Dagur - 21.03.1956, Blaðsíða 4
4
D AGUR
Miðvikudaginn 21. marz 1956
DAGUR
Ritstjóri: ERLINGUR DAVÍÐSSON.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Þorkell Björnsson.
Skrifstofa í Hafnarstræti 90. — Sími 1166.
Árgangurinn kostar kr. 75.00.
Blaðið kemur út á miðvikudögum.
Gjalddagi er 1. júlí.
| PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR H.F.
cssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssss'
Stefna Framsóknarflokks-
ins mörkuð
NÝLOKIÐ er nú í Reykjavík 11. flokksþingi
Framsóknarmanna. Áður en þingið hófst, var skýrt
:rá því hér í blaðinu, að Framsóknarmenn væru
arðnir örþreyttir á hinu langvinna samstarfi við
Sjálfstæðisflokkinn, og að það gilti jafnvel um for-
: áðamenn flokksins eins og allan þorra kjósenda
Tans. Það hefur nú sýnt sig, að það voru orð að
iönnu. Á hinu fjölmenna og glæsilega flokksþingi
voru skoðanir manna ekki skiptar að þessu leyti.
Engin rödd heyrðist, sem hvatti til
áframhaldandi samstarfs við Sjálfstæðis-
flokkinn. Stjórnmálasaga hans síðustu
áratugina er ekki til þess fallin að laða
aðra flokka til samstarfs við hann. Það
eru verk Sjálfstæðisflokksins, að stefna
núverandi ríkisstjórnar er komin í
strand. Og þó að Sjálfstæðisflokkurinn
lýsi sig nú reiðubúinn til að endurskoða
afstöðu sína og taka á ný upji samninga
við Framsóknarflokkinn um lausn á
efnahagsörðugleikunum, er það skoðun
Framsóknarflokksins að ráðstafanir, sem
að halda mega koma og sem verður að
gera, verði ekki gerðar í samráði eða
samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn. —
Þess vegna var það einróma álit flokksþingsins,
að Framsóknarmenn ættu nú þegar að beita sér
: yrir nýju stjórnarsamstarfi, sem nyti fyllsta trausts
og stuðnings hins vinnandi fólks í landinu. í hinni
glöggu og skorinorðu stjórnmálayfirlýaingu, sem
lokksþingið samþykkti einróma, segir svo um þetta
atriði:
„Það er skoðun flokksþingsins, að með öllu sé
overjandi, að landsmenn bíði að&erðarlausir á
stjórnmálasviðinu í því stundarhléi, sem nú kann
að verða vegna ráðstafana þeirra, sem gerðar hafa
verið til bráðabirgða til þess að koma í veg íyrir
stöðvun framleiðslunnar. Þvert á móti telur flokks-
þingið skylt að'horfast í augu við erfiðleika kom-
andi tíma. Telur flokksþingið óhjákvæmilegt og
ijálfsagt, að Framsóknarflokkurinn beiti sér nú
oegar fyrir því að komið verði á nýju stjórnmála-
■amstarfi til lausnar þeim mikla vanda, sem fram-
undan er, og afla slíku samstarfi nægilegs fylgis
meðal þjóðarinnar. Framsóknarflokkurinn er enn
sem fyrr þeirrar skoðunar, að þess sé ekki að
vænta, að jafnvægi náist til fraipbúðar í þjóðarbú-
skapnum og að grundvöllur verði lagður að öruggri
íramíarastefnu, nema því aðeins að hinar vinnandi
stéttir við sjávarsíðuna eigi sinn eðlilega þátt í því
að móta stjórnarstefnuna og bera ábyrgð á henni.
Til þess að svo megi verða, þarf að koma í veg
íyrir, að sérhagsmunastefna hinna ráðandi afla i
Sjálfstæðisflokknum haíi áhrif á stjórnarfarið og
hnekki sundrungaröflunum í landinu. Það þarf að
styrkja þriðja aflið í íslenzkum stjórnmálum, fylk-
ingu frjálslyndra umbótamanna og félagshyggju-
manna í sveit og við sjó, en vinna bug á íhaldi og
kommúnistískri trú á erlend máttarvöld. Sjálfstæði
bjóðarinnar og eínahagsöryggi er undir því komið,
að þriðja aflið verði ráðandi, að takast megi með
samstilltu átaki að koma á samfylkingu alþýðu-
stétianna í sveit og við sjó til þess að stjórna land-
inu af ráðdeild með hag heildarinnar fyrir augum.
