Dagur - 03.03.1954, Síða 2

Dagur - 03.03.1954, Síða 2
2 D A G U R Miðvikudaginn 3. marz 1954 AEdrei hafa verið betri barna- skólar á Islandi en nú í dag Ræíí við Snorra Sigfússon námssíjóra, sem að undan- förnu hefur verið á ferðalagi um Norðlendingafjórðung Snorri Sigfússon námsstjóri í Norðlendingafjórðungi hefur að undanförnu verið á ferðalagi um fjórðunginn. Hefur hann heimsótt skóia og haldið íundi og flutt crindi. Hefur hann talað á 21 stað að undanförnu og hefur víðast verið góð aðsókn að erindum hans, Dagskrármál landbímaðarins: Ræktun Iiolclanautgripa í Svíþjóð Eftir ÁRNA JÓNSSON, tilraunastjóra sums staðar ágæt. Dagur kom nú fyrir fáum dög- um að máli við námsstjórann, sem þá var að koma með „Drang“ frá Ólafsfirði og spurði hann frétta af starfi hans og ferðum. — Það er ekki annað en gott að frétta, sagði hann, enda ekki amalegt að ferðast í slíku tíðar- fari, sem verið hefur í vetur. Þetta hefur verið sannkölluð sumartíð. Mér hefur líka fundist liggja vel á fólki og þá er líka ánægjulegt að hitta menn að máli. Eg hef farið allvíða í vetur og heimsótt fjölda skóla. Sumir spyrja, hvernig gangi í skólunum, hvort börnin læri nokkuð, hvort allt sé ekki miklu lakara en áður var o. s. frv. Það yrði of langt mál að svara slíkum spurningum til fulls að þessu sinni, en yfirleitt má fullyrða, að í skólunum gangi starfið vel og betur en áður á marga lund. Það hafa aldrgi ver- ið betri barnaskólar á íslandi en nú. Hitt er svo annað mál, aö þeir þurfa að verða miklu betri. Og það munu þeir líka verða. Eg er líka stundum spurður að því, hvort nokkurt gagn sé að þessum flækingi okkar námsstjóranna. Eg vil svara þvi með annarri spurningu: Mundi nokkur heil- vita maður, sem hefði hundruð mánna í þjónustu sinni, við vandasöm störf, láta þá eflirlits- og afskiptalausa? Líklegra er, að hann vildi hnýsast í störf þeirra, leiðbeina þeim og örva þá til dáða. Þú hefur víða farið í vetur? Fyrir jól fór eg um norðaustur- hluta eftirlitssvæðisins, í janúar um Skagafjörð, Siglufjörð og Suður-Þingeyjarsýslu og nú síð- ast Ólafsfjörð. Hef eg komið í flesta skóla á þessu svæöi og rætt við börnin og kennarana og skólanefndirnar. Auk þess hef eg flutt erindi, og fleiri nú en áður. Fyrir nokkrum árum óskaði kvenfélagasambandið í Skaga- firði eftir að eg flytti erindi í sambandi við heimsóknir mínar til skólanna, en af því gat þá ekki orðið, m. a. vegna sam- gönguerfiðleika og snjóa. En nú var ekkert slíkt til fyrirstöðu og því hóf eg flutning erinda á skólastöðunum í flestum hrepp- um Skagafjarðar og á Sauðár- króki. Ennfremur talaði eg á hús- mæðraskólanum á Löngumýri og í gagnfræðaskólanum á Sauðár- króki. En hefurðu ekki flutt erindi í iíðrum héruðum? í Siglufirði og í Ólafsfirði flutti eg erindi fyrir foreldra barna- skólabarna, ennfremur talaði eg í gagnfræðaskólanum í Siglufirði. í Suður-Þingeyjarsýslu flutti eg erindi í sumum hreppum og líka í Húsavík og í alþýðuskólanum og húsmæðraskólanum á Laug- úm. Efni