Dagur - 12.01.1955, Side 8
8
Baguk
Miðvikudaginn 12. janúar 1955
Hulunni lyft af leyndardómi
blaðgrænunnar
Milli jóla og nýjárs skýrði bandaríski prófessorinn Daniel I.
Arnon frá því í vísindafélaginu í Berkeley í Kaliforníu, að
honum og samstarfsmönnum hans hefði, eftir 6 ára rannsókn,
tekizt að mynda kolvetnissambönd (sykur) úr koltvísýringi
loftsins og vatni með orku sólarbirtunnar. Ýmsir aðrir hafa
fengist við þetta stórmerka rannsóknarefni og lagt til undir-
stöðuþekkingu, þótt ekki tækist þeim að leysa málið. Einnig
er vitað að geislavirkt kolvetni og fosfór hafa átt mikinn þátt
í ráðningu gátunnar, því að með geislavirku efnunum var
hægt að fylgjast með atferli frumeindanna í efnabreytingun-
mn, miklu betur en áður var fært. Grænn gróður var áður
talinn einn um hituna, að geta unnið koltvísýring úr loftinu
og breyta ólífrænmn efnum í lífræn. Nú virðist vísindamönn-
unmn hafa tekizt þetta, a. m. k. að nokkru leyti. Þeim hefur
lánast að tillífa koltvísýring loftsins með blaðgrænukornun-
um, alveg einangruðum frá frumum og vefjum. Ýmis fjörefni,
virðast eiga þátt í tillífuninni. Hin mikla uppgötvun Daniels
Arnons og félaga hans, er fyrsta skrefið til að vinna kolvetnis-
sambönd úr loftinu á cfnafræðilegan hátt, án milligöngu gróð-
ursins. Það þýðir að takast megi einhvern tíma að vinna mat
beinlínis úr loftinu. Draumurinn um „himnabrauð“, að vísu á
jarðneskan hátt, getur orðið að veruleika í framtíðinni. Kann-
ske eigum við eftir að lifa þau undur?
Ingólfur Davíðsson. .
Líkara því að leika fyrir suðræna
áheyreiiíiiir en norræna
Ungversk-ameríski píanó snillingurinn Ervin
Laszlo ánægður með móttökurnar hér
UngV'ersk-aineríski píanósnill-
urinn Ervin Laszlo hafði tónleika
í Nýja-Bíó hér í bæ sl. miðviku-
dagskvöld við ágæta aðsókn og
mikla hrifningu áheyrenda.
Var hann óspart klappaður
fram á sviðið að tónleikunum
löknum, og lauk hann hljómleik-
unum með því að leika La Camp-
anella eftir Liszt-Paganini af
furðulegri tækni. Björgvin Guð-
mundsson tónskáld skrifar um
hljómleikana annai-s staðar í
þessu blaði.
Suðrænt „temperament“.
Þetta voru einu hljómleikar
Laszlo hér á landi, en hann er nú
horfinn til Evi-ópu til hljómleika-
halds í mörgum stórborgum þar.
Laszlo var mjög ánægður með
þær móttökur, er hann fékk hjá
áheyrendum hér. Hann sagði, í
stuttu viðtali við blaðið, að efnis-
skrá sú, er hann lék hér, hefði
verið ætluð fólki með mikinn
músíkþroska og sumt þar væri
ekki til þess fallið að vekja al-
Kvikmynd um Hitler
og Evu Braun
Skjaldborgarbíó sýnir um þess-
ar mundir merkilega kvikmynd,
sem heitir Hitler og Eva. Og leik-
arar í myndinni eru Adolf Hitler,
Eva Braun, Hermann Göring,
Jósef Göbbels, Heinrich Himmler
og fleiri dándismenn af því tagi,
-þ e. a. s. það eru engir leikarar
sem eru í hlutverkunum heldur
þessir menn sjálfir. Myndin er
gerð úr einkamyndum Hitlers og
Evu Braun og systur hennar og
úr fréttamyndum frá Hitlerstím-
anum. Er mynd þessi sögð lær-
dómsrík.
menna hrifningu ,t. d. verk Pro-
kofiefs, en hér hefðu áheyrendur
komið sér þægiiega á óvart og
tekið leik sínum með nær því
suðrænu „temperamenti“, sem
menn ættu naumast von á að
fyrirhitta á íslandi.
Kemur e. t. v. til íslands í apríl.
Ferðin til íslands, en hann kom
hér með fiðluleikaranum Isaac
Stern, sem hélt hljómleika í
Reykjavík, sagði Laszlo að hefði
orðið sér til ánægju og taldi hann
ekki ósennilegt að hann kæmi
hér við á vesturleið í apríl, og
héldi þá e. t. v. hljómleika í
Reykjavík, en því varð ekki kom-
ið við nú, að þeir héldu báðir tón-
leika þar að þessu sinni, Laszlo og
Stern.
