Dagur - 20.11.1954, Qupperneq 2
2
DAGVR
Laugardaginn 20. nóvember 1954
Má aldrei segja réff frá skatt-
greiðslum samvinnufélaga?
Samvinnuhreyfing „góðs makleg“ stendur í ís-
lendingi, en hlaðið birtir samt margfaldar
álygar um skattgreiðslur
Bér á íandi er fyrirbæri eitt,
sem heitir flokksskóli Sjálfstæð-
ismanna. Mun til þess ætlast, að
stofnun sú sé framhaldsdeild fyr-
ir þá, sem numið hafa stjórnvís-
indi í Heimdalli vetrarlangt eða
svo.
En til dæmis um þá fræðslu,
sem sú yngri deild veitir, eru
þessi ummæli eins af nemendun-
um, er birtust í Morgunblaðinu:
,.í»egar Sjáífstæðisflokkurinn
er nefndur, koma, hér jafnan í
hug þessi orð þjóðskáidsins: „í
hennar kirkju helgar stjörnur
loga, og hennar líf var eilíft
kraftaverk.“
f skýringum, sem á eftir fóru,
kom í ljós, að í huga þessa ung-
mennis var flokkurinn eftirmynd
kirkjunnar, en stjörnurnar voru
uppljómuð ásýnd foringjanna og
vísdómsverk þeirra „eilíf krafta-
verk“. Þegar þannig er að kveðið
í yngri deildinni, má gera sér í
hugarlund vísdóminn í fram-
haldsskólanum. Enda er bað mála
sannast, að í flokkslegu ofstæki,
stjórnmálalegri blindu og for-
heimskun, standa sumir flokks-
skólapiltar Sjálfstæðisflokksins
sellufélögum kommúnista sízt að
baki.
Þverúðarfullt skilningsleysi. ...
Það verður að teljast vísbend-
ing um kennsluná í flokksskólan-
um, að um það bil sem prófum
þar lýkur hverju sinni, birtast á
svonefndum „æskulýðssíðum"
Sjálfstæðisblaðanna greinar um
kaupfélög og samvinnurekstur.
Undarlegt er það, ef það er ein-
ber tilviljun, að skrif þessi ein-
kennast af furðulegu skilnings-
leysi á eðli almannasamtaka og
efnahagsþróun þjóðfélagsins. Ef
flokksskólapiltar vega oftar í
þennan knérunn, verður naumast
komizt hjá því að álykta, að hluti
kennslunnar sé miðaður við að
innprenta nemendunum þvcrúð-
arfullt skilningsleysi á þessum
mikilvæga þætti þjóðmálanna og
ofstækisfulla fordæmingu á mál-
efnum, sem dómgreind skortir til
að meta. Tólfunum kastar þó þeg-
ar námsvottorðin innihalda
hreinar tölulegar falsanir um
rekstur og skattamál samvirinu-
félaga, en sú hefúr r.ú orðið upp-
skeran hér af skólahaldi því, er
flokkurinn efndi til hér nyrðra í
sl. viku.
Framkvæmdir SfS og prófúr-
lausnin.
í prófstíl þeim úr flokksskól-
anum, sem íslendingur birti á 5.
bls. síðasta tbl, er því haldið fram
að meginástæða brottflutnings úr
bænum sé sú, að samvinnurekst-
urinn greiði ekki nógu háa
skatta! Meginþungi skattanna
lendi á bökum almennings og
nokkurra kaupsýslumanna hér og
nefnir blaðið tvo þeirra. En til
dæmis um linkindina gagnvart
samvinnurekstrmum sé, að SÍS.
sem hér á „margt stærstu verk-
smiðja og Veltir tugum milljóna",
greiði ekki nema rösklega 64 þús.
kr. í bæjarsjóð eða h'tið moirn en
ein vefnaðarvöruverzlun.
Naumast verður því trúað, að
Ingólfur Jónsson viðskiptaniála-
ráðherra, sem hér var á ferð 1 sl.
Viku, hafi verið prófdómar.di, er
þessi prófstíll hlaut þau verðlaun
að vera birtui í flokksblaðinu. f
sama tbl. íslendings er það nefni-
lega haft eftir honum, að Akur-
eyri sé merkur iðnaðarbær og
líklegastur allra bæja á landinu
til þess að skapa mótvægi gegn
aðdráttarafli höfuðstaðarins.
