Dagur - 08.06.1955, Blaðsíða 8
8
Bagijk
Miðvikudaginn 8. júní 1955
Fjölbreytt hátíðahöld sjó-
mannadagsins á Akureyri
Ymis tíðindi úr nágrannabyggðum
Akureyrarbær var fánum skreytt
ur á sjómannadaginn. Veður var
ágætt og margháttuð skemmtiatr-
iði fóru fram. Hófust þau með
kappróðri. Streymdi fólkið þá
niður að höfninni, þar sem skip
lágu fánum skrýdd og fylgdust með
hinni gömlu íþrótt af miklum á-
huga.
Eftir hádegi var gengið í kirkju
og hlýtt á messu séra Péturs
Sigurgeirssonar sóknarprests. Um
klukkan 3 hófust svo hátíðahöld-
in við sundlaug bæjarins þar hélt
séra Kristján Róbertsson ræðu og
að henni lokinni var stakkasund,
boðsund og björgunarsund. Var þar
mannmargt og góS skemmtun.
íþróttir hófust á leikvellinum
kl. 5 og var þar meðal annars
reiptog kvenna og karla, tunnu-
hlaup, pokahlaup og knattspyrna.
Að síðustu var svo dansleikur í
Varðborg og Alþýðuhúsinu. Sjó-
mannadagsblaðið og merki dagsins
voru seld allan daginn.
Varð merkjasala meiri en
nokkru sinni fyrr. Allur ágóði af
Sjómannadeginum rennur til Björg
unarskútu Norðurlands.
Aðsókn var óvenjumikil og fóru
hátíðahöldin vel fram.
Keppni í einstökum greinum:
Kappróður:
1. 2. sveit Æskulýðsfélags Ak-
ureyrarkirkju. Tími 2 mín 11,8 sek.
Stýrimaður, Gísli Lórensson.
Kvennasveitir. 1. Sveit Útbæjarins.
Tími 2 mín. 07,9 sek. Stýrimaður,
Anna Kristjánsdóttir.
Karlasveitir. 1. Sveit m. s. Snæ-
fells. Tími 2 mín. 21,3 sek. Stýri-
maður, Bjami Jóhannesson.
Stakkasund. 35 metrar.
1. Tryggvi Valsteinsson, 44,5 sek.
2. Jónas Þorsteinsson, 45,8 sek.
Annálar vorir segja, að klaustur
hafi verið sett að Þverá í Eyjafirði,
er siðan nefnist Munkaþverá, árið
1155. Mun það hafa gert verið að
undirlagi og tilstuðlan Bjöms
biskups Gilssonar á Hólum og ætt-
manna hans, er munu verið hafa
afkomendur landnámsmannsins
fræga, Helga magra. Lagði biskup
og frændur hans klaustrinu all
mikið fé, enda gerðist það brátl
auðugt og hið merkasta mennta-
setur.
Þessa gagnmerka afmælis var
minnzt — sunnudaginn 5. júní
— með hátíðarmessu í hinni fornu
og virðulegu kirkju staðarins. sem
er meira en 100 ára gömul. Messu-
gerðina framkvæmdu héraðspró-
fasturinn, séra Sigurður Stefánsson
á Möðruvöllum, og sónkarprestur-
inn, séra Benjamín Kristjánsson á
Boðsund. 8 manna sveitir.
1. Sveit b. v. Jörundar, 4 mín.
5.4 sek. 2. Sveit Kaldbaks, 4 mín.
8.4 sek.
Björgunarsund. 25 metrar.
1. Tryggvi Valsteinsson, 33,5 sek.
2. Páll A. Pálsson, 36,0 sek.
Reiptog kvenna.
1. Sveit Útbæjarins. 2. Sveit Inn-
bæjarins.
Reiptog karla.
1. Sveit b. v. Jörundar. 2 Sveit
b. v. Sléttbaks.
Tunnuhlaup og pokahlaup vann
Óskar Hermannsson.
Knattspyma.
Hlutkesti, Jörundur vann, og þar
með keppnina.
