Dagur - 11.12.1954, Page 5
Laugardaginn 11. descmbcr 1954
DAGUR
5
Jónas Jónsson frá Hriflu:
Bréf ti!
ureyringa
Deiid á Landsspífaia ftl hjálpar
mgum
Alla þá stund, scm liðin er frá
andláti sr. Matthíasar Jochumsson-
ar, hafa áhugamenn um andleg mál-
efni á Akureyri liaft vakandi áhuga
íyrir því að geyma heimili skálds-
ins, S i g,u r h æ ð i r, til varanlegrar
minningar um andleg afrek þessa
ciiíflega stórfræga Akureyrárbúa.
Samt hefur þessi hreyfing ekki orð-
ið nógu öflug, fyrr en síðastliðið
vor, þegar nálega öll stjórn kaup-
staðarins ákvað að helja virkan
undirbúning að stofnun Matthías-
arsafns í bænum. Dagur sýndi mér
og þcssu málefni þann greiða, að
birta bréf mitt til bæjarstjórnar með
velviljaðri athugasemd. Síðan var í
bæjarstjórn kosin nefnd til að safna
minningargripum í safnið. Hef ég
orðið var við að maður mér óþekkt-
ur hér í bænum, ætlaði að senda í
þetta safn sjö bækur með áritun
skáldsins. Stefndi iill þessi athöfu í
lífvænlega átt.
Þá hafa Akureyrarblöðin birt frá-
sögn um þá merkti nýung, að vanda
menn Jóns Sveinssonar (N o n n a)
hafi nú nýlega gefið bænum hús
það, scm þessi rithöfundur bjó í á
æskudögum sínurn, nteð ýmsum
minningarmunum um þann heims-
fræga rithöfund. Er þessu máli sýni-
lega vel tekið á Akureyri, enda er
gjöfin til mikillar. sæmdar, bæði
gefendum og þæjarfélaginu, sem
tekur á móti henni með þakklæti.
Sýnist mér þetta síðara safnmál
bera vott um lofsverðan og vakn-
andi áhuga bæjarbúa fyrir þessari
nýju lilið andlegrar viðreisnar.
Einhver töf í Mattln'asarmálinu
virðíst lráfa' örsakazt af því, að ráða-
mönnum í bænum mun liafa þótt
eigandi Sigurhæða helzt til dýr á
cign sinni, er hann virti aðalhæðina
á rúmlega 100 þús. kr. Mig brestur
kunnugleika til að dænta um þá
hlið ntálsins. Er í þcini efnum jafn-
an sú leið opin, að láta, trúnaðar-
menn þjóðfélagsins meta cignina
og bæta eignarmissinn. Með því
móti má skcra úr slíkum deilumál-
um. Sttmir kvarta tim að eignar-
námsvirðingar séu dýrar, en varla
cr stætt á þeirri röksemd. Þjóðfé-
lagið verður að treysta sjálfu sér
til heiðarlegs réttdæmis. En ósenni-
Icgt, að valdamenn í bænunt vildu
baka sér varanlegt ámæli samborg-
ara sinna með því að kveða upp
ósanngjarnan dóm í svo frægu máli.
Eg get ekki séð, að þessi húsa-
kaup geti orðið óþægilegur baggi
fyrir Akureyrarbæ, því að mikils
stórhuga gætir þar um margar fram-
kvæmdir efnalegs eðlis. Vil ég þar
nelna til flugvöllinn, sent er og
verður milljónafyrirtæki. Santa er
að segja um hið glæsilega sjúkrahús,
sem kostar yfir 10 milljónir. Hefur
þjóðfélagið mætt Akureyrarbúum á
miðri leið á rausnarlegan hátt, svo
að stórframkvæmdir þessar eru nú
komnar í liöfn. Sama er að segja
um eldri framkvæmdir, þar sem
bærinn og ríkið standa að stórfram-
kvæmdum, svo ‘sem byggingum
menntaskólans, gagnfræðaskólans
og. íþróttahússins. Tókst mér oft á
þingi að greiða götu Akureyrarbæj-
ar í þessum málum, svo sem þegar
ég útvegaði 100 þús. kr. fjárveit-
ingu í íþróttahúsið án tilmæla að
norðan.
