Dagur - 20.11.1954, Síða 8
8
Bagujr
Laugardaginn 20. nóvember 1954
íslandsm. í körfuknattleik heimsækja Akureyri
Myndin er af báðuin Iiðunum og eru mennirnir þessir: Frá vinstri,
afturi röð: Ilermann Sigtryggsson (þjálfari Akureyringa), Hörður
Tulinius, Ak., Gunnar Petersen, ÍR, Garðar Ingjaldsson, Ak., Ingi
Þór, ÍR, Einar Ilelgason (dómari). Fremri röð, frá vinstri: Einar
Gunnlaugsson, Ak., Páll Stefánsson, Ak., Sigurður Gíslason, ÍR, Jón
Stefánsson, Ak. og Helgi Þorsteinsson ÍR.
- Unpðnnafélðgin í Eyjafirði
Um helgina 30. og 31. fyrra
mánaðar komu hingað til Akur-
eyrar 4 menn úr íslandsmeist-
araliði IR í körfuknattleik og
kepptu við sameinað körfuknatt-
leikslið úr Þór og KA.
Háðir voru tveir leikir og unnu
ÍRingar báða, fyrri leikinn með
24 körfum (47 stigum) gegn 17
körfum (34 stigum) og síðari
leikinn með 23 kröfum (43 stig-
um) gegn 20 körfum (40 stigum).
Eignaðist fjóra kálfa!
£>að bar til á bóndabýli skammt
frá Kolding í Danmöi’k nú í októ-
berlok, að kýr ein eignaðist fjór-
bura og þykja þetta hin mestu
tíðindi í nautgriparæktinni. Áð-
ur hafði kýr á sama bæ eignast
þríbura og þótti það merkilegt á
sinni tíð. Skýrt er frá því í Poli-
tiken 29. okt., að báðar kýmar
hafi verið sæddar frá sæðingar-
stöð.
Akureyringarnir áttu þarna við
að etja sér mun sterkara lið og
voru körfuköst og samleikur ís-
landsmeistaranna öruggari og
nákvæmari en Akureyringanna,
en það má einnig geta þess að ÍR-
ingarnir hafa mun meiri keppn-
isreynslu og hafa keppt við er-
lend lið, sem mikið má af læra.
Sérstaka athygli vakti Helgi
Þorsteinsson ÍR fyrir ágætan leik
og boitameðferð. Hann gerði
einnig flestar körfur fyrir ÍR.
Fyrir Akureyringa gerðu flest-
ar körfur þeir Hörður Tulinius
(fyrri leik) og Hermann Sig-
tryggsson (síðari leik).
Mikill áhugi er nú hér fyrir
körfuknattleik og allmargir sem
æfa hann að staðaldri. Heimsókn
ÍRinganna var því mjög ánægju-
leg og lærdómsrík fyrri áhuga-
menn í kröfuknattleik hér á Ak-
ureyri.
Hafi íslandsmeistararnir þökk
fyrirkomuna.
K. Þ.
Jeppabifreið á tvöföld-
um hjólum - snjóhíll?
Sú nýlunda bar fyrir augu
bæjarbúa núna í vikunni, að
jeppabíll á tvöföldum hjóluin,
ck um götur bæjarins. Jeppi
þessi, sem cr Þ—112 og frá
Réykjum í Fnjóskadal, kom
austan yfir heiði og al!a leið að
heiman. Snjór var nokkur í
Fnjóskadal framanverðum og
svo laus að lianh héít ckki
bílnum uppi. Tóku þá Reykja-
bræður það til fcragðs að setja
gömul dekk utan við hjólin er
undir bílmtm voru. Dékkin eru
lauslega fest og tvöfaldar keðj-
ur seítar á öll hjólin. Með þcss-
um átta hjóhun flaut jeppinn
prýðilega yfir allan snjó er á
vegi hans varð og taldi Guð-
mundur Gunnarsson, er jepp-
anum ók, þetta vera einfaldan
og í mörgum tilfellum ágætan
útbúnað. Þegar hílnum var ek-
ið um snjólausar götur bæjdr-
ins, tóku „varadekkin“ tæpast
niðri, cg sýndust ekld valda
neinum erfiðleikum í akstri.
Jöran Forsslimd hefur
skrifað bók um ísland
Sænski blaðamaðurinn góð-
kunni, Jöran Forsslund, sem hef-
ur heimsótt ísland nokkur und-
anfarin ár — síðast sl. sumar —
hefur nú gefið út bók um ferðir
sínar hér. Heitir bókin „Vind
över Island“ og kom út hjá Rabén
& Sjögren í Stokkhólmi nú fyrir
skömmu. Bókin er prýdd miklum
fjölda ágætra mynda, enda er
Forsslund ágætur ljósmynda-
smiður. í bókinni segir hann m.
a. frá veru sinni hér nyrðra, frá
samvinnustarfseminni hér, tog-
araútgerðinni, ferð til Mývatns,
dvöl á Möðruvöllum í Eyjafirði,
siglingu austur fyrir land og frá
ýmsu fleiru. Einn kaflinn er við-
tal við Halldór Laxness á Gljúf-
rasteini, annar fjallar um Banda-
ríkjamenn á Keflavíkurflugvelli.
(framhald af 1. síðu).
sem betur færi, en að íslenzkir
móar, mýrar, sandar og melar
biðu aðeins starfsfúsra handa til
að breyta auðn í arðberandi íarrd.
Taldi hann alta ræktvn miða til
menningar cg broska og stuðfa
að hinni miklu rækt mannrækt-
inni, cg óskaSi 'bess að méðíimir
Ungrnennafélagánná víldu með
tilstyrk, kristinnár tr.úar .stnnda.
