Dagur - 14.05.1955, Page 2

Dagur - 14.05.1955, Page 2
2 D AGUR Laugardaginn 14. maí 1955 LAUST OG FAST Leiðbeiningar um varnir gegn úfbreiðslu karlöfluhnúðorms Þunnar þakkir. í eldhúsinu á Alþingi á dögun- um, ræddi einn ræðumaður krata fjálglega um „fórnir“ verka- manna í Reykjavík og Vest- m@nnaeyjum, en aldrei hrutu nein þakkarorð af vörum hans til venkamanna hér á Akureyri. Er engu líkara en að það álit sé ofar- lega syðra, að mánaðarverkfall hér hafi engu skipt um úrslit verkfallsins í heild. Mun skoðun þessi heldur ekki út í bláinn. En heldur eru þetta þó þunnar þakkir til verkamanna hér fyrir mánaðaratvinnutekjur, sem þeir misstu, og tekst ekki að vinna upp í fyrirsjáanlegri framtíð. Líklega eru forsprakkar komm- únista öllu þakklátari. Þeim gafst tækifæri til að æfa sig í komm- únistiskri hernaðarlist við Lóns- brú og víðar. í þeirra augum var verkfallið fyrst og fremst póli- tískar sviptingar. Mun þeim þykja framlag verkamanna hér í því efni þakkarvert, en um kjara- bætur varðar þá ekki, frekar en Þórodd um þjóðarhag. Kommúriistar í íslenzku menningarlífi. Þreföld stórfyrirsögn í Morgun- blaðinu: Heimdellingar ætla að ræða um áróður kommúnista í íslenzku menningarlifi. Segir blaðið til skýringar, að áhrifa kommúnista gæti allt of víða í menningarlífi þjóðarinnar, og sé það skaðsamlegt. Ætla Heimdell- ingar að hengja bjölluna á kött- inn. Væntanlega gleymist ekki ein höfuðuppsprettan: Seta yfir- kommúnistans á íslandi í emb- ætti menntamálaráðherra þjóðar- innar í mörg ár, fyrir atbeina og með tilstyrk Sjálfstæðismanna. Einhverjum fórst, en ekki þér, Frakkur að gelta. „Saga gekk. . .. sögð höfð ef<ir“. Þekkja menn ■orðbragðið9 Ónei, það er ekki beint úr munni Gróu gömlu. Það er úr hinu orðvara málgagni Atþýðuflokksins á Ak- Viðureignin við lömunarveikina. Hinum stóra sigri læknavísind- anna í baráttunni gegn lömunar- veikinni hefur nýlega verið fagnað um víða veröld. Bandarískum lækni, dr. Salk, hefur tekizt að framleiða bóluefni, sem gerir menn ónæma fyrir þessum ótta- lega sjúkdómi, sem hefur lagt svo marga að velli fyrir aldur fram, eða leikið þá svo grátt, að þeir bera aldrei sitt barr framar á með- an þeir lifa. Barátta læknavísindanna gegn lömunarveikinni hefur verið sein- leg og ströng og ennþá er ekki full- ur sigur sunninn. Sennilega líta læknavisindin svo á, að bóluefni dr. Salks sé aðeins einn áfangi, og að halda beri áfram að lokatak- markinu, að útrýma þessum sjúk- dómi með öllu. Það vildi svo til, að skömmu áð- ur en fregnin um bóluefni dr. Salks var birt, hafði Alþjóðaheil- brigðisstofnunin (WHO) gefið út ýtarlega bók urn. lömunarveikina. ureyri. En þar hefst ein ritsmíð þannig sl. þriðjudag: „Meðan verkfallið stóð, gekk sú saga staf- laust um bæ og byggð, og var sögð höfð eftir forráðamönnum KEA, að hráefni til smjörlíkis- gerðar sæti í Gullfossi. ..." (Let- urbr. hér.) Hefði efnið mátt hrekjast margar ferðir í milli landa „sökum óbilgirni verkfails- manna,“ stendur þar, og skal fram tekið, að gæsalappirnar eru úr Alþýðumanninum. Þegar rit- stj. er kominn þetta langt áleiðis með sögu sína, „sem sagt er“ að gengið hafi um bæinn og „sögð var höfð eftir“ vissum mönnum, þykir honum tími til kominn að hafa eftir bcina ræðu viðkomandi forráðamanna, og skellir á gæsalöppunum til áherzlu að þar séu þeirra eigin orð! Og svo heldur hinn grand- vari sögumaður áfram: „Nú er komið upp úr dúrnum að saga þessi var tilhæfulaus með öllu... . “ o. s frv. Er þetta ekki alveg prýðilega að verið? Þegar búið er að rekja söguna sem ,.sögð er“ ganga húsa í mil’i, og „sögð höfð eftir“ (mikið Ijómandi er þetta annars ráðvendnislegt orðalag), upplýsir sögumaður, að sagan sé tilhæfulaus. Og svo kemur vandlætingin, og ríður ekki við einteyming1 Þarf að