Dagur - 17.02.1954, Síða 8
8
Baguk
Miðvikudaginn 17. febrúar 1954
Þörf á aukinni þáffföku almenn
ings í skógrækfarsfarfinu
Frá aðalíumli Skógræktarfélags Akureyrar
síðast liðinn sunnudag
Fjórir verðlaunagripir gefnir KA
á 25 ára afmæii þess «
Myndin sýnir verðlaunagripi þá, sem velunnarar félagsins gáfu á
25 ára afmælishátíð þess sl. ár, til þess að glæða og efla áhuga
unglinga fyrir íþróttastarfsemi félagsins.
Skógræktarfélag Akureyrar
hélt aðalfund sinn 14. þ. m. í
Iþróttahúsi Akureyrar.
Formaður félagsins, Jakob Frí-
mannsson, kaupfélagsstjóri, flutti
skýrslu um störf félagsins á
liðnu ári. Hafði starfsemin verið
hin líflegasta og afköst mikil.
Starfið síðastliðið ár.
í landi félagsins, Kjarnaskógi,
var nokkuð unnið með jarðýtu
við að jafna til, ryðja veg og einn-
ig voru þar grafnir skurðir. Tíu
manna vinnunefnd starfaði undir
forustu varaformanns, Þorsteins
Þorsteinssonar. við að safna fólki:
til starfa við gróðursetningu og
bifreiðum til mannflutninga. —
Farnar voru 5 ferðir í Kjarna-
skóg og gróðursettar þar 12000
Enskur jazzsöngvari
skemmtir hér um
helgina
íþróttafélagið Þór efnir til
dansleikja að „Varðborg“ næstk.
laugardag og sunnudag, 20. og 21.
febrúar.
Að þessu sinni hefur félagið
fengið hingað enska jazzsöngvar-
ann og tenór-saxófónleikarann
A1 Timothy, sem vakið hefur
mikla athygli í Reykjavík að
undanförnu.
A1 Timothy hefur stjórnað
jazzhljómsveit í London um
nokkurt skeið og einnig leikið
með nokkrum þekktustu negr-
unum í enskum jazzi, svo sem
Lesli Hutchinson og Cab Kay,
sem báðir hafa leikið hér á landi.
Cab Kay á Akureyri í vetur.
A1 Timothy er mjög vinsæll
jazzsöngvari og ágætur sojcófón-
leikari. Hann leikur hinn gamla
góða swing-stíl og tekst bezt upp!
í hinum beztu jazzlögum. sem'
allir, er, einhver kynni hafa af
jazzi og nútíma dansmúsik, kann-
ast við. Hann var meðal annarra;
fenginn til að koma fram með
hljómsveit sína á hljómleikum er
hinn kunni ameríski jazzpíanó-
leikari Teddy Wilson hélt í Eng-
landi fyrir skömmu, og sögðu
sum blöðin að það hefði verið A1
Timothy, sem var ,,maður
kvöldsins“.
plöntur. Einnig var nokkuð unn-
ið í Akureyrarbrekkum og gróð-
ursettar þar 400 plöntur.
Skógræktarfélag Eyfirðinga
stofnaði til sameiginlegra vinnu-
ferða allra deilda félagsins til að
gróðursetja í reitum þess, Vaðla-
skógi, Leyningshólum og á Mið-
hálsstöðum og einnig var Skóg-
ræktarfélag Arnarneshr. heim-
sótt og gróðursett í skóglendi þess
að Hvammi. Þátttakendur í ferð-
um þessum voru alls um 200
manns frá Akureyri.
Talsverðar umræður urðu um
starfsemina á þessu nýbyrjaða
ári og þess getið að fleiri þyrftu
að ganga í félagið og að fleiri:
þyrfti að fá til starfa við gróður-
setningu.
Kosningar.
Samkv. lögum gengu úr stjórn
félagsins: Jakob Frímannsson,
Hannes J. Magnússon og Þorst.
Þorsteinsson. Jakob baðst undan
endurkjöri sökum anna við önn-
ur störf. Kjörnir voru: Þorsteinn
Þorsteinsson, Hannes J. Magnús-
son og Árni Bjarnarson. Stjórn
skipa: Form. Þorst. Þorsteins-
son, ritari Hannes J. Magnússon,
gjaldkeri Marteinn Sigurðsson,
varaform. Sigurður O. Björnsson
og meðstjórnendur: Eiríkur Stef-
ánsson, Finnur Árnason og Árni
Bjamarson.
