Dagur - 11.12.1954, Side 8
8
Bagijb
Laugardaginn 11. desember 1954
Ymis tiðindi úr nágrannabyggSum
Umferðarmál:
7 wm\m samtal við bílstjóra
úti á miðri umferðarbraut
Fjölmenn útför drengs-
ins frá Litlu-Völlum
Útför Unnsteins Kristjánssonar,
piltsins írá Litlu-Völlum, er beið
bana af voðaskoti í fyi ri viku,
var gerð á þriðjudaginn. Var fjöl-
menni við jarðarförina, úr Bárð-
ardal og nærliggjandi svoitum.
Héðan af Akureyri fóru söng-
menn og stýrði Áskell Jónsson
söngnum. Séra Þormóður Sig-
urðsson á Vatnsenda jarðsöng.
Heima á Litlu-Völlum flutti Sig-
urður bóndi Eiríksson á Sand-
haugum kveðjuorð. Jarðsett var
að Lundarbrekku. Unnsteinn
heitinn, sonui’ Kristjáns Péturs-
sonar á Litlu-Völlum og konu
hans, Engilráðar Olafsdóttur, var
aðeins 13 ára gamall,
Ráðgert að setja ljós-
kross á turn Svalbarðs-
kirkju
f ráði er að setja neon-ljósa-
kross á turn Svalbarðskirkju
hinnar nýju og mun krossinn
þeg,ar vera pantaður hjá Karli
Karlssyni ljósaskiltagerðarmanni
í Reykjavík, en ekki er hann
uppsettur enn eins og sunnan-
blöð hafa hermt. Er þetta
skemmtileg nýbreytni hjá Sval-
barðsströndungum og mun kross-
inn sjást langt að. Víða erlendis
tíðkast að setja slík táknmerki,
þar sem víðsýnt er, t. d. á fialls-
tindi við innsiglinguna í Ríó de
Janeiró og á tindi Mt. Royal við
Montreal-borg í Kanada. — Um
kirkjusmíði Svalbarðsströndunga
er annars það að segja, að verkið
er vel á veg komið. Verður revnt
að ljúka því snemma á næstai ári.
Innbúnað kirkjunnar vantai énn.
Kirkjan mun rúma 120 manns í
sæti. Yfirsmiður er Adam Msgn-
ússon byggingameistari á Akur-
eyri. í sókninni er aðeins 228
manns. Er myndarlega að verið
af ekki fjölmennari söfnuði að
byggja svo veglegt guðshús.
—o—
Sauðfjárræktarfélag var nýlega
stofnað á Svalbarðsströnd Stofn-
endur voru 12 bændur. Sauðfénu
fjölgar óðum í hreppnum og er
orðið fleira nú en var fyrir fjár-
skiptin. Eftir rannsókn sem gerð
var, bæði þar og víða annars stað-
ar hér í nágrenninnu á garna-
veiki, var nokki um kindum slátr-
að. Reyndust 3 áberandi veikar.
Með bólusetningu gegp. þessum
sjúkdómi gera menn sér vonir
r
Olafsfirðingar reyna
að fá keyptan 'togara
Bæjarstjórn Olafsfjarðar sam-
þykkti nýlega að reyna cnn að
vinna að þvl að fá togara tll;
kaupstaðarins. Ilafa bæjar-
stjórinn, Ásgrímur Hartmanns-
son, Jón Gunnarsron. kaupfé-
Iagsstjóri og Sigvaldi Þorleifs-
son útgerðarmaður dvalist í
Reykjavík að undanförnu og
unnið að málinu. Ekkert liggur
enn fyrir um árangur í málinu.
Olafsfirðingar telja togaraút-
gerð frá staðnum öflugasta
bjargráðið við atvinnulíf Olafs-
fjarðar eins og sakir standa.
um minnkandi vanhöld af þess-
ari veiki.
—o—
Vikuna frá 21.—28. nóv. var
jörð þíð að mestu og voru drátt-
arvéla'r við jarðvinnslu á Sval-
barðsströnd. Ræktuninni á Sval-
barðsströnd miðar enn vel áfram
þótt farið sé að þrengjast um
ræktanleg lönd. Túnin liggja
nú saman allt frá Breiðabóli að
Garðsvík.
—o—
Sendiráðunai'.tar Búnaðarfélags
íslands héldu fund á Svalbarðs-
eyri sl. mánudag. Fluttu þeir
báðir erindi og sýndu kvikmynd-
ir. Á eftir voru umræður.
•
50 ára afmæli Naut-
griparæktarfélags
Svarfdæla
Nautgriparæktarfélag Svarf-
dæla minntist 50 ára afmælis síns
með samsæti í þinghúsinu á
Grund laugardagskvöldið 4. þ. m.
