Dagur - 25.04.1956, Blaðsíða 1
12 SÍÐUR
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagur
DAGUR
kemur næst út fimmtu-
daginn 3. maí.
XXXIX. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 25. apríl 1956
22. tbl.
Myndin, sem hér íylgir er af fremur sjaldséðu farartæki. Þetta
er snjóbíll, framleiddur í Canada, en eigendur eru Mjólkur-
samlag K. J>. og Kaupfélag Þingeyinga, Húsavík. Hann er
eingöngu ætlaður til vöruflutninga og getur borið ll/> tonn
af vörum og dregið 1 \/, tonn á vagni eða sleða. Ætlunin er
svo að láta smíða hjólasleða, sérstakiega miðaðan við þetta
farar tæki. — Sama gerð af snjóbíl er til á Seyðisfirði og hefur
liann reynzt vel, að því er fréttir herma. — Þessi nýi snjóbíll
er fyrst og fremst ætlaður til mjólkurflutninga þegar snjór
teppir bílaleiðir.
Jóhann Frímann skólasfjóri
heiSraður í samsæti að Hófel KEA
Iðnaðarmannafélág Akureyrar
hélt Jóhanni Frímann skólastjóra
samsæti 21. þ. m. að Hótel KEA.
'l'ileínið var 25 ára starfsafmæli
Jóhanns sem Skólástjóra Iðnskóla
Akureyrar, en Iðnskólinn á Akur-
eyri er nú 50 ára.
A síðastliðnu hausti tók ríki og
bær við skólanum, og eru því þátta-
skil í sögu hans um þessar mundir.
Iðnaðarmannafélagið færði heið-
ursgestinum fagran skrifborðslampa
úr íslenzkum steini, mjög haglega
gerðan af Arsæli Magnússyni.
Margar ræður voru fluttar, og
báru þær vott um vinsældir Jó-
hanns Frímanns, hins þekkta og
gáfaða skólamanns.
Núverandi skólastjóri Iðnskólans
er Jón Sigurgeirsson.
Hvað um sfrætisvðguana?
Strætisvagnar á Akureyri eru
þegar orðnir nátengdir lífi og
starfi bæjarbúa. Reynslan hefur
sýnt að þeirra er full þörf og fólk-
ið vill ekki og getur tæpast án
þeirra verið.
En eins og áður hefur verið sagt
frá hér í blaðinu, er leigusamning-
urinn við Norðurleið h.f. útrunn-
inn 1. maí og þá verða vagnarnir
af okkur teknir, samkvæmt samn-
ingi þar um.
v,Yfirdómarimi“
Kvenfélagið Hjálpin í Saur-
bæjarhreppi sýnir leikritið Yf-
irdómarann eftir Tómas Jón-
asson í Sólgarði um þéssar
mundir. Aðsókn er mjög mik-
il og leiknum ágætlega tekið.
Leikdómur varð of síðbúinn í
þetta blað, en marga mun fýsa
að sjá Eyfirðingana á leiksviði
að Sólgarði.
Leikurinn verður cýndur n.
k. laugardags- og sunnudags-
kvöld.
Ætlunin var að nýjir vagnar
yrðu þá komnir. Hlutafélag átti að
stofna um kaup á þeim og rekstur
þeirra. En það drógst lengi að fá
leyfi fyrir nýjan strætisvagn, en er
nú loksins fengið. Búast má við að
strætisvagnar verði ekki starf-
ræktir um mánaðartíma, þar sem
fyrirsjáanlegt er að nýji vagninn
kemur ekki fyrr en úrmiðjumjúní.
Þó er séð að strætisvagnar
verða ekki lagðir niður og mun
það marga gleðja. Einnig er búizt
við að annar vagn verði fenginn
síðar í sumar.
Stofnun hlutafélags, um strætis-
vagna á Akureyri, hefur dregist ,á
meðan allt var í óvissu um leyfi.
Nú mun hlutafélagið verða stofn-
að og bera nafnið Strætisvagnar
Akureyrar h.f.
Gefin verða út hlutabréf, 200,
500 og 1000 krónur að upphæð.
Er þess vænst að sem flestir kaupi
bréf þessi og geri þar með kleyft
að borgarar i bænum, er þessa
þjónustu þurfa, geti notið hennar
og átt kost á farartækjum af full-
komnustu gerðum.