Iiér rekur eitt sig á annars
horn, eins og vonlegt er. Auðvit-
að sjá það allir heilskyggnir menn
og þar með talinn viðskiptamála-
ráðherrann, að hir.n mikli iðnað-
arrekstur samvinnufélaganna,
sem er meginhluti iðnaðarins hér,
er helzta mótvægið gegn fóíks-
flóttar.um úr bænum, einkum
þegar þess er þá minnzt, að
á undanförnum áruui hafa
santvinnufélögin varið mörgnm
miHjónun* fil nýbygginga og
vélakaupa hér og hafa endur-
skipulagt allan iðnaðinn og
hrundið honum á nýtízkulegan
grundvöll.
Þegar kaupmenn og lóðaeig
endur í miðbænum bera við þess-
ar framkvæmdir þarf furðulega
glámskyggni til þess að telja þá
máttarstólpa bæjarfélagsins, en
samvinnureksturinn bölvald þess.
Eru þessi skrif úr flokksskólan
um öll svo herfilegur samsetn-
ingur, að stórfurðulegt er að þau
skuli sýnd á prenti
Falsaðar töhir.
Þegar þessu sleppir, taka við
beinar, tölulegar falsanir. SÍS
greiðir kr. 64.850 í bæjarsjóð af
öllum sínum rekstri, segir þar,
eða lítið meira en einn máttar-
stólpi íhaldsins. Hér er gamla
blekkingin á ferð, sú, er duga átti
í bæjarstjórnarkosningunum síð
ustu: Segja aðeins brot af sann-
leikanum, dylja hitt, blekkja al-
menning. Sarmleikurinn um bein
ar skattgreiðslur SÍS í bæjarsjóð
er hins vegar þessi:
Upphæðin nemur ekki 64 þús-
und kr. heldur 203 þúsund kr,
Utsvörin eru 104 þúsund og
samvinnuskatturinn, sem cr
sérútsvar, aðeins lagt á sam-
vinnufélög, tæpl. 100 þúsund
kr. 1 viðbót greiðir SÍS fast-
eignaskatt, beint í bæjarsjóð,
um 60 þúsipid kr.
Auk þess eru svo ýmis önnur
bæjargjöld, sem hér eru ekki
talin. Blekkingarnar, sem
frammi eru hafðar, eru því svo
stórfelldar, að öllu heiðarlegu
fólki hlýtur að ofbjóða.
Undirstaða rökræðna er að fara
rétt með heimildir.
Vitaskuld væri hægt að rök
ræða, hvort sarnvinnurekstur ætti
að lúta öðrum ákvæðum skatta-
laga en þeim, er nú gilda. En for,
senda slíkra umræðna hlýtur að
vera að greina rétt frá ástandinu
í dag. f því efni verður að skrá
falleinkunn á verðlaunastílinn úr
flokksskólanum. Uppistaðan
honum er fölsun staðreynda. í
annan stað hlýtur hver sanngjarn
maður að ætlast til þess, að í
samanburði á skattgreiðslum fyr-
irtækja sé þess getið, er annað
fyrirtækið hefur varið mörgum
milljónum til nýbygginga og
vélakaupa á skömmum tíma og
starfar að því að koma fram-
leiðslunni á nýjan og nýtízkuleg-
(Framhald á 7. síðu).
Sextugur:
Jóhann Frímannsson
Garðsá
Sunnud. 31. okt. varð Jóhann Frí-
mannsson, bóndi að Garðsá, sextug-
ur. Hann er fadddur að Gullbrekku
Saurbxjarlireppi, sonur hjónanna
Önnu Margrétar Árnadóttur og Frí-
manns Jóhannessonar, sem bjuggu
þar rausnarbúi. Fyrst man ég cftir
Jóhanni fyrir um það bil 25 árutn,
en þá var hann að hetja húskap á
Garðsá, og síðan hefnr forsjónin
hagað því þannigi að leiðir okkar
hafa oft legið saman og kynni okk-
ar hafa aukizt eftir því sem árin
liðu, og kann ég henni þakkir fyrir
það.