— Formaður félagsins, Gestur
bóndi Vilhjálmsson á Bakkagerð-
um, sagði sögu félagsins frá stofn-
un þess. Síðnn tóku ýmsir til
máls, m. a. Bjarni Arason núver-
andi eftirlitsmaður. Færði hann
félaginu árnaðaróskir. — Jóhann-
es Oli Sæmundsson, fyirum
skólastjórþ sýndi kvikmynd úr
Þjórsárdal. — Fleiri tóku til
máls. — Milli ræðanna var sungið
og að lokum var dans stiginn. —
Félagið lét bera fram veitingar af
mikilli rausn. — SamsætiS fór hið
bezta fram og var fjölsótt —
Nautgriparæktarfélag Svarfdæla
mun vera eitt elzta — ef ekki
elzta — nautgriparæktarfélagið í
Eyjafjarðarsýslu.
Safnaðarfundur í Vallasókn í
SvarfaðarJal var haldinn sunnu-
daginn 5. þ. m. í kirkjunni þar að
aflokinni guðsþjónustu. Voru þar
ýmis safnaðarmál til umræðu og
meðal þeirra var raflýsing og raf-
hitun kirkjunnar. Var sóknar-
nefndinni falið að rannsaka
möguleikana. —- Sóknin er fá-
menn, — en engu að síður hefur
margt verið gjört fyrir kirkjuna
á síðari árum. Er hún hin vistleg-
asta, þótt gömul sé, — byggð
1861 af séra Páli Jónssyni sálma-
skáldi, sem þá var prestur á Völl-
um.
Munasölu eða bazar opnuðu
safnaðarkonur á Dalvík sunnud.
5. des., til ágóða fyrir kirkjubvgg-
inguna þar. Munina unnu kon-
urnar sjálfar og gáfu. Mavgt var
þar góðra muna, enda gekk salan
greiðlega. Árangurinn er talinn
góðui'.
Námskeið í freðiisk-
verkun á Sauðárkróki -
hafnar vegabætur í
u
kaupstaðnum
Sauðárkróki 5. des.
Síðustu dagana hefur staðið
hér yfir námskeið í freðfiskverk-
un fyrir verkstjói'a og matsmenn.
Námskeið þetta sótti allmargt
manna úr nærliggjandi kaupstöð-
um og sjávarþorpum og var það
til húsa í hinu nýja og veglega
hraðfrystihúsi Kaupfél. Skagfirð-
inga. Hús þetta, sem nú er full-
gert að mestu, er um 3000 fer-
metrar að grunnfleti og allt hið
vandaðasta hvað frágang snert-
ir og um útbúnað allan innan
veggja. Standa vonir til þess að
starfsemi frystihússins geti orðið
til mikilla hagsbóta fyrir íbúa
þessa bæjar, ef það fær nægan
fisk til vinnslu ,enda þörf á úr-
bótum í atvinnulífi bæjarins,
einkum yfir vetrarmánuðind.
Einn dekkbátur hefur stundað
héðan fiskveiðar með línu í
haust. Gæftir hafa verið stopular
og afli lítill oftast. Síðustu dagana
hefur afli þó glæðst og fékk bát-
urinn einn daginn nú í vikunni
um 4 tonn. Nokkrar trillur fóru á
handfæri hér innfjarðar fyrri part
vikunnar og . fengu sæmilegan
afla.
—o—
A5 undanförnu hefur verið
unnið að því að lækka Skagfirð-
ingabraut frá Kirkjutorgi og suð-
ur móts við syðstu hús í bænum.
Sömuleiðis hefur Kirkjutoi'gið
verið jafnað og lagfært. Ev mikil
bót að þessu, þar sem brautin
breikkar um leið verulega og
torgið notast til umferðar umfram
það sem áður var. Framkvæmdir
þessar gera bó gamalt mannvirki,
sem áður var samgöngubót að, nú
að farartálma. Gamla Sauðár-
brúin þjónar nú ekki lengur sínu
gamla hlutverki og verður þess í
stað brotin niður sem óþarfui og
óæskilegur hlutur, sem búinn er
að gera skyldu sína um áratugi,
sitthvað séð og sitthvað reynt.
Hún fer nú að tilheyra liðnum
tíma, enda þörf á því.
Verzlun Sigurðar Sigfússonar
flutti í ný húsakynni í gær. Hús-
ið, sem er bæði íbúðar- og verzl-
unarhús, er stór bygging og hið
myndarlegasta. Verzlunarplássið
er stórt og rúmgott og haganlega
innréttað og með stórum og góð-
um sýningargluggum.
Nýlátin er hér í bæ Anna
Björnsdóttir, fyrrum húsfreyja á
Atlastöðum í Svarfaðardal, tæp-
lega 95 ára að aldri. Hefur hún
átt heima hér í bæ allmörg und-
anfarin ár hjá syni sínum, Árna
Árnasyni frá Hofdölum. Anna
hafði legið rúmföst í 34 ár en hélt
sínu andlega heilbrigði fram und-
ir það síðasta.