Atla-stöngina hlaut Tryggvi
Valsteinsson með 68 stigum.
r
Vestur-Islendingur í
brúðkaupsferð
Um þessar mundir er Vestur-
íslendingurinn Earl Gunnar Jens-
en lögfræðingur frá San Franscisco
hér á ferð, ásamt konu sinni Mary
Hunt. Gunnar er sonur Ingvars sál.
Guðjónssonar en móðirin er dönsk.
Var hún hér með soninn þar til
hann var 3ja ára, að hún fluttist
vestur um haf. Nú er sveininn orð-
inn 25 ára og lögfræðingur að
mennt. Hingað kom hann með
unnustu sína og gekk í heilagt
hjónaband í Kaupangi 6. þ. m.
Vildi hann að sú athöfn færi fram
á óðali föður síns. Brúðhjónin
munu fara héðan til Danmerkur
og síðar suður á bóginn, allt til
Spánar. Frú Mary, sem er rithöf-
undur og hefur þegar gefið út 2
bækur vestra, er að safna efni í
þriðju bók sína.
Laugalandi. Báðir þjónuðu þeir
fyrir altari. Prófastur flutti ágæta
prédikun, en séra Benjamín gagn-
fróðlegt erindi um klaustrið og
ábóta þess. En klaustrið stóð, eins
og kunnugt er, um 4 aldir og ábót-
ar þess voru a. m. k. 27. — Organ-
slátt og söngstjóm annaðist Áskell
Jónsson söngkennari á Akureyri,
en kirkjukórar Munkaþverár- og
Lögmannshlíðarsóknar sungu. Var
bæði messuflutningurinn og söng-
urinn hinn fegursti og mjög áhrifa-
ríkur.
Að lokinni messu buðu kirkju-
bændurnir á Munkaþverá öllum
kirkjugestunum upp á rausnarlegar
veitingar, sem voru þakksamlega
þegnar.
Veður var fagurt og jók það
mjög á ánægju manna.
Særður blöðruselur
á Grímseyjarsundi
Hrisey.
Fyrir nokkrum dögum fundu
Hríseyingar skotsáran blöðrusel,
3ja vetra gamlan. Var hann út á
Grímseyjarsundi og nærri dauður.
Bar hann líka, þegar að var gáð,
merki um að hafa komizt í kast
við byssu, því hann var helsærður
af skoti.
Fisklaust er á línu en reitings-
afli á handfæii.
Kirkjukór endurvakinn
Raufarhöfn.
I vor voru fermingarkirtlai not-
aðir í fyrsta sinn á Raufarhöfn.
Kvenfélagið og kvenfélagskonur
gáfu þá. Formaður þess er frú
Hólmfríður Friðgeirsdóttir. Likar
þessi nýbreytni mjög vel. Kirkju-
kórinn við Raufarhafnarkirkju er
nýlega endurvakinn fyrir forgöngu
sóknarprestsins séra Ingimars Ingi-
marssonar. Formaður kórsins er
Snæbjörn Einarsson, en organisti
frú Hólmfríður Ámadóttir. Kirkj-
an hefur verið endurbætt og sveit-
arfélagið hefur látið setja í hana
rafmagnsupphitun.
A Raufarhöfn er næg vinna eins
og er. Hafinn er undirbúningur
fyrir næstu síldarvertíð og nokkur
íbúðarhús eru í smíðum.
Gróðri fleygir fram. Sauðburður
gekk ágætlega og margt var tví-
lembt. Til dæmis fékk maður nokk
ur, er átti rúmlega 30 ær, aðeins
2 einlembinga. ÖU lömbin lifa.
1. maí fannst lamb frá Sandvík
á Leirhöfn, er gengið hafði af í
vetur. Eigandi lambsins, Kristján
Kristjánsson, vigtaði það í haust
ásamt öðrum líflömbum og var það
37 kg. Slapp það síðan og fannst 1.
maí. Þá var það aftur vigtað og
reyndist 28 kg. Var það hið spræk-
asta.
Laugaskóla slitið
í 30. sinn
Laugar.
