Dagur - 12.01.1955, Side 6

Dagur - 12.01.1955, Side 6
6 DAGUR Miðvikudaginn 12. janúar 1955 í óttans dyrum Saga eítir DIANA BOURBON 11. DAGUR. (Framhald). „Eg læt dyrnar í milli herbergj- anna ólæstar," sagði Romney. „Það er ágætt,“ svaraði eg Hann gekk að rúmi konu sinn- ar og stóð þar og horfði á hana. „Eg ætti að hringja í sendiráðið til þess að láta vita um mig,“ sagði eg. „Það er ætlast til þess að æv- inlega sé unnt að ná til okkar.“ „Að sjálfsögðu. Það er sími hérna í herberginu, sem þér getið notað, nema ef þér ætlið að tala einkamál.“ Mér flaug í hug, að í þessu húsi mundi enginn sími nógu mikill einkasími til þess að halda því, sem eg hafði í hyggju að segja, en eg kaus samt að tala í síma frammi á ganginum. Eg hringdi enn til Mohr, og nú svar- aði hann. „Halló, er það í sendiráðinu," flýtti eg mér að segja. Maður veit aldrei, hver hlustar á og allut var varinn góður. Hann var fljótur að átta sig. „Sendiráðið," át hann upp eftir mér. ,.Jú, þetta er sendi- i’áðið, hver er það, sem talar?“ Eg sagði nafn mitt og bætti við að eg vildi aðeins láta vita, að eg mundi gista í nótt í húsi Romneys hershöfðingja á Belgravetorgi. „Loftárásin stendur enn og eg treysti mér ekki heim. „Hjá Romney hershöfðingja? Og hvað er símanúmerið þar?“ Eg gat ekki að mér gert að brosa að heyra hversu vel Mohr féll inn í hlutVerkið og eg þóttist sjá, að hann skemmti sér sjálfur. „Jæja,“ sagði hann, „er svo nokkuð fleira?“ Eg hikaði. Með einhverjum ráðum varð eg að segja honum frá Jane. Með einhverju dulmáli þó. ,Heyrðu, Bill,“ sagði eg, því að Bill var eina karlmannsnafnið sem mér kom í hug þá stundina. „Eg þarf að koma skilaboðum til Mohrs majórs.“ „Til majórsins?“ endurtók hann. „Já, eg hef reynt að ná til hans í síma hvað eftir annað í kvöld, en hann hefur ekki svarað. Gjörðu svo vel að segja honum, að skýrslan, sem eg hef verið að gera — fylgistu með?“ „Já, eg held það,“ svaraði hann efablandinn. „Það voru tveir kaflar þessarar skýrslu. Eg átti að taka til við fyrsta kaflann strax, en svo kom aðalefnið." „Já, ungfrú, eg er með. Eg er að skrifa þetta allt niður.“ „Það er allt í lagi með aðalefn- ið sjálft. Segðu honum það. En það er eitthvað ruglað og það meira en lítið í upphafskaflanum. Eg vildi gjarnan að hann liti á hann og það án tafar. Og hann finnur hann —“ eg þagnaði og skimaði eftir ganginum en eg gat ekki merkt að nokkur stæði á hleri. „Hann finnur hann,“ hélt eg áfram, „á sínum stað þar sem hann á að vera að réttu lagi.“ „Já, ungfrú, eg hef skrifað þetta allt hér niður og skal koma boðunum án tafar,“ sagði Mohr. Mohr lagði símann á, og eg gerði það líka með eldsnöggri hreyfingu, en lyfti honum svo strax aftur að eyranu, Ef þetta er gert hönduglega er með því hægt að gabba mann, sem er á hleri í öðrum síma, sem er tengdur inn á 1 ínuna.. Og um leið og eg brá símanum að eyranum á ný, heyrði eg greinilega, að sími var lagður á á þessari sömu línu. Grunsemd mín hafði verið rétt. Eg var hugsi um stund, en lagði svo símann á endanlega. Það var aukasími í herberginu, sem við höfðum verið í um kvöldið, en Anna og René höfðu komið þar út rétt eftir að ég lauk símtalinu. Erfitt var að hugsa sér að þau gætu haft samvinnu um nokkurn skapaðan hlut. Þjónninn hafði gengið um meðan eg talaði, hald- ið á bakka með glösum. Enginn af þessum þremur gat hafa legið á hleri í öðrum síma. Babs hafði verið hjá manni sínum í svefn- herberginu. Hún heyrði nú til mín og kall- aði. Eg hraðaði mér í gegnum litla herbergið og inn til hennar. „Eg hef látið einn af náttkjól- unum mínum í rúmið þitt,“ sagði hún. „En þú verður að notast við sömu sápuna og kremið og eg nota, en því miður fyrirfinnst enginn nýr tannbursti hér.