Sú samfyíking verður að geta sýnt sundrunar- og
klofningsm.nnum fram á, að gálauslegt íramíetði
þeirra verði ekki lengur þolað af
alþýðu landsins."
FLOKKSÞINGIÐ hefur þannig
skýrt og ótvírætt markað stefnu
Framsóknarflokksins. Það lýsti
yfir sem eindregnum vilja sínum,
að núverandi stjórnarsamstarfi
skyldi slitið svo fljótt sem kostur
væri og efnt skyldi til kosninga á
næsta sumri. Eftir þeim kosning-
um bíður nú öll þjóðin með mik-
illi eftirvæntingu, sumir og all-
margir uggandi um sinn hag,ef svo
skyldi fara, að nú væri loks
hnekkt ógnarvaldi Ihaldsins. Til
þess horfir nú auðvaldið og brask-
aralýðurinn meS lítilli gleði. Á
hinn bóginn sér alþýðan í landinu
nú rofa fyrir nýjum degi í stjórn-
málasögunni, eftir þessu tækifæri'
hefur verið beðið um margra ára
skeið, að takast mætti að þoka
umbótaöflunum nær hvort öðru
v'
og fá þau til að leggjast á eitt 1
átökum sínum í stað þess að toga
hvert á móti öðru. Ollum er ljóst,
að framundan eru hörð átök, og
þungu hlassi verður að velta, það
eru sundrungaröflin. En alþýð-
unni er ekkert um megn, ef hún er
sameinuð og einhuga. Verum þess
minnug, að í þessum átökum get-
ur munað um framlag hins veik-
asta og smæsta. Láti nú enginn
sitt eftir liggja til að tryggja hinni
væntanlegu samfylkingu umbóta-
aflanna glæsilegan sigur og starfs-
frið á komandi árum.
Atvinnuhúsnæði
Til söln ei' húsnæði fyrir verzlun eða iðnað á góðum
stað í bænurn. — Nánari upplýsingar gefur
GUÐMUNDUR SKAFTASON, hdl.,
Brekkugötu 14 — Sími 1036.
Viðtalstími kl. 5.30—7.
GÓLFTEPPIN
eru komin. Nýir litir, ný munstur, nýjar stærðir.
Pantanir óskast sóttar sent fyrst.
AMAROBÚÐIN.
Unglingsstúlka
með gagnfræðaskólaprófi getur komizt að sem nemandi
í tannsmfði. — Upplýsingar á tannlækningastofunni í
Hafnarstræti 101.
BALDVIN RINGSTED, tmmlœknir.
TIL SÖLU
er 6 manna fólksbifreið sem
liefur stöðvarpláss. — Til
greina geta komið skipti á
góðum sendiferðabíl.
Uppl. i símn 1741.
Stúlka
óskast í tvo mánuði í eldlnis
heimavistar Menntaskólans.
Upplýsingar hjá ráðskon-
unni í síma 2386.
Úrval af
PARKER lindarpenn-
um og kúlupennum
tJBckouerj.lu/i
\.$unnUuigú Tryggva
DANSLEIKUR
verður haldinn í Alþýðuhtis-
inu fimmtudaginn 22. marz
og hefst kl. 21. Böggiauppboð.
Kvcnjélngið Bnldursbrn.
STULKA
óskast til afgreiðslustarfa i
sérverzlun í miðbænum.
Uppl. í simn 1580.
kl. 1-6 e. h.
Hljóðbylgju-þvottafæki
TIL SÖLU. Selst ódýrt.
Afgr. visnr d.
Geymslupláss
í góðum kjallara til leigu í
Brekkugöíu 6.
Upplýsingar í síma 1812.
Til fermingargjafa:
KOMMÓÐUR
SAUMABORÐ
SKRIFBORÐ
RÚMFATASKÁPAR
BÓKASKÁPAR
DÍVANAR
DÍVANTEPPI
O. M. FL.
Bólstruð húsgögn h.f.
Hafnarstrceti 88. Sími 1491.
