Dagur - 11.12.1954, Blaðsíða 2
2
D A G U R
Laugardaginn 11. desember 1954
SJÖTUGUR:
Vilhjálmur Jóhannesson á Litla-Hóli
Þann 26. nóvember sl. átti Vil-
hjálmur Jóhannesson á Litla-Hóli
sjötugsafmæli. Heimsóttu hann
þá margir sveitungar hans, vinir
og venzlamenn, og dvöldu hjá
honum góða stund við gleðskap
og gnægð veitinga.
Vilhjálmur er kominn af góðu,
eyfirzku bændafólki. Bjuggu for-
eldrar hans í Saurbæjarhreppi,
og þar ólst hann upp.
Eins og títt var um fátæka
unglinga á þeim árum, varð hann
að brjótast til náms af eigin ram-
leik, því að um faraefni úr föður-
garði var ekki að ræða. Fyrsta
skólavera Vilhjálms gat því ekki
orðið fyrr en veturinn 1906—7 að
hann var í unglingaskóla á
Grund. sem Magnús Sigurðsson
hélt uppi, en kennari var Ingimar
Eydal, þá nýkominn frá lýðskól-
anum í Askov í Danmörk.
Var kennsluaðferð Ingimars
með allt öðru sniði en hér tiðkað-
ist við unglinga- og gagnfræða-
skóla. Kennslan fór aðallega fram
í fyrirlestrum kennarans, sem
nemendur skrifuðu útdrátt úr, og
urðu svo síðar að gera grein fyr-
ir að hve miklu leyti þeir hefði
tileinkað sér efnið. Urðu þeir þá
aðallega að treysta á minni sitt og
athygli. Nemendur skólans voru
allir eyfirzkir unglingar, að und-
anteknum einum Austfirðingi,
Magnúsi Stefánssyni, sem síðar
tók sér rithöfundarnafnið Orn
Arnarson.
Allir voru nemendurnir nám-
fúsir og allvel þroskaðir. Naut
Ingimar Eydal sín því mjög vel
við kennsluna og sinna frábæru
kennarahæfileika og málsiiilldar.
Eins og fleiri nemendur Ingi-
mars, mun Vilhjálmur hafa búið
að þessu námi síijar á skólaórum
sínum. Næsta haust settist hann í
annan bekk Gagnfræðaskólans á
Akureyri og brautskráðist það-
an vorið 1909. Næsta haust gerð-
ist hann barnakennari í Hrafna-
gilshreppi og hafði það starf á
hendi um skeið. Það starf stund-
aði hann af alúð, og þótti börn-
unum gott hjá honum að vera.
Vilhjálmur er kvæntur Mar-
gréti Ingimarsdóttur Hallgríms-
sonar frá Litla-Hóli. Hún er
kona fríð sýnum og gjörfileg, ein-
örð og hreinskilin eins. og var
faðir hennar. Hún nefr.ir aldrei
hvítt það, sem henni sýnist svart,
og er ófáanleg til að „kalla allt
ömmu sína“, sem henni ekki lík-
ar við, menn eða málefni, hvort
sem öorum líkar betur eða verr.
En vinföst er hún og trygglynd.
Um skeið stundaði Vilhjálmur
vinnu á Akureyri og var þar bú-
settur ,en undi hag sínum ekki
vel. Hugurinn stóð til landbún-
aðar og sjálfstæðs athafnalífs. —
Sveitin átti hug hans allan. Þang-
að þróðu þau hjón að komast.
Þessi draumur þeirra rættist að
fullu árið 1932, er þau fengu ábúð
á Litla-Hóli, þar sem voru æsku-
stöðvar Margrétar og bernsku-
heimili. Áður höfðu þau búið í
Reykhúsum um nokkur ár Á
Litla-Hóli hafa þau síðan unað
hag sínum vel og gert garðinn
frægan að húsabótum og jarð-
rækt.
Vilhjálmur er greindur maður
og gjörhugull, fáskiptinn um ann-
arra hagi og fastur fyrir, en
nokkuð um of hlédrægur. Sveit-
ungar hans hafa kvattt hann til
ýmissa starfa, en minná þó en
margir hefðu óskað, því að þeir
vissu að honum var það lítt að
skapi. Heimilið átti hug hans all-
an. Við störf þess undi hann sér
bezt;- enda ber það ljóst vitm-wm
snyrtimennsku og alúð þeirra
hjóna og haga hönd húsbór.dans.
