Dagur - 28.07.1954, Side 8
S
Bagur
Miðvikudaginn 28. júlí 1954
Skorinorðar samþykktir norðlenzkra kvenna
í deilumálum dagsins
Vilja Húsmæðrakennaraskólann til Akureyrar -
„Niðurlæging fyrir konuna að vera leidd fram til sýn-
ingar og mats eins og ambáttir fyrri daga" - Vilja
lækka verð á mafvælum, fremur en að safna þeim
saman, unz þau skemmast eða eyðileggjast
Fundur Sambands norðlenzkra kvenna, er haldinn var hér
í bænum í byrjun þessa mánaðar, svo sem áður hefur verið
getið hér í blaðinu, — var allfjölsóttur og gerði ýmsar álykt-
anir, er sumar hverjar snerta ýmis allviðkvæm dægurmál, og
sýna samþykktir þessar — er birtar verða hér á eftir — að full-
trúar kvenþjóðarinnar hafa engan veginn hikað við að taka
eindregna afstöðu til slíkra mála, hvort sem einum eða öðr-
um kynni að líka betur eða ver.
18ára einangrun meðal villimanna
í fenjaskógum Áfríku
Brezkir veiðimenn á þyrilvængju finna þrjá
Þjóðverja, er einir sluppu lifandi úr flugslysi
yfir Kongó 1936
Þýzk blöð segja frá því, að þrír Þjóðverjar — einn karlmað-
ur og tvær stúlkur — hafi nýskeð bjargast með ævintýralegum
hætti, eftir að hafa lifað 18 ár í haldi hjá innfæddum niönn-
um í fenjaskógi Kongólandanna.
1. Fundur Samb. norðlenzkra
kvenna, haldinn á Akureyri dag-
ana 1.—4. júlí 1954, harmar það,
að felld skyldi vera á Alþingi til-
laga um að Húsmæðrakennara-
skóli íslands yrði fluttur og fengi
aðsetur í Húsmæðraskóla
Akureyrar. Þar eð kunnugt er, að
Húsmæðrakennaraskóli íslands
er enn húsnæðislaus, endurtekur
S. N. K. tillögu sína frá fyrra ári
og skorar á ríkisstjórnina að láta
hana koma til fx-amkvæmda þeg-
ar á þessu hausti, með því að
ákveða skólanum stað í Hús-
mæðraskóla Akureyrar.
2. Fundur Sambands norð-
lenzkra kvenna, haldinn á Akur-
eyri dagana 1.—4. júlí 1954,
átelur hai’ðlega þann ósið og eft-
iröpun á erlendum háttum, sem
fram hefur komið í því að taka
upp fegurðarsamkeppni meðal
ungx-a stúlkna hérlendis. Lítur
fundurinn svo á, að ekki beri að
verðlauna meðfædda fegurð,
heldur það eitt, sem áxmnizt hefur
fyrir ástundun, þjálfun og dyggð.
— Ennfi-emur telur fundurinn, að
það sé niðurlæging fyrir konuna
að vera leidd fram til sýningar og
mats eins og ambáttir þrælasölu
fyrri daga. Skorar fundurinn á
allar íslenzkar ungar stúlkur að
neita með öllu að taka þátt í slík-
um skrípaleik.
3. Fundur S. N. K., haldinn á
Akureyri dagana 1.—4. júlí 1954,
Hnúðormasýktar
kartöílur á Ilrafnagili
Finnur Árnason, garðyi’kju-
ráðunautur fann hnúðorma í kar-
töflugarði á Hrafnagili um helg-
ina.
Garður sá, er sjúkdómsins varð
vart í, er gamall laugai’garður.
Ingólfur Davíðsson, jurtasjúk-
dómafræðingur, sem var hér á
ferð, staðfesti sjúkdómsgreining-
una.
Þykja að vonum ill tíðindi, að
hnúðormurinn skuli vera kominn
hingað norður. Að sjálfsögðu
verður gamli laugai’garðurinn
gerður óskaðlegur, með því að
þekja hann eða á annan hátt, eftir
því sem við þykir eiga.
mótmælir þeirri stefnu, sem all-
mikið hefur borið á hérlendis
síðastliðin ár, að láta matvæli
safnast fyrir, eyðileggjast eða
skemmast, fremur en að lækka
verð þeirra. Fundurinn lítur svo
á, að aukin sala myndi bæta upp
lækkað verð, og skorar því á
Framleiðsluráð landbúnaðarins
Einn kennai’i sumarskólans
nýja að Löngumýri í Skagafirði,
Guðmundur Matthíasson, söng-
kennai’i, var á ferð hér í bænum
um síðustu helgi. Hafði Dagur tal
af honum og spurði m. a. frétta af
skólahaldinu, en þeirrar hug-
myndar, að halda skóla að sum-
arlagi fyrir ungar stúlkur í
húsakynnum Húsmæðraskólans
að Löngumýri í Skagafix’ði, hef-
ur áður verið getið hér í blaðinu
og víðar.
