Dagur - 21.03.1956, Blaðsíða 8
8
0
Bagijr
Verkamaðurinn einn á báfi
Blaðið Verkamaðurinn á Akur-
eyri rær einn á báti. Hefur það
um tíma tekið upp þá stefnu í
fréttaflutningi, sem orðirt er úrelt
í blaðaheiminum, og ekki þykir
sæmandi að bera á borð fyrir
venjulegt fólk. Ruglar það saman
fréttum og ósmekklegum áróðri
og segir enga frétt til enda án
þess að uppnefna með ógeðslegu
orðbragði einhvern eða eirthverja
sýnilega eða ósýnilega óvini. Þá
hefur blaðið hrópað á hjálp og
heimtað að önnur blöð bæjarins
skrifi um hirt og þessi tiltekin mál
og umfram allt hneykslismál eins
og Kópavogsmálið.
I sambandi við fréttaflutning
blaðsins er til dæmis þessi klausa
orðrétt tekin úr 9. tbl. Verka-
mannsins, þar sem blaðið flytur
fregn af fundi Framsóknarmanna
í Landsbankahúsinu, þar sem
mættur var skipulagsstjóri flokks-
ins, prófessor Olafur Jóhannesson:
„Leitaði einn af þessum hernáms-
dindlum hingað norður í skaut
KEA-íhaldsins og galaði yfir
nokkrum hænum uppi undir þaki
Landsbankans.“
Um stórhríðarmótið svokallaða
á Akureýri farast Verkamannin-
um þannig orð í frétt af mótinu:
„Stórhríðarmót Akureyrar var
háð um sl. helgi. Voru þar sett
þessi heimsmet: 21 keppendi, 1
starfsmaður — og enginn áhorf-
andi. Veður var ágætt.
Stjórnmálaflokkarnir hafa unn-
ið kappsamlega að því um margra
ára skeið að troða glæpakvik-
myndum og glæparitum, vitanlega
aðallega amerískum (austan tjalds
eru slíkar myndir og slík rit bönn-
uð) í börn og unglinga.
Til viðbótar hefur svo verið
lagt kapp á að gera þá að dellu-
sjúkum brids-spilurum og hafa
stjórnarflokkarnir einnig þar for-
ustuna.
„Heimsmetin“ á stórhríðarmót-
inu er aðeins einn árangurinn af
uppeldisstarfi og menningará-
standi stjórnarflokkanna.
Allir skólastjórar og íþrótta-
kennarar bæjarins virðast annað
hvort ekkert sjá né ekkert skilja
eða þeir, og ekki er það betra,
halda vísvitandi að sér höndum og
hanga í rófunni á útfararlest aftur-
haldsins.“
Það er vissulega sorglegt að til
skuli vera íslenzkt blað, sem telur
sér hag að slíkum „fréttaflutn-
ingi“.
Enn er að minnast á greinar-
kom um byggingu hraðfrystihúss-
ins í 10. tbl. sama blaðs. Þar er
hrúgað saman getsökum og fúk-
yrðum um „andstæðingana".
Verkamanninufn væri hollt að
hugleiða að nýja hraðfrystihúsið
er ekki mál einstaklings eða
flokks, heldur allra bæjarbúa
og Norðlendinga. Ekkert nema
úlfúð, tortryggni og blekkingar,
Aðallundur Skógræktarfél. Ey-
firðinga verður í íþróttahúsi Akur-
eyrar — fundarsalnum — sunnud.
25. þ. m. og hefst kl. 2 e. h.
getur tafið framgang þess. Á með-
an eitthvert bæjarblað hefur ekki
annað til málanna að leggja, væri
vissulega betra fyrir það að fást
við önnur verkefni.
Öfug leikfimi í gamni
og alvöru
Eitt af skemmtiatriðum skóla-
barna á Akureyri var öfug leik-
fimi og þótti góð skemmtun. Börn-
in höfðu grímur á hnakkanum og
sneru þeim að áhorfendum á
meðan þau léku listir sínar.