Hofsósbúar vonast eftir
rafmagni um júlin
Nokkur eftirvæniing er hjá
fólki á Hofsós vegna þess að
nokkur von er til þess að orka frá
nýrri rafstöð verði komin í þorpið
fyrir jólin. En ekki má þetta tæp-
ara standa. Framkvæmdir hafa
dregizt vegna þess að efni til
síöðvarinnar varð síðbúnara en
ætlað var í fyrstu. En nú er verið
að sækja það síðasta til Reykja-
víkur.
Stíidentar felldn
tillösn kommúnista
í fynakvöld var rædd í Stú-
denlafélaginu hér tillaga frá
þjóðvarnarkommúnistum um
að krefjast tafarlausrar upp-
sagnar hervcrndarsamningsins.
Var tillagan felld með yfir-
gnæfandi meirihluta atkvæða.
Oft má sjá gangandi mann á
götu hér í bæ gefa bílstjóra, sem
fram hjá ekur, merki um að hann
þurfi að tala við hann. Og bíl-
stjórinn stöðvar bílinn úti á
miðri götu og þar hefst samtal,
stundum á fjölförnum götum. —
Þetta er ljótaumferðarmenningin.
Bílstjórinn á að sjálfsögðu að aka
að næsta löglegu bílastæði og
stöðva bílinn sinn þar, ef hann
Út er komin lijá Menningar-.
sjóði vegleg bók, er flytur sýnis-
horn íslenzkrar ræðumennsku í
1000 ár. Bókin heitir „Mannfund-
ir“. Vilhjálmur Þ. Gíslason út-
varpsstjóri tók cfnið saman og
ritar formála.
Rekur hann þar að ræður hafa
verið fluttar hér allt síðan þjóð-
félagið var stofnað og hvernig ís-
lenzkt stjórnarfar og önnur
menning heíur frá upphafi og til
þessa dags verið byggt á hinu
talaða orði. Úrval þetta kallar
hann frumsmíð, því að þótt oft
hafi verið gert úrval af sögum og
kvæðum, hefur ekki fyrr verið
reynt að setja fram sýnishorn
allrar íslenzkrar ræðugerðar frá
upphafi. Safnið á að sýna sögu-
lega þróun ræðunnar að efni,
formi og stíltogundum, sýna
ræðumennsku sem sjálfstæða og
sérstaka grcin í andlegu lífi
þjóðarinnar.
Á annað hundrað ræðumenn.
Þarna eru leiddir fram á annað
hundrað ræðumenn, frá Agli
Skállagrímssyni og Þorgeiri
Ljósvetningagoða til Sveins
Björnssonar forseta og annarra
forustumanna á þessari öld. En
engar ræður eru þarna eftir nú-
lifandi menn.
Bókin er í senn stórfróðleg og
skemmtileg, geymir bæði sögu og
vill sinna samtalsbeiðninni. —
Myndin hér að ofan er frá síðastl.
hausti. Vegfarandi átti erindi við
jeppabílstjóra, stöðvaði hann um-
svifalaust úti á miðri götu, og þar
stóð bíllinn hreyfingaiiaus í 7
mínútur. Vegfarandinn er hálfur
inni í jeppabílnum, stendur öðr-
um fæti örugglega á götunni, en
hinn fótinn hefur hann inni í
bílnum.
Massískt mál og nokkra vitneskju
um andlegt atgervi sumra fræg-
ustu manna íslandssögunnar. —
Bókin er nokkuð á 5. hundrað
bls., prýdd mörgum myndum og
er útgáfan mjcg vönduð. Er þettta
ein eigulegasta íslenzka bókin nú
fyrir þessi jól.
Atvinnu- og menningar-
c o
mál bæjarins rædd á
fundi Framsóknarm.
Á fundi Framsóknarfélags Ak-
rreyrar á fimmtudagskvöldið
fóru fram fróðlegar umræður um
atvir.nu- og menningarmál í
bænum. Var m. a. rætt um hrað-
frystihússmálið, dráttarbraut fyr-
ir togara, efiingu iðnaðár, bi-ott-
flutning vélskipa úr bænum og
ráðstafanir til að viðhalda báta-
flotanum, hitaveiturannsóknir,
bvggingu bárnaskóla og stækkun
gagnfræðaskólahússins, safnahús
á efri hæð slökkvistöðvarbygg-
ingarinnar Matthíasarsnfn o. fl.
Haukúr Snorrason ritstj., form.
féla.ssins. st.iórnaði fundinum og
flutti inngangsei'indi, en aðal-
ræðumenn voru bæjarfulltrúarn-
ir Jakob Fn'mannsscn og Guðm.
Guðlaugsson. Auk þeirra tóku til
máls Hannes J. Magnússon, Ás-
grlmur Stafánsson, Jóhann Fri-
mann, Þorsteinn Davíðsson, Sig-
mundur Björnsson og Arnþór
Þorsteinsson. Verður nánar vikið
að sumum þessum málum síðar.
Merk bók fíytur sýnishom
íslenzkrar ræðumennsku í 19ÖQ ár