Lögreglan segir hér-
aðsbannið til bóta
Hinn 9. þ. m. var ár liðið síðan
lokað var útfengisútsölu hér á
Akureyri, er héraðsbannið gekk
í gildi. Lögreglan hefur skýrt
blaðinu svo frá, að hún telji
bannið hafa gefið góða raun og
hafi spár um hið gagnstæða ekki
rætzt. Telur yfirlögregluþjónn-
inn áfengisneyzlu hafa minnkað í
bænum og bæjarbrag nú allan
annan og betri en meðan áfer.gis-
búðin var opin hér daglega. Nú
um áramót fjölgar íbúum kaup-
staðarins um a. m. k. 600 vegna
sameiningar Glerárþorps og bæj-
arins, en ekki er talin þörf á að
fjölga lögreglumönnum og telur
yfirlögregluþjónninn það að
þakka bættu ástandi í áfengis-
málum, er rekja má til héraðs-
bannsins.
Sauðárkróksflugvöllur
inikil samgöngumiðstöð
Sauðárkróki 2. jan.
Mikil umferð var um flugvöll-
inn hér í dag. Flugvélar komu og
fóru. Um 140 farþegar lögðu leið
sína um völlinn. Hin nýja milli-
landaflugvél Flugfélags íslands
lenti hér og flutti 116 manns til
Reykjavíkur í tveim ferðum.
Voru farþegar þessir sumii úr
héraðinu en aðrir fluttir hingað
á minni vélum frá Akureyri,
Siglufirði og Hólmavík í veg fyr-
ir þessa stóru flugvél.
Flugvöllurinn hér er um 1500
m. að lengd og breidd flugbrautar
er um 55 m. Hann er upplýstur
með fullkomnum rafljósum og sá
eini utan Reykjavíkur og Kefla-
víkur, sem stórar flugvélar geta
lent á, enda hefur hann komið að
góðum notum þegar þeir vellir
hafa verið lokaðir vegna veðurs
eða af öðrum ástæðum. Má i því
sambandi minna á stóra milli-
landaflugvél er lenti hér að nóttu
til á sl. vetri, en báðir vellirnir
syðra voru þá lokaðir vegna ó-
veðurs og vélin að verða benzín-
laus, svo að ekki er gott að segja
hvernig til hefði tekizt, ef völlur-
inn á Sauðárkróki hefði ekki ver-
ið fyrir hendi. Þrír flugvitar eru í
nágrenni vallarins og auðvelda
mjög allt aðflug. Þá eru og tal-
stöðvar bæði á afgreiðslu Flug-
félagsins inni í bænum og í flug-
skýlinu á flugvellinum, svo að
tæki til flugþjónustu og flugör-
yggis virðast vera í góðu lagi.
Á árinu 1954 voru 254 lendingar
á vellinum. Farþegar héðan voi’u
um 940 og eru þá ótaldir allir þeir,
er hingað komu með flugvélum
og aðrir, er lögðu leið sína um
flugvöllinn.
Frá Sparisjóði Svarf-
dæla
Úr Svarfðarda! 10. jan.
Aðalfundur Sparisjóðs Svarf-
dæla var nýlega haldinn í Dalvík.
Rekstrarafkoma sjóðsins á árinu
var góð og er nú varasjóðseign
hans orðin rösklega 100 þús. kr.
Sparisjóðurinn var stofnaður
1884. Stjórnina skipa nú: Baldvin
Jóhansson, útibússtjóri, formað-
ur, Stefán Jónsson í Brimnesi,
gjaldkeri (framkværndastjóri), og
Þórarinn Kr. Eldjárn, hreppstj.
að Tjörn, meðstjórnandi. — Stef-
án á Brimnesi hefur verið í
stjórn sjóðsins samfleytt meira en
30 ár. Af ábyrgðórmönnum sjóðs-
ins, sem eru tólf að tölu, má
nefna Gísla Jónsson á Hofi, sem
var endurskoðandi sjóðsins frá
1906—1951. — Sjóðurinn er gagn-
leg stofnun fyrir byggðarlagið.
Laugaskólamenn héldu
brennu - Jókann Kon-
ráðsson skemmti
nieð söng
Laugum 10. jan.
Að gamalli venju minntust
nemendur og kennarar Héraðs-
skólans að Laugum þrettánda-
kvölds jóla með sameiginlegu
kaffisamsæti í hátíðasal skólans.
Þá var og um leið minnzt þess, að
nemendur voru allir farsællega
komnir úr jólaleyfi sínu. Undir
borðum var skemmt með upp-
lestri og sameiginlegum söng. Þá
var sú nýbreytni á höfð, að Jó-
hann Konráðsson söngmaður frá
Akureyri var fenginn til þess að
koma í skólann. Söng hann fyrir
samsætið við mikinn fögnuð
áheyrenda. Þóroddur Jónsson,
læknir á Bi’eiðumýri, lék undir.