Munið SANA SOL og
FINDUS barnamatinn
O. C. rHOPARENSEN ;
. tfAFN Af* T I yc>H -‘-SI
Börn og svefn
í bandaríska blaðinu „Parents’ Magazine“ birtist
fyrir nokkru alllöng grein um börn og svefn. Þetta
er mál, sem alla foreldra varðar, hvar sem þeir eru
búsettir, svo að ekki er úr vegi að birta nokkur atriði
úr greininni, en hún er eingöngu spurningar og svör.
„Er mikill svefn nauðsynlegur heilsu barnsins?"
er fyrst spurt.
Auðvitað er öllum ljóst, að svarið hlýtur að vera
já, en það er á hinn bóginn fullyrt, að öll börn þurfi
ekki að sofa jafnlengi, svefnþörfin sé mjög mis-
munandi.
—o—
„Er það rétt, að svefnvenjur barnsins breytist á
vissum aldri?“
Hér er einnig svarað játandi. Á vissum tímabilum
getur það t. d. komið fyrir, að þó að barnið detti út
af eins fljótt og áður, þá vaknar það brátt aftur og
vill fara að leika sér. Þetta getur átt sér ýmsar or-
sakir. Það getur t. d. staðið í sambandi við vöxt
barnsins og verið því ósköp eðlilegt, en það getur
líka stafað af hungri, þorsta eða óþægilegum nátt-
fötum, rúmið getur verið of hart, barnið getur hafa
borðað of mikið undir svefninn eða það þarf bara að
fara á koppinn sinn. Svo getur líka einhverjum barna-
sjúkdómi verið um að kenna.
„Hvað eiga foreldrar að gera, þegar barnið vaknar
og streitist í móti, þegar leggja á það á lcoddann
aftur?“
Bezt er að reyna að finna orsökina og vinna bug
á henni, er svarið. En það á alls ekki að skammast
eða refsa barninu á neinn hátt. Gjarnan má leyfa því
að sitja uppi í hélftima eða svo, en gæta verður þess,
að tími þessi verði ekki fullur æsinga, og ekki má
stund þessi heldur verða svo skemmtileg, að barnið
fái löngun til þess að vakna svona næsta kvöld. Leyf-
ið því að velja sér eitthvað leikfang í rúmið á kvöld-
in, og slökkvið ekki ljósið á ganginum, ef barnið bið-
ur um að láta það loga. Ekki er með þessu sagt, að
þannig eigi að fara að við öll börn, því að þau eru
svo misjöfn í eðli sínu og háttum. Aðalatriðið er að
forðast æsingar. Foreldrar geta róað sig með því, að
langfest börn sofa óreglulega einhver skeið æsku
sinnar.
„Hvers vegna velta sum börn sér og snúa sífellt í
rúminu og tala og jafnvel gráta í svefni?“
Hvaða barn, sem er, getur sofið órólega og látið
illa í svefni við og við. Venjulegast er það tákn þess,
að mjög mikið hefur v.erið amstrað og hamast um
daginn og hugurinn verið í uppnámi. Barnið segir
stundum orð og setningar, sem gefa til kynna, að það
er að lifa aftur einhverja atburði dagsins. En sofi
barn órólegum svefni um langt skeið, er sjálfsagt að
láta rannsaka, hvort ekki liggja til þess alvarlegri
orsakir.
—o—-
í greininni er foreldrum ráðlagt að „gera eitthvað
fyrir“ stundina á undan háttatímanum. Hér er átt við
það, að gott sé að róa börnin fyrir svefninn, Gott er
að segja sögu, helzt einhverja, sem barnið kannast
við, og syngja barnavísur, svo að ró og friður verði
ríkjandi, þegar fara á í háttinn.
Síðast er spurt: „Á að hátta barnið á sama tíma á
hverju kvöldi?“
Því er svarað til, að beztu svefnvenjurnar fáist
með því að hátta ætíð á sama tíma. Lítil börn skilji
ekki, þegar þau fá að vaka lengi fram eftir eitthvert
kvöld, en þurfa svo að fara eldsnemma í háttinn
kvöldið eftir.
Það er ekki hægt að þvinga neitt barn til þess
að sofa. Barsmíðar og ávítur æsa barnið til þess að
berjast á móti svefninum en róleg gleði á heim-
ilinu hefur það venjulega í för með sér, að vanda-
mál þessi hverfa sem dögg fyrir sólu.