Þá ber Akureyrarkirkja höfðing-
legt svipmót og segir lofsverða sögu
um kirkjugerðina sjálfa og þá ekki
síður um vakandi álniga bæjarbúa
fyrir andlegum málum. Hafa ein-
stakir menn og bærinn í lieild
hlyrint svo að þessari kirkju, að
hún cr nú eina nútíma guðslnis á
landinu, sem ferðamenn heintsækja
sér til listrænnar fullnægingar. Ak-
ureyrarkirkja og umbúnaður henn-
ar á horninu, umgirtu grasi viixn
um stöllum, er bænum og bæjarbú-
um til mikils sóma. Sýnilcgt er, að
bæjarbúar ætla að prýða alla brekk-
una sunnan við kirkjuna yicð fögr-
um trjágróðri. I þeim væntanlega
skógi verðaaigurhæðir ógleymanleg
perla í íramtíðinni, ef þar verðtir
unnið í samræmi við annan stórhug
í bænum.
Menn, sem eru ekki nógu and-
lcga vakandi, hafa uppi orðræður
um það, að Sigurhæðir séu garnalt
timburhús og varla á vctur setjandi.
Lítt munu þessir menn hafa kynnt
sér aðgerðir þjóðrækinna Norð-
manna, er þeir flytja úr stað, endur-
bæta og vernda margra alda gömul
timburhús, og það oft án þess að
þau séu tengd við minningu nafn-
ktinnra fremdarmanna.
Þá ber þess að gæta, að Sigur-
hæðir voru reistar um síðustu alda-
mót. Húsaviður var þá betri en nú,
og fullyrða greinargéiðir kunnáttu-
menn á Akureýri, að luisið sé lítt
skemmt af fúa.
Ef til safnmyndunar kænti, þá
mundi öruggast að taka gömlu
klæðninguna af og klæða liúsið með
góð'ri furu, og verja hana svo með
llkum liætti og Norðmenn, Svíar og
Finnar gera við timburhús þau, sein
þeir ætla að varðveita öldum sam-
an. I.oftslag Akureyrar er í þessu
cfni einkar hentugt, enda verða
timburhús þar gömul.
Breytingar þær, sem gerðar hafa
verið á Sigurhæðum eftir daga'sr.
Matthíasar, eru óverulegar og auð-
velt úr að bæta, þar sem fjöldi
rnanna á Akureyri þekkir hina fyrri
húsaskipun, og ntá auðveldlega úr
því bæta.
Til eru þeir menn á Akureyri,
sem telja bæinn of fátækan til þess
að leggja í shka framkvæmd. Benda
þeir ennfremur á ískyggilegan burt-
flutning úr bæntim í átt til Kefla-
víkur. En báðar þessar ástæður eru
veikar. Ein fjölskylda gefur bænum
Nonna-liúsið. I-Ivort mundi öllum
bæjarbúum ókleift að eignast sam-
eiginlega eitt af minnstu og ódýr-
ustu timburhúsum í bænum?
Burtflutningur að bráðabirgða-
atvinnu í Keflavík er stundarfyrir-
bæri, sprottið bæði á Akureyri og
víðar af of mikilli skammsýni,
gróðahyggju og efnisdýrkun. Sú
flóðbylgja verður á hverjum stað
bezt stöðvuð með andlegum stór-
hug.
Sr. Matthías er einhver mesta
andlega lífslincl sem þjóðin á, og
meira reyndi á kjark og manndóm
norðanlands heldur en lni, þcgar
hann kvað kjark og þrótt í þjóðina
mcð liafísdrápu sinni.
Þjóðflutningamálið norðan lands
kemur mér svo fyrir sjónir, að
byggðir Þingeyinga og Eyfirðinga
séu þar í engri liættu, lieldur gerist
þar landnám, sem keppir örugglega
við „Völlinn". Gestsaugað sér ekki
lieldur feigðarmerki á Akureyri. —
Sýnist mér hin miklu iðjuver, út-
gerðin, flugvöllurinn, Sjúkrahúsið
og hinar miirgu nýju menntastofn-
anir scgja allt aðra sögu.
En með liinum efnalegu átökum
verða aö fylgja andlegar aðgerðir,
og á því sviði á Akureyrarbær mik-
inn fjársjóð fólginn í mesta trúar-
skáldi þjóðarinnar, þeirra sem lifað
liafa liér á landi síðustu aldirnar.
