Dagur - 20.11.1954, Qupperneq 6
c
D A G U R
Laugardaginn 20. nóvember 1954
í óttans dyrum
Saga eítir DIANA BOURBON
3. DAGUR
Framhald.
Hún hafði verið í eldhúsinu að
hræra eggjakökuna. Af því mátti
ráða, að ekki hafði verið ætlunin
að fylgja mér til Lafði Babs fyrr
en eftir kvöldverð. Dyrabjallan
hafði hringt. Janie hafði hlaupið
upp og hleypt morðingjanum inn.
Síðan höfðu þau gengið niður í
eldhúsið, en rétt í því mundu
loftvarnaflauturnar hafa byrjað
að hvína. Og Janie hafði hlaupið
að króknum sínum og endalokin
höfðu orðið þar. Enginn vafi var,
hvar morðið hafði verið framið.
Blóðið sagði til þess.
En hvers vegna? Eg spurði
sjálfa mig aftur og aftur. Janie
gat hafa þekkt gjörvalla áætlun-
ina um innrásina í Evrópu, án
þess að gera sér ljóst, hvað hún
vissi. En einfalt fólk talar of mik-
ið. En fólkið sem það talar við,
er ekki ævinlega eins einfalt.
Eg man ekki nákvæmlega,
hvenær það var, sem það rann
upp fyrir mér, að aðstaða mín var
allt annað en skemmtileg. Eg var
alein þarna í húsinu með fórnar-
lambi morðingjans. Aðeins
skammur tími var liðinn síðan
morðið var framið. Tvö vitni
voru að því að eg hafði farið inn
í húsið rétt um sama leyti. Lög-
reglumaður, sem að vísu hafði
ekki séð mig, hafði eigi að síður
heyrt að eg var amerísk. Og loft-
varnavörðurinn hafði séð mig við
birtu frá vasaljósi sínu litla stund.
Aðstaða mín var sannarlega
grunsamleg. Yfirvöldin mundu
hafa gilda ástæðu til að handtaka
mig þarna á staðnum og halda
mér sem vitni í málinu, en eins
og starfi mínu var háttað, mátti
það alls ekki koma fyrir, að mér
væri blandað í svona mól. Að
minnsta kosti ekki fyrr en eg
hefði náð sambandi við Mohr og
fengið að vita, hvernig hann vildi
lóta snúast við þessum vanda. En
ef honum tækist að bjarga mér út
úr vandræðum sem þessum, var
þá ekki sá tími liðinn, að eg gæti
gert málefninu gagn? Það var
ekki gott í mínu starfi, að vera
skuldbundin neinum
Eg heyrði í anda, hvað fólk
mundi segja. „Hún var handtekin
í sambandi við morðið á lafði
Janie Shackter — en þeir slepptu
henni eftir sólarhring. Hljóta að
hafa haft ástæðu til þess.“ Hver,
sem lenti þannig í milli tannanna
á fólki, var markaður eftir það.
Eg greip hattinn minn og káp-
una cg komst einhvern veginn í
hvort tveggia. Einhver innri rödd
skipaði mér að komast út og burt
úr húsiny sem allra fyrst. Eg var
ekki komin hálfa leið, er eg
mundi eftir hönzkunum mínum.
Ekki dugði að skiljá þá é'fíir. Eg
varð að fara til baka. Eg reyndi að
stilla mig og forðast skelfingar-
æði. Allt í einu fjayg mér í hug,
að fingraför mín mundu víðs veg-
ar um húsið. Og leyniþjónustan
og sendiráðið höfðu þegar fingra-
för mín. Það kom ekki til mála,
að skilja afrit af þeim eftir hér.
Eg fór úr kápunni aftur, tók
vasaklút, og rakti slóð mína
vandlega um húsið og þurrkaði
alls staðar af, þar sem eg hafði
snert. Þar næst klæddi eg mig í
kápuna á ný, leit vfir stofurnar
til þess að fullvissa mig um að allt
væri í röð og reglu, og gekk síðan
aftur fram í anddyrið. Eg var rétt
að segja komin að útidyrunum,
er eg heyrði til loftvarnavarðar-
ins. Hann var kominn ó útidyra-
þrepin. „Eg var búinn að minna
hana á að læsa,“ sagði hann og
ýtti á hurðina með vasaljósinu
sínu og birtan féll inn í forstof-
una.
Allt í ein.u sá eg, hvar morð-
inginn ínundi hafa dulizt meðan
eg var í anddyrinu. Auðvitað í
fataskápnum innst í anddyrinu.
Mér hafði láðst að athuga skáp-
inn fyrr vegna þess að kjallara-
dyrnar höfðu verið upp á gátt og
hurðin hulið skápinn að nokkru
leyti. En nú rann þetta upp fyrir
mér. Eg hraðaði mér að opna
kjallaradyrnar á ný svo að allt
væri eins og áður því að loft-
varnarvörðurinn var alveg að
koma. Einhver var með honum.
„Ætli læsingin sé biluð,“ heyrði
eg hann sagði. „Góða kvöldið,"
kallaði hann svo inn í forstofuna.
„Er nokkur heima?“
Þeir komu inn fyrir, brugðu
upp vasaljósinu og kölluðu aftur,
en létu það nægja og rannsökuðu
málið ekki nánar. „Hún hefur
líklega farið í byrgið," sagði ann-
ar þeirra um leið og hann lokaði
dyrunum vandlega á eftir sér.
Eg beið enn fimm mínútur og
þær voru lengi að líða. Þegar út
kom, í myrkrið og kuldanp. gat
Framhald.
í.ri
koviið aftur í mörguin litum.
EINNIG GARN MEÐ SILKIÞRÆÐI.
V efnaðarvönideild.
BANN
Óviðkomandi mönnum er stranglega bannað allt
fugladráp í landareign eftirta.linna jarða í Glæsibæjar-
lireppi: NeðriA'indheima, Efri-Vindheima, Brita, Efri-
Rauðalæks, Neðri-Rauðalæks, Harnars, Garðshorns,
Ytri-Bægisár og Miðhálsstöðum í Öxnadal.
ÁBÚENDUR.
:ti? Oi. t ;or
NÝTT!
NVTT!
ULLARVERKSMIÐJAN
GEFJUN
AKUREYRI
þetta er nafnið á nýjasta ullargarninu sem GEFJUN sendir frá sér
á markaðinn. — Þetta garn er unnið úr erlendri ull sem er í gæða-
flokk 7Gs, en það er einn ha?sti gæðaflokkur ullar á heimsmarkað-
inum, en auk þess er það blandað með undraefninu GRILON, og
er því bezta garnið sem í dag er fáanlegt í landinu. — Reynsian er
ólýgnust og því skuluð þið strax kaupa þetta garn og reyna það.
Enginn mun verða fyrir vonbrigðum. Verðinu er mjög stillt í hóf.
Er til sölu hjá kaupfélögum landsins og víðar. —
■3T>