Dagur


Dagur - 28.09.1955, Qupperneq 4

Dagur - 28.09.1955, Qupperneq 4
4 DAGUR Miðvikudaginn 28. sept. 1955 DAGUR Ritstjóri: HAUKUR SNORRASON. Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta: Erlingur Davíðsson. Skrifstofa í Hafnarstræti 90. — Sími 1166. Árgangurinn kostar kr. 75.00. Blaðið kemur út á hverjum miðvikudegi og á laugardögum þegar ástæða þykir til. Gjalddagi er 1. júli. PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR H.F. Með asklok fyrir himin og pening fyrir augum BLÖÐ SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS, sem við hátíðleg tækifæri segjast vera fylgjandi „réttri kaupfélagsstefnu", gera um þessar mundir saman- burð á skattgreiðslum samvinnufélaga og opinber- um gjöldum gróðafélaga einstaklinga, alveg eins og um væri að ræða sams konar og sambærileg fyrir- tæki. Eðlismunur frjáls og opins samvinnufélags al- mennings, og lokaðs hlutafélags gróðamanna, er þurrkaður út með einum pennadrætti, og síðan sungið hástemmt um skattfríðindi samvinnufélaga, rétt eins og það sé einsdæmi á jarðkúlunni, að sér- ákvæði gildi um opinbera skattheimtu af sam- vinnurekstri, sniðin eftir eðli hans og starfsháttum. Þessi vininubrögð lýsa því raunar fullvel, hvert er raunverulegt viðhorf málsvara Sjálfstæðisflokksins til samvinnustefnunnar. Væri það líka með ólíkind- um, ef þjóðfélagsstefna samvinnumanna ætti fylgi að fagna meðal auðstéttarinnar í þjóðfélaginu, sem í öllu markar hina raunverulegu stjórnmálastefnu Sjálfstæðisflokksins. En til glöggvunar skal á það minnt, að um allan hinn menntaða heim gilda sér- ákvæði um skattgreiðslur samvinnufélaga, og í sum- um löndum mun mildari gagnvart samvinnufélögun- um en er hér á landi. í höfuðvígi einstaklingshyggj- unnar, Bandaríkjunum, er sérstaða samvinnufélaga fullkomlega viðurkennd og félögin með öllu undan- þegin skatti. BLÖÐ SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS gera þó betur en draga í sama dilk samvinnufélög og hluta- félög einstaklinga. Upp á síðkastið er markvisst reynt að koma „auðhrings“-nafni á allsherjarsam- tök samvinnufélaganna í landinu. Þessi fjarstæðu- kennda nafngift mun eiga að þjóna sama tilgangi og blekkingaskrifin um skattamálin: Rugla skilning manna á hugtökum og orðum, blekkja vitund al- mennings um þann höfuðmismun, sem er á eðli og starfsháttum samvinnufélaga og gróðafélaga. Þarna hafa menn sýnishorn af því, hvað er „rétt kaupfé- lagsstefna“ í augum forkólfa fésýsluflokksins, sem kennir sig við sjálfstæði. LÖGGJAFARÞING allra menningarþjóða hafa viðurkennt að markmið samvinnufélaga er allt ann- að en venjulegra gróðafélaga einstaklinga. Hluta- félag er lokað félag, stofnað til þess að ávaxta og auka það fé, sem í það er lagt. Gróðanum er skipt í milli hluthafa í hlutfalli við það fjármagn, er þeir iiafa lagt fram. Samvinnufélög eru hins vegar al- menn og opin félög. Markmið þeirra er ekki fjár- söfnun heldur sparnaður fyrir félagsmennina. Að sjálfsögðu þurfa samvinnufélög fjármagn til rekst- urs og framkvæmda. Stofnsjóðir og óskiptilegir sameignarsjóðir eru rekstrarfé samvinnufélaga. Stofnsjóðir eru séreign félagsmanna, alveg eins og sparisjóðisinnstæður eru séreign sparifjáreigenda, en ekki eigið fé sparisjóðs. Sameignarsjóðir eru óskiptilegir, og því ólíkir varasjóðum