Raskað var þriggja ára grafarró
Stalins sáluga, hins mikla foringja
og félaga, ástmögs hinna hrjáðu
og fátæku, hins heittelskaða, hug-
umstóra leiðtoga þjóðanna og höf-
undar nýs lífs á jörðu, svosemlesa
mátti í nær hverju blaði kommún-
isa, ekki sízt „útvarðanna" á norð-
urslóðum. En til þess að vera „á
línunni“ byrjuðu íslenzkir komm-
únistar að rifa niður veggmyndir
af Stalin, jafnskjótt og líkneskj-
urnar voru höggnar niður að fyr-
irmælum núverandi valdhafa í
ausrti. Veggurinn stóð auður, þar
sem áður var mænt og beðið og
styrkri stoð kippt undan hinum
andlega þrótti kommúnista. En út
yfir tók þó ræðan sem Krusjeff
flutti á flokksþingi í Moskvu og
lýsti yfir að á árunum 1936—
1938 hafi Stalin m. a. látið aflífa 5
þúsundir herforingja og fjölda
annarra yfirmanna hersins, og að
hann hafi verið geðbilaður fjölda-
morðingi og haldinn brjálæðis-
kenndu ofsóknarærði, sem hvorki
gaf konum né börnum grið.
Allt er þetta heldur tormelt fyr-
ir kommúnistana hér og hafa þeir
þó fyrr gleypt stóra bita.
Andstreymi hafa kommúnistar
mætt á ýmsan veg og t. d. tekið
sér íhaldið til fyrirmyndar þegar
fast hefur að sorfið, breytt yfir
nafn og númer og málað nýtt. Nú
hafa kommúnistar enn einu sinni
tekið upp þennan sið og ætla að
bjóða fram við næstu alþingis-
kosningar undir nýju nafni. Minn-
ir þetta óneitanlega á skólabörnin
á Akureyri, sem skemmtu bæjar-
búum um helgina með því að setja
á sig grírnur og hafa þær í hrtakk-
anum. Munurinn er bara sá, að
börnin voru að leika og gerðu það
vel, en kommúnistar eru að
blekkja.
Miðvikudaginn 21. marz 1956
Rétt er að upplýsa, að á
umræddum íundi mættu
flest 12 menn og nefnd til-
laga, sem borin var fram af
Jónasi Kristjánssyni kaup-
manni, var samþykkt með 3
atkvæðum-
Stóru fréttirnar
Þjóðviljinn vandar ekki
fréttaflutninginn um þessar
mundir. — I blaðinu í gær
birti hann fréttir af fundi í
Borgarnesi og segir, að þar
hafi verið samþykkt ein-
róma að lýsa stuðningi við
þá ákvörðun stjómar Al-
þýðusambands íslands, að
það sem slíkt bjóði fram
við næstu kosningar o. s.
frv.
Kemur því kunnugum
undarlega fyrir sjónir sú
feitletraða frétt með hvorki
meira eða minna en tvö-
faldri þriggja dálka fyrir-
sögn á útformi blaðsins, er
blaðið vill liugga lesendur
sína með.
Verður fróðlegt að vita,
hvernig Þjóðviljinn mat-
reiðir fundahöld Hannibals
á Akureyri. Hitt er óhætt
að fullyrða nú þegar, að
hin nýja blekkingatilraun
kommúnista hefur minna
fylgi hér en búizt var við.
Nemandi úr 5. bekk Menntaskólans á Akureyri, Anna Katrín
Emilsdóttir frá Seyðisfirði, hefur dvalið vestan hafs síðan um
áramót. — Vann hún verðlaun í ritgerðasamkeppni um
,,Heimurinn, eins og eg vildi að hann væri“. — Hér sést Anna
ásamt skólafélögum sínum, lengst til vinstri. Hún mun koma
innan skamms og halda áfram námi.
ERFIÐUR ROÐUR.
I gærkvöldi hélt Hannibal
Valdimarsson íund með fulltrúum
verkalýðsfélaga um hið nýja
kosningabrölt kommúnista. Mætti
hann harðri mótspyrnu.
Frá Golfklúbbnum
Aðalfundur Golfklúbbs Akur-
eyrar var haldinn sunnudaginn 26.
febrúar að Hótel KEA.
I stjóm voru kosnir:
Hlaut verðlaun í ritgerðasamkeppni
Skorar á stjórn ASÍ ú hverfa frá
þessum vanhugsuðu áformum
Stefán Árnason, formaður.