Héraðsskólanum var slitið í
þrítugasta sinn að kvöldi 31. maí.
Skólastjóri, Sigurður Kristjánsson,
ávarpaði nemendur gagnfræða-
deildar, kennara og nokkra gesti,
og minntist brautryðjendanna, sem
barizt höfðu fyrir stofnun skólans
á sínum tíma, og starf skólans í
30 ár. Gat hann þess, að alls hefðu
stundað nám í skólanum 1617 nem
endur og auk þess fjölmargir á
styttri eða lengri námsskeiðum.
Alls þreyttu 11 nemendur lands-
próf og að dómi skólans (kennara
og hins lögskipaða prófdómara)
stóðust þeir allir prófið og náðu
framahaldseinkunn. Hæsta meðal-
einkunn í landsprófsgreinum hlaut
Björn Dagbjartsson, Álftagerði,
Mývatnssveit 8,64. í almennu
gagnfræðaprófi hlaut hæsta eink-
unn Anna Sæmundsdóttir frá
Fagrabæ, 8,27.
Miðvikudaginn 1. júní lögðu
nemendur gagnfræðadeildar svo
af stað í ferðalag til Suðurlands.
Höfðu þeir áður haldið skemmtun
til ágóða fyrir ferðasjóð. Með þeim
fóru í ferðina Sigurður Kristjáns-
son skólastjóri og Guðmundur Kr.
Gunnarsson kennari.
Sundnámskeið fyrir böm stend-
ur yfir í skólanum.
Söngmót kirkjukóranna
fellur niður.
Vegna mislingafaraldurs, sem
breiðst hefur út um héraðið hefur
verið ákveðið að hætta við fyrir-
hugað söngmót kirkjukóranna í
Suður-Þingeyjarprófastsdæmi.
Nýr vegur að Laugaskóla.
Síðasta alþingi veitti nokkurt fé
til nýs vegar af þjóðveginum gegnt
Laugaskóla heim að skólanum.
Vinna er nú hafin og er unnið með
stórri jarðýtu að því að taka af
og minnka krókana á veginum.
Verður það væntanlega hin mesta
vegarbót.
Mjólkursamlag Skag-
firðinga
Sauðárkróki 30. maí.
Aðalfundur Mjólkursamlags
Skagfirðinga var haldinn á Sauð-
árkróki 28. maí. Fundinn sátu 42
fulltrúar, stjóm mjólkursamlagsins
og deildarstjórar, samtals um 60
bændur.
Innvegið mjólkurmagn var alls
2.151.878,5 lítrar og er það um 7%
aukning frá árinu áður. Meðalfeiti
% var 3,546.
Seld neyzlumjólk á Siglufirði og
Sauðárkróki nam um 458 þús. lítr-
um. Seldir voru um 16 þús. lítrar
af rjóma. Selt var og sent til fram-
leiðenda um 50 tonn af skyri. Fram
leidd voru 43 tonn af smjöri og um
70 tonn af ostum.
Vörur samlagsins seldust sæmi-
lega á árinu. Þó voru allmiklar
ostabirgðir um áramót, nam verð-
mæti birgða um 900 þús. kr.
Brúttó vörusala samlagsins nam
að meðtöldum niðurgreiðslum 5,7
millj. kr. og endanlegt verð til
framleiðenda varð kr. 2,24 pr. liter
af meðalfeitri mjólk.
Allmiklar umræður urðu um
verðjöfnun og verðlagsmál á
mjólkurvörum og samþ. var svo-
hljóðandi tillaga þar að lútandi:
„Aðalfundur Mjólkursamlags
Skagfirðinga haldinn á Sauðár-
króki 28. maí 1955 ályktar að
velja 3ja manna nefnd, er í sam-
ráði við stjórn Mjólkursamlagsins
athugi vandlega mjólkursölumál
landsins á breiðum grundvelli og
skili áliti og tillögum til úrbóta
fyrir næsta aðalfund samlagsins."
Á þessu ári á Mjólkursamlag
Skagfirðinga 20 ára starfsafmæli.