Tunnuverksmiðjan á Akureyri
rúmlega 33 þúsund tunnum
skilaði
í vetur
Þjóðvarnarfélag
fyrir Eyjafjarðarsýslu er ný-
lega stofnað. Gekk fæðingin
erfiðlega, því að fundar-
sókn var treg. I annarri til-
raun tókst þó félagsstofnun-
in á 8 manna fundi. Ekki er
vitað hvort stjórnina skipa
5 eða 7 menn. Hitt er vitað
að nokkrir Þjóðvarnar-
menn hafa kvatt flokkinn.
Formaður er Jón Kjartans-
son, Pálmholti.
„Sjálfan mig seð ég fyrst
og síðan náungann44
Ólafur Thors, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, sagði í ræðu á
nýafstöðnu flokksþingi: „Við berj-
umst fyrir hagsmunum okkar
sjálfra, flokks okkar og þjóðar.“
Allt var þetta í réttri röð hjá
formanninum og í fullu samræmi
við stefnu braskaranna. Þeir gætu
líka auðveldlega tekið sér í munn
vísupartinn: „Sjálfan mig seð eg
fyrst“ o. s. frv. Svo getur náung-
inn fengið afganginn, ef eitthvað
yrði eftir.
Tunnuhlaðar minna á síld og sumar
Tunnuverksmiðjan á Akureyri lauk störfum 14. apríl og
hafði þá starfað frá 2. janúar í vetur. Stóri tunnustaflinn, sem
sífellt várð stærri og stærri, minnir á síld og surnar, atvinnu
og peninga, allt saman dásamlega hluti og eftirsóknarverða.
Við vonum að þessar tunnur verði fullar af síld í sumar og
vio trúum því að minnsta kosti að margar vonir rætist, bæði
í sambandi við ævintýrafiskinn og margar aðrar vonir, er í
bi jósti bærast við vetrarlok og sumarkomu.
Síðasti vinnudagur.
Síðasta vinnudag verksmiðjunn-
ar var skroppið þangað til að sjá
vinnandi hendur og vélar og fá
Aðalfundur F.U.F,
Aðalfundur Félags ungra
Framsóknarmanna á Akur-
eyri verður lialdinn næstk.
sunnudag kl. 5 síðdegis á
skrifstofu Framsóknarfl. á
Hótel Goðafoss.
Stefán Árnason
frá Dalvík vann víðavangs-
hlaup I. R. í Reykjavík fyrsta
sumardag. Meðal keppenda
voru Kristján Jóhannsson og
Svavar Markússon.
Aðólf Jónatansson við
laggavélina.
upplýsingar um eitt og annað við-
komandi þessu fyrirtæki. I verk-
smiðjunni hafa starfað 34 menn
við ýmis störf á þessu tímabili.
Þar er búið að smíða 33170 tunn-
ur, sem öllum er hlaðið í einn
stafla ,sunnan við verksmiðjuhús-
ið við Höpfnersbryggju.
Kurl á gólfi, viðarilmur í
lofti.
Inni er ys og þys. Margir menn
að verki, vélar í gangi, stynjandiog
starfandi, spænir og kurl á gólfi og
loftið mettað viðarilmi. Björn Ein-
arsson, sem verið hefur verkstjóri
síðan 1949, veitir góðfúslega allar
umbeðnar upplýsingar. Efnið, sem
unnið var úr í vetur, átti að nægja
í 35 þús. tunnur, en töluvert gekk
frá, eins og jafnan vill verða. —
Þrátt fyrir það er búið að smíða
fleiri tunnur á þessum vetri en
nokkru sinni áður. I fyrra seldust
allar tunnur, samtals 26 þús., og ef
síldveiðin hefði staðið nokkrum
dögum lengur, hefði orðið tunnu-
skortur.
Minna á notalegan ilm
verstöðvanna.
Tunnur þær, sem smíðaðar eru
hér á Akureyri, eru fyrst og fremst
ætlaðar verstöðvum við Eyjafjörð
og Skjálfanda. Komið hefur þó
fyrir að þær hafa verið fluttar til
Síðustu tunnumar settar í tunnuhlaðann.
Bernharð Helgason, beykir.
Raufarhafnar. En það er dýr
flutningur. Annars flytja stórir
flutningabílar ínikið magn af tunn-
um í hverri ferð. Þessi flutningur
er svo sem ekkert fallegur á að
| Hta. En í hvert sinn að tunnubill
| ekur hjá, er sem andrúmsloftið
blandist hinni velþekktu og nota-
! iegu angan síldarverstöðvarma.
Verða að hvítum tunnum.
í Tunnuverksmiðjunni er margt
véla, sem ókunnugir vita ekki nöfn
eða nein deili á. Margar vélar eru
(Framhald á 11. síðu).