Að samsæti loknu hófst brenna
mikil og fögur, sem nemendur
efndu til og höfðu undirbúið.
Veður var hið fegursta, en þó
lágskýjað, svo að flugeldar, sem
skotið var, nutu sín ekki sem
skyldi.
Að söngnum loknum í Héraðs-
skólanum gengu þeir Jóhann og
Þóroddur suður í Húsmæðraskól-
ann og söng Jóhann nokkur lög
fyrir skólastjóra, kennslukonur
og nemendur. Var honum þar
forkunnar vel fagnað. Var söng-
maðurinn síðan kvaddur með
miklu þakklæti fyrir ógleyman-
lega skemmtun í báðum skólum.
Vegur milli Lauga og Akureyrar
var sem um sumardag að lokn-
um hlákum eftir áramótin.
Beituskortur í Húsavík
- góður afli þegar á sjó
er farið
Húsavík 11. janúar.
Ágætur afli hefur verið á mið-
en sjór lítt stundaður vegna
beituleysis. Eru horfur á að róðr-
um Húsvíkinga að undanförnu,
ar leggist niður af þessum sökum
innan skamms, verði ekki úr
bætt. — Nýlegar kaus bæjar-
stjórn kaupstaðarins þriggja
manna nefnd til þess að taka þátt
í samningum, ásamt öðrum bæj-
arfélögum, um félagsskap um
togaraútgerð. í nefndinni eiga
sæti: Karl Kristjánsson alþm.,
Ari Kristinsson sýsluskrifari og
Jóhann Hermannsson bæjarfull-
trúi.
—o—
Um áramóíin lét Bjarni Bene-
diktsson póstafgreiðslumaður í
Húsavík af því embætti eftir ára-
tuga langa þjónustu. Bjarni hef-
ur starfað í hálfa öld að póstaf-
gi-eiðslu, því að hann hóf að
starfa við bréfhirðingu hjá föður
sínum á Grenjaðarstað árið 1896,
en lengst af hefur hann verið
póstafgreiðslumaður í Húsavík.
Við starfinu tók Friðþjófur Páls-
son símstjóri og jafnframt flutti
póstafgreiðslan í hið nýja póst-
og símahús, sem í smíðum er
gegnt samkomuhúsi bæjarins. En
byggingunni er hvergi nærri lok-
ið enn og er síminn enn til húsa
á gömlu símstöðinni.
Karlakórinn Þrymur hélt söng-
skemmtun 7. þ .m., söngstj. Sig-
urður Sigurjónsson. Húsið var
i fullskipað og var kór og söng-
stjóra óspart klappað lof í lófa.
Finnst mörgum Húsvíkingum að
þessi ágæti karlakór mætti oftar
láta til sín heyra.
Snoddas í f jár
Sænski vísnasöngvarinn
Snoddas (Gustaf Nordgren) —
frægur á fslandi og í Svíþjóð —
er orðinn átakanlega blankur,
segja nýkomin Norðurlanda-
blöð, og getur ekki borgað
skattinn sinn. Til þess að full-
nægja kröfum skattayfirvalda
var annar bíllinn hans — en
slíltir snillingar eiga tvo bíla —
seldur á nauoungaruppboði.
Og svo rignir skuldakröfum
yfir Snoddas. m. a. frá umboðs-
manni hans fyrrv., — fræg-
um hér af tilraun til að koma
Snoddas á svíð Þjóðleikhússins
— sem íelur vangoldin um-
boðslaun tugi þúsunda króna.
Annars er upplýst, að þótt
Snoddas skorti kontanfa um
áramóíin eins og fleiri, sé hann
enginn hreppsómagi. Hann á
bíl, sem fyrr segir, og húseign
nolckra, og svo hafði karl forsjá
til að tryggja sig þannig, að
hann fær 509 sv. kr. á mánuði
cftir að hann er orðinn 55 ára,
og er begar búinn að borga
4500Ö sv. kr. í þú tryggingu.
Annars segja sænsk blöð að
Snoddas hafi ekkcrt vit á pen-
ingum, og ausi þeim út á báða
bóga Það fylgir sögrnn þessum,
að sænskum almenningi þyki
enn gaman að hlusta á Snoddas.
Nú er ijósadýrðin dofnuð
Á föstudagsmorgun var hafizt handa um að taka niður Ijósaskreyt-
mgarnar í bænum og öll jólatrén. Hurfu þá norska tréð á Ráðhús-
torgi, fallegt jólatré, sem KEA lét setja upp á Kaupvangstorgi og
jólastjömur í götum, svo og öll jólatrén, er Fegrunarfélagið lét setja
upp víðs vegar um bæinn, þ. á. m. þessi fallegu tré tvö við kirkjuna,
en þannig leit kirkjan út á jólum, og var bjart og fallegt að horfa upp
til hennar úr miðbæmnn. — (Ljósmynd: Gísli Ólafsson).