Þegar Jóhann hóf búskapinn á
Garðsá, var þar allstórt tún, mjög
þýft. Öll hús voru úr torfi og grjóti,
sum lítt stæðileg, og hvergi var járn-
þak að íinna. Enginn vegur var frá
aðalveginum að bænum, en illfært
með hestvagn eftir móum og mýr-
um um 2 km leið. Má af þessu ráða,
að búskapurinn hefur ekki verið
auðveldur fyrstu árin, og við nýja
bóndanunt hafa blasað næg verk-
efni. Það kom líka fljótt í ljós, að
hér var réttur maður á réttum stað.
Enda þótt Jóhann sé enginn æs-
ingamaður, sagði hann öllu þessu
stríð á hendur, og það stríð er búið
að standa í aldarfjórðung, en nú cr
líka sigurinn unninn. Þýfða túnið
og móarnir í kring er orðið að vel
sléttum töðuvelli. Stórbyggingar
yfir menn og skcpnur lofa meistar-
ann og lýsa því, live vel getur tek-
izt, þcgar hugur og liagar hcndur
vinna saman.
Og glaður var bóndinn á sextugs-
afmælinu, þcgar fjöldi bíla með
vini og vandamenn runnu cftir
tipphlöðnum og malarbornum vegi
heim á lilað. Og þótt hér liafi mikið
starf verið unnið, er hitt þó engu
að síður eftirtektarvert, hversu allt,
sem gert hefur verið, er vel gert.
Ttinið er afburðavel sléttað, ræktað
og ræst fram, byggingarnar eru
vandaðar, og langt er síðan Jóhann
sá, að mesta tekjulind og um leið
aðalsmcrki bóndans var, að hver
skepna liúsins væri vel fóðruð, og
það merki hefur hann liorið með
sæmd.
Enginn þarf að álíta', að Jóhánn
hafi staðið einn tippi við öll þessi
störf. Hann er kvæntur Katrínu Jó-
hannsdóttur frá Syðra-Laugalandi,
óvenjulegri dugnaðar- og myndar
konu, og má um. það deila, hvori
Iiafi skipað sitt sæti betur, húsfreyj-
an eða húsbóndinn. Þau hafa eign-
az.t og alið upp sex mannvænleg
börn, sem unna foreldrum sínuni
og æskustöðvum svo, að þau vilja
hvergi frekar dvelja en lieima, en
Gullúr (kvenúr)
með leðurarmbancli, tap-
aðist s.l. þriðjudag, senni-
lega í miðbæ, Brekkug. eða
Oddeyrargfktu. — Finnandi
geri góðfúslega aðvart á
afgr. Dags.
Ölí'iivélar
(Framhald á 7. síðu).
Einhólfa kr. 100.00
Tveggja hólfa kr. 193.00
Véla- og bttsálialdadeild
Nipplar, rær og
þéttingar
fyrir bremsu- og benzínrör.
Stálskráfur
fyrir bifreiðahús.
Véla- og búsáhaldadcild
EGG
Sel ný EGG daglega Odd-
eyrargötu 23.
Pálmi J. Friðriksson.
Va.sal jós
RAFHLÖÐUR í vasaljós
flöt 02: sívöl.
o
Véla- og búsáhaldadeild.
Nýkomið
KAFFIDÚKAR, fallegir
rósóttir — fleiri stærðir.
NÁTTFÖT,
dömu og herra.
NÁTTKJÓLAR, ódýrir
UNDIRKJÓLAR, svartir
BRJÓSTAHÖLD, svört
o. fl. o. fl.
Anna & Freyja
OLÍUKYNDITÆKI
Sjálfvirk, handstillt, ætíð fyrirliggjandi, eða útveguð
með stuttum fyrirvara. — Leitið upplýsinga.
JÓN GUÐMUNDSSON,
Símar 1246 og 1336.
AMERÍSK HANDVERKFÆRI
n ý k o ra i n :
Topplyklasett:
14 toppar 1”—2” kr. -1315.60
13 toppar 7/16”—U/s" kr. 379.25
10 toppar 7/16”—1” kr. 231.25
10 toppar 14”—¥$” kr. 81.25
Stjörnulyklasett:
5 lyklar s/8” 7/8” ..... .... ...... kr. 113.50
6 lyklar s/4”-ll/16 kr. 115.60
5 lyklar l/4”-3/8” kr. 125.75
Lausir toppar, 10 stærðir.
Laus skröll og sköft, — og margt fleira.
BÍLASALAN H.F.
Geislagötu 5.
HÖFliM BYRjAÐ
Fæst á öllum sölustöðum vorum í bæ og héraði.
- SAMA VERÐ. -