Guðmundur lagði áherzlu á
það, að hér væri um fyrstu til-
raun að ræða ,og auk þess enn
skammt liðið af skólatímanum,
svo að of snemmt sé að fullyrða
nokkuð ixm það ,hvernig þessi
hugmynd gefist í framkvæmd. En
sú raun, sem þegar er fengin af
Síldveiði inni á Akur-
eyrarpolli
Blaðið „Alþýðumaðurinn", er
út kom í gær, skýrir svo frá, að
undanfarna 4—5 daga hafi Karl
Friðriksson útgerðarmaður í
Glerárþorpi, haldið litlum vélbát
til síldveiða á Akureyrarpolli og
í Oddeyrarál. Er báturinn búinn
hi’ingnót. Hafði Karl. sl. sunnu-
dag fengið 200 mál síldar,, sem
farið hafa í bræðslu í Krossa-
nesi. — Síldin er stór smásíld eða
millisíld. — Ekkert af síld þessari
hefur verið tekið til niðursuðu,
því að hún mun þykja of stór til
þeirra hluta.
og neytendasamtökin í landinu að
koma sér saman um skynsamleg-
ar leiðir til úi’bóta í þessum efn-
um.
4. Fundur S. N. K., haldinn á
Akureyri dagana 1.—4. júlí 1954,
lýsir ánægju sinni yfir hinum
ágætu útvarpserindum Gísla al-
þingismanns Jónssonar og flytur
honum fyllstu þakkh’ fyrir. —
Jafnframt skoi’ar fixndurinn á
ríkisstjói’nina að hrinda hið allra
fyrsta í fi’amkvæmd tillögum al-
þingismannsins um stofnun skóla
heimilis fyi’ir ungar, afvegaleidd-
ar stúlkur, og telur vel til fallið
að tekið verði í því skyni eitt-
hvað af þeim húsakosti á vegum
ríkisins, sem stendur ónotaður
eða lítt notaðin- víðs vegar um
landið,
5. Fundur S. N. K., haldinn á
Akureyri dagana 1.—4. júlí 1954,
skorar á Alþingi og ríkisstjórn að
koma hið allra fyrsta upp rann-
sóknai-stofnun og heilsúhæli fyrir
drykkjusjúklinga.
6. Fundur S. N. K., haldinn á
Akureyri dagana 1.—4. júlí 1954,
skox-ar á kvenfélögin að gangast
(Framhald á 7. síðu).
þessai’i starfsemi, er góð og hvet-
ur til bjartsýni og áframhalds.
Um 20 ungar stúlkur á aldrinum
13 til 19 ára eru þarna í sumar-
dvöl og stunda þar nám, þótt
með nokkru fi’jálslegra hætti sé
en í venjulegum skólum og
námsefnaval annað, t. d. er þar
mikið um útivist, íþróttir, sxrnd,
þjóðdansa og aðra slíka stai’f-
semi, sem síður er á færi venju-
legra skóla að sinna, þótt ekki
væi'i nema vegna þess eins, að
þeir stai’fa á annarri árstíð. Virð-
ast þær una þar pi’ýðilega hag
(Framhald á 7. síðu).
Þór fer til Borgar-
fjarðar um verzlunar-
mamiahelgina
íþróttafélagið Þór efnir til
skemmtiferðar um verzlunar-
mannahelgina eins og sl. ár. —
Að þessu sinni er föi’inni heitið
til Boi-gai’fjarðar. Lagt verður af
stað kl. 1 e. h. á laugardag og ekið
til Hreðavatns. Á sunnudaginn
verður farið til Reykholts og á
Akranes, en komið heim aftur
hingað til Akureyrar á mánu-
dagskvöld. — Væntanlegir þátt-
takendur snúi sér til Ferðaskrif-
stofunnar hér og nauðsynlegt er,
að fólk ákveði sig sem fyrst, þar
sem erfitt er um útvegun farar-
tækja.
22. júní ái’ið 1936 fórst þýzk
áætlunai’flugvél, sem var á leið
til Höfðaborgar. Slysið gerðist
yfir þeim hluta Kongósvæðisins,
sem Belgíumenn ráða yfir, og tal-
ið hefur verið fram að þessu, að
öll áhöfnin og farþegai-nir — 22
manns alls — hafi íarizt. Nú er
það hins vegar komið upp úr
dúrnum — eftir því, sem blaðinu
„Frankfurter Rundschau" og
fleiri þýzkum blöðum segist frá,
að flugþernan, Helde Feldkamp
(sem vax-ð 53 ára gömul í þessum
mánuði), læknirinn Dr. Elsa
Henzel og verkfi'æðingur nokkur,
Gunter Dahlke að nafni, hafa
komizt lífs af, þótt ekkert hafi til
þeirra spurzt öll þessi 18 ár, fyrr
en nú.