hlutafélaga, sem falla til útborgunar við félagsslit. Sameignar- sjóðir kaupfélaga eru opinberir sjóðir sem falla undir umsjá héraðsstjórna, ef félagsslit verða. Þeir geta aldrei orðið til að auðga einstaklinga eins og varasjóðir hlutafélaga. Þeir eru í rauninni almanna- eign. Til þessara staðreynda er nokkurt tillit tekið í skattaálögum, enda væri annað ósamrýmanlegt réttarvitund siðmenntaðra manna. Ef löggj'afinn tæki upp háttu Sjálf- stæðitsflokksblaðanna og gerði engan mun á samvinnufélagi og gróðafélagi, væri þar með gerð raunveruleg skerðing á félagsfrels- inu í landinu og á tækifærum ein- staklinganna til þess að taka höndum saman um velferðarmál sin og leysa þau í samvinnu. Árás- ir íhaldsblaðanna á samvinnufé- lögin vegna skattamála eru því um leið árás á félagsfrelsi og raun- verulegt lýðræði í landinu. í UMRÆÐUM þeim, sem fram hafa farið að undanförnu um út- svarsmál Sambands ísl. samvinnu- félaga, hefur komið skýrt fram, að Sjálfstæðisflokkurinn vill engan veginn afnema skattfríðindi þótt hann vilji láta skattleggja sam- vinnufélög almennings til jafns við gróðafyrirtæki máttarstólpanna. í síðasta „ísl.“ er t. d. hneykslunar- pistill út af því, að skipadeild SÍS skuli ekki greiða há útsvör og aðra skatta til heimahafna skipanna, en ekkert minnst á þá staðreynd, að stærsta skipafélag landsins og auðugasta fyrirtæki er algerlega skattfrjálst fyrir atbeina Sjálfstæð- isflokksins, og er þó um hlutafélag að ræða. Þá hefur komið í ljós, að Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki skattleggja innkaupasamband heildsalanna, sem veltir milljón- um. Ekki heldur milljónafyrirtæk- ið Sameinaða verktaka, né heldur fisksölusambandið SÍF,- Þessi fyr- irtæki hafa ekki aðra sérstöðu en þá, að njóta verndar Sjálfstæðis- flokksins, sem mun ætla sér ríf- legan stuðning af þeirra hendi í staðinn. ÞESSI AFSTAÐA Sjálfstæðis- flokksins sýnir, að það er ekki nein réttlætiskennd, sem hvetur til skattamálakrossferðar Sjálf- stæðisblaðanna. Ef svo væri, mundu þessi milljónafyrirtæki ein- staklinga vissulega ekki sleppa. Hvatningin er óvild auðstéttarinn- ar i garð samvinnusamtakanna, og óttinn við að samvinnumenn muni, þá tímar Iíða, rjúfa einokunarað- stöðu Sjálfstæðisforkólfanna á enn fleiri sviðum, en enn er orðið. Fyrir aðgerðir samvinnumanna er einokunaraðstaðan á sviði vá- trygginga, siglinga og olíusölu rof- in, og hefur orðið þjóðinni til stór- felldra hagsbóta, en gróðamenn þykjast hafa misst spón úr aski sínum. Krossfarar Sjálfstæðis- flokksins hafa því asklok fyrir himin, og gróðamöguleika fyrir augum. Sú skýring endist til að skilgreina öll skrifin um skatta- mál, sem þeir hafa látið frá sér fara að undanförnu. Lögin og eftirlitið. BLÖÐIN hér hafa birt þær fregnir frá Svíþjóð, að þar sé mik- ill undirbúningur til að fyrir- byggja misnqtkun ófengis, er nýj- ar reglur taka gildi í næsta mán- uði. En þá lýkur áfengisskömmt- unartímabilinu í Svíþjóð, sem lengi hefur staðið. Verða teknir upp frjálsari hættir, en eftirlit jafnframt stóraukið. Þessar fregnir vekja til umhugsunar um ástandið í áfengismálum hér á landi. Við búum hér við ýmiss konar lög og reglur í þessum efnum, en hvernig er háttað eftirlitinu með því, að þeim sé hlýtt? Héraðsbann og leynivínWa. MÖRGUM mun virðast, að það eftirlit