taka það fram að „sagan“ er uppspuni frá rótum? Heilbrigðismál úr hreinsunareldi. Bæjaryfirvöldunum á Akureyri hefur borizt tilkynning um að heilbrigðisreglugerð bæjarihs hafi öðlast staðfestingu löglegra stjórnarvalda. Fylgdi ekki um- sögn landlæknis í þetta sinn, hvernig honum hafi líkað breyt- ingar þær, sem gerðar voru. Er þyí, ,óljóst, hverja einkunu. harin hefur gefið að lokum fyrir reglu- gerðina í núverandi mynd. Má þó ætla að af henni séu „álappa- legustu" skankarnir, og plaggið í heild sé sæmilega „smiðslegur" gripur. Bókin, sem er rituð af 17 sérfræð- ingum frá 7 löndum, er 400 blaðsíð ur að stærð og gefur yfirlit um allt er læknavísindin vita um sjúkdóm- inn. Tiltolulega nýr sjúkdómur. í bókinni er skýrt frá því, að lömunarveikin sé tiltölulega nýr sjúkdómur. Það eru ekki nema um 200 ár síðan læknar fóru að gefa þessari veiki sérstakan gaum. í fyrstu lagðist veikin eingöngu á mjög ung börn, og frá því stafar hið gamla nafn „barna-lömun“ — infantile paralysis. — Auk þess virtist svo, sem veikin kæmi ekki upp nema í einstökum löndum. Aukin þekking lækna á veikinni og hæfni til að greina hana hefur fært mönnum heim sanninn um, að löm- unarveiki kemur fyrir svo að segja um allan heim. Og ennfremur er nú svo komið að lömunarveikin leggst á fólk á öllum aldri, fyrst fór henn- ar að verða vart í unglingum og síðar í fullorðnu fólki, og virðist hár aldur engin vörn lengur. Söguþjóð í fortíð og nútíð íslendingar geta verðskuldað med fullum rétti heiðursheitið ,sögu þjóð'j ef miðað er við fortíðina og áhuga almennings á þjóðlegum frœðum. En rithöfundarnir verða að leggja sinn skerf fra?n með þvi ao heita orku sinni til að hafa jafnan á boðstólum lasefni, sem er samhcerilegt við afrek forfeðranna. En þegar áratugir líða þannig, að hinn mikli fjöldi manna, sem fcesl við bókleg störf og ritmennsku og hefur lil þess góða aðstöðu, leetur hjá líða að rita svo mikið sem barnabcckur um sögu islenzkra bók- mennta, er augljósl, hvar meinsernd- in er fólgin. Ahugi þjóðarinnar fyrir sagnfrarði er óbreyttur og löngun til ritstarfa ekki minni en fyrr. En aðferðir við sagnaritun hafa breytzt og ekki til bóta. Vram- arídi kenningar um, hversu rita skuli sögu, hafa borizt til landsins og haft miður heþþileg áhrif á sögu- ritun þjóðarinnar. í þessu mun vera fólgin sú meinsemd, sem úr þarf að bœta, ef íslendingar eiga ekki að verða bókmenntalaus og sviþlaus fðjumúgur i þjóðafiafinu-----“ Jónas Jónsson, i formála fyrir hinu nýja bindi af Sögu Islend- inga, er hann hefur ritað (fyrri hl. 8. bindis.) Þetta hefur verið skýrt á þann hátt, að með auknum heilbrigðis- ráðstöfunum og betri aðbúnaði minnki líkurnar fyrir því, að ungt fólk taki veikina, eða smitist, en af því leiðir, að ungt fólk verður ekki ónæmt fyrir sjúkdómnum með því að fá hann á lágu stigi. Þetta þýðir aftur, að eldra fólk er hætt, ef það kemst í tæri við smitbera. Lömunartilfelli fá. Tiltölulega mjög fáir sjúklingar, sem taka lömunarveiki, lamast eða deyja. Það má segja, að það sé frekar undantekning en regla að lömun eigi sér stað. Ennfremur má geta þess, að læknavisindin telja, að meiri hluti íbúa heimsins verði ónæmir fyrir lömunarveiki á „eðlilegan hátt“, það er án þess að nokkrar sérstakar ráðstafanir séu gerðar og í langflestum tilfell- um án þess að vita af að þeir hafa tekið veikina. Eins og er geta menn ekki vitað, hvort þeir eru ónæmir fyrir löm- unarveiki eða ekki, en með aukn- um rannsóknum standa vonir til þess, að maðurinn leggi þtíddári óvin að velli. Útbrciðsla. Kartöfluhnúðormur hefur fund- izt á þessum stöðum hér á landi: Reykjavík, Hafnarfirði, Akranesi, Keflavík Grindavík, Eyrarbakka, Stokkseyri, Vestmannaevjum og Hrafnagili í Eyjafirði. Leiðbeiningar. Kartöfluhnúðormurinn lifir á rótum