„Send af himni“.
Þremenningarnir liggja ,nú á
sjúkrahúsi í bænum Stanleyville
í belgisku Kongó, og þar var það,
að fréttamaður „Frankfurter
Rundschau“ náði tali af kven-
lækninum, er sagðist svo frá:
— Þegar flugvélin hrapaði til
jai’ðar, fórust 17 farþegar og
flugmennirnir tveir þegar í stað.
Við þremenningarnir, sem af
komumst, vorum öll stödd aftast
í flugvélinni og sluppum án veru-
legi'a meiðsla. Þegar kviknaði í
flakinu, leituðum við hælis í
frumskóginum, og þar fundu
Sambúalíai’nir — hálfvilltur ætt-
stofn svertingja, sem eiga heima
milli Tschuapa og Lomala-fenj-
anna — okkur. Þeir fluttu okkur
hálf-meðvitundarlaus heim til
hreisa sinna, og hjúkruðu okkur
þar, unz við náðum okkur eftir
slysið.
— Villimennirnir trúðu því
statt og stöðugt, að þessir þrír
hvítu menn hefðu verið sendir
þeim áf himnum ofan. Við urðum
því að búa á meðal þeirra, til þess
að færa þeim hamingju — þess
kröfðust þeir og höfðu um okkur
strangan vörð, svo að við slypp-
um ekki úr haldinu og þeir
misstu þar með af þessum himna-
gestum. Alloft kom það fyrir
þessi ár, sem við dvöldum þarna,
að veiðileiðangi’ar komu í nánd
við Sambúali-þoi-pin, en í hvert
sinn voru Þjóðverjai'nir þrír
fluttir af vegi þeirra og komið í
örugga geymslu, unz hættan var
liðin hjá.
Ilelikoptinn kemur.
En loks heppnaðist Þjóðvei’j-
unum þó að sleppa, en ekki fyrr
en eftir 18 ár — svo sem áður var
sagt. — Þetta gerðist með þeim
hætti, ér nú skal sagt: — Dag
nokkurn voru þeir ásamt blökku-
mönnunum á veiðum á hinni
rastarbreiðu gresju milli Tschu-
apa og Maringa og komu þá allt í
einu auga á helicopter-flugvél,
sem sveimaði þar yfir. Þar eð
ekkei’t afdrep var þai’na nærri,
þar sem hægt væri að koma þeim
í skjól, heppnaðist þeim að draga
að sér athygli flugmannanna, svo :
að þeir lentu til þess að athuga
nánar, hvað væri þarna um að
vera.
Tveir brezkir veiðimenn voru
um borð í koptanum, og þegar
Þjóðvei’junum hafði tekizt að
gera þeim skiljanlegt, hvei’nig á
veru þeirra þai’na stæði, tókst
þeim að halda villimönnunum í
hæfilegri fjarlægð með „eld-
vopnum“ sínum, sem þeir þekktu
þó það mikil deili á, að þeir
kæi’ðu sig ekki um að kenna á
þeim, — á meðan „gestir himins-
ins“ kvöddu og komu sér um borð
í koptann.
Stutt um kveðjur.
Hér vai’ð stutt um kveðjur,
segir dr. Henzel. — Svertingjarn-
ir ógnuðu okkur með steyttum
hnefum, en af stað komumst við
þó.
Þremenningarnir þjáðust allir
af hitabeltissjúkdómum, og voru
þeir lagðir inn í sjúkrahús, svo
sem áður segir, þar sem þeim er
ætlað að ná sér, áður en þeir snúa
aftur til Þýzkalands. Stúlkurnar
tvær eiga heima í Bei'lín, en
vei’kfi’æðingui’inn í Hamboi’g. —
Ekkert þeirra vissi fyrr en til
Stanleyville kom, neitt um það,
sem gei’zt hefur í heiminum síðan
1936, sem vissulega er þó bæði
mai’gt og af ýmsu tagi!
„Steinsen“ valt
Stóri vélkraninn, sem Akur-
eyrarbær á, og gárungai-nir hafa
stundum kallað „Steinsen", var
á leið til bæjarins sl. sunnudag.
Var hann hafður á stói’um drátt-
arvagni og tengdur aftan í öflug-
an bíl.
í staurabeygjunni, sem er eins
og kunnugt er í Vaðlaheiðinni
vestanverðri og er hættuleg og
vond beygja, varð yfirvigt ki’an-
ans of mikil og valt hann ásamt
dráttai’vagninum suður fyrir
veginn. Bíllinn valt aftur á móti
ekki og varð ekki slys á mönn-
um. Litlar skemmdir urðu á
ki-ananum og vagninum og eru
báðir komnir til bæjai’ins.
20 ungar stúlkur í sumarskólanum
að Löngumýri
Heyskapartíð mjög erfið í Skagafirði