nú eru imti-blómalaukarnir
komnir:
Gloxiníur
Begoníur
°g
Gladíolus-laukar
Setjið sem fyrst í pottana,
því fyr koma þeir í blóma.
BLÓMABÚÐ KEA
Skemmtiklúbburinn Allir eitt.
Dansleikur í Alþýðuhúsinu
laugardaginn 20. þ. m. kl. 9
eftir hádegi.
Síðir kjólar. — Dökk föt.
Nokkrir miðar óseldir, afgr.
í Alþýðuhúsinu miðvikudag
ld. 9-10. e. h.
STJÓRNIN.
ÍBÚÐ
2 lierbergi og cldhús óskast
til leigu 14. maí.
Afgr. vísar á.
ÍBÚÐ
3—4 herbergi og eldhús
óskast til leigu nú þegar,
eða frá 14. maí.
Afgr. vísar á.
1-2 laghentar stúlkur
geta fengið atvinnu nú
þegar.
Dúkaverksmiðjan h.f.
Fjáreigendafélag
Akureyrar
heldur aðalfund sinn, sunnu-
daginn ,þ. 21. febrúar í Varð-
borg, ld. 13.30.
Dagskrá samkvæmt félags-
lögum.
STJÓRNIN.
Barnavagn til sölu
í Aðalstræti 80. Sími 1568.
Nylonsokkar
60, 51, og 30 lykkju
Silkisokkar, svartir
Ullarsokkar
Bómull-Perlonsokkar
Sportsokkar
Verzlunin DRÍFA
Sími 1521.
GOLFTREYJUR
stór númer.
POLO-peysur,
heilar, langerma.
Rauðar, hvítar, grænar, gráar,
svartar.
T elpu-golf trey jur
margar gerðir.
Verzlunin DRÍFA
Sími 1521.
Nýjar gerðir af
Ullar-Jersey húfum
Verzlunin DRÍFA
Sími 1521.
Skrautlinappar, kjóla-
og kápusþennur
í mildu úrvali.
Yfirtrekkjum hnappa og
spemmr.
Verzlunin DRÍFA
Sími 1521.
AÐALFUNDUR S.N.E.
verður haldinn aðííótel KEA fimtmudaginn 25. febrú-
ar næstk. og hefst kl. 10 árd. — Dagskrá samkvæmt
lögum sambandsins.
Akureyri, 15. febrúar 1954.
STJÓRNIN.
.'■.^r-L±'t-r^=-L...-------------?
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
2—3 stofur, óskast nálægt miðbænum.
Afgreiðslan vísar á.
Atvinna
Stúlka óskast nú þegar í Brauðgerð K. E. A. — Upp-
lýsingar í Brauðgerðinni.
^ ^
Eyfirzkir þættir
VILLA A TUNGNAHRYGGSJOKLI
Eftir MAGNÚS GUNNLAUGSSON
Vorið 1920, hinn 12. maí, laust
eftir miðjan dag, lagði ungur mað-
ur, Stefán Jóhannsson, upp frá
heimili sínu, Nunnuhóli í Hörgár-
dal.
Ferðinni var heitið vestur að
Hvammi í Hjaltadal, en þar bjó þá
Stefán Sigurgeirsson föðurbróðir
hans.
Hélt Stefán sem leið liggur fram
Hörgárdal og þaðan upp á Barkár-
dal, var ætlunin að fara svonefndan
Tungnahrygg, sem mun vera nyrzta
leið upp úr Hörgárdal er til Skaga-
fjarðar liggur.
Veður og færi var gott, stillt og
bjart í byggð, en lítil háttar þoku-
slæðingur á fjöllum.
Þegar hér var komið var orðið
áliðið kvelds, enda hafði Stefán að
yfirlögðu ráði farið seint af stað og
tekið það rólega fram dalinn, hugð-
ist hann hafa nætursvalann yfir
fjallið.
Ber nú ekkert til tíðinda fyrr en
hann kemur upp á jökulinn.