kartöflugrasa utan á kar- töflum og í moldinni umhverfis, sumar og vetur. Þegar ormurinn er kominn í garðinn á annað borð lifir hann þar og eykur kyn sitt ár frá ári, ef kartöflur eru stöð- ugt ræktaðar og ekki höfð sáð- skipti. Helztu varnarráðin gegn hnúð- ormum eru þess vegna þau að hætta kartöflurækt í ormasýktu görðunum a. m. k. 4—5 næstu ár- in'eftir að hnúðormsins varð vart. Oruggast er að breyta ormasýktu görðunum í tún. Glíma Péturs á Gaut- löndum og Jóhannesar Jósefssonar 1908 Pétur Jónsson bóndi á Gaut- löndum fótbrotnaði ekki í glím- unni við Jóhannes Jósefsson sumarið 1908 eins og sagt er í „Degi“ 27. f. m., heldur gekk vinstri handleggur hans úi liði um olnboga. Pétur glímdi árið eftir urri ís1 landsbeltið og hlaut þá vinninga næst Sigurjóni Péturssyni. en Guðmurvdur Stefánsson hreppti beltið og síðan hefur það aldrei verið eign Norðlendihga. 30. aprfl 1955. Jón Jónsson, Skjaldarstöðum. Símablaðið 40 ára Málgagn símamanna, Símablað- ið, er orðið 40 ára gamalt, og er þess minnst í síðasta hefti þess, sem nýlega er komið út. Félag ísl. símamanna hefur gefið blaðið út alla tíð. Sxmablaðið er elzta stétt- arblaðið hpr á landi og á sér merka sögu. I afmælisheftinu eru margar fróðlegar greinar, m. a. annáll frá liðnum dögum, upp úr gömlum simablöðum. Meðal ritstjóra tíma- ritsins má nefna Gunnar Schram simastjóra hér á Akureyri, er stýrði ritinu frá 1917 til 1924, eða þangað til hann flutti hingað til Akureyrar. Taða og úthey TIL SÖLU. Sigurður G. Jóhannesson Þinguallastrceti 6 A kureyri. Línustúlka óskast nú þegar til júníloka Kaup 1000-1200 kr. og allt frítt. Afgr. vísar á. Taka ber upp kartöflur, sem lifa veturinn í sýktum görðum. Garðyrkjuverkfæri eni hættu- legir smitberar. Ef þau hafa verið notuð í sýktum görðum verður að þvo þau vandlega og sótt- hreinsa í sjóðandi vatni eða formalími. Sömuleiðis kai'töflu- borð (hörpur), sem notuð eru til að flokka kartöflur o. s. frv. Hnúðormarnir geta borizt með fótum manna og dýra. Varast skal að rækta kartöflur í plöntu- uppeldisstöðvum á hnúðorma- svæðunum, því að hnúðormarnir geta borizt með mold og alis kon- ar plöntum úr smituðum görðum. Kartöfluhnúðormar geta smit- að tómatjurtir. Ber þess vegna að varast að láta mold úr kartöflu- görðum lenda í tómatahúsin. Með sáðskiptum og heilbrigðu útsæði er hægt að svelta hnúðormana til útrýmingar. Látið Atvinnudeild Háskólans vita, éf vart verður við hnúðorma í görðum. Ef senda skal kartöflu- jurtir til skoðunar, ber að grafa grösin upp og senda ræturnar með moldinni, sem þeim fylgir. Þarflaust er að senda sýnishorn fyrr en í ágúst. Alvinnudeild Háskólans, 3. maí sl. átti Hermóður Guð- r* f ¥.. nfundsson, bóndi í Árnesi í Aðal- dal, fertugsafmæli. Við það tæki- færi flutti Amór Sigmundsson, bóndi í Árbót, honum eftirfarandi vísur. Hermóður hefur verið for- maður Búnaðarfélags Aðaldæla í 11 ár og formaður ræktunarsam- bands sveitarinnar frá stofnun þess. Það var yndi æskumanns að iðka leik á bala. Seinna líí og löngun hans að láta verkin tala. Stórum hug cg styrkri hönd, stæltum viljaþrótti unnt er að nema óyrkt lönd. Ekki hentar ílóiti. Hermóður ai hendi leyst hefur landnémsverkin. Djörf var sigling, sóknin geyst. * Sjáið verksummerkin! Maðurinn á eríitt einn — oft var sýnt með rökum. Hérna unnu svanni’ og sveinri samanstilltum tökum. Þannig skyldi’ um sveitar svið samstillt aflið manna. Formanninum fylgi lið tram til átakanna. Eggjaði hann til orrustu við erfiðleika kalda. Félagsmálaforustu mig fýsir þökk að gjalda. Aireksverkin allir dá. Ei mun stefnt til náða. '-U . J. x - Fertugum er fært að na fram til meiri déða. Barátta vísindanna gegn lömunarveik- inni - Ytarleg bók eftir 17 sérfræðinga

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.