“ „Þetta bjargast ágætlega eina nótt,“ sagði eg, en mér varð star- sýnt á hana. Hún hafði þvegið af sér andlitsfarða og sást nú, hversu náhvít hún var og andlitið tekið og þreytulegt „Eg er þreytt,“ sagði hún, rétt eins og hún hefði lesið hugsanir mínar. „Eg er afskaplega þreytt." Og hún greip hendinni fyrir and- litið. „Eg hlýt að líta hræðilega út,“ sagði hún. „Nei,“ hrópaði eg, „þú gerir það ekki, Babs. En þú lítur út fyrir að vera áhyggjufull." Eg hefði átt að segja hrædd eða óttaslegin, en vildi ekki hætta neinu eins og á stóð. „Já, eg er áhyggjufull," sagði hún. ,Get varla undir því risið.“ „Viltu segja mér frá því? Það væri kannske léttir?“ „Það er bara . . .“ Hún komst aldrei lengra á þessari braut, en eg var sannfærð um að hún var komin á fremsta hlunn með að trúa mér fyrir einhverju, en átt- aði sig og sneri við. Það tækifæri var glatað. „Það er bara Gerald,“ sagði hún svo. „Drengurinn okk- ar Nolls. Hann er með ömmu sinni úti á landi, en eg óttast svo um hann í þessum sífelldu loft- árásum" „En fyrst hann er úti á landi er engin ástæða til þess að óttast um hann, Babs,“ sagði eg. „Eg veit það en . . .“ Hún sneri við í annað sinn. „Eg geri sjálf- sagt úlfalda úr mýflugu.“ (Framhald). ÍBÚÐ 2 herbergi og eldhús óskast til leigu. Sími 2283 Karlmannsarmbandsúr tapaðist 27. des. — Vinsarn- lega skilist gegn fundarlaun- um á B. S. A. ÍBÚÐ Barnlaus hjón óska eftir 1 til 2 herb. og eldhúsi til leigu strax. — Húshjálp kemur til greina. — Upplýsingar í sívm 2186. Barnavagn ( Silvercross) til sölu. — Upplýsingar í síma 1048. Herbergi, til leigu. Afgr. vísar á. Ford-junior A-781 í góðu lagi til sölu. — í honum er gott útvarp. Reginn Árnason Strandgötu 9 TIL SÖLU: trillubátur með 4 hest- afla Sólóvél nýlegri. — Hagkvæmir greiðsluskil- málar geta komið til greina. — Veiðafæri geta fylgt. — Bátur og vél í góðu lagi. Uppl. t síma 1312 Herbergi óskast til Ieigu. — Tilboðum sé skilað á afgr. Dags, sem fyrst, merkt „338“ Húsbyggendur . ..Smíða. hurðir ,glugga ,eld^ húsinnréttingar o. m. fl. á trésmíðaverkstæði mínu á Gleráreyrum. Böðvar Tómasson Helgamagrastræti 49 Sími 1646 IBUÐ 2-3 herbergi og eldhús vant- ar. — 3 í heimili. A. v. á. Sendiferðabíll Fordson-sendiferðabíll til sölu. A. v. á. Sá, sem hefði í huga að selja á næsta vori sæmilega húsaða jörð eða jarðarpart, í nærsveitum Akureyrar, er vinsamlega beðinn að skrifa í pósthólf 105 Akureyri. Austin 10 sendlabíll til sölu nú þegar. Verzl. Eyjafjörður h.f. Múrhúðunarnet Girðinganet Verzl. Eyjafjörður h.f. Stúlka óskast til heimilisstarfa. — Sérherbcrgi. — Mikið frí Uppl. í Löngumýri 13 eða síma 1649 Kuldaúlpur ALLAR TEGUNDIR V efnaðarvörudeild APPELSÍNUR EPLI CÍTRÓNUR Kaupfélag Eyfirðinga Nýlenduvörudeildin og útibútn. RÝMINGARSALA Hin árlega vetrarútsala verzlunarinnar kefst mánudaginn 17. þessa mánaðar. — Glæsilegt úrval af góðum vörum fyrir ótrúlega lágt verð. Kápur og dragtir........afsl. 15-70% Fermingarkápur .......... ■ Kvenkjólar .............. ■ Kventöskur .............. ■ Kvenpeysur .............. - Kvenhattar .............. - Kvenpils ................ - Skíðabuxur kvenna ........ Ivvensloppar ............ - Ivjólaefni .............. ■ Kvenhanzkar ............. - Kvenskraut............... - Nælonsokkar ............. - Nælonblússur ............ - 15-70% Barnahúfur 15% 20-70% Loðkragaefni 15% 20-40% Hvítt gerfiskinn 15% 15-60% Karlmannafrakkar .... .... — 20% 20% Plastregnkápur 20% 20-30% Karlmannaföt 20% 15% Karlmannasokkar 20% 20% Karlmannaskyrtur .... 20% 15% Hálsbindi 20% 15-25% Skjalamöppur 20% 15% Karlmannahanzkar .... 20% 25% Barnasokkar 15% 15% Slæður og treflar 20% 15% Alpahúfur 30% Athugið að nú er tækifærið til þess að ná í góðar og ódýrar vör- ur. — Komið meðan úrvalið er mest. VERZLUN B. LAXDAL • ■ . " .t 3tt íít9 •xix'íl ítnoaVieiaf

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.