Dagur


Dagur - 14.05.1955, Qupperneq 7

Dagur - 14.05.1955, Qupperneq 7
Laugardaginn 14. mai 1955 D AGUR 7 - 25 ára afmæli Skógrækfarfél. (Framhald af 1. síðu). Hvatti skipulag Kanadamanna á þessum málum, og starf ræktunar- stöðvarinnar Jón til þess að hefjast handa hér. Boðaði hann til fundar með auglýsingu í blöðum bæjarins og gerðust 12 menn stofnendur, eða þessir, auk hans: Jónas Þór verksmiðjustjóri, sem varð fyrsti ritari félagsins, Bergsteinn Kol- beinsson bóndi i Kaupangi, sem varð fyrsti gjaldkerinn, hjónin Margrét og Axel Schiöth, frú Guð- rún Björnsdóttir, þá í Knarrar- bergi, Steingrímur Jónsson, þáv. bæjarfógeti, Jón Steingrímsson, núv. sýslumaður Borgfirðinga, Vilhjálmur Þór, þáv. forstjóri KEA, Svanbjörn Frímannsson bankafulltrúi, Kristján Sigurðsson kaupmaður og Kristján Rögnvalds- son frá Fífilgerði. Fyrsta starf. Ármann Dalmannsson rakti störf félagsins á aldarfjórðungsskeiði. Fyrst var hafizt handa um að friða skógarleifar, sem enn fundust í héraðinu. Var fyrst girt svæði í Garðsárgili. Þar lifðu hríslur í gil- inu sjálfu, þar sem þær voru frið- aðar af umhverfinu, en uppi á gil- börmunum voru engin tré, en lík- legt þótti, að þar mundi vaxa upp birkiskógur,' er friðun kæmist á. Landið var girt 1932, og félaginu varð að von sinni. Þama reis brátt upp fallegur birkiskógur, og er hann nú í umsjá skógræktardeild- arinnar í Ongulsstaðahreppi, Næst var tekið fyrir landssváeði á Vöglum á Þelamörk og girt. Var það árið 1934. Þar leyndust trjá- plöntur í lyngi og grasi, en teygðu sig hærra, er friðunar naut við. Nú er þarna faþegur skógarlundur, sem blasir viíí vegfarendum. Þriðja verkefni félagsins var Vaðlareitur- inn gegnt Akureyri. Fyrir vinsam- lega afstöðu landeigenda fékk fé- lagið umráð yfir strandlengjunni austan við Akureyrarpoll, og hóf að gróðursetja þar plöntur. Er þar að vaxa upp fallegur skógur, og eru hæstu tré orðin um 4 metrar. Alls er búið að gróðursetja þarna 123.300 plöntur, en mikið verk eft- ir þar, og er plöntun skógar þarna enn framtíðarverkefni félagsins. AIls hefur verið gróðursett á veg- um félagsins, deilda þess og félags- manna, 361.726 trjáplöntur. Helztu skógarleifarnar friðaðar. Árið 1937 girti félagið mestu skógarleifar í héraðinu, en þær voru í Leyningshólum, og árið 1940 var girt svæði á Kóngsstaða- hálsi í Svarfaðardal, og nú síðast landssvæði á Miðhálsstöðum í Oxnadal og er þar minningarlund- ur Þorsteins Þorsteinssonar, er var einn ötulasti skógræktarmaður Ey- firðinga um langan aldur. Einn merkasti áfanginn í sögu félagsins er stofnun plöntuuppeld- isstöðvarinnar í Kjarna við Akur- eyri árið 1947. Fékk félagið þar land hjá Akureyrarbæ, og hefur rekið þar gróðrarstöð síðan. Eru aldar upp plöntur til gróðursetn- ingar í reitum félagsins, og fyrir einstaklinga og aðra aðila á fé- lagssvæðinu. Verður þeirri starf- semi haldið áfram og reynt að auka hana eftir föngum. Arið 1949 var félaginu breytt í sambandsfélag, og eru deildir þess nú 10 alls, og félagsmenn alls um 600. Verkefni framtíðarinnar. Forstöðumenn skógræktarmála hér horfa gjarna til baka, til þess ágæta verks, sem unnið hefur ver- ið, en þeir líta þó fremur fram á veginn, til þeirra miklu verkefni, sem við blasa. Fyrir starf skóg- ræktarfélaganna og ágætra for- ustumanna, er þjóðin nú að öðlast trú á skógræktina. Það er sannað, að trjátegundir þrífast hér ágæta vel, og að hér mun vaxa upp nytja- skógur í framtíðinni, til heilla og hags fyrir landið sjálft og öll börn þess. Stærsta verkefnið í dag er að vekja alla þjóðina til meðvitundar um gildi skógræktarinnar fyrir framtíðina og efla skilning á menningarlegu gildi hennar og örva áhuga til raunhæfra starfa. Skógræktinu byggir öðru fremur á þegnskap og hollustu við land og þjóð. Er ekki hvað minnst um vert, að takast megi að vekja almennan áhuga æskufólks á málefnum skóg- ræktarinnar. Núverandi stjórn Skógræktarfé- lags Eyfirðinga skipa: Guðm. Karl Pétursson yfirlæknir, form., Ár- mann Dalmannsson framkvæmda- stj., Þorsteinn Davíðsson verk- smiðjustjóri, Björn Þórðarson verzlunarmaður, séra Sigurður Stefánsson á Möðruvöllum, séra Benjamín Kristjánsson á Lauga- landi og Helgi Eiríksson