Vestan járntjalds og austan kepp-
ast stórþjóðirnar um að heiðra
dána snillinga í gröfum þeirra.
Koma þar jafnt til greina mestu
menn Breta og Rússa. Hallar ekki
á í þeirri stórmennadýrkun, þegar
borið er saman Westminster Abbey
og Rauða torgið. Þó að hér verði
ekki beitt tökum stórveldanna, get-
ur lítil þjóð og lítill bær sótt and-
legan þrótt í ljóð og línur sinna
andlegu afreksmanna.
Júnas Jónsson frd Hriflu.
- Sauðfjárafurðir
(Framhald af 1. síðu).
og hætta væri á að gimbrarnir
gætu ekki borið.
Skaftfellskt holdafé hcppilegt.
Þá gerði ráðunauturinn nokk-
urn samanburð á þingeysku og
vestfirzku fé og taldi að síðustu
að á landléttum stöðum bæri að
hafa smávaxið holdafé, svo sem
Skaftfellingar rækta nú með
góðum árangri.
Saltsteinn á afréttum.
í umræðunum, sem á eftir fóru,
sem voru hinar athyglisverðustu
á ýmsan hátt, var meðal annars
rætt um að hafaþyrftihjarðsveina
á heiðum uppi til að gæta fjárins
og varna því að það leitaði of
snemma til byggðar Jón Bjarna-
son bóndi í Garðsvík, benti á ráð,
sem reyna þyrfti til varnar þessu.
En það væri að hafa saltsteina á
afréttarlöndunum. Væri hugsan-
legt að þetta yrði til bóta, svo sem
sögur hermdu frá seljum í Nor-
egi.
Auk þeirra, er nefndir hafa
verið, fluttu þessir menn ræður
og fyrirspurnir: Björn Jóhanns-
son, Laugalandi, Þorsteinn Da-
víðsson, Akureyri, Halldór Guð-
laugsson, Hvammi, Sigurjón
Valdimarsson, Leifshúsum, Árni
Ásbjarnarson, Kaupangi, Ólafur
Jónsson, Akureyri. Þór Jóhann-
esson, Þórsmörk, og Guðmundur
Benediktsson, Breiðabóli.
Píanó
sem nýtt Hornung og
Möller píanó til sölu.
Uppl. í síma 1408.
Styrktarfélag lamaðra (
hjálparstarfsins mei
Styrktarfé’ag lamaðra og fatl-
aðra er ungur félagssltapur, sem
hcfur unnið merkilegt björgunar-
starf í þjóðfélaginu. Félagið heíur
sctt sér það takmark, að bæta úr
algerlega ófullnægjandi viðbún-
aði hér á Iandi til hjálpar lömun-
arveikissjúklingum.
Hefur félagið keypt til lands-
ins tæki og hefur nú forgöngu
um undirbúning að stofnun sér-
stakrar deildar við Landspítalann
þar sem lömunarsjúklingum
verður veitt öll bezta aðstoð, sem
nútíma vísindi getur látið í
té. Þessi starfsemi félagsins mætti
vekja sérstaka athygli hér á
Akureyri og rifja upp, hversu
miklu betur við hefðum staðið
að vígi í faraldrinum síðasta hér,
ef slík deild hefði þá verið til og
starfandi.
Happdrætíi um nýjan bíl.
Nýlega flutti prófessor Sigur-
björn Einarsson ávarp af hálfu
félagsins, og á það erindi til allra.
Hvatti hann þar mjög til þess að
almenningur legði hönd á plóg-
inn með kaupum happdrættis-
miða. Prófessor Sigurbjörn komst
m. a. þannig að orði:
„Styrktarfélag lamaðra og fatl-
aðra leitar nú á þessu hausti til
þjóðarinnar um liðstyrk til þess
að þoka brýnu og göfugu líknar-
máli áleiðis. Nafn þessa félags
gefur tilgang þess til kynna, enda
mun hann öllum hlustendum
kunnur. Félagið er stofnað og
starfrækt í því augnamiði að
styrkja lamað og fatlað fólk og
greiða fyrir því með hverjum
þeim ráðum, sem tiltæk eru,
bæla í fyrsta lagi aðstöðuna til
þess að hjúkra lömunarsjúkum,
þannig að þeim verði látin sú
hjálp í té, sem nútímalækninga-
tækni má fyllsta veita, en með
því móti má vissulega öft forða
líftjóni og lima, bæta í öðru lagi
aðsíöðu þeirra, sem lamast eða
fatlast af völdum sótta eða slysa,
þannig að þeir megi eigi að síður
njóta sín að nokkru í lífinu og
lífsbaráttunni, geti lært og unnið
störf við sitt hæfi, sér og sínum
til uppeldis, sem sjálfbjarga
menn.