sé slappt. Hér ríkir t. d. héraðsbann. Áfengisútsölu ríkisins var lokað. En er þá víst, að engar áfengisbúðir af neinu tagi finnist í bænum? Lög, sem ekki eru hald- in, eru yfirleitt slæm lög. Og þeg- ar menn taka upp á því að loka augunum fyrir hinu raunverulega ástandi og láta, sem það sé ekki til, er vandræðunum boðið heim. BLÖÐIN birtu í vetur myndir af stórum hlaða af áfengiskössum, sem biðu afhendingar hér á flug- vélaafgreiðslunni. Skyldu öll yfir- völd sannfærð um, að allt það áfengi — og það, sem síðan hefur komið — sé ætlað til eigin nota hjá móttakendum? Og hvernig skyldi vera samræmið í tekju- framtali og eyðslu þeirra manna, sem hafa efni á að panta sér áfengi í kassavís vikulega að kalla? Gott væri, ef héraðsbannið hefði raunverulega bættt ástandið í áfengismálum hér um slóðir. Og víst má segja, að það hafi bætt úr á ýmsa lund, en hefur það þá ekki fætt af sér aðra ómenningu, leyni- sölu og lögbrot? Um þau mál er ekki rætt opinberlega. Á því væri þörf. Ef við eigum að búa við hér- aðsbann áfram, þarf að vera tryggt, eftir því sem föng eru á, að spilling af því tagi nái ekki að festa rætur. Til þess þarf stóraukið eftirlit og til þess þurfa menn að hætta að loka augunum fyrir raunveruleikanum og láta, sem hann sé ekki til. | Saga bílstjórans fyrir sunnan. SPILLING leynivínsölunnar og lögbrotanna er yfirleitt ekki á dagskrá í opinberum blöðum. Það er eins og menn hliðri sér hjá því að horfast í augu við vandann. En þó er vandalaust að komast að kjarnanum, ef menn vilja. Eg ók nýlega í leigubíl um höfuðborgina. Bílstjórinn kuríni engin deili á mér og eg ekki á honum. Af því að við þurftum að aka talsverða vega- lengd, og vera tveir saman í bíln- um um stund, tókust með okkur samræður um daginn og veginn. Eg fór þá að spyrja hann um starf- ið og afkomuna. Hann sagði mér — og fór ekki dult með — að af- koman byggðist að verulegu leyti á leynivínsölu á kvöldin. Kalla mætti að fast verð væri á áfengi eftir lokun áfengisbúðarinnar. Það væri 140 krónur brennivínsflask- an, og verð á öðrum tegundum til- svarandi. Og þurfa menn þá ekki að kosta svo og svo miklu í akstur, til að sæta þessum kjörum? spurði eg. En hann neitaði því. Þetta eru bara eins og hver önnur föst við- skipti. Maður kemur og þarf að fá flösku, og hún skiptir um eiganda fyrir þetta aukagjald. Það er allt og sumt, sagði bílstjórinn. Þetta var bara hversdagslegur hlutur, og ekkert til þess að fara L launkofa með. Þetta mætti kalla nokkurs konar þjónustu við almenning. — Þessi bílstjóri taldi, að þessi fjár- öflun væri mjög algeng á leigu- bílastöðvum, og stundaði þau mik- ill fjöldi manna. Skyldi þetta nú vera satt? Svo telur almannaróm- (Framhald á 7. síðu). Fötin skapa manninn - að nokkru leyti að minnsta kosti „Þessi þáttur hér er að vísu ekki ætlaður karl- mönnum, og eg er heldur ekki herraklæðskeri, en eigi að síður Ieyfi eg mér að fullyrða: Það er skylda okkar að líta eftir því, að karlmennirnir okkar (bæði synir og eiginmaður) séu snyrtilegir og vel útlítandi þegar þeir koma fram utan heimilis. Eg ætla því, að drepa hér á nokkur atriði, sem eiginkona og móðir má gjarnan leggja sér á minni, ef hún vill gæta þess, að maðurinn eða sonurinn sé út í frá talinn vel klæddur og snyrtilegur: Hinn vel klæddi maður, sem stendur