crindanna? Eg hef reynt að miðla fróðleik sem eg hef aflað mér með lestri, íhugún og starfi á þessum vett- vangi í hartnær hálfa öld, og eg hef bent á ýmislegt, sem eg tel mikilsvert í fari heimilis og skóla. Þetta eru þá líka eins konar kveðjuorð og lokaorð af minni hálfu, því að nú læt eg af störf- um í sumar, sagði námsstjórinn að lokum. Runólfur Sveinsson fyrrum skólasjóri Búnaðarskól- ans á Hvánneyri, lézt af slysför- um fimmtudaginn 4. febrúar. — Runólfur var Skaftfellingur að ætt, sonur hjónanna Sveins Sveinssonar og Jóhönnu Mar- grétar ,er um eitt skeið bjuggu að Ásum í Skaftártungu. Hann stundaði fyrst nám í Bændaskól- anum að Hvanneyri, síðan fór hann í Samvinnuskólann í Reykjavík, en að því búnu sígldi hann til búnaðarnáms og lauk kandídatsprófi frá Landbúnaðar- háskólanum í Höfn. Þegar hér var komið hafði Runólfur þegar áunnið sér mik- ið álit, þótt ungur væri og var hann þegar, að háskólanámi loknu, settur skólastjóri að Hvanneyri og skjpaður í þá virðulegu stöðu litlu síðar. Allmörg undanfarin ár var hann sandgræðslustjóri að Gunn- arsholti. Runólfur Sveinsson var mikill atorkumaður og mikið glæsi- menni. Sem skólastjóri var hann virtur af samstarfsmönnum sín- um og dáður af nemendum. — Hvarvetna þar sem Runólfur kom að starfi flutti hann með sér bjartsýni og eldmóð. Athafnaþrá- in virtist honum í blóð borin og það var vissulega mikils virði fyrir landbúnaðinn, að hann átti hug hans allan og á þeim vett- vangi voru miklar vonir tengdar við hinn glæsilega og djarfa mann. Hann varð aðeins 45 ára að aldri. Runólfur var giftur Valgerði Halldórsdóttur frá Hvanneyri, ágætri konu. Hún var um eitt skeið forstöðukcna Húsmæðra- skólans á Laugalandi og er Ey- firðingum að góðu kunn. Molotoff - áætlunin. „Molotoff-áætlunin mundi opna Evrópu fyrir pólitískri, réttar- farslegri og hernaðarlegri innrás frá Moskvu. Án nokkurs efa er, að „samevrópskt öryggi“ — svo að rússneskt orðalag sé notað, — mundi verða raunveruleiki með framkvæmd Molotoff-áætlunar- innar. Þar mundi verða öryggi dádýrsins í maga ljónsins.“ Úr „II Popolo“ Róma- borg, en það blað er aðalmálgagn stjórnar- flokksins, Kristilegra demokrata. Lýðræðislegt stjórnarfar. „Þingræðið í Frakklandi er, sem betur fer, ekki í yfirvofandi hættu. Ognun frá einhvers konar fasisma er ekki eins nálæg og var á árunum fyrir styrjöldina þegar hver þjóðin af annarri á megin- landi Evrópu virtist glata tilfinn- ingunni fyrir gildi frelsisins. Og kommúnistískt eða hálfkommún- istískt einræði mundi, í hvaða vestrænu lýðræðisríki sem væri, ekki komast á laggirnar nema kostaði þriðju heimsstyrjöldina. Hið lýðræðislega stjórnarkerfi er sterkt, hvar sem litið er. í Frakk- landi er það ekki á undanhaldi. L ý ð ú æ ðisstjórnarfyrirkomulag Frakklands þarf ekki að eiga í höggi við hættulega andstæðinga á þessu ári. En veikleiki og fram- kvæmdaleysi andstæðinga lýð- ræðisins gefur því sjálfu ekki styrk. Nú höfum við hlé til und- irbúnings. En ef ríkisstjórnin not- færir'sér ekki þetta hlé til þess að koma réttarbótum, í framkvæmd, má búast við því að til tíðinda dragi áður en langt um líður.