Vilhjálmur er tillögugóður í
hverju máli, og þeir sem minna
mátttx og formælendur áttu fáa,
hafa jafnan átt í honum öruggan
málsvara. Fósturson eiga þau
hjón, er þau hafa alið upp frá
fæðingu, myndarlegan efnismann.
Eg hefði gjarnan viljað, vinur,
segja meira og gleggra um störf
þín og mannkosti, en hvort
tveggja er: að til þess er tak-
markað rúm, enda lofkestir þér
lítt að skapi.
Þessi fáu orð verða því að
nægja. En að lokum vildi eg
þakka þér fyrir þína órofa vináttu
í minn garð, allt frá æskudögum
til efri ára, hversu sem vindar að-
steðjandi atburða hafa um okkur
blásið.
Blessun fylgi þér og þínum
ástvinum.
Hólm’geir Þorstéinsson.
Vetrarmaður
óskast á £fott sveitaheimili,
nú þegar eða um áramót.
Uppýsingar á afgr. Dags.
Skemmtiklúbbur Iðju
verður á sunnudagskvöld, 12.
þ. m., í Alþýðuhúsinu, ld.
8.30 e. h.
Félagsvist — verðlaun. veitt.
Þorlcifur Þorleifsson stjórnar.
Guðm. Agústsson, leikari,
skemmtir.
D A N S.
Komið og skemmtið ykkur.
Hvergi meira fjör.
STJÓRNIN.
k o m i n. — Pantanir af-
greiddar í dag.
Bólsiruð Iiús2Ös;n h.f.
c-1 O
Hafnarstræti 88. Sívú 1491.
Tek að sauma
náttföt og fleira á börn og
unglinga. Stykkja vinnuföt.
Guðrún Árnadóttir,
Eiðsvallag. 7, vesturenda.
Til viðtals eftir kl. 2.
V é 1 r i t u ii
Vanur vélritari, karl eða
kona, sem óskar eftir vél-
ritun sem aukastarfi, sendi
nafn og heimilisfang, ásamt
símanúmeri, ef til er, í póst-
hólf 178, Akureyri.
KJÖT & FISKUR
Gólffeppi
Höfum ennþá nokkur
vönduð ullar-gólfteppi
með hagkvæmu verði.
Skilvísum kaupendum
veittur nokkur gjald-
. frestur.
Verzl. Eyjafjörður h.f.
Höfum fengið hina marg
eftirspurðu
VATNSHITARA 2000W
Einnig
RAKVATNSHITARA
Véla- og búsáhaldadcild
Oddeyringar
Verzlunin HRÍSEY, Gránufélagsgötu 18, býður
ykkur allt í jólabaksturinn. — Ivomið og lítið inn.
HÖFUM FJÖLBREYTTAR VÖRUR.
Reynið viðskiptin.
Verzlimiii HRÍSEY
N O T I Ð
Atlas-frostyökva
Á BÍLANA!
Fæst á öllum útsölustöðum vorum.
Olíusöludeild KEA.
rLTjTJTJTJTJTJUTJTJTjTJTJTJTJTJTjTJTJYjTrTJTJTJTJTJTJTrTTJTJTJTJTrLrLn
Báraðar aluniinium plötur er ákjósanlegt efni,
hvort sem það er til notkunar á hús eða byggingu til sveita eða sjávar.
Plóturnar eru léttar, endingargóðar, og standast vel hverskonar veðurfar.
Þær fúna ekki né ryðga, vcrpast ekki né klofna, og þarfnast ekki málningar,
en þó má rnála þær ef vill.
Báraðar aluminium plötur hafa verið í notkun um langt árabil — dæmi
eru um plötur, sem í notkun hafa verið í 50 ár og gefur það til kynna hina
miklu endingu á plötum þessum.
llreidd: 26 tomnui r. rncð ;i(la .S tomnui bárum
26 — atta — n í 11 92/. —
31 — - ellelu 22/. y
Lengdir: 6. 7, S, !). 10. 11 11» 12 l'c Pt.
Þykktir: 20, 22. 23, 21. 26 (nr. I. : S. W. O.)
Ofangreindar plötur fást cinnig bognar (á bragga) í öllurn þykktum
nema 26.
BÍLASALAN H.F.
GEISLAGÖTU 5. - SÍMI 1649.
UTJTJTJTJTjTJTJTJ UTJTTUTJTJTJTr UTJTJTTJTJTJTJTJTJTJTT JTJTJTJTJTJTjTJ