þar fremstir. í fylkingai-þr.;ósti.
Hva'tti hann einhig til samstöðu
í lahdhelg'smúlum þjóðhrinnar,
þar sem afkomuskilýrði ís’end-
inga byggðust’ svo m.jög á 'av.ð-
legð hafsins.
Starfið á árinu.
Samkvæmt skýrslu stjórnarinnar
voru í ársbyrjun 17 ungmenna-,
bindindis- cg íþróttafélög í sam-
banáinu, með samtals 650 reglu-
'lega félaga cg auk þes’s töldu þessi
féKig 191 aukafélága, þannig að
innan vcbanda sambandsins voru í
ársbyrjun alls 841 meðlimur. A ár-
inu gekk eilt félag í sambandið’,
pg samanslendur sambandið því nú
al 18 félögum.
Starfsemi sambandsins á árinu
var mjög á vegum íþróttamála. Var
Kristján Jóhannsson, hlaupari og
íþróttakennari, ráðinn í ársbyrjun
lijá sambandinu sem ársmaður. En
síðast í maímánuði henti það hann
að lenda í umlerðarsysi, sem olli
honum alvarlegra meiðsla, þannig
að hann varð að dveljast á sjúkra-
húsi uni lengri tíma, og er enn ekki
séð, hvort hann fær til fulls bót á
þeim nieiðslum.
Björn Daníelsson íþróttakennari
starfaði hjá sambandinu í tvo mán-
uði á sl. vetri, og yfir sumarmánuð-
ina var Höskuldur Goði Karlsson
íþróttakennari ráðinn hjá samband-
inu.
Námskeið innanhúss voru haldin
á sl. vetri hjá sjö ungmennafélög-
um, og nutu skólarnir yfrleitt þess-
arar kennslu líka. A þessum nám-
skeiðum voru kenndir fimlcikar,
þjóðdansar, glíma, blak og bolta-
leikir og auk þess kennt á skíðum.
Yfir sumarið voru frjálsíþróttir
allmjög æfðar, og voru ýmis íþrótta-
mót haldin á vegum sambandsins
á þessu starfsári, og einnig [ór fram
keppni milli UMSE og ungmenna-1
sambands Skagafjarðar í knatt-
spyrnu og nokkruin greinum frjáls-
íþrótta. ~ _
UMSE sér um landsmót UMFI.
Þingiðbtók til jncðferðar allmörg
infl eins og venjulcga, og lágði að
nokkru grundvöll að starfserni sinni
næsta starfsár úieð samþykktum sín-
iini. Og er gert ráð fyrir svipuðu
starfi hjý sanibandinu á næsta ári
eins og verið hefur, en þó allmiklu
meira, þar sem UMSE helur ákveð-
ið að taka. að sér undirbúning að
Landsmótl U.M.E.I., sem halda á
liér á Akureyri á n. k. sumri. Er
þarná um nýtt og allmikið verk-
cfni að ræða, sem sambandið vill
hvetja alla ungmennafélaga og aðra
héraðsbúa til samstöðu um, svo að
mót þetta geti orðið til sóma.
Nýmæli eitt kom fram á þinginu,
og var það um frekari kynni milli
fólks sem býr í dreifbýlinu og jafn-
vel rætt um verkaskiþtingu þess á
milli sveita eða héraða.
Gott að vera í Sólgarði.
Þíng þetta var í alla staði hið
ánægjulegasta, og var aðbúnaður
aliur hinn bezti að hinu nýja fé-
Iagsheimili þeirra Saurbæinga, og
lauk því með sameiginlegri kaffi-
drykkju, sem gerð var af ungmenna-
félögunum í hreppnum. Þar voru
ræður fluttar, og að lokum var þing-
fulltrúum boðið á samkomu, sem
haldin var í félagshcimilinu um
kvöldið.
Fallþungi dilka í Eyja-
firði 14.15 kg.
Alls var slátrað á Akureyri og
Grenivík 17.111 kindum á þessu
hausti. í fyrra var slátrað af sama
svæði um 11000 fjár."
Fallþungi dilka reyndist vera
14,15 kg. Þyngsti dilkurinn var
frá Ásgrími Halldórssyni, Hálsi í
Öxnadal. Var hann 26J/2 kg. í
fyrrahaust var vænsti dilkurinn
einnig úr Öxnadal og hafði hann
sömu vigt. Eigandi var Ármann
Þorsteinsson; Þverá.
Brugðið upp mynd af útsýninu, er ferðamenn aka nýja veginn inn í Akureyrarkaupstað
Myndimar hér að ofan sýna liclztu atriði útsýnis þess, er blasir við fcrðamönnum, er aka inn í Akureyrarkaupstaðar að noiðan, cftir nýja þjóðveginum í gcgnum Glcr-
árþorp. — Myndin cfst t. v- er frá þeim stað, cr vegurinn beygir í átt til nýju brúarinnar, en útsýni til bæjarms er lokao af bragga. Aðrar myndir eru svo frá mannvirkjum
meðfram veginum, og eru þó ekki ncma fáein sýnd. Þrátt fyrir bæjarstjórnaisamþy'kktir, standa hraggar og skúrar enn í góðu gengi. Síðast var ákveðið að hreinsa til
ekki síðai en 1. nóvember. Nú er 20. nóvember og allt eins og aldrei hafi verið á þessi mál miunzt, nema ef eitthvað kefur fokið á sjó út í suðaustan rokinu í gær. —