bóndi á Þórustöðum. Brezkur togari bað um aðstoð við Hrísey Hingað kom í fyrrinótt brezki togarinn St. Necton frá Hull með bilað rör að spili. Fékk hann við- gerð hér og ætlaði að sigla í nótt. í stórhríðinni í fyrradag lá togar- inn austan við Hrísey, og kallaði í hafnsögumann til að sigla skip- inu hingað. Fór hafnsögumaður- inn með togarann hingað og beið hér eftir honum í gær, og ætlaði að sigla honum út fjörð í nótt. NÝTT! NÝTT! BLÚSSUR, margar gerðir og litir, teknar upp í dag. Verzlunin DRÍFA Sími 1521. Málningarrúllur með framlengingarskafti. Jírn- og glervörudeild. Drðflarvélalryggingar Margvísleg slys og óhöpp hafa komið fyrir á dráttarvélum og í sambandi við þær, og hafa eigendur vélanna oft orðið fyrir mjög miklu tjóni, sem hinar ódýru dráttarvéla- tryggingar hjá SAMVINNUTRYGG- INGUM hefðu bætt þeim að fullu. Bændur! Tryggið dráttarvélina strax! Allar nánari upplýsingar um þessar trygg- ingar gefa umboðsmenn okkar í öllum kaupfélögum landsins og aðalskrifstofan í Reykjavík. SAMVINNUTRYGGINGAR Umboð á Akureyri: Vátryggingardeild KEA. Kirkjan. Messað á Akureyri á morgun kl. 2. Hinn almenni bænadagur. Sálmar: 374, 376, 378, og þjóðsöngurinn. — P. S. Fermingarmessa i Lögmanns- hlíðarkirkju á morgun kl. 2 e. h. Séra Kristján Róbertsson fermir þessi börn: Amalía Ingvarsdóttir Grænuhlið, Árný Björnsdóttir, Brekku, Ásta H. Bergsdóttir, Sæ- borg, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Steinaflötum og Steingrímur I. Björnsson, Lyngholti. Næturvarzla. Um þessa helgi er næturvarzla í Stjörnu-Apó- teki. Vegna þess að nú eru móar og mýrar orðnar varpstöðvar fugl- anna ætti hvergi á íslandi að brenna sinu héðan í frá. Sextug varð í gær frú Guðbjörg Bjarman, prófasts Jónssonar á Miklabæ í Skagafirði, ekkja Sveins Bjarman aðalbókara KEA. Minnast vinir heimilis þeirra hjóna hinnar vinsælu og mikil- hæfu konu með virðingu á þess- um tímamótum. Félagar Karlakórs Akurevrar mæti til æfingar í Verkalýðshús- inu mánudaginn 16. maí kl. 8.30 e. h. Árlðandi. — Stjórnin. Leiðrétting. f fregn hér í blað- inu 27. apríl sl., þar sem sagt var frá Rotaryklúbb Ólafsfjarðar, var ekki rétt hermt frá stjórn klúbbs- ins, en hún er þannig skipuð: Forseti séra Ingólfur Þorvalds- son, varaforseti Magnús Gamalí- elsson útvegsmaður, ritari Jó- hann J. Kristjánsson héraðs- læknir, gjaldkeri Guðmundur Kr. Jóhannsson bæjargjaldkeri, og fyrrv. forseti Sigurður Guð- jónsson bæjarfógeti. Leiðrétting. Ekki var það rétt hermt, í síðasta blaði, að leikför Léikfélags Akureyrar til Húsa- víkur nú um helgina, væn hin fyrSta er félágið hefur þangað farið. Félágið sýndi sjónleikinn Þorlák þreytta í Húsavík í októ- ber 1939 og var Ágúst Kvaran leikstjóri. Fánar voru við hún á opinber- um byggingum og víðar hér í bænum í gær í tilefni af 61. af- mælisdegi forseta íslands, herra Ásgeirs Ásgeirssonar. Forsetinn dvaldi í gær á Þingvöllum. Kvikmyndir. Blaðið sér ástæðu til að vekja athygli á hinni frægu mynd Erfðaskrá hershöfðingjans, sem sennilega verður sýnd um •þessa helgi í Skjaldborgai-bíói. — Þetta er litmynd, byggð á sam- nefndri sögu eftir Frank Slaught- er og sagan hefur komið lit á ís- lenzku. — Myndin hefur alls staðar hlotið gífurlega aðsókn og verið líkt við kvikmyndina „Á hverfanda hveli“, enda gerist hún á svipuðum slóðum. — Eftir upplýsingum frá Skjaldborgar- bíói eru allar Mkur til að mynd þessi verði sýnd aðeins um þessa helgi til að byrja með og þá í Samkomuhúsinu, en Leikfélagið mun hafa æfingar og sýningar í húsinu mestalla næstu viku og verða þá aðrar auglýstar myndir sýndar í Skjaldborg. — Æi það vildi tg að eg væri orðin bók, Þorvaldur. — Hvers vegna má eg spyrja? — Þú mundir þá skipta þér meira af mér. Þú ert þlltai að lesa! — En eg vildi að þú værir orð- ip almanak, því að þá féngi mað- ur nýtt á hverju ári! Kolaketill og tvær RAFTÚBUR, 15 og 3 kw. til sölu. U.ppl. i Norðurgötu 44. fi ÐJ U ambod Alúm Hrífur Orf Kjörviðarhrífur með IÐJU-kló og alúmin- tindum ^AMBOÐAVERKSTÆÐIÐ^ IÐJA AKUREYRI Garðáburður og aðrar áburðartegundir í smásölu. Afhent í herskálum á Gleráreyrum. 4---* Ivaujifélag Eyfirðinga

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.