“ Úr „Figaro“, París. Bérlínarfundurinn. „Á Berlínarfundinum hafa menn verið að snúast í kringum sjálfa sig. Hið mikla djúp í milli hugmynda Vesturlandanna og Rússa um Þýzkaland hefur orðið til þess að vestrænu ráðherrarnir hafa verið að líta til Austurríkis og Indó-Kína, sem líklegra leiða til þess að komast eitthvað áleið- is. Molotoff hefur upplýst, að brotthvarf úr hersetnu löndun- um í Evi'ópu verður annað tveggja að vera allt eða ekkert. Hvort sem friðarsamningar verða gerðir eða ekki, er ljóst, að sovét- herir fara ekki úr Austurríki (sem mundi samningslega einnig þýða bi’otthvarf úr Ungverja- landi og Rúmeníu) meðan vest- rænir herir dvelja í Vestur- Þýzkalandi og Trieste. Sannleik- urinn er, að það er í Þýzkalandi sem Sovétríkin óttast að veru- lega geti skipt um í valdaaðstöð- unni og þeim í óhag. Megintil- gangur Rússa að koma á Berlín- arfundinum var að reyna að spilla endurvopnun Þýzkalands innan vestræns bandalags. Og á þessu sviði komust aðilar aldrei neitt nærri samkomulagi." „Observer“, London. í sænska búnaðarblaðinu Lantmannen, hafa nokkrum sinnum verið greinar sl. ár, um i’æktun holdanautgripa í Svíþjóð. Vei’ður hér á eftir vikið að nokkrum greinum þessum. Mjólkurkúm fækkar í Svíþjóð. Ef litið er á kúastofn Svía undan- fai’in 20 ár, kemur í ljós að frá 1932 til 1941 var kúafjöldi mjög líkui-, eða um 1,9 milljónir mjólkurkýr, en 1952 eru þær 1,55 milljónir. Ár Fjöldi mjólkurk. Mjólk til mjólkursaml. 1932 1,92 millj. 1937 1,92 millj. 2600 millj. kíló 1947 1,81 millj. 1951 1,55 millj. 3900 millj. klíó 1952 1,55 millj. 3600 millj. kíló Sé miðað við mjólkurmagn til mjólkui’búa árið 1937 og árið 1952 sézt að innlögð mjólk eftir hverja kú hefur aukizt mjög mikið á þessum ái'um. Fækkun mjólk- urkúnna hefur sampart oi'ðið til þess að lélegri kúnum hefur ver- ið slátrað og sumpart af bættri fóðrun og auk þess hafa kynbæt- ur oi'kað einhvers. —o— Aukinn áhugi fyrir ræktun holdnautgripa. Ein meginoi'sök til þess að sænskir bændur hafa fækkað verulega mjólkurkúm að undanförnu, er talin vaxandi áhugi þeiri-a fyrir ræktun holda- nautgx-ipa og að áliti margra landbúnaðax-manna er framleiðsla af nautgripakjöti arðvænlegri at- vinnuvegur en mjólkurfram- leiðsla. Ymsar ástæður ei'U taldar til þess að áhugi sænskra bænda er nú meii'i fyrir holdanautgrip- um en vei'ið hefur, en þó mun þar mestu um ráða tvö atriði, annars vegar byggingakostnaður og hins vegar vinnukostnaður. —o— Iloldanautgripir þrífast í ódýr- um byggingum. Byggingakostn- aður hefur aukizt mjög mikið í Svíþjóð undanfarin ár og er hann fjötur um fót margra bænda sem þurfa að endurbyggja eða reisa nýjar byggingar fyrir búfénað. Mjólkurkýr þurfa yfirleitt vand- aðar byggingar til þess að þær sýni fullt gagn og þar með dýrar byggingar, sem síðar hafa í för með sér afborganir og vexti af háum lánsupphæðum, sem gleypa síðan vei'ulegan hluta af ax'ði angi-að, lokað og hlýtt að vetrin- dýru byggingum. Foi’svarsmenn ræktunar holdanautgi'ipa halda því hinsvegar fram að engin ástæða sé til þess að hafa dýrar byggingar fyrir þetta búfé og er vitnað.