undir nafni, er fyrst og fremst hreinlega til fara. Fötin fara vel, og hann kemur þannig fyrir, að honum líði vel í fötunum og þau séu honum þægi- leg. Skór hans eru ævinlega gljáburstaðir, og bera þess vott, að þeir hafa verið smurðir og pússaðir af mikilli natni. Hælarnir eru jafnir, og ekki skældir eða misslitnir. Hálsbindið er vel hnýtt, þannig, að hnúturinn hylji alveg flibbasamskeytin. Hnúturinn er ekki stór né laus og spjátrungslegur, heldur hæfi- lega mikill um sig og þéttur. KONAN ÞARF að sjá til þess að maðurinn skipti um nærföt a. m. k. tvisvar í viku, og að hann fari aldrei svo út úr húsinu að morgni dags, að hann hafi ekki hreinan vasaklút í brjóstvasanum (fjórbrotinn, þannig, að um það bil sentímetra breið og jöfn ræma sjáist upp yfir vasann), og svo hafi hann hreina klútinn, sem var í brjóstvasanum í gær, í buxnavasan- um í dag. Þá þarf að fylgjast með því að hann hirði neglur sínar vel, einkum að þær séu stuttsorfnar; ne,glur á að sverfa með þjöl en ekki klippa. Venjið hann af því að nota naglasköfu úr járni. Slíkt verk- færi eyðir smátt og smátt útbúnaði náttúrunnar sjálfrar til að varna óhreinindum að setjast undir neglur. Stífur naglabursti er oftast alveg nægilegt hreinlætistæki. 7; : Ef hár vaxa í hlust og nösum — og það ágerist of með aldrinum — þá á að leiða athygli mannsins að því og benda honum á, að láta rakarann sinn klippa þau. Slík hár má ekki slíta upp — það getur valdið ígerð og hefur hættu í för með sér. EF SKEGGVÖXTUR er mikill, er eina ráðið til að líta sómasamlega út að hann raki sig tvisvar á dag, a. m. k. þá daga, sem hann ætlar út að kvöldlagi. Það má gjarnan minna hann á, að maður, sem lætur undir höfuð leggjast að raka sig á morgnana, er ámóta og konan, sem ekki snyrtir andlit sitt fyrr en kemur langt fram á dag. Hinn velklæddi maður á aldrei að láta hár sitt vaxa svo lengi, að það veki eftirtekt er'hann er nýklipptur... . Nýpressuð föt líta vel út, en föt slitna illa á of tíðri pressun. Hent- ugara er að skipta oft um föt, og til þess að föt haldi brotum, er nauðsynlegt að hengja þau upp á herðatré um leið og maður fer úr þeim, áður en hitinn frá líkamanum er allur rokinn úr þeim. Sama gildir um skófatnað. I skó á að setja klossa um leið og maður fer úr þeim. Þannig halda þeir bezt lagi sínu og áferð. HIRÐULEYSI í klæðaburði og óhirða í daglegu lífi og starfi, fer oft saman. Gætið þess vegna vel að því, að maðurinn yðar sé snyrtilega klæddur, ekki aðeins á tyllidiögum heldur alla daga. Minnið hann á gildi þess að koma vel fyrir, án þess að vera pjatt- aður eða leggja sér til gæjastíl. Vel klæddur maður hefur sjálfstraust og aukinn þrótt til starfa. . . . “ -------------------------o----- (Þýtt). FISKBEIN í HÁLSI. Við borðum mikið af liski hér á landi, og er það vel, því að fiskur er góð fæða og okkur Iientug. Fiskbcin eru varasöm og liafa orðið mörgum til óþæginda, jafn- vel heilsutjóns. Er þörf á að fara varlega. En fari svo, að fiskbein festist í liálsi manns, er þetta gott ráð, segir í erlendu blaði: Menn verða að reyna að vera rólegir og láta ekki liræðslu grípa sig. Ef beinið losnar ekki sjálíkrafa að kalla, er eitt bezta ráðið að súpa úr hráu eggi. Reynist það oft vel til að losa bein úr hálsi.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.