Félagið hefur keypt til landsins
dýr tæki, sem ein geta komið að
notum af mannanna úrræðum, ef
um líf er að tefla af völdum löm-
unarveiki.
Ónógur viðbúnaður hérlendis.
En viðbúnaður allur gagnvart
þeim vágesti er samt alls ónógur
hérlendis enn og aðstaðan til þess
að sporna við eða draga úr af-
leiðingum - lömunarveiki eða
mænusóttar mjög svo ófullnægj-
andi og fjarri því að vera slík,
sem unnt væri, ef fjárráð leyfðu
að hagnýta sér reynslu, þekkingu
ig fatlaðra safnar fé til
t ágætu happdrætti
og tækni annarra þjóða á þessu
sviði. Nú er verið að ur.dirbúa
deild við Landspítalann til þess
að bæta úr þessu, og til þess að
hraða þeirri framkvæmd, eða
öllu heldur til þess að auðið megi
verða að hrinda þessu nauðsynja-
verki í framkvæmd hefur Styrkt-
arfélag lamaðra og fatlaðra efnt
til happdrættis og á því vildi eg
vekja athygli með þessum orðum
mínum hér. Þetta happdrætti
býður upp á glæsilegan vinning,
draumagrip fiestra manna nú á
tímum, kvenna og karla, ungra
og gamalla, ríkra og snauðra, en
það er bifreið, amerísk, af nýjustu
gerð'og fegursta og fullkomnasta
tagi. Sá, sem hreppir happið,
þegar dregið verður á Þorláks-
messu n. k., þarf ekki að kvíða
því, að hann verði ekki í jóla-
skapi.“
Thorvald Ravn tekur
við af móður sinni
Bækur Margit Ravn, norsku
skáldkonunnar, hafa orðið óvenju
lega vinsælar meðal yngri kyn-
slóðarinnar á íslandi. Nú er son-
ur hennar, Thorvald Ravn, tek-
inn við af móður sinni og farinn
að skrifa telpusögur, sem ekki
þykja standa sögum móður hans
að baki. Hér er nú komin út
fyrsta bók hans, „Gleðilegt nýár,
vina mín“, í býðingu Helga Val-
týssonar eins og fyrri bækur. —
Þetta er skemmtileg saga, og
mjög í sama anda og bækur Mar-
git Ravn, og því líkleg til vin-
sælda. Forlag Þorst. M. Jónsson-
ar gefur út.
Ný matreiðslubók eftir
sérfræðinga húsmæðra-
skólanna
Koinin cr út matreiðslubók,
sem heitir „Nýja matreiðslubók-
in“ og er eftir Halldóru Eggerts-
dóttur námsstjóra húsmæðra-
skólanna og Sólveigu Bencdikts-
dóttur, fyrrv. skólastjóra Hús-
mæðraskólans á Blönduósi.
Bókin kemur út á forlagi Þorst.
M. Jónssonar hér, en er prentuð
í Steindórsprenti í Reykjavík.
í formála segir að bókin sé
samin fyrir áeggjan ýmissa skóla-
stjóra og kennara húsmæðraskól-
anna í landinu. Hafa og margir
sérfræðingar úr skólunum lagt
hönd á plóginn, auk höfundanna
tveggja, m. a. Vigdís Jónsdóttir
skólastjóri að Varmalandi, Stein-
unn Ingimundardóttir húsmæðra
kennari á Laugalandi, er samið
hefur kaflann um smurt brauð,
Halldóra Sigurjónsdóttir skólaú
stjóri á Laugum o. fl. Þá er og
birt næringarefnatafla eftir Júlí-
us Sigurjónsson prófessor. Mikið
efni er samþjappað í bókinni, en
hún er 174 bls. í stóru broti,
prentuð á ágætan pappír og í
sterku bandi.