í því sambandi til tilrauna, sem gei'ðai' hafa verið á vegum sænska i'íkisins. þar sem tilraun- irnar voi'u gei'ðar í sumarfjósi, sem var einfalt og opið allt árið um kring og gátu gripirnir gengr íð út og inn vetur sem sumár, Til samanburðar var svo haft mjólkui'kúafjós — vandað, ein- angrað, lokað og hlýtt að vetrin- um, eða svo lengi sem innistað- an var. Þessi samanburður sýndi að vöxtur þeiri'a gripa, sem voru í sumarfjósinu var heldur meiri en þeirra, sem voi'u í hlýju og vönduðu fjósi um vetui'inn mið- að við fóður eftir þöi'fum. —o— Vinnukostnaður við hirðingu lítill. Nokkur samanburður hefur verið gerður á því hversu marg- ar vinnustundir á ári þurfi í hiiðingu á mjólkui’kú og naut- gripa til kjötframleiðslu. í því sambandi eru nefndar tölur eins og að mjólkurkýr kosti 150 vinnustundir á ári en holdanaut- gripur 30 (Robertson og Woods). Aðrir nefna 160 klst. á mjólkurkú og 25 klst. (Hare) á holdagrip. En hvað sem þessum tölum líður má ætla að við sæmiieg skilyrði megi hirða 5 holdanautgi-ipi á sama tíma og 1 mjólkurkú. Vinnukostnaður í báðum tilfell- um fer að sjálfsögðu mjög eftir aðstöðu, bæði hvað snei'tir fyrir- komulag bygginga og alla vinnu- tilhögun. Auk þess hefur stæi’ð búsins mikið að segja sérstaklega í sambandi við holdanautgripina. Amei’ískar athuganir sýna, að hægt er jafnvel að komast niður í 15—20 áx-s tíma á holdagrip við hagstæð skilyrði á stórum búum. Hreinræktun holdakynja. Sví- ar eru með flestar tegundir holdanautgripa og flytja inn ár- lega gi'ipi einkum frá Skotlandi. Aberdeen-Angus kynið er all- mikið notað, en það er ættað frá Austur-Skotlandi, úr fx’emur köldum, rökum og hrjóstrugum héruðum. Er þetta kyn talið eitt- hvert bezta kjötkyn í heimi. Slát- urþungi þess er einnig mjög mik- ill. Ilereford-kynið er nokkru stæiTa en Aberdeen-Angus, en kjötgæði þess þykja ekki jafnast á við Abei'deen-Angus. Auk þessai-a Ixynja eru möi'g fleiri eins og Galloway og stutthyrn- ingar o. fl. Einblendingsrækt af holdakyni og mjólkurkyni. Margir sænskir bændur hafa hvort tveggja í senn, mjólkurframleiðslu og nauta- kjötsframleiðslu. Nautakjöts- framleiðsla, sem byggist á ein- blendingsi'æktun á sér marga foi'mælendui’. Er þá venjan að mjólkurkýr af mjólkui'kyni eru látnar fá við nauti af holdakyni, en kálfarnir síðan aldir upp til slátrunar eins og venja er með hreinræktuð holdakyn, þ. e. a. s. til D/2 til 2V2 árs. Meginkosturinn við þessa fi'amleiðsluaðferð er talinn sá, að ekki þui'fi að reikna fóður kálfamóðurinnar til út- gjalda við kjötframleiðsluna, því að kýrin sé eftir sem áður mjólk- urkýr og uppeldisfóður liennar sé vegna mjólkui'framleiðslunnai'. (Framhald á 11. síðu;.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.