í því tilefni hélt Stefán Vagnsson
skrifstofum. ræðu um sögu og
störf samlagsins á liðnum árum
fyrir fulltrúa og gesti við sameigin-
legt kaffiborð er aðilar þessir
sátu.
Karlakórinn Vísir frá Siglufirði
hélt samsöng á Sauðárkróki í gær-
kvöldi við ágæta aðsókn og beztu
viðtökur áheyrenda, sem fögnuðu
kórnum innilega. Varð kórinn að
endurtaka mörg lög og syngja
aukalög.
Að undanförnu hefur verið hér
ágætur afli, stundum á línu en
annan tíma á handfæri. Dálítið
hefur þetta þó verið óstöðugt og
dagar komið sem lítinn afla hafa
gefið.
Skipbrotsmannaskýli
í Þorgeirsfirði
Lóinatjörn.
Flokkur manna frá slysavarnar-
deildinni á Grenivík, hefur undan-
farið unnið að því að setja upp
nýtt skipbrotsmannaskýli í Þor-
geirsfirði, undir stjóm Þorbjörns
Áskelssonar. Skýli þetta var smíð-
að á Akureyri og flutt í pörtum
úteftir. Var það sett upp nálægt
sjónum og er með því bætt sú að-
staða, er orðin var allsendir ófull-
nægjandi. Vonandi leggst enginn
svo lágt að fara ránshendi um
þennan stað eða valda þar spjöll-
um, svo sem við hefur borið í slík-
um skýlum. Ættu allir að vera
minnugir þess að skipbrotsmanna-
skýli hafa bjargað mörgum manns-
lífum og enginn veit hvenær þeirra
er næst þörf.
Norðlendingur landar
í Húsavík
Húsavík.
Togarinn Norðlendingur land-
aði í Húsavík á sunnudag, Hafði
hann 250 lestir af fiski. Fór sumt í
frystingu en hitt í salt. Þessa dag-
ana er mikil atvinna á staðnum og
nóg að gera fyrir alla sem unnið
geta. Fisklaust er nú að kalla.
Húsvíkingar hlýddu messu hjá
prófastinum, séra Friðriki Friðriks-
syni, á sjómannadaginn. Um kvöld-
ið var afarfjölmenn samkoma í
samkomuhúsinu og voru roenn
glaðir.
Nýja félagsheimilið í
Mývatnssveit vígt
17. júní
Reynihlíð.
Þessa dagana er verið að múr-
húða utan hið nýbyggða félags-
heimili Mývetninga Eru þar marg
ar hendur að verki enda hefur ver-
ir ákveðið að vígja það 17. júní
næstkomandi. Er þetta talin mikil
og vönduð bygging og verður
væntanlega síðar sagt frá henni
hér í blaðinu.
Sauðburður gekk ágætlega í
sveitinni og var 60-90% af ánum
tvílembt. Búið er að sleppa öllu
fé og var margt af því flutt austur
á afréttir Mývetninga fyrir nokkru.
Kalskemmdir virðnst nokkrar í
túnum. Ferðafólk er þegar farið
að leggja leið sína til Mývatns-
sveitar. Bráðlega mun opnaður
vegurinn austur og mun þá ferða-
mannastraumurinn hefjast fyrir
alvöru.
Áætlunarferðir
Bárðardal 1. júní.
Vegir eru að verða sæmilegir og
verið er að flytja áburðinn og bera
á tún.
Mjólkur og rjómaflutningar hóf-
ust í þessari viku til Húsavíkur og
þar með fastar ferðir tvisvar í viku,
þriðjudaga og föstudaga á leiðinni
Stóratunga - Fosshól! - Húsavik.
Útf ör Páls H. Jónssonar,
Stóruvöllum
I dag fer fram jarðarför Páls H.
Jónssonar fyrrver. hreppstjóra að
Stóruvöllum. Húskveðja var að
Stóruvöllum, en veikindi þau er í
dalnum eru, hindraði sókn fólks,
sem annars hefði orðið.
(Framhald á 7. síðu).
Hátíðaguðsþjónusta í tilefni af 800
ára afmæli Munkaþverárklausturs