Skellur þá allt í einu yfir hann
svarta þoka, svo að lítt sá fyrir fæt-
ur sér.
Hann heldur þó hiklaust áfram
í öruggri von um að brátt muni
birta til aftur. Eigi hafði hann lengi
gengið, er hann verður þess var, að
hann er kominn á slóð sína og því
sýnilegt að hann hefur gengið í
hring. Hann reynir nú hiklaust
nýja leið, en það fer á sömu leið,
hann kemur á slóð sína aftur.
Þetta gerðist a. m. k. fimm sinn-
um, að hann reynir nýjar leiðir út
úr slóðinni, en kemur alltaf inn á
slóðina aftur. Stanzar hann nú og
hugsar ráð sitt. Naumast virtist sá
möguleiki fyrir hendi að finna hina
fyrstu slóð sína og hverfa til Hörg-
árdals aftur, enda mun það tæplega
hafa hvarflað að honum.
Hins vegar trúði Stefán því
naumast sjálfur að hann væri orð-
inn svo villtur, sem raun bar vitni
um og síðar verður að vikið. í þeirri
öruggu trú, að þetta hringsól á
jöklinum sé aðeins stúndar fyrirj^,%t^g^ ferðamann.
brigði, heldur hann enn af stað, og Er hann hefur legið þarna í fönn-
nú tekst svo giftusamlega að hann
kemur ekki á slóð sína aftur.
Allt í einu verður hann var við
það, sér til mikillar gleði, að farið
er að birta til. Þokan hefur orðið að
víkja fyrir ylgeislum morgunsólar-
innar, því að nú er kominn nýr
dagur.
Stefán hefur því verið villast
um jökulinn alla nóttina.
Og nú fer nýr, óvelkominn gest-
ur að láta til sín heyra, það er sult-
urinn. Stefán hefur ekki neytt mat-
ar frá því um miðjan dag daginn
áður. Hann hefur ekki verið svo for-
sjáll að hafa með sér matarbita,
enda ekki álitið þess neina þörf, er
hqnn fór að heiman.
Þrátt fyrir sult og þreytu, sem
nú er nokkuð farin að gera vart við
sig, er hann þó hinn hressasti.
Hyggst hann taka Kolbeinsdal í
næstu lotu.
Segir nú ekkert af ferð hans fyrr
en hann allt í einu tekur eftir því
að halla tekur mjög undan fæti, og
litlu síðar missir hann fótanna og
fellur fram af allháum skafli. Fallið
veldur þó ekki meiðslum, aðeins
lítils háttar óþægindum, er sam-
ræmast vel hinni vaxandi þreytu og
sulti, sem nú er farin að þjá hinn
inni um hríð og athugað umhverfið
verður hann þess var að nokkrir
klettar eru þarna, umhverfis hann
að kalla má. Undrast hann þetta
mjög, því að hann man ekki eftir
neinu slíku umhverfi í botni Kol-
beinsdals eða þar í grennd, þykist
samt viss um að vera í aðalatriðum
á réttri leið.
Síðar gizkuðu kunnugir á, þótt
aldrei væri það vitað með vissu, að
hengjubrúnin, sem Stefán féll fram
af rnyndi hafa verið á svokölluðum
Fremsta-Þverdal, sem er fremst í
austanverðri Skíðadalsafrétt.
Nú heldur hann ofan dalinn og
áleiðis heim til byggða. Segir nú
ekkert af honum fyrr en liann kem-
ur að Sveinsstöðum, sem þá voru
komnir í eyði og eru alllangt fram-
an við Krosshól, sem þá var fremsti
byggður bær í Skíðadal.
(Framhúsið á Sveinsstöðum stóð
þá uppi, allreisulegt, og var notað
senr gangnamannaskýli á haustin í
mörg ár.)
Stefán telur nú víst að hann sé
korninn að Fjalli í Kolbeinsdal og
ber að dyrum, en auðvitað svarar
enginn, og loks er hann hefur ár-
angurslaust knúð dyra nokkrum
sinnum heldur hann af stað og út
og upp til fjalls.
(Frámhald).