Afspyrnurok af suðri gekk yfir
landið í gær, og var veðurhæð
mest laust fyrir hádegið. Sunn-
anlands var fárviðri hið mesta, og
hér eitt hið mesta hvassviðri, sem
hér hefur komið um langt skeið.
Á veðurmælinn hjá Lögreglu-
varðstofunni mældust ekki nema
9 vindstig, en vafalaust er að
uppi á brekkum og á Oddeyrar-
tanga var miklu hvassara. Sjór
gekk yfir bryggjurnar og upp á
Strandgötu, enda var Pollurinn
hvítur af særoki fram eftir degi.
Járnið fauk af Menntaskóla-
húsinu.
Hætt er við að skemmdir hafi
orðið af veðri þessu, þótt fregnir
hefðu ekki borizt af því síðdegis
í gær. Hér í bæ var ekki kunnugt
um aðrar skemmdir, svo að telj-
andi séu, en að járnplötur fuku af
þaki Menntaskólahússins. Sópaði
vindurinn járninu af hluta þaks-
ins á einni álmu hússins. Var um-
Æskulýðsmessur á
nokkrum stöðum á
Norðurlandi á sunnu-
daginn kemur
Fyrir nokkru ritaði séra Krist-
ján Róbertsson prestur á Siglu-
firði grein í Æskulýðsblaðið um
þá hugmynd, að kirkjurnar hefðu
einn sérstakan dag á ári hverju
er þær helguðu sérstaklega æsk-
unni. — Vonandi verður sú hug-
mynd einhvern tíma á næstunni
að veruleika. — í kirkjunum er
alltaf meira og minna starfað
fyrir unga fólkið, þó að ekki sé
um sameiginlegan dag að ræða.
Á sunnudaginn kemur má segja
að svolítil tilraun sé í þessa átt
hjá nokkrum prestum.
Þegar er vitað um, að æsku-
lýðsmessur verða á þessum stöð-
um:
Akureyri, Bólstaðarhlíð, Dal-
vík (Upsakirkju), Húsavík,
Ólafsfirði og Siglufirði.
Víðast hvar hefjast messurnar
kl. 2 eftir hádegi.
SíðaSt liðinn sUnnudag var sér-
stök messa fyrir ungt fólk í Ein-
arsstaðakirkju hjá séra Sigurði
á Grenjaðarstað og komu þar
nemendur Laugaskóla til kirkj-
unnar. — Þá hafði séra Benjamín
Kristjánsson messu í Grundar-
kirkju m. a. fyrir nemendur á
hússtjórnarskólanum að Lauga-
landi. —
Hér á Akureyri var um þetta
leyti í fyrra æskulýðsmessa fyrir
æskulýðsfélaga, skólafólk og alla
sem koma vildu. Var sú messa
fjölsótt. — Guðsþjónustan á
sunnudaginn mun fara fram á
svipaðan hátt.
ferð um Eyrarlandsveg hið næsta
skólahúsinu stöðvuð um skeið
vegna hættu frá fljúgandi járn-
plötum, en ekki varð tjón af þeim.
Kennsla féll niður í skólanum
eftir hádegi.
Munið eftir fuglunum
á tjörninni í Laugargili!
Nokkrir bæjarmenn hafa:
skýrt blaðinu frá því, að ekki,
sé það lag sem ætti að vera á;
hirðingu fuglanna á andatjörn-i
inni í Laugargili. Fuglarnir!
séu oft svangir og illa haldnir.
Fólk ætti að senda börn með
mat handa fuglunum og bæjar-
yfirvöldin verða að sjá til þess
að fuglunum sé gefið reglulega
eins og var hér á árum áður.
Annað er ekki sæmandi.
Efst stendur skíðabikarinn,
gefinn af Einari Kristjánssyni.
Til hægri er knattspyrnubikarinn,
gefinn af stofnendum K. A. Til
vinstri er sundbikarinn, gefinn af
Tómasi Steingrímssyni og neðst
fyrir miðju er frjálsíþróttabikar-
inn, gefinn af Gunnari Schram.