Sigurbjörn Bjarnason, ritari.
Sigtryggur Júlíusson, gjaldkeri.
Hafliði Guðmundsson og Hall-
dór Helgason, meðstjórnendúr.
Rædd voru mörg mál og mikill
áhugi ríkir.
Stjórn Alþýðusambands Vestfjarða samþykkti í gær harð-
orð mótmæli gegn kosningasamstarfi því, sem Alþýðusam-
band Islands hyggst efna til og fer samþykktin hér á eftir:
„I tilefni af samþykkt sambandsstjórnar Alþýðusambands
Islands um „að koma á fót kosningasamtökum allra þeina
vinstri manna, sem saman vilja standa á grundvelii stefnuyf-
irlýsingar Alþýðusambandsins“, samþykkir stjórn Alþýðu-
bands Vestfjarða að mótmæla harðlega slíkum áformum.
Sjóm ASV byggir þessi mótmæli sín m. a. á eítirgreindum
staðieyndum:
1) Sambandsstjórn Alþýðusambands íslands brestur heim-
ild til að gera samþykkt um kosningasamtök og framboð án
fyrirfram fenginnar heimildar frá meðlimum samtakanna.
2) Viðræður fulltrúa Alþýðusambands íslands við vinstri
flokkana hafa ótvírætt leitt í ljós, að enginnágreiningurerum
stefnuyfirlýsingu Alþýðusambandsins er fyrir hendi þeirra á
milli.
Af framansögðu er augljóst, að væntanleg kosningabanda-
lög vinstri flokkanna eða hver þeirra um sig, munu beita sér
fyrir því, að ný stjómarstefna, grundvölluð á stefnuyfirlýs-
ingu Alþýðusambands íslands, verði upp tekin.
3) Þar sem fyrir liggur, að um víðtæka sameiningu eða
kosningabandalag allra vinstri flokkanna er ekki að ræða enn
sem komið er, mun þessi ákvörðun sambandsstjómarinnar
einungis auka á pólitíska sundmng vinstri aflanna, en verður
hins vegar vatn á myllu afturhaldsins og gæti leitt til þess
eins að tryggja því áframlialdandi völd og yfirráð í þjóðfélag-
inu.
4) Þessi ákvörðun mun óhjákvæmilega, eins og málum er
nú háttað, innleiða í heildarsamtökin ágreining og deilur og
þar með spilla nauðsynlegu samstarfi þeiiæa aðila, sem einir
eru færir um að stjórna Alþýðusambandi íslands til hagsbóta
fyrir alþýðu landsins.
Af framangreindum ástæðum skorar stjóm Alþýðusam-
bands Vestfjarða eindregið á miðstjórn Alþýðusambands ís-
lands að hverfa frá þessum vanliugsuðu kosningasamtaka-
áformum.“
Burt með sultinn!
I nýútkomnum „Verkstjóran-
um“, blaði Verkstjórasambands ís-
lands, birtist grein eftir Helga
Tómasson yfirlækni. Þar segir
hann m. a., að það sé „óhyggilegt
að láta liða meira en 3 klukku-
tíma milli þess, að menn láti eitt-
hvað ofan í sig“, vegna þess að
svengdartilfinningin trufli tví-
mælalaust vinnuafköst.
Ættu ekki vinnuveitendur að
taka þetta til athugunar?
Friðrik og Ilivitski
gerðu jafntefli
Sjötta umferð á Guðjónsmótinu
var tefld í fyrrakvöld. Friðrik ÓI-
afsson og Ilivitski sömdu jafntefli
eftir 22 leiki, og einnig Jón Þor-
steinsson og Sveinn Kristjánsson.
— Aðrar skákir fóru í bið. Tai-
manov hafði hvitt gegn Gunnari
Gunnarssyni og átti peði meira en
skákin fór í bið, en Gunnar hafði
nokkra jafrtteflismöguleika.
Eftir þessa umferð er Friðrik
efstur með 5 og hálfan vinning,
Ilivitski 5 vinninga og Taimanov
4 og hálfan og eina biðskák. Aðrir
keppendur hafa mun færri vinn-
inga.