Allir þessir bikarar eru farand-
bikarar og verða veittir þeim
félagsmönnum, sem fram úr
skara í hverri grein íþróttanna,
en nánar er um það getið í
reglugerð, sem fylgir hverjum
bikar.
Arshátíð 13. marz.
Árshátíð félagsins verður hald-
in í síðara lagi nú á þessu ári
vegna ófyrirsjáanlegra orsaka,,
eða 13. marz næstk. Verður þar
margt til skemmtunar, og mun
það nánar auglýst síðar.
Á fimmtudaginn, þ. 25. febr., er
ákveðið að hefja dansnámskeið í
Varðborg. Á námskeiði þessu
verða kenndir bæði gömlu og
nýju dansarnir, og eru allir vel-
komnir. Kennarar í nýju döns-
unum verða Margrét Gunnars-
dóttir og Preben Skovsted.
Þeir, sem hug hefðu á að taka
þátt í þessu námskeiði, skrifi sig
á lista, er liggur frammi í Bóka-
verzlun Axels Kristjánssonar h.f.,
fyrir þriðjudaginn þ. 23. febr.
Leikstofur í Varðborg.
Miðvikudaginn 17. febrúar, eða
í dag, verða leikstofur templara í
Varðborg opnar fyri-r félaga K. A.
og síðan annan hvern miðvikudag
fyrst um sinn. Nýir félagar geta
Stýrimaður á Bláfelli
bráðkvaddur hér
Flutningaskipið Bláfell lá hér
við bryggju um sl. helgi. Á mánu-
dagsmorguninn varð stýrimaður
skipsins, sænskur maður nokkuð
við aldur, bráðkvaddur um borð
í skipinu. Var lík hans flutt í
sjúkrahúsið hér til rannsóknar.
látið innrita sig í félagið á staðn-
um, ef þeir óska. Börn fá aðgang
kl. 6—8 e .h., eldri félagar kl. 8—
10% e. h. — Til skemmtunar
verður: Billiard, borðtennis, bob,
kvikmyndir og gnægð af góðum
bókum. Teflt verður fjöltefli af
þeim Halldóri Helgasyni og
Snorra Rögnvaldssyni.
Síðast, er leikstofurnar voru
opnar, var teflt fjöltefli á 15 borð-
um, og ríkti almenn ánægja með-
al keppenda. Það er fullt útlit
fyrir mikilli þátttöku í kvöld, svo
að þörf er á að væntanlegir þátt-
takendur komi með töfl með sér.
Fjölteflið hefst kl. 8 e. h. — Að-
gangur að leikstofunum er ó-
keypis.
Athygli félagsmanna skal vakin
á því, að þarna á staðnum geta
þeir fengið K. A.-merki og frjáls-
íþróttaboli. — Ennfremur liggur
þar frammi afmælisrit félagsins,
sem allir félagar verða að eignast.
- Slysið í Giljareitom
(Framhald af 1. síðu).
allþungt haldna, en ekki í lífs-
hættu. Þeir eru báðir mikið marð-
ir og lemstraðir, Þór kjálkabrotinn
en meiðsli þeirra að öðru leyti
ekki fullkönnuð. Það er ljóst af
þessari lýsingu, að það hefur ver-
ið hið mesta þrekvirki, er Þór
Árnason hefur innt af hendi, er
hann gekk 8 km vegalengd til
bæja eftir slysið, eftir að hafa
komið félaga sínum upp á vegar-
brúnina, úr bílnum í gilinu.
Sjónarvottar, er séð hafa vegs-
ummerki þarna, telja alveg furðu
legt, að mennirnir skyldu komast
lífs af, svo bratt og ilflært sem
gilið er þarna. Munu og allir, sem
ekið hafa um Öxnadalsheiði,
kannast við Giljareit, er þótti hér
fyrr á árum eitt glæfralegasta
vegarstæði hér nyrðra, en þar er
nú kominn ágætur vegur. Slys
mun ekki hafa komið fyrir á þess-
um vegarspotta áður.
Afspyrnurok af suðri gekk yfir
landið í gærmorgun
Járnplötur fuku af þaki Menntaskólans